Bloggfærslur mánaðarins, september 2019

"Í rotþróna með þá ríku" - postular Grétu vilja sósíalíska byltingu

gretaÞegar kapítalisminn dugir ekki lengur sem afsökun fyrir alræði sósíalismans verður að finna upp á öðru t.d. loftslagsheimsendi.

Sænski erkibiskupinn Antje Jackelén líkir Grétu Thunberg við spámenn sem sagt er frá í Gamla Testamentinu.

Jackelén segir Grétu skapa teikn eins og gömlu spámennirnir með því að halda á skilti og sigla skútu. Í fyrra tísti kirkjan í Limhamn að Jesús hefði skipað eftirmann sinn - umhverfisaðgerðarsinnann Grétu Thunborg.

Mótmælin létu ekki standa á sér bæði hjá guðlærðum sem ólærðum. Jonas Persson hirðir safnaðarins afsakaði sig með að hann gæti ekki borið ábyrgð á öllu sem kirkjan hans tísti, þótt hann bæri sjálfur ábyrgð á tístinu.

klimatdemo-kollageÁ föstudaginn fylktu postular og söfnuður Grétu í Svíþjóð liði um götur og torg. Þetta er ansi skrautlegur hópur og mest sjást vinstri menn, kommúnistar, sósíalistar, femínistar, anarkistar, harðsvíraðir íslamistar, veganistar og aðrir istar. Á mótmælaspjöldum mátti greina slagorð t.d. "Í rotþróna með þá ríku", "Píkunni ætti að blæða - ekki plánetunni", "Látum þá ríku borga" og hrópuðu þáttakendur: "No border, no nation, no coal power station" sem þýðir "engin landamæri, enga þjóð, enga koldrifna rafmangsvirkjun."

HowdareyouEkki að furða þótt Death Metallic hljómlistarmaðurinn John Mollusk samdi lag við ræðu Grétu á SÞ í síðustu viku

Neðan mynd frá americanthinker:216181_5_


Miðflokkurinn meiri Sjálfstæðisflokkur en Sjálfstæðisflokkurinn

Það var áhugavert að lesa áherslur Miðflokksins á 150. löggjafarþingi sem Miðflokkurinn sendi nýlega frá sér: 

1. Báknið burt
2. Skattalækkanir – ríkisfjármál
3. Varðstaða um fullveldi þjóðarinnar
4. Kjör lífeyrisþega og lífeyrissjóðir22552442_121318565215010_6892790137392834209_n
5. Nútímavæðing heilbrigðiskerfisins
6. Skipulags- og húsnæðismál
7. Vörn og sókn fyrir íslenskan landbúnað
8. Nútímaleg umhverfisvernd
9. Efling löggæslu og réttarríkis
10. Nýsköpun og iðnaður
11. Öflug ferðaþjónusta um allt land
12. Ísland allt – Heildstæð byggðastefna 

Ljóst er á þessum áherslum að Miðflokkurinn axlar frakkann sem Sjálfstæðisflokkurinn er farinn úr með Báknið burt og skattalækkanir sem efstu áherslur. Þetta voru aðalmál Sjálfstæðisflokksins hér áður fyrr en í dag minnir forysta Sjálfstæðismanna mest á sósíaldemókrata í kröfugöngu 1. maí að mótmæla sjálfum sér. Báknið hefur þanist út í höndum Sjálfstæðisflokksins og skattar á Íslandi með þeim hæstu í heimi. Nú hótar formaður Sjálfstæðisflokksins að nota ríkiskassann til að fjármagna kosningaloforð Samfylkingarinnar um línu og stokka í Reykjavík og að nýr refsiskattur verði lagðir á bílaeigendur í Reykjavík.

Þriðja áherslumálið um fullveldi þjóðarinnar er öllum kunnugt um eftir orkupakka 3 en Miðflokkurinn ásamt Flokki fólksins voru þau einu sem virtu eiðstafinn að stjórnarskránni. Forysta Sjálfstæðisflokksins er genginn í Viðreisn og brátt mun Viðreisn ganga í Samfylkinguna, þar sem sannir ESB-sinnar eiga heima.

Ég fagna framsýni og verklagni Miðflokksins og verður ánægjulegt að fylgjast með störfum Miðflokksmanna á þessu 150. þingi. 

 


mbl.is Mun spara fólki 30-60 mínútur daglega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðafulltrúar ráðuneytanna afturkalla ekki ESB-umsókn Íslands

mbl260919Er maður á toppnum þá er stundum erfitt að toppa sjálfan sig. Þeim mun erfiðara því oftar sem það er gert. Ekkert stöðvar þó Morgunblaðið sem í leiðara dagsins framreiðir enn eitt meistaraverkið um íslenska stjórnskipun. Skrif Mbl. veita bæði sannan og kærkominn innblástur og eru hvatning til dáða fyrir lýðræðið í landinu. Ekki er samt víst að þeir sem um er fjallað nái að melta það.

Fyrir utan að bregða upp mynd af þýðingarmiklu starfi lögreglunnar sem er í skærri mótsögn við dökk niðurskurðarskærin, þá víkur Morgunblaðið að kerfisþróun sem lengi hefur verið rætt um: 

"Ráðherrar verða sífellt máttlausari í ráðuneytum „sínum“ og koma oftar en áður fram sem blaðafulltrúar þeirra en ekki eins og þeir sem alla ábyrgð bera....Mannaval „kerfisins“ hefur smám saman verið tekið úr höndum ráðherrans og fært að sögn til alviturra excel-skjala. En þau eru í höndum manna af holdi og blóði rétt eins og ráðherrann er, en hafa ólíkt honum ekkert raunverulegt umboð frá fólkinu í landinu og bera enga ábyrgð á sínum ákvörðunum sem þó eru sagðar endanlegar!"

Þessi þróun hefur leitt til andlýðræðislegra stjórnarathafna eins og að ganga bakdyrameginn inn í ESB:

"Embætti eins og það sem þó er kennt við þingið sjálft hefur breyst í að verða helsti talsmaður skrifræðis í landinu og fleira kemur til sem verður til að völd ráðherra minnka með degi hverjum. Og þar með minnka um leið þau óbeinu áhrif sem kjósandinn hefur með atkvæðum sínum. Lagasetningarvaldið er að auki flutt æ oftar úr landinu í fullkomnu heimildarleysi og nú síðast var stigið risaskref í þá átt þegar nafnlausir embættismenn sannfærðu kjarkleysingjana í kringum sig um að framvegis mætti ekki hafna neinu því sem frá ESB kæmi í nafni EES-samningsins, þrátt fyrir grundvallarákvæði hans sjálfs. Þar með hefur verið ákveðið að fara bakdyramegin inn í sambandið." 

Það er deginum ljósara að gíslantaka stjórnmálanna á þennan hátt sem hér hefur verið lýst eyðileggur stjórnskipun íslenska lýðveldisins. Slíkt gagnast heimsvaldastefnu ESB sem vill komast yfir náttúrulindir Íslands. 

Þjóðin þarf að veita þingflokkum sem ástunda niðursneiðingu lýðræðisins lexíu í næstu kosningum.

 


500 vísindamenn segja enga loftslagsvá í heiminum

ClimatÍ sérstöku bréfi til Sameinuðu Þjóðanna vara 500 vísindamenn Antonio Guterres og aðra dómsdagsspámenn við því, að það sé bæði "illa gert og vanhugsað að eyða billjónum dollara í ekki-vandamál". Skrifa vísindamennirnir að það sé engin aðsteðjandi vá í loftslagsmálum og að þau loftslagsmódel sem alþjóða stjórnmál byggja á séu ónothæf. Í staðinn grafa þau undan efnahagsmálum á tilgangslausan og mótbjóðandi hátt og setja mannslíf í hættu í löndum sem neitað er um aðgang að ódýrri, stöðugri rafmagnsframleiðslu.

Hvetja vísindamennirnir SÞ að fylgja loftslagsstefnu sem grundvölluð er á heilbrigðum vísindum, raunverulegum efnahag og alvöru áhyggjum vegna þeirra sem verða fyrir búsifjum af völdum dýrra og ónauðsynlegra mótvægisaðgerða.

Biðja þeir aðalritara SÞ, Antonio Guterres að setja þetta mál á dagskrá yfirstandandi loftslagsfundar í New York og jafnframt að boðað verði til fundar í upphafi næsta árs með vísindamönnum hvaðanæva úr heiminum frá báðum hliðum loftslagsumræðnanna. 

Undir bréfið rita m.a. prófessorarnir Guus Berkhout Hollandi, Richard Lindzen USA, Reynald Du Berger Frönsku Kanada, Ingemar Nordin Svíþjóð, Alberto Prestininzi Ítalíu, Jeffrey Foss Ensku Kanada, Benoit Rittaud Frakklandi, Frits Vahrenholt Þýzkalandi ásamt vísindamönnunum Terry Dunleavy Nýja Sjálandi, Jim O´Brian Írlandi, Viv Forbes Ástralíu, Morten Jödal Noregi, Rob Lemeire Belgíu og Viscount Monckton Bretlandi.


mbl.is Heimurinn „í djúpri loftslagsholu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð tillaga Reykjavíkurbréfsins um samstarf Hæstaréttar og Alþingis

rettargydjanMorgunblaðið ber höfuð og herðar yfir aðra miðla landsins, þegar kemur að vandaðri, frjálsri umræðu um mikilvæg þjóðfélagsmál. Í helgarblaðinu er að finna afskaplega góða grein eftir þann mæta mann Arnar Þór Jónsson, héraðsdómara, sem bendir á, að "þegar óttinn hefur rutt sér til rúms í stjórnmálum hætta þau að snúast um kjarna mála og stefnumörkun." Erfiðara verður fyrir alla að fylgja lögum sem eru óskýr á grundvelli óttans í stað skýrrar yfirvegaðrar löggjafar: "Hlutverk Alþingis er að eyða réttaróvissu, ekki skapa hana." Afgreiðsla Alþingis á orkupakka 3 er dæmi um hið gagnstæða. 

Þá er ekki síður athyglisverð hugmynd reifuð af höfundi Reykjavíkurbréfsins, þar sem höfundur miðlar af langri stjórnmálareynslu sinni og segir frá dæmi um að forsætisnefnd Alþingis hafi sent Hæstarétti bréf með spurningum í alvarlegu ágreiningsmáli á Alþingi. Málið var hápólitískt og skipting dómaranna líka en 5 af níu samþykktu að taka málið fyrir hjá Hæstarétti. "Þá var efnisspurningin borin upp og urðu þá allir dómararnir níu sammála um niðurstöðuna. Deilurnar í þingsalnum gufuðu upp eins og dögg fyrir sólu og að sjálfsögðu datt engum í hug eftir það að láta reyna á spurninguna fyrir dómstólum." 

Þessa leið telur bréfahöfundur ætti að nota áfram og varpar fram þeirri hugmynd að Hæstaréttur fái "aukið formbundið hlutverk í þessum efnum."

Deilurnar um orkupakka 3 sýna á áberandi hátt að nauðsyn er á slíku fyrirkomulagi. Hér tala tveir lögfróðir menn í Morgunblaðinu um vanda sem íslensk stjórnskipun hefur á höndum út af stjórnmáladeilum vegna afstöðunnar til ESB. Ber að fagna þessarri umræðu og tillögu Reykjavíkurbréfsins og gæti slíkt fyrirkomulag sparað mikinn darraðadans á þingi og í samfélaginu. 

Að risið er ekki jafnhátt á öðrum sem fara mikinn í umræðunni hittir þá mest sjálfa fyrir. Sá mæti maður Björn Bjarnason hímir á tunnubotni óttans með sínar tuttugu milljónir fyrir að syngja hallelúja um ESB. Hann er innilokaður á umræðureit sem er takmarkaður að hætti ESB, þar sem ákveðið er fyrirfram hvað má ræða og ekki ræða. 

Að sjálfsögðu er sá sem virðir ekki kjarna EES-samningsins vanhæfur til að gera úttekt á samningnum og verður að skoða allar skýrslumilljónirnar sem persónulegan greiða utanríkisráðherrans við Björn Bjarnason.


Kína í alþjóðlegri áróðursherferð fyrir "réttarríkið Kína"

3398b5d7-2621-4419-a01c-c636a8a93715Alþýðulýðveldið Kína kaupir nú heilsíðuauglýsingar í blöðum víða um heim með áróðri um að "réttarríkið Kína" muni leysa málin í Hong Kong í "friði." Í auglýsingunni segir: "Það sem þú lest, sérð eða heyrir - eða dreifir á félagsmiðlum - er aðeins einn hluti í flóknu, félagslegu, efnahagslegu og stjórnmálalegu púsluspili. Púsluspili sem við munum ljúka við af eigin rammleik. Og það getur tekið tíma. En við erum ákveðin í því að ná friðsamlegri, skynsamlegri og sanngjarnri lausn." Þá segir: "Við treystum á reglur réttarfarsríkisins sem hafa reynst svo vel í marga áratugi."

Greinilegt er að Kínverjar óttast slæma ímynd vegna átakanna við íbúa Hong Kong sem ekki halda með Kína um efndir á loforðinu "eitt land - tvö kerfi". Það eru í fyrsta lagi fjárfestar sem Kína snýr sér að svo þeir verði áfram í Hong Kong. Hins vegar gæti þessi áróðursherferð allt eins verið undirbúningur fyrir hertöku á Hong Kong þvert á boðskapinn eins og svo oft tíðkast hjá einræðisríkjum. 

Töluverðar umræður hafa átt sér stað í Svíþjóð og sýnist sitt hverjum að Dagens Nyheter birti auglýsinguna. DN kallar sig frjálslynt og ritstjóri blaðsins segir eðlilegt að pláss blaðsins sé notað fyrir áróður stærsta kommúnistaríkis heims. Allir vita, að Kínverjar hafa komið fyrir njósnabúnaði í tækni sem seld er erlendis án vitundar kaupendans. Það er helst að utanríkisráðherra Íslands sé utangátta eins og sýndi sig í loðnum svörum til Mike Pense vegna loforða íslensku ríkisstjórnarinnar um að styðja Kínverja á Norðurslóðum í Belti og braut.


mbl.is Segja mótmælendur í Hong Kong hafa sætt pyntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpagengin skapa hræðslu í Svíþjóð

Skärmavbild 2019-09-18 kl. 12.34.35Það er kominn sjálfvirkur reflex í kroppinn, þannig að maður skimar eftir hugsanlegum flóttaleiðum eða skjóli, ef skyndilega birtist brjálæðingur með hríðskotabyssu og byrjar að "úða" kúlum eða sprengja springur eða brjálæðingur á vörubíl reynir að fella fólk með ákeyrslu.

Í skotárás í Nacka nýverið gátu árásarmenn varla haldið á hríðskotabyssunum, þannig að kúlurnar "úðuðust" um allt með þeim afleiðingum að nemandi í tónlistarskóla sem bjó mörgum hæðum frá jörðu missti sjónina á öðru auga, því hann var óvart heima, þegar árásarmennirnir kíktu við. Þá fékk saklaus leigubílstjóri "óvart" kúlu í sig. Ekki er langt síðan að 18 ára stúlka í norðurhluta Stokkhólms var "óvart" drepin því hún var heima þegar heilsað var uppá þar sem hún bjó. Það sem slegið hefur óhug í Svía er hrottarleg aftaka á ungri hjúkrunarkonu nýlega sem hélt á tveggja mánaða gömlu barni sínu í fanginu þegar morðinginn skaut hana í höfuðið á miðri götu um hábjartan dag í Malmö. Þá hafa sprengingar "óvart" drepið og sært saklausa íbúa og vegfarendur sem voru á vitlausum stað á vitlausum tíma. 

Lögreglan varar fólk við víða um land að vera á ferð eftir að rökkva tekur og biður fólk að vera vökult ef það sér grunsamlega "pakka". Nú hefur lögreglan í Stokkhólmi fengið aðstoð frá Bandaríkjunum í baráttunni við ofbeldið og fv. lögreglustjóri Rick Fuentas er innan handar. Í viðtali við Expressen segir Fuentes að lögreglan í Bandaríkjunum mæti ekki jafn miklu ofbeldi í formi sprengjuárása eins og gerist í Svíþjóð: "Ég sé ekki handsprengjuárás, það hefur ekki gerst. Við sjáum ekki neina notkun á sprengiefnum hvað varðar morð og sært fólk, þetta er stig á ofbeldi sem við höfum ekki séð áður."

Skv. Ulf Johansson hjá lögreglunni í Stokkhólmi er samstarf einnig við háskólann í New Jersey m.a. til að læra af styttingu tíma við rannsókn á vopnum en háskólinn hefur þróað þau mál í Bandaríkjunum sem leitt hefur til styttingar á bið eftir niðurstöðum frá mörgum mánuðum í aðeins tvo sólarhringa. "Í Svíþjóð er biðin um 150 dagar og nú vinnum við með þjóðlegri miðstöð rannsókna á vopnum til stytta tímann" segir Ulf Johansson. Fuentes segir að það muni verða mjög stórt skref fyrir sænsku lögregluna. Lögreglan leysir einungis um fjórðung morða með skotvopnum í Svíþjóð. 


Atlaga Googles að lýðræðinu

zachSem betur fer eru til menn eins og yfirverkfræðingur Googles Zachary Vorhies sem ákvað að segja upp vel launuðu starfi vegna ritskoðunar netrisans Google og misnotkun á markaðsstöðu sinni í þágu stjórnmálaskoðana gegn repúblikönum. Hann undirbjó sig vel, safnaði gögnum áður en hann sagði upp störfum og fór með þau til blaðamannahópsins hjá Project Veritas en þar hefur James O´Keefe verið mjög framgansríkur í baráttunni gegn spillingu risafyrirtækja. Óttaðist Zachary um líf sitt og tryggði að Project Veritas birtu Google skjölin ef hann yrði myrtur. 

Zachary hafði fulla ástæðu til að óttast um lífið. Þegar netrisinn frétti um gögnin sem hann hafði lekið út sögðu yfirmenn Google við lögregluna að Zachary væri í sjálfsmorðshugleiðingum og stórhættulegur sjálfum sér og umhverfinu. Var stór hópur lögreglumanna sendur ásamt þyrlum og leyniskyttum og sprengideildinni til að handtaka manninn. En það var um seinan fyrir Google. 

Yfirmenn Google segjast ætla að koma í veg fyrir endurkjör Bandaríkjaforseta Donald Trumps. M.a. hefur rannsóknarsálfræðingurinn Robert Epstein sem er ákafur stuðningsmaður Hillary Clinton, látið hafa eftir sér að Google hafi vísvitandi haft áhrif á milli 2,6 - 16 milljóna atkvæða Clinton í vil í forsetakjörinu. Í heyrslu hjá rannsóknarnefnd bandaríska þingsins sagði Epstein að kosningfyrirkomulag ætti að vera hafið yfir flokka og skoðanir og varaði því þingið við áhrifamætti Googles á svo miklum fjölda atkvæða.

Bandaríska þingið hefur nú til athugunar að setja lög sem brjóta upp einokun Google á svipaðan hátt og áður hefur verið gert við símarisann AT&T. Náðst hafa viðtöl við forráðamenn Google sem segjast ætla að koma í veg fyrir að Trump verði endurkjörinn forseti í næstu forsetakosningum.

Ég ræddi um þessi mál við Pétur Gunnlaugsson Útvarpi Sögu í gær. 

 


Helsta stefna Sjálfstæðisflokksins að vera í andstöðu við Sigmund Davíð Gunnlaugsson

Ekki var ræða formanns Sjálfstæðisflokksins á Flokksráðsfundi uppá marga fiska en hann taldi sjálfum sér helst til framdráttar að hann hefði sett fleiri konur í embætti en fyrri flokksformenn samanlagt. Einnig sagði hann að jafna þyrfti dreifingarkostnaði rafmagnsnetsins og að hraða þyrfti umbreytingu yfir í vistvæna orku. Eini sýnilegi andstæðingur Sjálfstæðisflokksins er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Miðflokkurinn og þessum aðilum að kenna að orkupakki þrjú er orðinn að veruleika og Sjálfstæðisflokkurinn nær ekki fram með boðskapinn um að allt sé í lagi með samþykkt orkupakkans. Sjálfstæðisflokkurinn er svo duglegur í EES-málum og hefur komið til leiðar að Alþingi ræði fyrst um málefnin áður en þau eru samþykkt hjá EES nefndinni en fáir skilji það enn. Að öðru leyti hefur ekkert breyst þau tvö ár sem hann hafi notað sama bindið.

rip-gravestone--56cm32788Konurnar tvær sem Bjarni Benediktsson skipaði sér við hlið fylgja meginstefnu flokksins að allt slæmt sé Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að kenna. Þannig "uppskar Þordís K.R. Gylfadóttir mikið lófaklapp er hún ræddi aðkomu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að þriðja orkupakkanum" (Mbl 14/9 2019). Sagði nýsköpunarráðherrann samstarf Sigmundar Davíðs og David Camareon til að kanna hugmynd um sæstreng jafnast á við að Katrín Jakobsdóttir stofnaði nefnd með Mike Pense um staðsetningu kjarnorkusprengja í Keflavík. Þessi yfirlýsing er mikið hrós á forystuhæfileika Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og þakklæti Sjálfstæðisflokksins til Vinstri Grænna.

Sýndarmennska forystu Sjálfstæðismanna sést skýrt þegar raunveruleikinn er skoðaður:

  • Flokksforystan gengur gegn samþykktum Landsfundar
  • Forystan klýfur flokkinn með skýlausu stjórnarskrárbroti í orkumálum
  • Bjarni Benediktsson fer vísvitandi með fleipur, þegar hann fullyrðir að Sjálfstæðismenn séu búnir að koma því til leiðar að Alþingi ræði fyrst um málin áður en EES nefndin tekur ákvarðanir. Orkupakki 3 sannar það.
  • Forystan vitnar til fortíðarinnar til að skoða hvernig henni hefur mistekist að breiða út stefnu flokksins á sama tíma og gert er hlægilegt að flokksmenn bera saman sögu flokksins við nútímann.
  • Sýndarmennskan sést best í kjörorði Flokksráðsfundarins: "Hlökkum til morgundagsins" á sama tíma og flokksmenn hoppa af skútunni til hægri og vinstri og flokkurinn siglir hraðbyri undir 20% fylgi í fyrsta sinn í sögunni.
  • Ríkisbáknið tútnar út í höndum Sjálfstæðismanna og skattbyrði eykst.

Flokksforysta Sjálfstæðisflokksins er einangruð í fílabeinsturni og lofsöngur um eigið ágæti fyllir öll vit og búið að gleyma fyrir löngu, að það eru kjósendur sem ákveða hverjir eru sendir á þing. Ekkert er því eðlilegra en að fylgið hrynji undir 20% sem er hið raunverulega tilhlökkunarefni morgundagsins.


mbl.is Þórdís segir hægrimenn glaðari en vinstrimenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinir óttaslegnu guðnar, birnir og alþingismenn

Besta lesning í manna minnum er Reykjavíkurbréf dagsins, þar sem Davíð Oddsson bregður fyrir sér rökfestu með húmor af alkunnri snilld. Engum tekst eins og ritstjóra Morgunblaðsins að skýra markmið og hugmyndir á léttu máli sem hvert mannsbarn getur skilið.

Forseti Íslands sagði í setningaræðu Alþingis: "En við megum líka varast þá kvíðafullu, þá hræddu og þá reiðu. Þær stundir geta einmitt komið að við höfum ekkert að óttast nema þá óttaslegnu."

Sem betur fór tókst þjóðinni að varast þá óttaslegnu, þegar kúgunartilboði Icesave var hafnað. Ræðumaðurinn lenti þá í hópi þeirra höfnuðu enda svo óttasleginn að ekkert dugði nema eymdarmynd Norður-Kóreu til að lýsa því skelfilega. Í dag er maðurinn forseti og undirritar boðskap hinna óttaslegnu á Alþingi sem ekki þora að anda á ESB. Hinir sömu og híma útí horni í sjávarútvegsmálum og bíða eftir því eða einhver frá EES yrði á þá.

david-300x300Davíð Oddsson gerir að umtalsefni 10 liða bréf kennt við Yellowhammer (gultittling), þar sem ógurlegum ógnum er lýst dirfist Bretar að fara úr Evrópusambandinu. Segir Davíð bréfið Gultittlingarskít og rekur rök Björns Bjarnasonar um skelfingu liðanna tíu:

"En gultittlingaskjalið var teiknað upp með sömu forskrift og notuð er við handritsgerð hryllingsmynda, en varð samt ekki neitt neitt.

Björn Bjarnason rekur 10 punkta úr skjalinu: Í þeim fyrsta segir: "Komið getur til fjöldafunda með og á móti útgöngu og gæti orðið að uppnámi í þjóðlífinu." Hvað með það? Slíkir fundir eru þegar haldnir reglulega í landinu. Í Frakklandi hefur verið kveikt í bílum og húsum og löggreglan grýtt vikulega og hún svarar með táragasi og er þó Macron ekki á leið án útgöngusamnings út úr ESB. Gaman væri að sjá worst case scenario um það.

En töluliður tvö sem Björn Bjarnason nefnir er auðvitað skelfilegur: "Dagurinn eftir útgöngu er föstudagur sem er yfirvöldunum ef til vill óhagstætt. Auk þess kunni að vera vetrarfrí í skólum." Þarna er verið að lýsa worst case scenario númer tvö!!!! Bæði föstudagur og vetrarfrí í skólum.

Í gær var föstudagurinn 13. á Íslandi og sjálfsagt víðar og ríkisstjórnin, sem þó er skelfingu lostin yfir öllu, sagði ekki af sér. En kannski hefur ekki verið vetrarfrí og það gert útslagið.

Svo var það liður númer 6: "Verðbólga eykst ´umtalsvert´ Þetta bitni á eldra fólki sem nýtur minni félagslegrar aðstoðar vegna minnkandi þjónustu."

Englandsbanki spáði óðaverðbólgu ef menn segðu já við útgöngu fyrir þremur árum. Hún er ekki komin enn!

Og sjö: "Bretar sem ferðast til ESB-landa kunna að sæta auknu eftirliti á landamærum þeirra!"

Eftir 11. september 2001 hafa allir þeir sem ferðast upplifað slíkt. En í ´worst case scenario´ segja menn að "tafir kunni að verða á landamærum".

Og lokapunkturinn, þessi númer 10 hlýtur að minna vana menn á hættuna á kjarnorkustríði í kalda stríðinu: "Viðbúnaður almennings og fyrirtækja vegna þess sem gerist við útgöngu án samnings verður lítill og minnkar enn vegna óvissu um hver er stefna stjórnvalda auk þess sem menn eru orðnir langþreyttir á talinu um aðferð við útgöngu."

"Þetta er ófögur lýsing" segir Björn. Já, menn gerast gamansamir."

Síðan bætir Davíð Odsson ellefta liðnum við: "Það eina sem manni þykir vanta í þessar spár væri liður 11. "Verði farið út án útgöngusamnings gæti Pence varforseti komið í heimsókn í hálfan dag og umferðaröngþveiti verða í öllum borgum Bretlands og standa í þrjá mánuði, einkum ef það væri starfsdagur í skólum."

Taka má alfarið taka undir sjálfsagða og eðlilega kröfu ritstjóra Morgunblaðsins að hinn öflugi rökstuðningur óttans sem sætir svo mikilli tortryggni verði opinberaður, því "Það verður bara verra að bíða. Það er þekkt."  (leturbreyting mín/gs)


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband