Bloggfærslur mánaðarins, desember 2018

Gleðilegt nýtt ár 2019

nyar2019

Nýárskveðjur frá Stokkhólmi með ósk um farsælt komandi ár 2019


Farið varlega með sprengjurnar - síðasta ár rakettunnar í Svíþjóð

49704217_10156150561268231_3047173511467499520_nVilji menn skjóta upp rakettum í Svíþjóð 2019 verður það öllum bannað nema þeim sem fara á rándýr rakettunámskeið og borga rakettuskírteini til yfirvalda. Gamlárskvöld 2018 er síðasta tækifærið í Svíþjóð fyrir þá sem elska að sjá rakettu fljúga upp í loftið og sprengja burtu gamla árið.

En örvæntið eigi. Annars konar sprengjum fjölgar stöðugt sbr. frétt sænska ríkisútvarpsins fyrir skömmu:

"Árið hefur verið annasamt hjá sprengjudeild lögreglunnar. Aukin notkun glæpamanna á sprengjuefnum og eftirgjöf sprengjuvara hafa stóraukið álag á þjóðlega sprengjudeild lögreglunnar sem er meira nú en nokkrum sinnum fyrr".

Þjóðhagfræðingurinn Tino Sanandaji birti dæmi um sprengjur í desember:

3. des: Sprenging í stigahúsi í Malmö, þjóðlega sprengjudeildin kölluð til
4. des: Búð sprengd í tætlur í Malmö
6. des: Sprenging á þekktri barstofu í miðbæ Gautaborgar
7. des: Sprenging við húsnæði kirkjunnar í Spånga
9. des: Tvær sprengingar í Malmö - maður særist illa
16. des: Sprenging í Rósagarðinum í Malmö talin morðtilræðii
17. des. Ný sprenging í Malmö - önnur á fáum klukkutímum
20. des: Sprenging í skóla í Hässleholm
22. des: Sprenging í Malmö - heill húsveggur ónýtur
27. des: Sprenging í einbýlishúsi í Lund
28. des: Sprenging í Landskrona
28. des: Sprenging á svölum í Malmö

Enginn þarf þó að örvænta, þar sem 2018 er ekki komið í gröfina og því enn von á nýjum sprengjum. Svíar geta glaðst yfir því að "spengjurnar sem beinast að vissum einstaklingum eru þekktar fyrir það að særa eða drepa aðeins þá sem þeim er ætlað." Svo ef þú býrð í fjölbýlishúsi, þá er bara að skrúfa upp tónlistina eða setja fingurna í eyrun og halla sér, - allt er í stakasta lagi.

Grafreitasýningar fyrir ferðamenn munu því aukast í framtíðinni, bæði í Svíþjóð og á Íslandi.

Skärmavbild 2018-12-29 kl. 23.43.11PS. Búið er að loka Kaknästornet/turninum í Stokkhólmi fyrir ferðamönnum í óákveðinn tíma vegna hættu á hryðjuverkaárás. Ég bendi ferðamönnum á Græna Lund tívolí...svo lengi sem það gengur.

 

 


mbl.is „Það er ekki allt til sölu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sænskir kratar fórna Svíum, lýðræði og þingræði fyrir völdin

48417141_1971195716298115_1028136813279051776_nFyrrum ráðherra krata í Svíþjóð Thomas Bodström sagði nýlega í sjónvarpi að kratar ættu að hætta að kalla sig verkamannaflokk en þess í stað kalla sig flokk "góða innflytjandans". Taldi hann samfélagsþróunina vera góða fyrir verkafólk sem hefði allt til alls og þyrfti því ekki lengur að kenna sig við vinnandi fólk. Hins vegar væru hlutskipti innflytjenda svo slök að réttast væri að flokkurinn kenndi sig við innflytjendur. Hann bætti við orðinu góðu til öryggis.

Kratarnir afneita vandamálunum og jánka aðeins því versta sem þeir komast ekki hjá t.d. hryðjuverkinu á Drottninggatan. Sósíaldemókratar skilja ekki, að þeir "eiga" ekki Svíþjóð. Þeir halda öllu í járngreipum með lygum og ofstækisfullum áróðri gegn Svíþjóðardemókrötum, Moderötum og Kristdemókrötum. Þeim er fyrirmunað að skilja að fólk kjósi eitthvað annað en þeir vilja. Þá má þingræðið og lýðræðið fara veg allrar veraldar bara að kratar fái sinn forsætisráðherra.

Á meðan ekkert gengur né rekur að tjasla saman ríkisstjórn halda skotárásir, sprengjuárásir, vopnuð búðarrán, hnífaárásir, heimilisrán, nauðganir á torgum og götum áfram eins og enginn sé morgundagurinn. Lögreglan segir, að fyrir hvern glæpamann sem þeir handtaki standi 10-15 aðrir í röð til að fara í spor hins handtekna. Þessi röð ungra manna til metorða í glæpagengjunum lengist stöðugt ár frá ári vegna slappleika stjórnmálamanna. Líkir lögreglan ástandinu í Svíþjóð við stríð.

Nokkrar sænskar staðreyndir:

  • annar hver 15 ára unglingur í Svíþjóð er fórnarlamb afbrota í einhverri mynd
  • 28% ungra stúlkna verða fyrir kynferðisárásum
  • Svíþjóð er orðið eitt hættulegasta landið í ESB skv Eurostat
  • 116 handsprengjuárásir á átta árum setur Svíþjóð á skala með stríðshrjáðum löndum
  • Ítalía og Kína vara landsmenn við að ferðast til Svíþjóðar 
  • 7000 lögreglumenn vantar bara í Malmö til að stefja glæpaklíkurnar þar 
  • öll fangelsi í Svíþjóð eru yfirfull með allt að 100% nýtingu og sífellt stækkandi biðröðum
  • Þeir sem eru dæmdir til fangelsisvistar en komast ekki inn halda áfram glæpaverkum
  • um 360 óleyst morð eru á borði lögreglunnar
  • lögreglan leysir um 25% morða/skotárásamála, 75% verða s.k."köld" óleyst verkefni
  • nýtt dauðamet í skotárásum í ár, næstum einn drepinn í hverri viku
  • lögreglan tekur ekki lengur á móti kærum um afbrot undir 65 þús ísl kr
  • lögreglunni tókst að koma í veg fyrir tvær stórar hryðjuverkaárásir í ár
  • handteknir hryðjuverkamenn litu á lestarstöðina í Stokkhólmi, Mall of Scandinavia og gatnamótin Kungsgatan/Sveavägen sem hugsanleg mörk hryðjuverkaárásar
  • margir sænskir hryðjuverkamenn fá húsnæði, félagsbætur og nýtt nafn við endurkomuna heim til Svíþjóðar frá ÍSIS í Sýrlandi. Yfirvöld vita ekki um alla sem snúa heim
  • lögreglan varar við aukinni hættu á hryðjuverkum vegna heimkominna ÍSIS heilagastríðsmanna 
  • 1500 dæmdum hryðjuverkamönnum verður sleppt úr fangelsum á næsta ári í Evrópu
  • innflytjendakostnaður tvöfaldast til 2025, mörg sveitarfélög ná ekki í dag endum saman
  • skuldir sveitarfélaga og léna er uppi í 7.816 milljörðum ísk.
  • skuldir ríkisins eru uppi í 15.515 milljörðum ísk. um 40% af VÞF 

Á heimasíðu sænsku kratastjórnarinnar eru hreinar lygar um ástandið í Svíþjóð þar sem haldið er fram á ensku þvert gegn tölum opinberra aðila, að ofbeldið bæði morð með byssum og nauðganir hafi minnkað. Stefan Löfven sagði í ár: Við höfum engin svo kölluð no-go svæði. Við höfum tekið á vandanum. Við sjáum hvernig skotárásum fækkar í þremur stóru borgunum." Núna undirbúa kratar sig fyrir nýjar kosningar með yfirlýsingum um að kratar tryggi öryggi Svía.

Sænskir kratar eru í stríði við sitt eigið fólk. Þeir hafa farið í stríð við almenna skynsemi. Þeir telja Svíþjóð vera flokkinn sinn og skilja ekki að neinir geti gert neitt annað en það sem þeir vilja, þ.e.a.s. að knékrjúpa fyrir framan þá og lofsyngja.


mbl.is Aldrei fleiri skotnir til bana í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Versti aðfangadagur fjármálasögunnar

DvIf7-NV4AAN6j7S&P 500 vísitalan hefur aldrei nokkru sinni verið lægri en - 1% á aðfangadag. Þar til nú. Við lokun aðfangadags 2018 lá S&P 500 á - 2,69%. 

Steven Mnuchin, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, gaf út opinbera tilkynningu um að hann hefði hringt í og talað við bankastjóra sex stærstu banka í Bandaríkjunum og þeir með orðum tryggt að allt væri í stakasta lagi. Nægilegt lausafjármagn væri til að lána fyrirtækjum og einstaklingum. Minnir óneitanlega á vikuna fyrir fall íslensku útrásarvíkinganna og banka þeirra, þegar bankastjórar töluðu í munn hvers annars um hvað ástandið væri gott. 

Uppgangur fjármálamarkaða hefur að miklu leyti verið borinn uppi af gengdarlausri peningaprentun Seðlabanka Bandaríkjanna og Evrópu eftir fall Lehman Brothers 2008. Lítið af fénu hefur farið í framleiðni og verðmætasköpun. Þeim mun meira í verðbréfakaup braskara og flutning á ónýtum bankaskuldum yfir í enn ónýtari ríkisskuldabréf. Það er því mikið loft í upptrissuðum tölum S&P í dag. 

Leiðrétting og jarðsamband kemur fyrr eða síðar. Við fall Lehman Brothers féll S&P 56,4% á 17 mánuðum. Í kreppunni miklu féll S&P 86% á minna en þremur árum og náði sér ekki aftur á strik fyrr en 1954. 

Enn er því langt í land að um svipaða dýfu sé að ræða.
Verði hins vegar áframhaldandi verðfall og taugatitringur sem dregst á langinn, þá verður ekki við góðu að búast.

 


mbl.is Rauð jól á hlutabréfamörkuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólahugvekja frá Svíþjóð

web3-crucifixion-of-christ-public-domain1.jpg?w=1200Frásögn af leigubílaferð í Stokkhólmi sem farþeginn setti á netið er mér tilefni til jólahugvekju 2018. Leigubílstjórinn var trúaður múslími en yfirgaf trúna. Hann þorir ekki að gefa upp nafnið af ótta við ofsóknir og jafnvel líflát. Orðin flæða av vörum hans. Hann segir að íslam hafi stolið 40 árum af ævinni. Ekkert snérist um annað en Múhammed, Allah og bænir. Immanen og ættingjarnir sögðu að ekkert annað skipti máli.

Af hverju ætlar þú að læra? Þú munt hvort er deyja bráðum og ferðast til paradísar.

Múslímar eru hvattir til að læra hvorki sænsku né neitt annað. Múslímar eiga að vera heima og stunda hvorki atvinnu eða nám til að geta einbeitt sér að íslam. Rétt að lifa á ríkinu, það eru peningar kristinna manna. Að vinna eða fara í skóla leiðir fólk burtu frá Allah.

Átta mánuðir eru síðan bílstjórinn talaði síðast við foreldra sína. Síðustu orð móðurinnar voru að hann væri "kafír" og myndi enda í helvíti. "Ég hef aldrei getað talað um þetta við nokkurn mann, allt þetta hef ég borið í hjartanu" segir bílstjórinn.

Ég hlusta á áhyggjur hans af sonum sínum. Um einmanaleikann að búa í hverfi sem hann vill flýja frá en getur ekki vegna peningaleysis. Um áhættuna að snúa baki við íslam þar sem lögmál íslams ríkja.

Þið Svíar skiljið ekki um hvað er að ræða. Íslam er eins og krabbamein og breiðist út eins og sjúkdómur. Ef ég gæti, þá myndi ég loka hverri einustu mosku í landinu.

Ég hvet hann til að ræða við fleiri, safna saman múslímum sem vilja skipta um trú svo þeir geti sótt styrk hverjir hjá öðrum. En bílstjórinn segir að hann geti aldrei gert það undir nafni eða með mynd af sér.

Þeir geta kveikt í bílnum mínum, sært mig og jafnvel drepið mig. Þú skilur - það stendur í Kóraninum.

Ég veit það en get ekki melt það. Hann er að tala um Svíþjóð ár 2018. Þeir sem kjósa flokka sem hæst láta um kynjamisrétti og segjast verja minnimáttar en samþykkja íslam á grundvelli trúabragðarfrelsis eru tvenns konar: Þeir sem tilheyra íslam og lifa eftir reglum Allah í stað lýðræðis og svo þeir sem óháðir íslam geta valið hvar þeir búa og hvernig þeir lifa. Það er veruleikablindur barnaskapur að fórna þeim sem skortir möguleika til að velja. Leigubílsstjórinn og ég gerumst fésbókarvinir. Ég fer heim í húsið mitt og hann í íbúðina sína í hverfi, þar sem lýðræðið er smám saman brotið niður með íslam að vopni og samþykki yfirvalda.

Á morgun verður áfram leyfilegt að hylja barnið þitt í sjali miðað við kyn í þeim eina tilgangi að það veki ekki kynferðislegan losta hjá fullorðnu fólki af gagnstæðu kyni.
Á morgun verða áfram bænaköll í Svíþjóð.
Á morgun munu börn mæta í skóla sem skipa Allah ofar lýðræðinu.
Á morgun verða áfram kynjaskiptir baðtímar í sundhöllinni og burkini til sölu í anddyrinu.
Á morgun mun sænska ríkið áfram veita fé til samtaka sem vinna gegn frelsi og jafnrétti.

Ég óska lesendum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir hið liðna.


Betri er perla í hlíð en braggi í níð

Skärmavbild 2018-12-22 kl. 15.19.55

Ef einhver kennileyti Reykjavíkur standa uppúr sem merki ólíkra stjórnarhátta, þá er það Perlan annars vegar og bragginn hins vegar. Á tímum Davíðs Oddssonar og Sjálfstæðismanna blómstraði borgin og borgarbúar gátu verið öryggir um að ná sambandi bæði við sjálfan borgarstjórann og fulltrúa borgarinnar. Á þeim tímum var litið svo á, að embættismenn borgarinnar væru þar til að þjóna borgarbúum. Í dag er öldin önnur, Samfylkingin hefur sannað eðli sitt og notar líf borgarbúa og eignir til að fita flokksgæðinga sósíalismans. 

Gunnar Ragnarsson sýnir tilþrif í skilgreiningu á ástandinu sem standa mun óhögguð komandi ár:

"Ég vona að Vegagerðin komist brátt í gegnum það þarfa verk að búa svo um hnútana að enginn þurfi að koma til né hafa viðkomu í Reykjavík Austur-Berlínarklíku vinstrimanna, nema í neyðartilvikum. - Að vegur verði lagður fram hjá þessu svartholi svo að enginn þurfi að koma í þessa viðurstyggð sósíalismans að óþörfu. - Borgin liggur eins og rotnandi DDR-hvalur á Íslandi."

Gunnar telur að fólk flýji Reykjavík: "Í stað þeirra sem fóru verður svo kominn erlendur lýður á úlföldum, túrbanhausaðar karrýslettur upp um turnspíruveggi og gargandi gjallarhorn jihadista hamast á framfærslu skattgreiðenda. Harpan mun þá hafa umturnast í hæli fyrir sanna öreiga. - Drekkingarhylur verður kominn í Tjörnina við Ránshúsið, og endur horfnar henni af sökum viðbjóðs. - Það eina sem verður óbreytt er heiðnikirkjuhöll hásólans, sem kennir meiri mosavaxinn sósíalisma."

Reykvíkingar ættu að geta tekið þennan boðskap til sín án aðkeyptrar þjónustu varalesara og mokað sósíalismanum út í næstu sveitarstjórnarkosningum.


mbl.is Krefst þess að Dagur segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deutsche Bank varar ESB við djúpri komandi efnahagslægð - hræðsla um að evran hrynji

brussels-1061975Í viðtali við Wirtschafts Woche segja fulltrúar Deutsche Bank að skelfilegir atburðir í aðildarríkjum ESB ásamt mótmælum í Frakklandi og kjöri nýrrar Framkvæmdarstjórnar ESB muni hafa ófyrirsjáanleg áhrif á efnahagssvæði ESB á næstu tveimur árum. Blaðið kennir Brexit um að geta valdið efnahagsúrbræðslu 27 ríkja ESB og gagnrýnir Emmanuel Macron Frakklandsforseta fyrir að brjóta fjárlagaramma ESB með eftirgjöfum við kröfur mótmælenda gulu vestanna. Efnahagsaðgerðum Donald Trump Bandaríkjaforseta er einnig kennt um að bæta olíu á eldinn.

Æðsti hagfræðingur Deutsche Bank, David Folkerts-Landau er myrkur í máli og segir að verulega muni draga úr hagvexti í ríkjum ESB á næstunni.

Seðlabanki Evrópu hefur eins og Seðlabanki USA dælt milljörðum evra út í fjármálakerfið sem m.a. hafa farið í kaup á ónýtum útlánum aðallega þýzkra og franskra stórbanka. Bókfærð eign SE er veðsett í verðlausum ríkisskuldabréfum og skuldir bankans faldar á bak við peningaprentun og ímyndað nafnverð bréfanna. 


mbl.is Versta ár frá fjármálakreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

George Soros maður ársins hjá Financial Times

Financial Times 2018 George Soros.

Skärmavbild 2018-12-19 kl. 18.35.59

 

Time Magazine 1938 Adolf Hitler.

Skärmavbild 2018-12-19 kl. 18.43.41

Ekkert nýtt undir sólinni. Main stream media lík sjálfri sér.


Franskir hershöfðingjar í opnu bréfi til Macron: "Þú svíkur þjóðina ef þú skrifar undir SÞ-samninginn"

180504-frankrikemacron-667669-se-gp-1-jpgÞann 10. desember skrifaði fyrrum varnarmálaráðherra Frakklands Charles Millon, ásamt 12 háttsettum mönnum í hernum opið bréf til Emanuel Macron Frakklandsforseta með varnaðarorðum um afleiðingar þess að hann skrifaði undir samning SÞ um innflytjendur í New York 19. desember. Bréfið birtist á hægrivefnum Volontaires France.

Herforingjarnir telja að Macron gefi Frökkum "enn eina ástæðu" til uppreisnar, ef hann undirritar samkomulagið. "Þú myndir gera þig sekan um að víkja lýðræðinu til hliðar og svíkja þjóðina" segir í bréfi herforingjanna. Telja þeir Frakklandsforseta enga heimild hafa til að gefa upp sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar og segja að eini réttur Frakka skv. samningnum verði "að ákveða hvernig á að ná markmiðum samningsins". 

"Þegar 80% af frönskum meðborgurum telja nauðsyn á að stöðva eða minnka verulega fólksinnflutning getur þú ekki umræðulaust afsagt okkur sjálfsákvörðunarréttinum."

Fjölmiðlar hafa yfirleitt ekki sagt frá bréfinu en skv. Parísarblaðinu L Opinion ætla frönsk yfirvöld að grípa til aðgerða gegn herforingjunum og fyrrum varnarmálaráðherra. Telja varnarmálayfirvöld að herforingjarnir hafi brotið þagnarskyldu og gerst brotlegir við herlög og því beri að refsa þeim. 

Þarf styrjöld í Frakklandi til að vekja svefngengla íslenska stjórnarráðsins? 


George Soros hefur fjárfest yfir 62 milljörðum kr í flóttamannakreppunni

Vegna eftirspurnar með fleiri beinum tilvitnunum í Global Compact for Migration sem Ísland hefur samþykkt kemur hér myndband um málið.

Einnig linkar á mikilvægustu skjölin. Ísland hefur samþykkt 1. og mun að óreyndu samþykkja 2. fyrir jólin á fundi SÞ í New York án þess að nokkuð sé um það rætt opinberlega. 1 + 2 eru hluti í skipulögðu breytingarferli alls heimsins til að lúta stjórn Sameinuðu þjóðanna samkvæmt Agenda 2030.

1. Global compact for Migration

2. Global Compact on Refugees

3. 2030 Agenda for Sustainable Development

4. Útreikningar ESB á íbúagetu aðildarríkjanna (tafla 12 aftast í skýrslunni).

Linkar um fjárfestingar George Soros í flóttamannakreppunni Wall Street Journal - Valuewalk og Philantrhopynews og einnig um samvinnu Kanadastjórnar og George Soros Global refugee sponsorship initiative. Kanadastjórn hefur falið Open Society að annast innflytjendamálefni Kanada.

Victor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands þekkir Soros vel og hefur lýst honum á eftirfarandi hátt:

"Við erum að berjast við óvin sem er öðruvísi en við. Ekki opinn heldur í felum; ekki réttmætur heldur slóttugur; ekki heiðarlegur heldur hræsnari; ekki þjóðlegur heldur alþjóðlegur; trúir ekki á vinnu heldur braskar með fé; á ekkert föðurland en heldur að hann eigi allan heiminn."


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband