Bloggfærslur mánaðarins, september 2016

Þjóðin þarfnast leiðtoga eins og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

f81a76761b27889aÞað er alltaf erfitt fyrir stjórnmálaflokk, þegar erjur fara úr flokksböndunum. Slíkt laðar óvini að sem smakka á kræsingunum. Því miður valdi Sigurður Ingi Jóhannesson eigið ego fram yfir stjórnmálin, þvert á eigin yfirlýsingar. 

Sú sérstaka ástæða sem olli brotthvarfi löglegs kjörins forsætisráðherra Íslands úr embætti er engan vegin minni en persóna Sigurðs sjálfs. Framsóknarflokkurinn hefur tekið við árásum af sama meiði úr höndum sama fólks og ræsti út Landsdóm til að klekkja á löglegum kjörnum embættismönnum þjóðarinnar.

Allt síðan bankasvindlarar settu allt á höfuðið og reyndu að ræna ríkissjóð í leiðinni hefur hluti stjórnmálalífs á Íslandi skorðast við að eyðileggja lýðræðið og grunngildi stjórnmálanna. 

Skrílslæti og bókstaflegt skítkast á Alþingi hefur komið í stað gagnkvæmrar upplýsandi umræðu. Lygar og fyrirsát í stað heiðarlegrar gagnrýni og skoðanaskipta. Það átti að ganga af Sjálfstæðisflokknum dauðum. Núna Framsóknarflokknum með fulltingi alþjóðaafla sem verja hrægammasjóði með kjafti og klóm og vilja ganga frá sjálfstæðum þjóðum.

Með endurreisn fyrrverandi forsætisráðherra í stjórnmálin gerir þjóðin tvennt:

1) Hún sendir skýr skilaboð til fjármálaglæpamanna, að hún muni ekki láta kúga sig til hlýðni og áfram halda lýðræði í öndvegi eins og þjóðin gerði með fulltingi ríkisstjórnar Geirs Haarde og forseta Íslands í Icesave baráttunni.

2) Þjóðin snýr við blaðinu og hættir að þola raus rugludalla sem traðka á þingræðinu og stendur í stað þess vörð um lýðræðið. Hefði þetta verið gert gagnvart "Panamaskjölunum" hefði stjórnarskráin ekki verið brotin en þar segir að kjörtímabil sé 4 ár.

Sigurður Ingi Jóhannesson hugsar skammt og sér stutt. Framsóknarflokkurinn er í einstæðri stöðu til að hvetja þjóðina til framsóknar gegn þeim aumingjaskap sem einkennir eftirhermur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og kollega hans í mútaðri stjórnmálahjörð. 

Minnumst þess að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eru einir núverandi stjórnmálaflokkar sem voru með við stofnum lýðveldisins 1944.

Sigurður Ingi Jóhannesson ætti að láta af sínu eigin egó og viðurkenna þessa staðreynd og vinna áfram að því að bjarga þjóðinni frá ógnvættum hennar. 


mbl.is Liggur fyrir að ég styð Sigmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Return of the Jedi - Velkominn aftur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson!

UnknownBestu fréttir dagsins voru stórglæsilegar kosningar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í fyrsta sæti Framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi með 72% atkvæða. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands á allan stuðning skilinn vegna fyrri framgöngu í baráttu þjóðarinnar gegn Icesave og spilltum fjármálaöflum.

Það er sérstaklega ánægjulegt og um leið nauðsynlegt, að okkar fyrrverandi rétt kjörni forsætisráðherra sem hrakinn var úr starfi með lygum ríkisfjölmiðla um undankomu fjár í skattaskjólum, fái verðskuldaða endurreisn í leiðtogahlutverki fyrir íslenska lýðveldið. Best væri að hann kæmi til baka í stöðu forsætisráðherra. Það væri blaut tuska í andlit George Sóros og fylgismanna hans á Íslandi: glóbalista pírata og Samfylkingar, Viðreisnar, BF og Vinstri grænna sem öll vilja breyta Íslandi í nýlendu ESB.  

Það er mikill styrkur fyrir Framsóknarflokkinn að hafa slíkan leiðtoga sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er. Það er ekki minni styrkur fyrir íslensku þjóðina að hafa stjórnmálaflokk eins og Framsóknarflokkinn sem með dugnaði og hugrekki þorir að bjóða sterkum spillingaröflum birginn. 

Ég óska Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni alls hins besta í starfi og hlakka til að sjá hann aftur í stafni skútunnar okkar.


mbl.is Sigmundur með afgerandi forystu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðreisn tekur yfir einsmálaskikkju Samfylkingarinnar - fer sömu leið og fyrirrennarinn

falkinn_gamli-150x150Línurnar í íslenskum stjórnmálum eru að skýrast. Það er gott. ESB-sinnar Sjálfstæðismanna eins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eru komnir út úr skápnum til að axla hjartans mál Samfylkingarinnar, sama málið og íslenska þjóðin hefur hafnað og kostað hefur Samfylkinguna stjórnmálatraustið. Viðreisn mun fara sömu leið.

Viðreisn ESB-gilda á Íslandi mun mistakast. Ekki eingöngu vegna þess að það er Ísland sem á í hlut, heldur vegna Evrópusambandsins sjálfs sem er í upplausn, fjármálakreppu, stjórnmálakreppu, flóttamannakreppu, stofnanakreppu, elítukreppu....kreppulistinn er langur. 

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins kom fram í prýðilegu viðtali í íslenska sjónvarpinu og útskýrði stefnu Sjálfstæðismanna varðandi Evrópusambandið. Bjarni Benediktsson hefur eflst í starfi formanns og tekist að keyra fram hjá ESB-gryfjunni. Hann benti réttilega á, að þróunin í Evrópu er sú að sífellt stærri þjóðfélagshópar leggjast gegn markmiðum Evrópusambandsins. Formaður Sjálfstæðisflokksins hvikar ekki frá grundvelli lýðræðis og lýðræðislegra vinnubragða og slíkt vekur vonir og eflir traust. 

Viðreisn er fullkomin tímaskekkja og viðkomandi til vansæmdar. Einstaklingar, sem sækjast eftir völdum til að geta selt út þjóðina fyrir eigin hag, sýna afneitunareinkenni á háu stigi og skilja ekki staðreyndir þess lífs sem fjöldinn deilir. Viðreisn er fangi sögulegs ósigurs, sem stofnendurnir geta ekki sætt sig við. Viðreisn mun aldrei ná fylgi til miðjunnar. Viðreisn er sértrúarsöfnuður í sama stíl og Samfylkingin og er um megn að leiða stjórnmálahreyfingu allra stétta eins og Sjálfstæðisflokkurinn er. 

Bjarni Benediktsson hefur hins vegar sýnt góða burði til að gera það.

Boðskapurinn stétt með stétt á ekki minna erindi til okkar í dag en fyrir 70 árum síðan.

 

 

 


mbl.is Þorgerður og Þorsteinn í Viðreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á að leggja niður RÚV og segja upp öllu starfsfólki

Skärmavbild 2016-06-05 kl. 10.06.09

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er hneyksli í himinhæðum, að RÚV sem hefur allt frá falli fjármálafyrirtækja á Íslandi 2008 verið einhliða nýtt sem tæki gegn íslensku þjóðinni í öllum mikilvægustu málum hennar, skuli enn vera rekið á kostnað skattgreiðenda. 

Ekki nóg með að miðillinn misnoti aðstöðu sína sem einokunaraðili á auglýsingamarkaði og útrými allri heilbrigðri fjölmiðlasamkeppni, heldur hefur RÚV orðið að útungunarvél glóbalista sem vilja troða þjóðinni inn í Evrópusambandið og eyðileggja þúsund ára lýðræði og sjálfstæði Íslendinga. 

RÚV er virkur aðili gegn lífshagsmunum Íslands og á RÚV hefur hópur fólks hreiðrað um sig sem lifir í eigin hroka án jarðsambands við venjulegt fólk.

Síðast var RÚV notað í beinni árás á lýðveldið í alþjóðlegu verkefni fjárglæpamannsins George Soros sem auglýst var sem Panamaskjölin. Fyrirsátur var gert við einn æðsta löglega kjörinn embættismann þjóðarinnar og hann hrakinn úr embætti með aðstoð skrílsláta á Austurvelli. Fyrrverandi forsætisráðherra var "aflífaður" í beinni útsendingu og meðvitað skautað fram hjá staðreyndum sem lágu á borðinu. 

RÚV er gróðrarstía afla, sem niðurlægja Alþingi, stjórnarkrána og aðrar lýðræðislegar stofnanir okkar og rífur niður eðlilega samstöðu og samstarf fólks í landinu. Varla var það meiningin við stofnun ríkisútvarpsins.

Það á að leggja niður RÚV í núverandi mynd, segja upp öllu starfsfólki og síðan geta  öryggisyfirvöld í landinu eins og t.d.landhelgisgæslan, lögreglan, slökkviliðið og sjúkraflutningamenn opnað útvarp með öryggismálum fyrir landsmenn. 

Enginn á að þurfa að vera neyddur að borga fyrir áróður eða árásir gegn landinu okkar.


mbl.is Segir ummælin sýna andúð á Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband