Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2022

Ráðstefnan í Davos er gjallarhorn kommúnismans

schwabkina Davos ráðstefnan er orðin að verkfæri kínverska kommúnistaflokksins til að breiða út kommúnismann og leggja ríkisstjórnum hins vestræna heims upp línurnar. Klaus Schwab stofnandi World Economic Forum er sérstakur erindreki Xi Jinping og verðlaunaður af miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins fyrir að vinna að „sósíalismanum sem sameiginlegri framtíð mannkyns.“ Xi Jinping aðalritari kínverska kommúnistaflokksins opnaði ráðstefnuna og kynnti dagskrá heimsins framundan.

Mikilvægast að bólusetja alla jarðarbúa

Aðalritari kínverska kommúnistaflokksins Xi Jinping setti ráðstefnuna og sagði í opnunarræðu sinni, að „heimurinn gangi í gegnum mestu breytingar sem nokkru sinni hafa sést“ og mannkyn yrði að vinna saman að „sameiginlegum örlögum sínum“ og berjast gegn covid-19.

„Það er sérstaklega mikilvægt að nýta bóluefnin að fullu sem áhrifarík vopn og tryggja jafna dreifingu, hraðari bólusetningu og að loka alþjóðlega bilinu í bólusetningum.“

Leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins sagði, að Kína hefði þegar sent meira en tvo milljarða bóluefnaskammta til fleiri en 120 mismunandi landa og alþjóðlegra stofnana – og muni senda aukalega yfir einn milljarð bóluefnisskammta til annarra landa.

Ofurglóbalistinn Klaus Schwab lýsti því yfir, að leiðtogar heimsins þurfi að „skilgreina stöðu heimsins“ og „takast á við helstu áskoranir fyrir hið þétttengda, alþjóðlega mannkyn.“

„Við verðum að halda áfram að berjast gegn heimsfaraldrinum. Við þurfum að blása nýju lífi í hagkerfi heimsins og flýta fyrir umskiptum yfir í losunarhlutleysi. Við verðum að vernda líffræðilegan fjölbreytileika með því að innleiða lausnir sem byggja á náttúrunni og við verðum að minnka bilið milli ríkra og fátækra og skapa möguleika fyrir enn frekari sjálfbærri heimsþróun“ sagði Schwab.

Offjölgunarvandamál, loftslagsváin og fjórða iðnbyltingin á dagskrá

Á mælendaskrá ráðstefnunnar eru forsætisráðherrar og leiðtogar ríkisstjórna frá fjölmörgum löndum – þar á meðal Ísrael, Ástralíu og Indlandi og einnig António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður WHO.

Athygli vekur að hinn umdeildi Anthony Fauci yfirmaður smitvarna í Bandaríkjunum heldur erindi á ráðstefnunni líkt og Christine Lagarde bankastjóri Seðlabanki Evrópu. Tveir sænskir ræðumenn eru einnig með; Björns Rosengren, forstjóri ABB og Anna Borg, forstjóri Vattenfall, og munu þau ræða um orkuumskipti yfir í græna orku og uppfinningar til að flýta fyrir vörnum við loftslagsvánni.

Málaflokkar sem fá mikla áherslu eru netöryggi, alþjóðlegur tekjumunur, „fjórða iðnbyltingin“, alþjóðlegt yfirþjóðlegt samstarf, losun og loftslagsbreytingar, meint vandamál offjölgunar á heimsvísu, hagkerfi heimsins, framtíð heimsfaraldursins og hvaða ráðstafanir á að grípa til gegn faröldrum í framtíðinni.

Áhyggjur af efasemdum varðandi bóluefnin

Á heimasíðu sinni eru skipuleggjendur valdaráðstefnunnar algjörlega opnir fyrir því að litið sé á viðburðinn sem vettvang fyrir leiðtoga heimsins til að „safna og deila framtíðarsýn sinni fyrir komandi ár“ um hvernig heimurinn á að mótast og hvernig mismunandi „áskoranir“ verði.

„Við verðum að endurnýja skuldbindingar okkar til alþjóðlegrar samvinnu og sameiginlegrar velferðar“ er boðskapurinn í ár.

Margir telja að heimsfaraldurinn svokallaði sé mjög ýktur og að mikil áhætta fylgi bóluefnunum og er það glóbalistunum sérstakt áhyggjuefni. Segja talsmenn kommúinismans, að slíkar efasemdir leiði til aukinnar andstöðu við áframhaldandi fjöldabólusetningarherferðir og traust fólks á stjórnvöldum minnki. Er verið að samræma áframhaldandi og víðtækari skoðanakúgun gegn slíkri stjórnarandstöðu í heiminum.

Fauci vill kveða niður „ranghugmyndir“ um bóluefnin

„Eitt af því sem allur heimurinn stendur frammi fyrir og við í Bandaríkjunum stöndum frammi fyrir og höfum miklar áhyggjur af, er mikið magn rangra upplýsinga.“

Grípa verður til róttækra aðgerða til að „bjarga jörðinni“

Skömmu fyrir ráðstefnuna birti WEF einnig 10 „lærdóma“ af heimsfaraldrinum, þar sem kemur fram að fólk hafi „aðlagað sig“ að kórónustefnunni með afnámi réttinda og umfangsmiklum lokunum í miklu meira mæli en búist hafði verið við.

Einnig má sjá, að sú stefna sem fylgt hefur verið og margir þátttakendur ráðstefnunnar hafa tekið þátt í og beitt sér fyrir, hefur haft neikvæð áhrif á fæðingartíðni og að margir hafa valið að fresta fjölskyldumyndun vegna ýmissa takmarkana í samfélaginu og í daglegu lífi sínu. Þetta gerir það líklegt, að íbúum jarðar fækki hraðar en áður var talið.

WEF telur einnig að lærdómurinn af covid-19 sé, að sjálfbær framtíð krefst stjórnmálaforystu sem „hefur umboð til að bregðast við“ og að grípa verði til „róttækra aðgerða“ til að „bjarga jörðinni“. Einnig er kvartað undan sljóum almenningi, sem gerir sér ekki grein fyrir því, hversu róttækar breytingar þarf að gera á lífinu í þessu skyni.

 


mbl.is Verða að afhenda bóluefnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju eru svo fáir stjórnmálamenn "ósnertanlegir" ?

external-content.duckduckgo-2

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var í viðtali hjá Arnþrúði Karlsdóttur útvarpsstjóra Útvarps Sögu í gær. 

Í viðtalinu lýsti Sigmundur Davíð samböndum og aðförum fulltrúa vogunarsjóða með boð um gull og græna skóga í mútur til hans sem forsætisráðherra færi hann að vilja þeirra. Síðan bárust hótanir um allt það versta, ef forsætisráðherrann léti ekki að stjórn vogunarsjóðanna. 

Sigmundur sagði: 

„Það voru hins vegar aðrir, fulltrúar þessara vogunarsjóða sem bæði buðu greiðslur fyrir það að leysa málin á þann hátt sem þeir teldu farsælt og beittu hótunum, en þær komu ekki beint til mín heldur í gegnum milliliði, að það sem ég væri að tala fyrir þarna væri slík ósvinna að ég myndi fá að finna fyrir því.“

Það er virðingarvert hjá Sigmundi Davíð að upplýsa almenning um vinnuumhverfi forsætisráðherrans á þennan hátt og skal hann þakkir hafa fyrir. Hann var staðfastur á lýðræðislegum grundvelli starfsins og lét ekki múturnar snerta það umboð, sem þjóðin hafði veitt honum.

Við vitum öll hver hefndin var: Tveggja ára undirbúið launsátur með grófum lygum í fjölmiðlaáhlaupi Panamaskjala, sem leiddi til þess að forsætisráherrann var hrakinn úr embætti. Sú árás á íslenska lýðveldið er skammarblettur í sögu Íslands. Stjórnarskránni var hent út í skurð fyrir tilstilli erlendra fjármálaafla í samvinnu við minna vandaða stjórnmálamenn og peningaöfl á Íslandi.

Þeir eru ekki margir ráðherrarnir íslensku sem eru jafn hreinskilnir og heiðarlegir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Einn forsætisráðherra hefur þó áður greint frá sams konar starfsumhverfi og mútutilraun: Davíð Oddsson. Hann er farsælasti forsætisráðherra lýðveldistímabilsins og sá sem setið hefur flest ár samfleytt í embættinu. Þegar Icesave deilan stóð sem hæst voru honum boðnar mútur til að svíkja þjóðina. En Davíð Oddsson er vandaðri að virðingu sinni en svo, að poki með óteljandi gullmolun nái að snerta bönd hans til þjóðarinnar. 

Við vitum öll hver hefndin var. Davíð Oddsson var hrakinn úr embætti Seðlabankastjóra með grófum lygum og aðför vinstri manna, sem réðu útlending til starfsins gegn lögum.

Þessir tveir einstaklingar, Sigmundur og Davíð, sem helguðu líf sín til að bjarga Íslandi frá stórfelldasta bankaráni sögunnar, sönnuðu að hjartað sló fyrir lýðræðið, kjósendur og þjóðina. Engir peningar í heimi gátu snert þann streng. Þeir munu því um alla framtíð standa upp úr sem fyrirmynd annarra sannra lýðræðissinna, sem þeir „ósnertanlegu."

Ísland þarf fleiri foringja eins og þá Davíð og Sigmund.

Hvers vegna ríkir svo mikil þögn hjá öðrum ráðherrum? Varla tekur starfsumhverfið stökkbreytingum miðað við hver kosinn er?

Eiga Íslendingar að trúa því, að einungis Davíð og Sigmundi hafa verið boðnar mútur?

Af hverju eru svo fáir stjórnmálamenn „ósnertanlegir"?

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband