Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2020

Arnar Þór Jónsson dómari - maðurinn með frelsiskyndilinn

ArnarþorArnar Þór Jónsson, dómari, skrifar sérdeilis lýsandi grein um þýðingu stjórnarskrár lýðveldisins Íslands 27. feb. 2020 í Morgunblaðið. Ég man ekki eftir því að hafa lesið jafn skýra heilsteypta hugsun í áratugi, framsetta á jafn auðveldan, læsilegan og skiljanlegan hátt af löglærðum manni um málið. Hér fer maður sem veldur er á heldur og ljóst að hjartað slær fyrir lýðræði og frelsi. Skal hann og Morgunblaðið hafa bestu þakkir fyrir birtingu jafn upplýsandi greinar sem bæði vermir og lýsir upp veginn í vetrarmyrkrinu.  

Greinin er djásn alsett perlum og eina leiðin til að hún njóti sannmælis er að lesa hana alla sem ég hvet alla sem unna lýðræði og frelsi að gera. Hér er ein tilvitnun úr kaflanum Aldarfjórðungur í farþegahlutverki:

"Íslendingar standa frammi fyrir þeirri staðreynd að allar reglur EES eiga uppruna sinn hjá ESB. Stofnanir ESB setja reglurnar án aðkomu Íslands eða annarra EFTA-ríkja. Íslendingar áttu því enga aðild að samningu reglna O3. Þeir sem það gerðu unnu ekki í umboði íslenskra kjósenda og við þekkjum engin deili á þeim. Lýðræðisleg ábyrgð þeirra er engin og umræður þeirra um málið fóru fram bak við luktar dyr. Að ferlinu loknu voru gerðirnar sendar fullbúnar til samþykktar í sameiginlegu EES-nefndinni."

Í lokaorðum skrifar Arnar Þór: "Það leysir því engan vanda að afsala sér sjálfsforsjá og sjálfsábyrgð.Þeir sem kasta vilja frá sér þeirri ábyrgð vísa sumir til þess að við þurfum engar áhyggjur að hafa meðan stjórnað sé með lögum. Í því samhengi má minna á að ein skilvirkasta leiðin til að afnema réttarríkið er að gera það með lögum og lagaframkvæmd, þannig að ekkert standi eftir af ríki réttarins annað en skelin – og ásýndin – ein. Saga alræðisríkja á 20. öld sýnir að slíkur veruleiki er ekki fjarlægur eða óraunverulegur. Í Sovétríkjum Stalíns og Þýskalandi Hitlers geymdu stjórnarskrár fögur fyrirheit sem allir máttu vita að ekkert var að marka."

Þessi umræða er dýrmæt fyrir okkur og í skærri andstöðu við þöggun þess kerfisræðis sem tröllríður húsum bæði á Íslandi og á meginlandinu. Það er gaman að vera Íslendingur þegar menn eins og Arnar Þór Jónsson dómari finnast og Morgunblaðið sem sér heiður sinn í málfrelsi og lýðræði. 


Maurinn sem dreymdi um að stjórna fílaumferðinni

fillinnogmaurinn"Núna stoppum við fílahjörðina" var það síðasta sem maurinn sagði við vin sinn áður en fílahjörðin tróð úr þeim lífið.

Logi Einarsson er í sömu stöðu með inngöngumiða í heimsveldi ESB sem tekur smáþjóðir í nefið.

Eftir hrun Samfylkingarinnar þarf hæfileika a la Bagdad Bob til að setja sig á háan hest og skipa öðrum flokkum fyrir.

"Ég vinn ekki með Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum"segir Logi sem haldinn er kópíeringsveiru á háu stigi með afritað misheppnað landakort sænskra sósíaldemókrata sem komnir eru niður í sögulegt myrkur 22% fylgis.

Formaðurinn gleymir því líka, að íslenska þjóðin hefur gott útsýni til SamfylkingarDags í Reykjavík með ljóskastara Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins.

Væntanlega veitir þjóðin báðum þessum framámönnum logandi fína útkomu í næstu kosningum.

Íslendingar elska lýðræðið en ESB ekki.


mbl.is Lýðræðismál að kjósa að vori
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunaverðir ESB á Alþingi hindra afturköllun ESB-aðildarumsóknar

Inga snælandTil marks um hvað lítð er að marka stefnu Sjálfstæðisflokksins sem þykist vilja halda Íslandi fyrir utan ESB, þá bregða sjálfstæðismenn ásamt öðrum ESB aðildarsinnum fæti fyrir þingsályktun Flokks Fólksins um formlega afturköllun Alþingis á aðildarumsókn þáverandi meirihluta Alþingis að Evrópusambandinu.

Íslendingar voru aldrei spurðir en gátu svarað fyrir sig í almennum þingkosningum og kom það svar eftir aðildarumsóknina, að helsti umsóknaraðilinn að ESB, Samfylkingin, stórtapaði fylgi og varð næstum að engu.

Inga Snæland formaður Flokks fólksins lýsti yfir vantrú sinni á að þingsályktunartillagan fái brautargengi á Alþingi í viðtali á Útvarpi Sögu nýlega. Innandyra ráða ESB-sinnar sem vilja innlima Ísland í ESB og ef ætlunin er að hindra lýðræðislega meðferð tillögunnar og atkvæðagreiðslu mun það í fyrsta lagi skrifast á núverandi ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna ásamt Vinstri Grænum. 

Vel sést á launum forsætisráðherrans af hverju VG sænga með hverjum sem er eins og sjálfstæðis- og framsóknarmenn gera en Katrín Jakobsdóttir var 17 tekjuhæsti stjórnmálamaður í heimi 2019 að sögn DV. Mikilmennskubrjálæði ráðherra ríkisstjórnarinnar fer að slaga í fyrirkomulag Reykjavíkurborgar sem praktíserar stjórnskipun Norður-Kóreu á Íslandi.

Þingsályktunartillan er kjörið tækifæri fyrir þá þingmenn sem vilja sjálfstæða þjóð og fullvalda ríki á Íslandi að sýna hug sinn. Ég treysti því, að Miðflokksmenn komi til hjálpar en því miður dugir það ekki eitt og sér en vonandi fleytir það tillögunni í umræður og hugsanlega atkvæðagreiðslu, svo landsmenn sjái svart á hvítu hverjir hagsmunaverðir ESB eru á Íslandi. 

 

 

 


Mun ekki auka traust í viðskiptum við íslensk stjórnvöld

haspennaÞórdís Kolbrún iðnaðar- og alls kyns ráðherra er með pilsfaldinn úti á túni, þegar hún styður forstjóra Landsvirkjunar í viðleitni hans að slá sér á brjóst og eftirá véla þjóðina inn í samningagerð við Rio Tinto.

Á að láta líta svo út að Landsvirkjun sé "góði gæinn" og Tinto "sá vondi" til að fá samúð fólks á raforkuránstefnu Evrópusambandsins.

Ef þetta verður gert munu erlend stórfyrirtæki sjá, að ekkert er að marka samkomulag við íslensk ríkisfyrirtæki.

Eykst þá enn "grái" vandinn.

Þórdís Kolbrún ætti að tyfsa til á sér pilsið og huga að hagsmunum Íslendinga í stað þess að sveifla dansskónum í takt við stálhælana frá Brussel. Hún ætti sem einhverra mála ráðherra að verja Ísland og standa gegn rafmagnsskítavæðingu ESB með aflátsbréfum, loftslagssköttum og ráðstjórnareinræði. 

En pilsið nær ekki svo langt og þjóðleg framkoma hennar minnir meira á rykkjóttar hreyfingar strengjabrúðu en kvenmanns sem reynir að verða skörungur.

Ótrúlegt að gefa búrókrötunum í Brussel lokk úr hári sínu í bogastreng í hvert skipti sem kinnhestur kemur að austan.


mbl.is Fylgjandi því að trúnaði verði aflétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíþjóðardemókratar stærstir - Sósíaldemókratar hafa tapað baklandinu

SmotavgrundenÍ síðustu skoðanakönnun Novus fá Svíþjóðademókratar tæplega 24% og hafa styrkt stöðu sína sem stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar. Í öðrum könnunum fá Svíþjóðardemókratar hátt í 30%. 

Sósíaldemókratar fá ríflega 23% í þessarri Novus könnun og Móderatar 18%.

Sífellt fleiri tóngefandi sósíaldemókratar spá því nú að Löfven muni hætta sem formaður flokksins fyrir flokksþing krata á næsta ári.

Juholtfirar"Hann mun láta af störfum á kjörtímabilinu. Hann mun kjósa - bæði sjálfs sín vegna og einnig flokksins vegna, að skipt verði um formann," segir Anders Rubin krati í borgarstjórn Malmö í viðtali við Aftonbladet. 

Håkan Juholt getur andað léttar. Hann var alla vega með hærri vinsældartölur en Löfven, þegar Juholt neyddist til að hætta formennsku eða 24,6%.


Stöku sinnum breytast steinar í perlur

gudlaugurthor-688x451

Það gerðist í Staksteinum Morgunblaðsins 19. febrúar.

Staksteinar sem kalla ekki allt ömmu sína, hafa aldrei sagt "RÚV" vera rotþró pólitískrar hlutdrægni. En Mannréttindaráði SÞ hefur hlotist sá heiður að fá þann titil af fv. sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, Nikki Haley. 

Staksteinar benda á að "svo kom íslenska utanríkisráðuneytið í rotþróna og hún er tekin að ilma og það svo að allir erlendir fjölmiðlar, að vísu ónefndir, falla í stafi yfir afrekum þess." Tilefni staksteina er að utanríkisráðherra Ísland sagði í viðtali nýlega að það væri "samdóma álit erlendra fjölmiðla og annarra að seta Íslands (í Mannréttindaráði SÞ/gs) hafi heppnast mjög vel". 

Ónafngreindu fjölmiðlarnir sem utanríkisráðherrann vitnar í hljóta að vera kampavínsstraujuð orð í eyra - trúlega í einhverju fínu boði, sem síðan hafa bergmálað linnulaust í höfðinu, þannig að mátti skilja að erlendir fjölmiðlar væru þar allir sem einn innandyra. Og "aðrir" líka, hverjir svo sem þeir nú eru.

Ísland á bæði Björk og Hildur sem fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um en ekkert bólar á samdóma álitinu sem utanríkisráðherrann vitnar í.

Var ráðherrann að lýsa eigin höfuðverk, þegar hann sagði þessi orð? 


Nýr dagur rís með Vigdísi Hauksdóttur sem næsta borgarstjóra Reykvíkinga

3VgDt_6gOw4-_720x460_sPLyZgQAAllt gengur eftir sem hin skelegga Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur bent á varðandi vanhæfni stjórnenda meirihlutans í Reykjavík.

Fjármálasukkið kringum braggann og önnur gæluverkefni borgarstjórans, meint lagabrot í opinberri stjórnsýslu og efnahagsleg framúrkeyrsla á nær öllum sviðum þrátt fyrir ofur skattlagningu, benda til stjórnarhátta í stíl með Venúsúela og Norður-Kóreu í stað vestrænna lýðræðisríkja. 

nottDagur B. Eggertsson hefur komið sér upp hirð sem Tsar Reykjavíkur og blaðrar í púltinu eins og Bagdad Bob. 

Dýr er Dagur Reykvíkingum og ríkir endalaus nótt í málefnum Reykvíkinga með þenna pilt við stýrið. 

Reykvíkingar velja sér náttúrulega borgarstjórn sjálfir en lattelepjandi 101 kratademían er of dýr öllu heiðarlegu, vinnandi fólki og því réttast að snúa baki við þeirri menningu sem setur spillinguna á oddinn í bæjarmálum jafnt sem landsstjórnarmálum.

Vigdís Hauksdóttir er svar Reykvíkinga gegn spillingarflórnum sem þarf að moka út svo borgarmálin komist aftur í lag. Hún hefur af einstakri eljusemi, réttsýni og af virðingu fyrir starfi sínu sem umboðsmaður Reykvíkinga sýnt að hún er besti valkosturinn sem Reykvíkingar eiga í dag.

Ég hlakka til að sjá Vigdísi Hauksdóttir borgarfulltrúa Miðflokksins sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur.

 


mbl.is Segja reglur brotnar og krefjast ábyrgðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB er guð Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Viðreisnar, Framsóknar, Vinstri grænna og Pírata

EUbadAlltaf kemur skýrar í ljós hversu undirlægjuhátturinn við ESB er og verður þjóðinni dýrkeyptur. Sýndarmennska stjórnmálanna tröllríður húsum á kostnað þjóðarinnar. Eitt dæmi eru "girðingarmálin" sem sá góði maður Tómas Ingi Olrich gerir að umtalsefni í Morgunblaði dagsins: 

"Mér sýn­ist að þessi girðinga­mál hafi verið í sér­kenni­leg­um far­vegi í öll þessi ár sem liðin eru síðan þau voru sett í lög. Það virðist sem þeir sem um málið hafa fjallað, stjórn­mála­menn og emb­ætt­is­menn, hafi um­fram allt litið á það sem skyldu sína að líta á EES-regl­ur og at­huga­semd­ir ESA sem erki­bisk­ups boðskap, sem ekki megi láta reyna á að viðlagðri bann­fær­ingu, og hlíta skuli í einu og öllu."

Þetta er hárrétt lýsing hjá Tómasi Olrich.

Nýjar fréttir um sæstrengslygar Sjálfstæðismanna í tilkynningu iðnaðarráðherra um rannsókn á raforkusölu gegnum sæstreng er annað dæmi. Til þess var leikurinn gerður með orkupakka 3 að gera Ísland að "grænu batterí ESB". Sjálfstæðismenn gala í vindinn yfir stórkostlegum árangri EES-samningsins, að ESB hafi "kennt Íslendingum að semja við stóriðju eins og Ísal". 

Í dag er árangurinn af þessarri ESB-þjónkun, að Ísland er ekki lengur samkeppnisfært í rafmagnsverði til stóriðju svo hún leitar á betri mið. Þetta er þveröfugt við uppruna og þróun Landsvirkjunar og stefnu í raforkumálum, þar til ESB-þjónarnir tóku við.

Uppskipting raforkusölu í orku og dreifingu er annað dæmi um stóraukinn kostnað til að framfylgja regluverki ESB. Orkupakki 3 hefur flutt sjálfsákvarðanarétt þjóðarinnar í raforkumálum til Brussel. ESB hefur tekið yfir raforkumálin og Sjálfstæðiflokkurinn og aðrir ESB-flokkar hlýða bara fyrirmælum frá Brussel. 

Það er ljúfur leikur fyrir ESB að vera Guð á Íslandi en verri leikur fyrir þjóðina að ráða litlu sem engu lengur í eigin landi.


Fréttir á heimasíðu Útvarps Sögu

coronavirusÉg hef notað tímann til fréttamennsku fyrir útvarp Sögu/heimasíðu og mun sinna því áfram, þannig að minna verða um skrif hér

Nýjasta fréttin er um kórónaveiruna en kínverskir vísindamenn segja hana hafa borist frá opinberri rannsóknarstofu sem vann að veirurannsóknum á leðurblökum og jafnvel erfðabreytingum í leiðinni sem geti útskýrt breytingu veirunnar

Hvet alla sem vilja fylgjast með t.d. með ástandinu í Svíþjóð með fréttum mínum þaðan t.d.

Sænska lögreglan óttast að glæpamenn fari að sprengja til að drepa

Ofbeldi gegn opinberum starfsmönnum fer vaxandi í Svíþjóð 

Svíþjóð er griðarstaður hryðjuverkamanna

Hryllingur að sænska lögreglan semur við ættarhöfðingja

 

 

Með kærri kveðju 

Gústaf Adolf Skúlason


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband