Bloggfærslur mánaðarins, mars 2020

Ríkisstjórnin hlýtur að mótmæla gróflegri íhlutun kínverska sendiráðsins í íslenskt málfrelsi

download 3Það þarf ekki nafnlausa sendiráðsyfirlýsingu kínverskra kommúnista til að betrekkja eldhúsveggina með morgunkaffi en litlu munaði samt í morgun.

Í óundirritaðri grein sendir kínverska sendiráðið frá sér yfirlýsingu um hvernig Morgunblaðið á og ekki á að skrifa leiðara blaðsins. Fer það fyrir brjóst ónafngreindra að bent sé m.a. á að kínverski kommúnistaflokkurinn beitti þöggun í upphafi veirusmits og breiðir núna þeim áróðri um allar jarðir, að bandaríski herinn hafi plantað veirunni í Kína og ef það sannist ekki, þá hafi veiran alla vega byrjað fyrst á Ítalíu og borist þaðan til Kína!

Það er kannski vegna einræðisskipulags Kína með alræðisvaldi kommúnistaflokksins sem ósýnilegar plágur koma reglulega frá þessu mikla ríki yfir til annarra hluta heims. SARS, fugla-, svínainflúensa, HN og Covid eitthvað. Það verður grýtt leið fyrir kommúnistana að upplýsa fólk um eitthvað annað. 

Og hafandi kveikt eldinn, þá er ekki rétt að málum staðið að þykjast vera bjargvætturinn á meðan grannarnir eru uppteknir við slökkvistörf í sínum húsum. Það er vel yfir mörkum sannmælis að krefjast þess að aðrir sem eru að týna lífinu eigi að játa kommúnistaflokknum hyllingu vegna þess að hann geti boðið aðstoð!

Í yfirlýsingunni segir: "eðlilega fara menn að velta fyrir sér af hverju þessir ritstjórnargrein var birt". Sem betur fer er Morgunblaðið óháður miðill sem kínverskir kommúnistar eiga ekki. Morgunblaðið er hvorki Global Times eða Pravda og á fullan rétt á því að viðra aðra hugmyndafræði en lofgjörð um sósíalismann/kommúnismann. Það var ekkert í leiðara blaðsins 27. mars s.l. sem var "ómakleg árás" á Kína. 

Þessi fordæmalausa íhlutun ónafngreindra kommúnista í nafni "sendiráðs" í frjáls skoðanaskipti á Íslandi hljóta að verða ríkisstjórninni tilefni til áréttingar við sendiherra Kína á Íslandi og samtímis kennslustund í gildi tjáningarfrelsis fyrir Íslendinga.

Við veljum ekki leið Kommúnistaflokksins sem lokar vísindastofum, fyrirskipar eyðingu sönnunargagna, handtekur þá sem segja frá staðreyndum og stundar persónunjósnir á venjulegu fólki. 

Kínverskir kommúnistar vildu sjálfsagt loka Morgunblaðinu. En því miður, við veljum lýðræði og skoðanaskipti í stað einræðis.

Ríkisstjórnin, a.m.k. utanríkisráðherra á næsta leik. Eða er Guðlaugur Þór Þórðarson jafn fastur í bandi ónafngreinda eins og ESB?


Velferð í orði – helferð á borði

communistvirusÉg tek heilshugar undir orð Mike Pompeo um lygar og þagganir kínverskra kommúnista í upphafi útbreiðslu veirunnar í Wuhan, Kína. "Þetta er klikkuð umræða" svo sannarlega. Ég á grein í Mbl. dagsins um alþjóðavæðinguna sem spurning er hvort ekki sé enn skæðari veira en Wuhan-veiran. 

Kemur betur og betur í ljós hvernig "just in time" hefur afvopnað þjóðir sem gleypt hafa stefnu hnattvæðingarinnar og hætt við fyrirbyggjandi aðgerðir til að mæta farsóttum og styrjöldum. 

Að vera ekki sjálfum sér nægur um mat, lyf eða hluti í venjulega framleiðslu er bókstaflega glæpsamleg stefna sem gerir þjóðir heims ósjálfbjarga og háða ákvörðunum Kommúnistaflokks Kína. ESB og SÞ eru hlutar þessa nýja heimssósíalisma undir forystu Kínverja sem stefna að heimsyfirráðum eins og hernaðarbrölt þeirra sýnir í Kínahafi með byggingu herstöðva á nýgerðum eyjum og útþenslustefnu gagnvart HongKong, Taiwan, Japan, Philippseyjum m.fl. 

Það er svefngangur að hætti zomba með fljúgandi leðurblökur í kringum sig að fylgja aurunum beint í faðm kínverskra kommúnista. Mestöll sósíaldemókratía Vesturlanda mjálmar við dyragættir Kommúnistaflokkins, stór alþjóðafyrirtæki dansa með á þjóðlausu línunni og fjármálajöfrar á Wall Street eins og George Soros kaupa stjórnmálamenn til hægri og vinstri til að ná viðskiptamarkmiðum sínum. 

Kínverska veiran hefur breytt öllum heiminum. Fyrsta áfallið er að vopnast til að sigra veiruna. Enginn veit hvort Kommúnistaflokkur Kína lumi á fleiri veirum t.d. mannskæðri rottuveiru sem sagnir segja að skotið hafi upp kollinum í Kína. 

Á eftir fyrsta áfalli veiruárásarinnar kemur það næst að Kína, Rússar ásamt fleirum reyna að bola burtu dollarnum sem alþjóðagjaldmiðli og koma á eigin stafrænum miðli sem er tilbúinn til notkunar. Skammtímamarkmiðið er að velta aðalóvini hnattvæðingarinnar Donald Trump úr valdastóli og koma í veg fyrir endurkjör hans sem Bandaríkjaforseta seinna í ár. 

Stjórnmálaviðbrögð munu koma. Fólk skilur að alþjóðastefnan grefur undan lífsnauðsynlegum þáttum eins og mat og lyfjum. Þjóðríkið kemur til baka en reikna má að einhverjar öfgar geti skotið upp kollinum. 

Barnaskapur íslenskra ráðamanna hefur verið mikill, að dalta við ESB, SÞ og Kína á undanförnum árum. Skræfurnar í stjórnarráðinu munu þó varla fara að skríða undan hlýjum pilsfaldinum í Brussel og því mun íslenska þjóðin sjálf þurfa að grípa í taumana og ákveða örlög sín.

 

 


mbl.is Skaut föstum skotum á Kínverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðin vegin í haust – Palli er ekki einn í heiminum

200px-Coat_of_arms_of_Iceland.svgÞegar fjármálakreppen reið yfir heiminn 2008 sögðu bankastjórarnir (að undanskildum Seðlabankastjóra), hagfræðingarnir og allur sérfræðingaskarinn að ekkert væri að óttast, fjármálin í góðu ásigkomulagi og engin hætta á gjaldþroti hjá einum né neinum. 

Í dag segja ráðherrar ríkisstjórnarinnar og Seðlabankastjóri að ekkert sé að óttast, því Ísland skuldi svo lítið og gjaldeyrisforðinn sé svo stór. Allt muni verða í lagi og Íslendingar ráða niðurlögum kórónuveirunnar og snúa fljótt aftur til daglegs lífs.

Það er eins og ríkisstjórn Íslands sé Palli einn í heiminum og trúi að orðin skapi nýjan veruleika að þeim sögðum sem guði einum almáttugum er falið. Að orð forsætis- og fjármálaráðherra byggi töfrahjúp yfir eyjuna fögru og verji hana fyrir utanaðkomandi áföllum.

Eftir þrjá mánuði munu þessi orð reynd og sannleikurinn koma í ljós.

Sú heimskreppa sem nú vofir yfir fer létt með að tæma bæði ríkissjóð og gjaldeyrisforða á einu augnabliki.

Það sem bjargar Íslandi verður sem fyrr, lambakjöt og fiskur.

 

 


mbl.is Stoltur forsætisráðherra á fámennum ársfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veira kommúnistaflokks Kína skýrð á myndum

Ein mynd segir meira en þúsund orð. Kommúnistaflokkur Kína stundar villuáróður um allan heim til að dreifa sýn á hverjir bera ábyrgð á kórónaveirunni. Það nýjasta er að veiran hafi verið komin til Ítalíu áður en hún kom til Wuhan. 

Sem betur fer fáum við á Vesturlöndum upplýsingar frá fólki sem þekkir til í Kína. Hér nokkrar myndir af netinu.liesvictimschinavir

ETs9q2oU8AI6xFz

corona19china


Yfirvöld sýna góðan vilja en meiri aðgerða er þörf eins og Sigmundar Davíð Gunnlaugsson bendir réttilega á

Það er gott mál að ríkisstjórnin grípi strax til samræmdra aðgerða og stendur sameinuð að baki ákvörðunum. Það er mikilvægt að yfirvöld sendi sterk skilaboð til allra að allt verði gert sem í mannlegum mætti stendur til að mæta þeirri ótrúlega sérstæðu stöðu sem drápsveiran hefur í för með sér og lamar allt samfélagið. Þetta er svo sannarlega ástand sem kallar á allt það besta sem þjóðin getur tekið fram og að allir kraftar vinni saman óháð flokkslitum.

Málið er hins vegar svo risavaxið og botninum hefur enn ekki verið náð og lítur því miður ekki betur út en að allt peningakerfi hins vestræna heims gæti oltið á hliðina. Slíka útreið mun taka mörg ár ef ekki áratugi og jafnvel heila öld að ná sér á eftir. Við slíkar aðstæður hjálpa falleg orð um góða stöðu og þykkan gjaldeyrissjóð skammt og einhliða Hörpusýningar eru þeirra sem telja sig ekki síður merkilega en ríkisstjórn Kína. Ísland er ekki eitt í heiminum og aðrir stærri kraftar á ferð sem Ísland verður að lifa með. Hér er eitt dæmi:

GS sudden stop

Goldman Sachs spáir 24% falli vergra þjóðarframleiðslu USA á öðrum ársfjórðingi 2020 og a.m.k. 9% atvinnuleysi. Gangi spáin eftir eru Bandaríkin komin í kreppuna miklu. Að sveiflan upp á við verði jafn brött og Goldman Sachs sýnir á þriðja kvartali er óskhyggja. Yfir 80 milljónir Bandaríkjamanna hafa þegar farið í heimaeinangrun og fleiri fylgja á eftir. Tjónið af drápsveirunni kemur fyrst í ljós þegar útbreiðsla veirunnar hefur verið stöðvuð með einangrun eða bóluefni.

Ríkissjóðir greiða ekki til lengdar laun starfsmanna fyrirtækja og  munu fyrirtækin hrynja eins og spilaborg og fólki kastað í atvinnuleysi. Verðbréfamarkaðir t.d. í Stokkhólmi hafa lækkað -30% og Dr. Doom sem sá fyrir hrunið 2008 spáir -70% markaðshruni og vonast hann að það dugi til að Trump nái ekki endurkjöri.

Íslenska ríkisstjórnin stjórnar ekki veirunni frá Kína. Ríkisstjórnin getur notað súperutanríkisráðherrann til að mótmæla meðhöndlun kínverska kommúnistaflokksins á uppruna og útbreiðslu veirunnar sem þeir leyndu fyrir umheiminum og rænt hefur dýrmætum tíma frá okkur til að bregðast við og minnka tjónið. Hnattvæðingarblinda ríkisstjórnarinnar kemur sjálfsagt í veg fyrir slíkt.

Að kommúnistaflokkur Kína ráði því hverjir fá andlitsgrímur og hlífðarföt fyrir sjúkrahúsin eða hvort hægt sé að framleiða bíla í Evrópu er fullkomlega óviðunandi.

Þess vegna er afstaða formanns Miðflokksins Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar bæði skiljanleg og réttmæt.

 

 


mbl.is Ólíklegt að þessar aðgerðir dugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósannindi kínverska kommúnistaflokksins um kórónuveiruna kosta þúsundir jarðarbúa lífið

 

Alþjóðavæðingin hefur gert Kína að ægishjálmi alls lífs á jörðunni og önnur lönd að vanþróuðum ríkjum. Kínverjar stjórna lyfjaframleiðslu, bílaframleiðslu og alls konar annarri framleiðslu í heiminum. Vesturlönd eru orðin háð Kína með lífsnauðsynlega þætti samfélagsbyggingarinnar. Kommúnistaflokkur Kína reyndi að þagga niður veiruna í byrjun og bæði Kínverjar og heimurinn fyrir utan Kína misstu mikilvægan tíma sem hefur kostað þúsundir mannslífa í heiminum og á enn eftir að versna. 

Kínverski kommúnistaflokkurinn hefur gripið til þess ráðs að ásaka Bandaríkjamenn fyrir að hafa laumað veirunni inn í Kína og notar þennan lygaáróður til að afvegaleiða landsmenn í Kína um sannleikann í málinu.

Hvað eru Kínverjar að fela? Þingmaðurinn Josh Hawley vill láta rannsaka það.

Þegar heimurinn hefur hreinsað upp skítinn eftir Kínverska kommúnistaflokksinn á að sækja kommúnistana til ábyrgðar. Það verk verður að vinnast af þeim sem eftir verða í heiminum, eftir covid 19 og það sem á eftir kemur frá kommúnistunum í Kína.


Ísland í þriðja flokki vegna misskilnings Úrsúlu

imageESB láðist að hafa samband við utanríkisráðherrann til að spyrja hvort mætti ekki strika Ísland af lista yfir viðskiptavini sambandsins fyrir andlitsgrímur og annan hlífðarbúnað fyrir starfsmenn sjúkrahúsa. 

Það kemur að sjálfsögðu utanríkisráðherra í opna skjöldu að Framkvæmdastjórn ESB hafi gleymt mikilvægasta viðskiptavini ESB - stjórnarráðinu í Reykjavík og einnig fyrir að hafa ekki framfylgt Lissabonsáttmálanum og reglum ESB um að biðja íslenska utanríkisráðuneytið um leyfi fyrir þeim vörum sem sambandið setur inn á sölulistann.

Vonandi kallar ráðherrann Úrsúlu inn á teppið og hirtir hana til. Verður Úrsúla geðill fer utanríkisráðherrann létt með að skipta um framkvæmdastjóra ESB fyrir kvöldmat til að kippa málunum í lið. 

Jákvæða fólkið er hamingjusamt með utanríkisráðherra landsins.


mbl.is Evrópusambandið bannar sölu á grímum til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sex sinnum sex sinnum sex aðeins fyrsta talan í sænska harmleiknum

sveveira3Ekkert er lengur að marka opinberar tölur Svíþjóðar varðandi útbreiðslu eða dánartölur kórónuveirunnar. Lýðheilsan tók þá ákvörðun að hætta að eyða fjármunum, prófrörum og mannafla í jafn tilgangslausan hlut eins og að taka sýni og greina kórónaveiru hjá Svíum. Kári Stefánsson og Íslensk Erfðagreining eiga engan samanstað í velferðarríkinu.

Árangurinn lætur ekki standa á sér og smithraðinn hefur snarminnkað miðað við fyrri viku á meðan greining var í gangi. Opinberlega verða því smitaðir mun færri í sælulandinu en í nágrannaríkjum að ekki sé nú talað um land óperunnar, þar sem bæði smitaðir og ósmitaðir og ennþá lifandi syngja saman þvert yfir göturnar út frá svölum sínum. Hættan er þó sú að ný skandinavísk aría verði sungin 1. maí n.k. með þvílíkum angistarrómi að enginn lifandi jarðarbúi komist hjá því að heyra tónana.

Þegar sjúkrahúsin verða yfirfull og líkburður út hefur ekki undan aðstreymi nýrra sjúklinga inn, verður fólk sent heim með magnyltöflur og sagt að það hafi flensu. Síðan verður hverfum lokað, öllum bannað að fara út og lík þeirra sem heima deyja komast ekki inn í kórónutölur.

Sænskir jafnaðarmenn fylgja kommúnistaflokki Kína og sýna gott fordæmi og gefa starfsmönnum gjörgæsludeilda fyrirmæli um hverjir fá miða í þær fáu öndunarvélar sem eru í gangi á meðan einhver starfsmaður stendur uppi til að gæta þeirra. Miðað við varlegan útreikning verða 15% svo heppnir að sleppa við heimsendingu í líkpokum.

Eftir mánuð gæti Stokkhólmur allur verið settur í sóttkví og herinn líkt og í Kína og á Spáni sér til þess að enginn komist út eða inn.

Fyrsti kaflinn í sænska harmleiknum er hafinn.


mbl.is Sex látnir í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guði sé lof, að Trump er ekki smitaður af Kínaveirunni

unnamedEnn ein spá og von andstæðinga Trumps er komin í ónýta hauginn. Bandaríkjaforseti lét greina sig og útkoman var neikvæð. Þau jákvæðu bjuggust öll við jákvæðri útkomu ef til ómögulegrar greiningu kæmi og eru því í tvöföldu neikvæðiskasti núna sem bætist við öll hin óteljandi köstin vegna bíræfni Bandaríkjaforseta að vera frískur. 

Síðan Davíð Oddsson hætti að vera forsætisráðherra varð skortur á "djöfli" á eyjunni köldu sem hægt er að kenna um hrakfarir mannkyns. Íslendingar eru hluti mannkyns og að mati íslenskra ráðherra sá mikilvægasti enda drjúpa aðrar þjóðir heims höfði í átt til landsins í leit að ráðstöfunum og upplýsingum.

Utanríkisráðherrann íslenski bendir góðlátlega framámönnum annarra þjóða á að fyrst eigi að hlýða á orð sín áður en mál eru borin undir viðkomandi þjóðir. Sameinuð fréttamennska heims snýst svo að sjálfsögðu um íslenska utanríkisráðherrann, sem Trump setti í ferðabann til Bandaríkjanna. Hámark ósvífninnar var að leyfa ráðherrum annarra eyja í Atlantshafi að ferðast en ekki þeim íslenska. En sú ósvífni fór líka í ónýta hauginn, þegar Trump setti Írland og Bretland í farbann og jákvæða fólkið því í einu neikvæðiskastinu enn.

Áróðursmeistari jákvæða fólksins Björn Bjarnason veit ekki lengur hvaðan á sig stendur veðrið.

Trump er frískur og berst gegn kínversku veirunni. 

Davíð líka þegar síðast fréttist.


mbl.is Trump ekki með kórónuveiruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kveðja frá H.H. Svíakonungi Carl XVI Gustaf

kveðjaVegna nýju kórónuveirunnar sendir Carl XVI Gustaf Svíakonungur frá sér eftirfarandi kveðju í lauslegri þýðingu:

 

"Fjölskylda mín og ég fylgjumst af mikilli alvöru með þróun covid-19 í og fyrir utan Svíþjóð.

Ég sendi sérstaka kveðju til Þín sem vinnur núna að því að fyrirbyggja og takmarka útbreiðslu hinnar nýju kórónuveiru og hjúkrar þeim einstaklingum sem hafa veikst.

Störf Þín eru mikilvæg fyrir land vort og mjög mikils metin af mér, fjölskyldu minni og öllum í Svíþjóð.

CARL GUSTAF


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband