Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2016

Sigmund Davíð Gunnlaugsson sem næsta forsætisráðherra Íslands

Sigmundur_Davíð_Gunnlaugsson_(cropped)RÚV átti skilyrðislaust og samstundis að segja upp þeim starfsmönnum sem í slagtogi við Uppdrag granskning hjá sænska sjónvarpinu gerðu fyrrverandi forsætisráðherra Íslands Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrirsát og réðust á hann með lygum um undanhald eigna í skattaskjóli í Panama.

Yfirlýstur tilgangur Panamaskjalaherferðarinnar var að "sýna og sanna" hvernig spilltir ríkir einstaklingar notfæra sér skattaskjól m.a. í Panama til að skjóta eignum undan skatti. Þannig var herferðinni gefið lögmætt tilefni á yfirborðinu til að þjóna almennum hagsmunum.  

En á Íslandi var þessi yfirlýsti tilgangur hjómið eitt. Aðaltilgangur "Panamaherferðarinnar" á Íslandi var að skapa stjórnarkreppu og koma löglega kjörinni ríkisstjórn Íslendinga frá völdum. Að því leytinu til náðist það markmið, að forsætisráðherra Íslands vék úr starfi og ríkisstjórnin braut ákvæði stjórnarskrár Íslands um fjögurra ára kjörtímabil. Alþingiskosningarnar í haust eru bein afleiðing erlendrar íhlutunar í íslensk stjórnmál fyrir tilstuðlan RÚV og Reykjavík Media. 

Undir yfirskyni "baráttu gegn skattaundanskotum" settu RÚV, Reykjavík Media og starfsmenn Uppdrag granskning hjá SVT á svið undirbúna hernaðaraðgerð þar sem æft var í marga mánuði, hvernig árásin yrði framkvæmd í smáatriðum og farið eftir fyrirfram gerðu handriti. Slegið var á stóru trommuna með "alþjóðasamtökum rannsóknarblaðamanna" sem almenningur veit engin deili á og í engri stöðu til að kynna sér á stuttum tíma. Einnig var básúnað út hversu gríðarmikið starf hefði farið í "rannsóknina" með tugum og jafnvel hundruðum blaðamanna í fjölmörgum löndum út um allan heim. Í almenning var matreitt að um "stórkostlegar og sögulegar afhjúpanir á skattasvindli" væri að ræða.

En hvað kom í ljós?

Hvorki RÚV, Reykjavík Media né SVT:s Uppdrag granskning hafa lagt fram eina tölu eða einn bókstaf til sönnunar um skattaundanskot fyrrverandi forsætisráðherra eða konu hans. 

  1. Fáir sem biðja um "Panamaskjöl" fá nein skjöl afhent sem skipta máli, vegna þess að málið sé svo "umfangsmikið" og "gríðarlega mikil vinna" að fá fram gögnin.
  2. Þessi s.k. "alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna" sýndu sig vera verkefni á vegum Open Society í eigu fjármálasvindlarans George Soros* (sjá nánari skýringu í lok greinar). 
  3. Það er engin tilviljun, að atlagan var gerð gegn Íslandi á þessum tíma: Brexit var í aðsigi og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talaði munni sjálfstæðra þjóða (sem er eitur í beinum George Soros)
  4. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var einn þeirra manna sem leiddu baráttu Íslendinga gegn Icesave m.a. í Indefence og í átökum við fjármálaöflin sem fylgdu í kjölfarið. Það var því mikilvægur áfangasigur hrægamma að koma honum burtu eftir Icesave-ósigurinn gegn Íslandi. 

Staðan núna

"Rannsóknarblaðamennirnir" hegða sér eins og maður sem hefur nauðgað konu og er hissa á því að hún þiggur ekki boð um að koma í bíó viku seinna. Segir umheiminum, að konan sé vond, af því hún vilji ekki koma með sér í bíó.

Eina leiðin til að stöðva þennan sora er að endurkjósa núverandi ríkisstjórnarflokka aftur í meirihluta á næsta kjörtímabili, að færa Sigmund Davíð Gunnlaugsson til forsætis á nýjan leik og t.d. byrja á góðum og hreinum uppskurði á RÚV. Síðan þarf Sigmundur að halda áfram baráttunni við fjármálaglæpamennina og þjóðin að standa þétt að baki leiðtoga sínum. 

* Open Society voru talin lokuðustu samtök í Bandaríkjunum, þegar Non Government Organisations voru rannsökuð. Þau velta einum milljarði dollara árlega og reka 44 skrifstofur í 41 landi.

Vert fyrir Íslandinga að þekkja til: Fjármálasvindlarinn George Soros hefur orðið ríkur á því að taka heilar þjóðir í gíslingu og stela himinháum upphæðum af íbúum þeirra. Dæmi: hann komst yfir einn milljarð dollara í gjaldmiðlastríði við Breta og svipaðri upphæð stal hann af Svíum á tíunda áratug síðustu aldar.


mbl.is Lykilspurningum aldrei svarað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband