Færsluflokkur: Evrópumál

Áróðursbréf rússnesku Dúmunnar hótar stríði í allri Evrópu

russian-parliament-state-duma.jpg.htmlEUbloggen upplýsir um bréf sem forseti rússnesku dúmunnar (þingsins) S.J. Naryshkin skrifaði dags. 23. jan. m.a. til þingmanna Evrópuþingsins og þingmanna allra Evrópuríkja með ákalli þingmanna rússnesku dúmunnar um að stöðva þá kreppu sem "þegar hefur orsakað harmleik og eyðileggingu í Suðaustur-Úkraínu og setur möguleika á lífi í friði í hættu fyrir 800 miljónir Evrópubúa." Að sögn EUbloggen barst bréfið til Svíþjóðar frá rússneska sendiráðinu í Stokkhólmi og er liður í áróðursherferð Rússa út um allan hinn vestræna heim.

Bréfið lýsir fyrri stórverkum Sovéttímans og afmælis sigurs Bandamanna yfir nazismanum og Hitler í seinni heimsstyrjöldinni og dregur upp mynd Rússa af yfirvofandi stórstyrjöld í náinni framtíð og ákalli um "samstöðu": " Við hvetjum ykkur heiðvirtu samstarfsmenn að skilja í hvaða stöðu heimurinn er kominn á sjötugasta afmælisdegi Sigursins og gera allt sem er mögulegt til að 2015 verði ekki ár af átökum og aðskilnaði heldur enduruppbyggingu trausts og sameiginlegs átaks fyrir sameinaða andfasíska og örugga Evrópu."

thumbsKerstin Lundgren talsmaður Miðflokks Svíþjóðar í utanríkismálum segir um bréfið að það sýni hversu fastir þingmenn Dúmunnar sitja í Pútínbólunni. "Það óhuggulega er, þegar þeir byrja að trúa eigin áróðri og sjá drauga sem ekki eru til." 

Bréfið á sænsku: Rysslands Statsdumas Vädjan februari 2015


mbl.is Allt Vesturlöndum að kenna segir Pútín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vopnahlé eða heimsstyrjöld?

atomSkilaboð dagsins er, að nýr fundur Angelu Merkel kanslara Þýzkalands, Francois Hollande Frakklandsforseta og Petró Pórósjenkó forseta Úkraínu með Vladimir Pútín forseta Rússlands verði haldinn í borginni Minsk í Hvíta Rússlandi á miðvikudag. Þar verður gerð úrslitatilraun til að fá forseta Rússlands til að fallast á friðarumleitanir aðallega Þýzkalands og Frakklands. Á sama tíma auka aðskilnaðarsinnar bardaga og sækja fram í Úkraínu. Í sjónvarpsviðtali eftir fundinn í dag sagði Valdimir Pútín, að fundurinn í Minsk verði einungis haldinn ef Vesturveldin samþykki fimm liða kröfur sem Rússland vill fá samþykktar til að mæta á fundinn. Pútin útskýrði ekki hverjar kröfurnar væru en sagði að þær hefðu verið mikið ræddar síðustu daga.

Philip Breedlove æðsti yfirmaður NATO sagði á laugardag að hernaðarbandalagið íhugi "hernaðarlega valkosti" til að leysa Úkraínukreppuna. Hann forkastaði friðartillögum Vladimir Pútins sem "algjörlega ósamþykkjanlegum."

Angela Merkel kanslari Þýzkalands flaug eftir fundinn með Pútín til Bandaríkjanna til viðtals við Obama Bandaríkjaforseta. Utanríkisráðherra Breta Philip Hammond sagði, að fundurinn í Minsk væri síðasti möguleiki Vladímír Pútíns forseta Rússlands til að komast hjá fleiri viðskiptaþvingunum. Hann var harðorður í garð Pútíns í sjónvarpsræðu í dag og ásakar Pútín fyrir að færa heiminn aldir aftur í tímann með hertöku á landssvæði sjálfstæðs ríkis á tuttugustu og fyrstu öldinni."Svona höguðu einræðisherrar sér á miðri tuttugustu öldinni."

Gudrun Persson Rússlandssérfræðingur hjá rannsóknardeild Varnarmálastofnunar sænska hersins segir, að ástandið í Evrópu sé orðið afar eldfimt og það að fólk byrji að spyrja spurningar um nýja heimsstyrjöld sýni hversu hættuleg staðan sé orðin. Gudrun segir, að afstaða Rússa sé að Úkraína tilheyri Rússlandi og þeir setji fram kröfu um að endurrita landamærin á kortum sem er brot á gildandi öryggisreglum í Evrópu. Rússland hefur byr undir báða vængi eftir innlimun Krímskagans og margir í vestri trúa að viðskiptaþvinganir Vesturvelda hafi haft áhrif.

Rússnesk yfirvöld segja við Rússa að Vesturveldin ráðist á Rússland og Rússar þurfi að verjast. Það er stefnan sem ræður og Rússar eru stilltir inn á að sameinast á erfiðri stundu til að verjast árás óvinarins. "Við vitnum ástand, þar sem innri skerðing tjáningarfrelsis og takmörkun leyfa til kröfugangna ásamt auknu ríkiseftirliti með Internet og fjölmiðlum í árásargjarnari ferli, allt stigmagnar þetta hvert annað og eykur styrkleikann. Þess vegna er ástandið svo hættulegt." 

Þýzka blaðið Frankfurter Allgemeiner hefur í dag eftir þýzkri öryggisstofnun, að allt að 50 þúsund manns hafi látið lífið í Úkraínustríðinu. Opinberar tölur tala um að 1200 hermenn og 5400 óbreyttra borgara hafi misst lífið. Síðustu tölur frá Sameinuðu þjóðunum eru 5.358 persónur. En skv. þýzkri öryggisstofnun má margfalda töluna með tíu.

 


mbl.is Hittast í Minsk á miðvikudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VIÐVÖRUN Frakklandsforseta: Ef okkur mistekst er staðan STRÍÐ

atombomer

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mörg stórveldi Vesturlanda með Þýzkalandi og Frakklandi í fararbroddi reyna nú til hins ítrasta að fá Pútín til að semja um frið í Úkraínu. En aðilar standa langt hver frá öðrum og eru duglegri í að flækja málin sem að endingu mun skapa stríð í fullum skala. Það eina sem heldur aftur af öðrum Vesturvöldum að senda vopn til Úkraínu er að fulltrúar Þýzkalands og Frakklands gera í dag trúlega síðustu tilraun til að binda endi á Úkraínustríðið.

Rússar fullyrða, að Nató hafi hermenn í Úkraínu og vitað er að Rússar sendu hermenn frá fyrstu stundu, þegar þeir tóku Krím, þótt reynt hafi verið að dylja í upphafi hverrar þjóðar hermennirnir voru. Sagan mun sýna, hvort þriðja heimsstyrjöldin hófst með innrás Rússa í Úkraínu og hertöku Krímar en ljóst er að sú aðgerð hefur kastað heiminum inn í þau átök sem nú er glímt við með svo dökkum framtíðarhorfum.

Í dag sunnudag mun endahnúturinn á núverandi samtölum með Pútín eiga sér stað með samtölum Angelu Merkels kanslara Þýzkalands, Francois Hollande Frakklandsforseta, Vladimír Pútíns forseta Rússlands och Petró Pórósjenkó forseta Úkraínu.

Hollande varaði við því í gær, "að ef okkur mistekst að ná varanlegu friðarsamkomulagi, þá vitum við vel hver staðan verður, hún hefur nafn, það kallast stríð" sagði Frakklandsforseti.

Fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar Carl Bildt segir í viðtali við Frankfurter Allgeimeine Zeitung að ekki sé lengur hægt að útiloka stórstyrjöld milli Vesturvelda og Rússlands.

Carolina Vendil Pallin yfirmaður Rússlandsmála hjá Varnarmálanefnd sænska hersins segir það "verða erfitt fyrir Pútín að bakka frá þeim loforðum sem hann hefur gefið fólkinu. Hann hefur sagt að hann muni aldrei afhenda Krím, sem er liður í að sameina rússneska fólkið og hann hefur lofað að vernda Rússa erlendis. Ekki meðborgara heldur Rússa.

Það er alvarlegt að vísa til sögulegrar nærveru sem ástæðu til að hertaka Krím, það oppnar leiðir fyrir önnur lönd með söguleg tengsl. Það er box sem enginn vill opna."

 

 

 


mbl.is „Tíminn að hlaupa frá okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örvæntingarfullt útspil Hollande og Merkel til að forða stórstyrjöld Nató og Rússa

Angela Merkel kanslari Þýzkalands og Francois Hollande Frakklandsforseti gerðu í dag örvæntingarfulla tilraun til að fá Vladimír Pútín forseta Rússlands til að yfirgefa þáttöku Rússa í stríðinu í Úkraínu. Skärmavbild 2015-02-06 kl. 23.59.06

Rússar neita allri þáttöku í stríðinu og segja það vera innanríkisstríð Úkraínubúa en hafa engu að síður hertekið Krím og eru með bæði herlið í Úkraínu og sjá aðskilnaðarsinnum í Úkraínu fyrir stórvirkum nútímavopnum.

Bæði Þýzkalandskanslarinn og forseti Frakklands reyna að koma í veg fyrir stigmögnun stríðsins en Bandaríkjamenn vilja styðja Úkraínu með nútíma vopnum til að fleiri rússneskir hermenn fari heim í líkpokum. Diplómatar óttast nú, að stríðið fari úr böndunum og ný stórstyrjöld sé í uppsiglingu milli Nató ríkjanna og Rússlands. Pútín styður kröfur aðskilnaðarsinna sem náð hafa stórum svæðum í Austur-Úkraínu á sitt vald og nota þá stöðu sem nýja viðmiðun í "friðarsamtölum" Vesturvelda við Pútín.

Nató styrkir hernaðarstöðu sína í grannríkjum Rússlands með fleiri hermönnum og vopnum og eru Rússar og Nató að undirbúa stórstyrjöld, sem draga mun ríki Austur-Evrópu og Eystrarsaltsríkin inn í stríðið. Skärmavbild 2015-02-06 kl. 23.59.23

Fyrir fundinn með Pútín áttu Merkel og Hollande 5 tíma fund með Petró Pórótjenkó forseta Úkraínu. Merkel og Hollande segja að hernaðarleg lausn deilunnar sé ekki fyrir hendi og hvetja til friðarumræðna deiluaðila til að leysa málin. En stríðið hefur þegar stigið fæti yfir stórstyrjaldarþröskuldinn sem þýðir sundurliðun Úkraínu, þar sem Austur-Úkraína lýtur yfirráðarsvæði Rússlands. Það munu Vesturveldin aldrei samþykkja svo stórstyrjöld er úrræðið til að skera úr um hverjum Úkraína á að tilheyra. Málið er komið á það stig að Vesturveldin gegnum Evrópusambandið eru orðin aðili stríðsins og með óútreiknanlegan Pútín handan víglínunnar eru mál öll þegar komin í ógöngur. Bæði Úkraína og Rússar riða á barmi gjaldþrots. Ein miljón manna eru á flótta. Mikilvægar samgönguæðar og byggingar eru eyðilagðar. Ríkisstjórn Rússlands heldur uppi gengdarlausum heilaþvotti á landsmönnum um að nazistar Evrópusambandsins og Bandaríkjanna séu að króa Rússa af og munu ráðast með herliðum sínum á landið.  

Klukkan er þrjár mínútur fyrir tólf sem er verri staða en nokkru sinni í kalda stríðinu, þegar hún varð fimm í tólf, þegar Kennedy stöðvaði eldflaugabyggingu Rússa á Kúbu. Sendiherra Rússa í París lýsir ástandinu þannig, að þetta sé "ekki síðasta tilraun til friðsamlegrar lausnar en samt mjög nálægt því."


mbl.is Reyna að fá Pútín til að skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB er spilafíkill - fleygir góðum peningum á eftir vondum

YanisFjármálaráðherra Grikkja, Yanis Vroufakis í viðtali við ZEIT ONLINE. 

Í viðtali við Zeit Online segir Yanis Vroufakis, fjármálaráðherra Grikkja, að "það taki nokkurn tíma  að fá skilning alls staðar á því, að mikil grundvallarbreyting hefur átt sér stað innan ESB."

Fjármálaráðherrann segir viðbúnað ekki hafi verið fyrir hendi vegna grísku kreppunnar og ákvarðanir, sem teknar voru, gerðu allt verra. "Núna er ESB með einkenni spilafíkils og hendir góðum peningum á eftir vondum. Við getum ekki sagt: Stopp! Gerðum við eitthvað rangt? Misskildum við ef til vill kreppuna?"

Þegar Zeit Online bendir á að tölur byrja að batna í Grikklandi segir Yanis: "Kannski ef þú lítur eingöngu á tölfræðilegar stærðir. En í raunveruleikanum fellur verðlag og tekjur minnka."

Yanis segir að mikilvægara sé að líta á fjármálahringi og skattleysi efnaðara Grikkja en sjá eftir 300 evra árlegri hækkun til ellilífeyrisþega sem lifa af 300 evrum á mánuði. "Af hverju er kílómetrinn af hraðbraut þrisvar sinnum dýrari hjá okkur en í Þýzkalandi?"

Gríska ríkisstjórnin athugar núna uppsagnir stórra hópa ríkisstarfsmanna. "Ef við endurráðum þetta fólk, þá er það vegna þess að lagalegan grundvöll að uppsögnum þeirra skorti."

"Að það hafi verið vegna peningaskorts sannfærir mig ekki. Til dæmis voru skólarnir rændir vegna þess að öryggisverðir misstu vinnuna. Er það skynsamlegur niðurskurður? Við látum öryggisverði fara og tölvum skólans er stolið að næturlagi." 


mbl.is Vill samkomulag fyrir lok maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórveldin brynjast, dauðinn herðir tökin á Úkraínutaum

dodÞróun stríðsins í Úkraínu er á leiðinni í nýjar hæðir. Báðar hliðar auka vopnaafl og mannlegt fallbyssufóður. New York Times segir, að heröfl í Bandaríkjunum breyti núna um viðhorf og sendi nú "dauðleg vopn" í stað ekki deyðandi hergagna til Úkraínu. Utanríkisráðherra USA John Karry mun koma til Úkraínu á fimmtudag og ræða við forseta Úkraínu um aðstoð Bandaríkjamanna við Úkraínuher, sem er illa farinn eftir stríð undangenginna daga. 

Aðskilnaðarsinnar í Dónetsk og Lúhansk kalla inn eitt hundrað þúsund manns í herinn og ætla að ná allri Dónetsk á sitt vald. Rússar styðja þá með vopnum og hermönnum.

Áform Bandaríkjanna að senda "alvöru" vopn virkar eins og bensín á eld á áróður Rússa um að Nató sé þáttakandi stríðsins og vilji umkringja Rússland. Nató bendir hins vegar á, að Rússar séu aðili að stríðinu sem Rússar afneita. Bendir Nató á, að vopnin sem notuð séu af aðskilnaðarsinnum í Dónetsk og Lúhansk séu svo hátæknileg, að aðskilnaðarsinnar skorti þekkingu og hæfni í notkun þeirra. Angela Merkel leggst gegn vopnaafhendingu Nató til Úkraínu. 

Verði áætlanir Bandaríkjamanna að raunveruleika dragast Eystrasaltslöndin og Pólland með í stríðið og hefja einnig vopnasendingar til Úkraínu. Þá er spurningin orðin um point of no return. Obeldið nær því stigi að ómögulegt verður að hafa uppi friðarumleitanir lengur. 

Hugsunin að baki vopnasendingu Bandaríkjamanna til Úkraínu er, að það verði "dýrkeyptara" fyrir Rússland að auka þáttöku í stríðinu. Það er lýsing á fleiri rússneskum hermönnum sem fá farið heim í líkpokanum.

(Byggt að hluta til á skilgreiningu Bo Inge Andersson hjá sænska sjónvarpinu)


Draugabílstjórinn Anti-Merkel er martröð Evrópu

original

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Der Spiegel getur vart hamið sig og uppnefnir Alexis Tsipras í nýjasta tölublaðinu. Draugabílstjórinn stendur skrifað með stórum stöfum þvert yfir framsíðuna. Fyrir ofan: Martröð Evrópu Alexis Tsipras.

Draumurinn um evruna sem hið nýja þýzka mark er brostinn. Við blasir martröðin, að Þýzkaland verði að fjármagna skuldir Grikkja sem enginn kjósandi í Þýzkalandi getur samþykkt. 

Söngurinn er byrjaður aftur: Grikkir eru latir, vilja lifa á öðrum, of heimskir til að geta unnið o.s.frv. Að gefa eftir ómögulegar skuldir til skuldasjúkra er ekki að tala um annars breytist Evrópa á augnabliki í allsherjar Kúbu. Leiðtogar ESB geta ómögulega sætt sig við niðurstöður lýðræðislegra kosninga, þar sem helmingur grísku þjóðarinnar hefur sameinast um að gefa Þríeykinu fingurinn og taka til baka stjórn á eigin málum. Evran sundrar gjörvallri Evrópu í andstæðar fylkingar sem er undanfari enn stærri illdeilna og átaka sem eins og svo oft áður rífa Evrópu á hol.

Greece_ElectionMynd frá stuðningsfundi Vinstri flokksins í Þýzkalandi við Alexis Tsipras formann Syriza. Á einu skilti stendur: "Þetta er virkilega Góða Nótt Frú Merkel!"

Allir eru ekki sammála hengingaról Þríeykisins og Frú Merkels.

NYT_Twitter_Krugman_400x400Paul Krugman skrifar í New York Times 26. jan. um samning Þríeykisins við Grikki 2010 um að Grikkir fái lán gegn niðurskurði ríkisgjalda og skattahækkunum: "Þetta er athyglisvert skjal, í allra verstu meiningu. Þríeykið, sem þóttist vera harðsnúið fylgjandi raunveruleikanum, seldi efnahagshugaróra. Og gríska fólkið hefur verið að greiða verðið fyrir þessar blekkingar elítunnar." 


Nigel-FarageNigel Farage skrifaði 30. jan. í Daily Express: "Það sem við héldum að við værum búin að vera að horfa á í sjö ár núna var gjaldfelling Grikklands. Í raun og veru höfum við horft á Grikkland breytast í vanþróað ríki beint fyrir framan augun á okkur. Við erum komin í störukeppni um það hver blikkar augunum fyrst. Ef Tsipras stendur sig held ég að líklega verði Grikkland beðið um að yfirgefa evrusvæðið fyrir árslok."

"Ég hef mælt hátt og skýrt fyrir því á Evrópuþinginu að íslenska dæmið sanni, að það að vera sjálfstæður, hafa eigin gjaldmiðil og geta stjórnað bæði vöxtum og ríkisútgjöldum, sé betra fyrirkomulag.

Eins og allir hlógu að mér 2009. Þeir sögðu að Ísland væri ósjálfbjarga. Jæja lítið þá á Ísland í dag. Stöðugur 3% hagvöxtur, stöðugir vextir og verðbólgutölur." 


mbl.is Merkel útilokar skuldalækkun fyrir Grikki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ: Ísland á hnjánum í ESB. NÚ: Ísland í ESB á hnjánum.

199382_10150105369446615_6412769_nIcesave-eplið átti að verða banabiti þjóðarinnar. Knésetja átti þjóðina í skuldaklafa svo hægt væri að sjá ESB sem himnaríkið sjálft. Ef eftir hefði gengið væri búið að stela þúsundum miljörðum króna og hneppa Íslendinga í skuldahlekki kynslóðir fram í tímann.

Reynt var að farga stjórnarskrá lýðveldisins, afnema fullveldið og afhenda fiskimiðin. Við völd sátu flokkar sem höfðu þá og hafa enn einungis eitt markmið: Að komast á spenann hjá Evrópusambandinu. Að fórna þjóðinni reyndu vinstri flokkarnir að gera með einu pennastriki. En Íslendingar eru sjálfstæðari en það. Þjóðin skipulagði sig m.a. í InDefence og kjósum.is - Fjallkonan beit ekki í eplið. Guði sé lof. 

Þjóðin getur þakkað Davíð Oddssyni, Geir Haarde og Sjálfstæðisflokkinum fyrir neyðarlögin, forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni fyrir þor að nota stjórnarskrána sem lýðræðistæki þjóðarinnar og eftirfarandi þingmönnum með Framsóknarflokk í fararbroddi fyrir að standa í lappirnar og verja sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar í stærstu árás á sjálfstæði Íslands síðan Danakóngur reyndi í skjóli hervalds að gera Ísland að amti í Danmörku og Jón Sigurðsson og þingmenn þjóðarinnar sögðu: "Vér mótmælum allir!"

nei:

 

Ásmundur Einar Daðason 

Birgir Ármannsson 

Birgitta Jónsdóttir 

Birkir Jón Jónsson 

Eygló Harðardóttir 

Gunnar Bragi Sveinsson 

Höskuldur Þórhallsson 

Lilja Mósesdóttir 

Margrét Tryggvadóttir

Pétur H. Blöndal 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 

Sigurður Ingi Jóhannsson 

Sigurður Kári Kristjánsson 

Unnur Brá Konráðsdóttir 

Vigdís Hauksdóttir 

Þór Saari


mbl.is Hamingjuóskir og útrásarvíkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NATO undirbýr varnir við kjarnorkuárásum Rússa á löndin við Eystrarsalt og Norðursjó

Skärmavbild 2015-01-26 kl. 02.26

 

 

 

 

 

 

 

Skjáskot fréttar Spiegel um kjarnorkustefnu NATO vegna "platárása" Rússa á löndin við Eystrarsalt og Norðursjó.

Yfirhershöfðingi NATO í Evrópu Philip Breedlove leggur til að á ný verði komið á heitri línu eða rauðum síma milli miðstöðvar NATO og heryfirvalda í Moskvu. Ástæðan eru auknar s.k. "platárásir" Rússa á skotmörk í baltnesku löndunum, þar sem rússneskar herþotur sem borið geta kjarnorkuvopn slökkva á sendi sínum og fljúga í árásarstöðu á löndin og snúa svo skyndilega við lofthelgi viðkomandi landa. Öllum tekst ekki að snúa við áður og rjúfa því oft lofthelgi viðkomandi landa.

Herþotur Rússa fljúga yfir hljóðhraða og eru af gerðinni TU-22M (Backfire) og TU 95H (Bear). Í byrjun desember uppgötvaði NATO rússneskar herþotur í árásarstöðu þrjá daga í röð yfir Eystrasalti. Herflugvélar NATO fóru 150 sinnum upp til viðbragða við rússneskum flugæfingum á Eystrasaltsríkin sem er fjórum sinnum oftar en árið 2013. Áætlunarhópur NATO fyrir kjarnorkuvopn hittist 5. febrúar n.k. og mun þá ræða nýja varnarstefnu fyrir aðildarríki NATO í Evrópu. NATÓ mun undirbúa sig að verjast kjarnorkuárásum rússneskra flugvéla á löndin við Eystrarsalt og Norðursjó skv. skrifum Der Spiegels og Frankfurter Allgemeine Sonntagszeitung.


Ný skuld mótsvarandi þremur þjóðarframleiðslum Svíþjóðar

eurocrisisMeira en þrefaldri árlegri þjóðarframleiðslu Svíþjóðar á nú að sprauta inn í deyjandi evrukerfi til að koma í veg fyrir evrugeddón. 

Það mun ekki takast. Í staðinn hefst síðasti kaflinn í dauðastríði evrunnar og Evrópusambandsins.

Þrjár sænskar þjóðarframleiðslur í nýjar skuldir evruríkjanna. Peningar sem verður látnir hverfa í bönkum og kauphöllum.

Hengingararólin "ein mynt hvað sem það kostar" herðist áfram um háls evruríkjanna. Áður með bönkum sem voru of stórir til að fara á hausinn. 

Þá hét ránið "BAIL OUT" og ríkissjóðir tæmdir. Nema á Íslandi. Þar var það kallað ICESAVE.

"BAIL IN" heitir nýja aðferðin að stela eigum viðskiptavina bankanna. Við gjaldþrot banka verða peningar t.d. lífeyrissjóða færðir yfir til bankaeiganda. Stærsta bankaáhlaupið kemur frá eigendum bankanna. Þeir eru að hreinsa allar peningahirslur í heiminum áður en vopnin verða látin tala.


mbl.is Svona á að bjarga evrusvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband