Bloggfærslur mánaðarins, október 2020

Morgunblaðið svíkur engan með núverandi ritstjóra

FalcorusticolusMitt í öllu veirufári og dökkum efnahags- og samskiptabólstrum sem hrannast upp við sjóndeildarhringinn er Morgunblaðið eins og sérstakt band sem bindur marga saman. Breidd blaðsins er einstök og þjónusta við landsmenn löng og dygg. Þrátt fyrir að allir standi ekki jafnfætis að gæðum, hvorki umræðendur né fréttaritarar, þá standa leiðarar Morgunblaðsins eins og klettur í hafinu. Þannig lýsir leiðari dagsins eins og viti í versta náttmyrkri og bendir á veginn. 

Það hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni hvernig núverandi formaður „móðgaðist" út í fyrrverandi vegna hreinskilinnar afstöðu þess síðarnefnda. Til að mynda sniðgekk sá núverandi Morgunblaðið með afmælisgrein flokksins sem mætti halda að hafi nú alldeilis átt að vera högg gegn allri „ósvífninni" að ræða stjórnmálin á opinskáan hátt.

Ég kaus Sjálfstæðisflokkinn í mörg ár. Fannst hann alltaf vera fulltrúi allra landsmanna með athafnamennsku, frelsi, viðskiptafrelsi, virðingu fyrir einkaframtaki og frelsi einstaklingsins. En eftir að Sjálfstæðisflokkurinn yfirgaf sjálfstæðisstefnuna, þá gat ég ekki lengur kosið flokkinn.

Miðflokkurinn axlar sjálfstæðiskápuna

Ég er genginn til liðs við Miðflokkinn sem var afar létt spor sem skilið hefur eftir góðar tilfinningar sem verða sífellt sterkari. Miðflokkurinn, sem stendur á grundvelli stjórnarskrárinnar, hefur fengið sjálfstæðiskápuna á sínar herðar á meðan núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins svíkur í mikilvægum málum. Það er bæði skiljanlegt og rétt, því bændurnir sem eru kjarni Miðflokksins eru allir smáfyrirtækjarekendur með fæturna á jörðinni. Bændur hafa aldrei átt í vandræðum með að vinna með sjómönnum og alvöru Sjálfstæðismönnum. Það nána samstarf hefur gegnum lýðveldistímann reynst hin heilladrýgsta stjórn landsins sem lyft hefur landsmönnum úr fátækt í velferð.

falk kopiaSíðasti Sjálfstæðismaðurinn

Í dag er öldin önnur þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vinnur m.a. með ESB gegn hagsmunum bænda. Mér hefur alltaf þótt það einkennilegt viðskiptafrelsi að þurfa að ganga í ríkjasamband eða þurfa að afhenda fullveldi til erlends yfirvalds til þess að fá að selja fisk. Minnir frekar á tímabil danskrar einokunarverslunar en það fræðilega frelsi sem viðreistir Sjálfstæðismenn segja að sé í boði á svo fínan hátt. Sjálfstæðisflokkurinn stendur líka gegn hagsmunum landsmanna í orkumálinu. Og gerði einnig gegn þjóðinni í Icesave eins og leiðarahöfundur dagsins bendir svo réttilega á. Það hlýtur að vera sársaukafullt fyrir heiðarlega Sjálfstæðismenn að þurfa að horfa upp bátinn minnka eftir hverjar Alþingiskosningar. Eins og staðan er núna gæti svartsýnisspáin verið sú að þegar horft verður um öxl í framtíðinni, þá verður Davíð Oddsson talinn síðasti Sjálfstæðismaðurinn. Vonandi verður útkoman ekki svo slæm.

falkPeysa sem hleypur í þvotti minnkar

Frjálslyndi armurinn er kominn svo langt til vinstri að hann þjónar engum lengur nema sjálfum sér. Stjórnmál eru glærusýningar og bisness. Embættismannakerfið notað sem vígvöllur eigin afreka og efnahagsvinnings. Staða í Mannréttindanefnd SÞ keypt fyrir atkvæði með Norðmönnum í EES.  Allt gert fyrir að fá mynd af sér við hljóðnema þeirra „stóru". Heiðarleg stjórnmál komast ekki að við þessi skilyrði, fjallkonan er bundin útí horni, stjórnarskráin ekki lengur sáttmáli þjóðarinnar og Alþingi breytt í sendibílastöð ESB. Staðan er löngu komin í það horf sem ríkti fyrir tíð Sjálfstæðisflokksins með tvo flokka, Íhaldsflokkinn og Frjálslynda flokkinn. Frjálslyndi flokkur Sjálfstæðisflokksins hefur valtað yfir íhaldsarm flokksins m.a með beinni þáttöku í útrásarverkefni Kommúnistaflokks Kína Belti og Braut þar sem hnattstaða Íslands verður notuð sem stjórnstöð fyrir Alþýðuherinn á Norðurslóðum. 

Á meðan ekki kemur fram forysta sem ræður við verkefnið að leiða Sjálfstæðisflokkinn á grundvelli sjálfstæðisstefnunnar mun flokkurinn halda áfram að hlaupa í þvotti eins og peysa sem verður sífellt minni fyrir eigandann. Og allir vita hvernig fer fyrir slíkum peysum. Þær fara ekki einu sinni á uppboð en vonandi hægt að hugga sig við að þær skilji eftir lítið kolefnisspor með þeirri vinstri og grænu orku sem heilatekið hefur flokksforystuna.

 


Samstarf og aðlögun að Kommúnistaflokki Kína og kúgandi dagsskipan er ekki lengur valkostur. Hvað gerir ríkisstjórn Íslands?

chinataskÍ vikunni birti rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings skýrslu um Kína, þar sem rekin voru 40 ára samskipti Bandaríkjanna og Kína fram til dagsins í dag. Michael T. McCaul fv. formaður Öryggismálanefndar og núverandi meðlimur í utanríkisnefnd Bandaríkjaþings leiddi rannsóknarnefnd 15 þingmanna úr 11 nefndum þingsins, sem stóðu að skýrslunni. Rannsökuð voru sex svið: Hugmyndafræðileg samkeppni, keðjur birgja, þjóðaröryggi, tæknimál, fjármál og orkumál og samkeppni. Niðurstaðan var svo birt í 141 bls. skýrslu með 82 lykilupp-götvunum og yfir 400 tillögum/ráðleggingum.

Demókratar leiðitamir Kommúnistaflokki Kína

Athygli vakti að Demókratar neituðu að starfa með rannsóknarnefndinni og sögðu skýrsluna „ætlað að slá ryki í augu fólks.” Mættu þeir ekki á fundi sem þeim var boðið á. Segir Michael T. McCaul formaður nefndarinnar það hafa verið óheppilegt og telur að „skýrslan hefði orðið innihaldsríkari með þáttöku Demókrata. Rannsóknarnefndin tekur ekki tillit til mismunandi stjórnmálaskoðana og við erum alltaf sterkari sem sameinuð þjóð.” Segir McCaul skýrsluna skýra „mikilvægustu áskoranir í þjóðaröryggismálum og efnahagsmálum núverandi kynslóðar.” 

Þrátt fyrir mörg og endurtekin boð í marga mánuði, þá neituðu Demókratar deildarinnar að taka þátt í starfinu eða leggja sitt af mörkum til þessa mikilvæga starfs. Repúblíkanski flokkurinn átti enga aðra kosti en að halda sjálfstætt áfram út af neyðarástandinu vegna hættunnar.

Ummæli ráðamanna

Áhrif skýrslunnar munu koma fram í nánustu framtíð hvað varðar sambúð stórveldanna. Hér verður sagt frá úrdrætti á samantekt skýrslunnar í inngangi hennar sem kynnir á einfaldan hátt um hvað skýrslan fjallar. Skýrslan er full tilvitnana í menn og atburði, hér eru þrjár tilvitnanir:

Trump106x135„Bandaríkin vilja opin og jákvæð samskipti við Kína og til þess að uppná slíku sambandi verðum við að verja þjóðarhagsmuni okkar á öflugan hátt. Kínverska ríkisstjórnin hefur stöðugt svikið loforð sín til okkar og einnig til margra annarra þjóða.” Donald Trump Bandaríkjaforseti 29. maí 2020.

Mike Pence„Bandaríkin væntu þess að efnahagslegt frelsi færði Kína í meiri samvinnu við okkur og heiminn. Í staðinn valdi Kína efnahagslegar árásir…” Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, 4. okt. 2019.

220px-Mike_Pompeo_official_photo-180x225„Við verðum að viðurkenna harðan sannleikann. Við verðum að viðurkenna þann harða sannleika sem mun leiða okkur á næstu árum og áratugum, að ef við viljum eiga frjálsa 21. öld og ekki þá kínversku öld sem Xi Jinping dreymir um, þá mun hin gamla heimssýn með blindri hlýðni við Kína augljóslega ekki ná því markmiði. Við þurfum ekki að halda áfram á þeirri braut og við þurfum ekki að hverfa aftur til hennar.” Micheal R. Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna 23. júlí 2020.

Mistök Bandaríkjanna

Bandaríkin hafa á þeim rúmum 40 árum síðan diplómatískum tengslum var komið á, reynt að að fá Kína með í alþjóðlegt samstarf sem ábyrgan hagsmunaaðila. Leiðtogar Bandaríkjanna byggðu afstöðu sína á virku samstarfi á þeirri skoðun að þróun efnahagslegs samstarfs við Kína þjónaði hagsmunum Bandaríkjanna og myndi móta breytta starfshætti Kommúnistaflokks Kína. Þessi afstaða lokaði oft augunum fyrir brotum Kína á mannréttindum, efnahagslegri vanrækslu, árásargjarnri útþenslustefnu og innantómum loforðum, einnig djúprótaðri fjandsamlegri kommúnískri hugmyndafræði sem er grundvöllur þessarar illkynjuðu hegðunar. Þessi stefna hefur – svo það sé sagt á einföldu máli – mistekist.

Almenn ógn Kommúnistaflokks Kína

Bara í ár hefur Kommúnistaflokkur Kína brotið gegn alþjóðlegum samningi og afnumið borgaralegt frelsi íbúanna í Hong Kong; haldið áfram kúgun þjóðlegra minnihlutahópa þar með talið Úígúra og Tíbeta, aukið hernaðaruppbyggingu, færst í aukana með árasásargjarnari hernaðarlist og brotið landhelgi annarra þjóða; tekið þátt í dauðlegum bardaga til að ná landi við landamæri Indlands ásamt nýjum landakröfum á Bhutan. Að auki, með því að þagga niður í læknum og halda læknisfræðilegum upplýsingum leyndum fyrir umheiminum, leyfði Kommúnistaflokkur Kína staðbundnu útbroti veiru að þróast upp í heimsfaraldur, sem hefur valdið dauða næstum milljón manns fram að þessu og eyðilagt alþjóðlegan efnahag. Faraldurinn afhjúpaði mismunandi veikleika í fæðingarkeðjunni, hættuna með allt of miklu ósjálfstæði Bandaríkjanna sem voru háð Kína og þörfina á öruggari lyfja- og tæknilegri framleiðslugetu innanlands.

kina3

Þessi röð viðvarana hafa afhjúpað á hvern hátt hugmyndafræði Kommúnistaflokks Kína grefur undan kjarnagildum alþjóða kerfisins og setur öryggi og velferð Bandaríkjamanna í hættu. Samstarf og aðlögun að Kommúnistaflokki Kína og kúgandi dagsskipan er ekki lengur valkostur. Til þess að vernda lýðræði og frelsi í heiminum verða Bandaríkin að vinna á ákveðinn hátt með bandamönnum okkar og taka aftur frumkvæðið. Að fást við slíka illkynjaða hegðun getur ekki lengur verið eitt af mörgum málum fyrir ríkisstjórnir viðkomandi ríkja heldur frekar samræmd grundvallarstefna hins frjálsa heims.

Mikilvægar tillögur rannsóknarnefndarinnar á sex sviðum

– Hugmyndafræðileg samkeppni

• Meta hvort glæpir Kommúnistaflokks Kína (KFK) gegn Úrígúrum mótsvari þjóðarmorði, innleiða að fullu þvingandi löggjöf vegna kúgun KFK í Hong Kong ásamt frekari sérstökum aðgerðum til að mæta mannréttindabrotum KFK í heild, frá skerðingu trúarfrelsis til þvingandi líffæratöku. 
• Samræma víðtæka upplýsingaherferð alls stjórnkerfisins til mótvægis við áróðursvél KFK með því að segja sannleikann og gildismat okkar til að grafa undan lygum og illkynjaðri hugmyndafræði KFK.
• Tryggja að meðborgarnir verði meðvitaðir um hvenær þeir eru að horfa eða hlusta á ritskoðað fjölmiðlaefni og skemmtiefni sem KFK hefur greitt fyrir.
• Vinna gegn illum heimsáhrifum KFK með því að krefjast gegnsæi og ábyrgðarskyldu í kerfi Sameinuðu þjóðanna að meðtaldri Heilbrigðisstofnun SÞ, WHO. 
• Fjármagna tækni og dreifingu tækja sem aðstoða baráttufólk lýðræðisins að viðhalda stafrænu öryggi, tryggja aðgengi að bílasímaneti og endurreisa vefsíður eftir tölvuárásir.
• Vekja athygli á stækkandi umhverfiseyðileggingu KFK, meðtalið stöðu sem stærsti kolefnissporavaldur í heiminum. 

Öryggi lyfja- og aðfangakeðjunnar

Tryggja á betri hátt þjóðlegt öryggi í keðju lyfjaframleiðslu og keðju aðfanga til þjóðarinnar

• Beita framsýnum, hagkvæmum og miðuðum skattaaðgerðum til að hraða rannsókn, þróun og framleiðslu mikilvægra lyfja, læknisfræðilegra nauðsynja, birgða, prófana og bóluefna
• Skapa stuðningskerfi sem er nauðsynlegt til að hvetja framleiðslu mikilvægrar innlendrar framleiðslu og forma skattaaðgerðir sem tryggja bandaríska framleiðslu á hálfleiðurum.
• Yfirsýn leyfisveitinga ríkisins til námugrefturs og forgangsröðun þróunar málmiðnaðarins svo hvorki grundvöllur iðnaðar né varnarmálaiðnaðar sé háður KFK. 

Þjóðaröryggi

• Vinna með Varnarmálaráðuneytinu til að nútímavæða skipulag hersins, staðfestu, stjórnunartækni og aðföng til að draga úr árásargirni KFK í Indo – Kyrrhafssvæðinu og annars staðar í heiminum. 
• Tryggja nútímavæðingu allra þriggja hluta kjarnorkunnar sem og þróun hefðbundins herafla sem nauðsynlegt er að hafa til að hafa í tré við Frelsisher Alþýðunnar í Indo-Kyrrahafssvæðinu, innifalið markbundin skeyti og langdrægar eldflaugar. 
• Undirstrikum þörfina á a.m.k. 3-5% árlegri aukningu varnarmálafjárlaga til að hræða og sigra Frelsisher Alþýðunnar og aðra mikilvæga andstæðinga.
• Meiri fókus á hvernig Bandaríkjaher verndar tæki í geimnum og nær markmiðum geimrannsókna með því að nýta fjárfestingar einkageirans.
• Hætta að nota efni frá herfyrirtækjum KFK samt segja upp fyrirtækjum með tengsl við her KFK. 
• Vernda kosningaferlið í Bandaríkjunum og persónuleynd í kosningum okkar með ólíkum aðgerðum, innifalið að finna erlenda andstæða erindreka og sjá til þess að einstaklingum sem taka þátt í truflunum verði bannað að koma inn í Bandaríkin eða verði vísað úr landi ef þeir eru þegar í Bandaríkjunum. 
• Setja meiri styrk í málarannsóknir, afbrotaákærur og aðgerðir gegn tölvunúmeraþjófnaði studdum af KFK og að auki loka fyrir öryggisgöt í vegabréfakerfi okkar sem KFK hefur notfært sér. 
• Bæta gagnnjósastörf ríkisins og auka notkun í Mandarínmálinu. 

Tækni

• Skapa heildarsýn til að meta þær öryggishættur sem stafa af Kína í 5G-netum og auka samvinnu milli Bandaríkjanna og bandamanna þeirra og samstarfsaðila til finnar slíkar hættur og vinna saman gegn þeim.
• Styðja myndun nýs D-10 hóps leiðandi lýðræðisríkja til að þróa og dreifa 5G og þess kerfis sem kemur í kjölfarið og koma á fót endurgreiðslukerfi fyrir fyrirtæki til að fjarlægja tækni hættulega öryggi úr netum sínum. 
• Tryggja alþjóðlega forystu í tækni morgundagsins, að meðtalinni gervigreind, quantum, 5G og sjálfstýrðum bifreiðum. 
• Refsa kínverskum samskiptafyrirtækjum sem stunda efnahagslegar eða iðnaðarlegar njósnir og alla kínverska aðila sem gera tölvuárásir á rannsóknaraðila sem vinna að bóluefni gegn COVID-19.

Efnahags- og orkumál 

• Tryggja að engir bandarískir skattapeningar styðji við fyrirtæki í ríkiseign Kína
• Samræming í eftirliti og útflutningsstefnu með samstarfsaðilum og bandamönnum til að halda viðkvæmri tækni, innifalið framleiðslu hálfleiðara og rannsóknum og þróun tækni frá andstæðingum okkar.
•  Beita auknu efitrliti við fjárfestingum í bandarískum fyrirtækjum eða aðgerðum frá Kína.
• Styrkja viðskiptasambönd við bandamenn okkar og til að staðfesta bandarískar reglur og standa gegn áhrifum Kína. 
• Reka viðskiptastefnu sem hræðir og verndar gegn tölvunúmeraþjófnaði Kína. 
• Þvinga lagalega meðferð fjárfestinga Kína í Bandaríkjunum til að endurskapa samræmi í fjárfestingarreglum. 
• Tryggja að kínversk fyrirtæki fylgi sömu fjármálareglum eins og bandarísk fyrirtæki þegar þau komast inn á verðbréfamarkaði í Bandaríkjunum. 
• Vinna að frekari viðskiptasamböndum við Taiwan og leysa sérsakar útistandandi viðskiptaspurningar þannig að ríkisstjórnin geti tekið þau skref að koma á viðræðum um viðskiptasamning þegar þær spurningarnar vakna. 
• Styrkja og þróa fjármálasamstarf, útflutnings og innflutnings banka og önnur störf ríkisstjórnarinnar til þess að standa betur gegn Belti og Braut verkefni Kína og skuldagildru aðferðum þeirra. 
• Halda áfram að þróa orkuöryggismál Bandaríkjanna til að geta orðið þáttakandi á heimsvísu gegn Kína sérstaklega á sviði kjarnorku. 

Samkeppni

• Tvöfalda fjárlög grundvallarrannsókna í vísindum og tækni á næstu 10 árum.
• Auka samræmingu og fjárlög á menntun í tæknivísindum til að skapa betra og hæfileikameira vinnuafl.
• Auka öryggi viðkvæmra rannsókna við menntaskóla og háskóla Bandaríkjanna og leiðandi rannsóknarstofnanir, sem innifelur takmörkun á þáttöku allra ríkisstarfsmanna og verktaka í erlendum hæfnisverkefnum. 
• Krafa um að menntaskólar og háskólar sendi skýrslur um allar peningagjafir frá Kína. 


Davíð Oddsson – Dyggur þjónn þjóðarinnar

david-300x300Ég reyni alltaf að missa ekki lestur Reykjavíkurbréfa Morgunblaðsins sem yfirleitt eru fróðleg, snarplega skrifuð með heildstæða hugsun. Slíkt kemur ekki á óvart með einn reynslumesta og farsælasta núlifandi stjórnmálaleiðtoga Íslands í ritstjórastöðu Morgunblaðsins. 

Fáir Íslendingar hafa staðið við skjöld fjallkonunnar á jafn hreinskilinn og heiðarlegan hátt og sífellt unnið með þjóðinni og fyrir hana og Davíð Oddsson. Er hann einn af þeim þingmönnum og ráðherrum sem mark hafa tekið á eið sínum að starfa á grundvelli stjórnarskrárinnar, virða hana og vernda.

Reykjavíkurbréf dagsins er ljós í því ættjarðarmyrkri sem nú leggst á okkar fámennu góðu þjóð. Áframhaldandi ruglugangur sjálfskipaðra fræðinga með það helsta að vopni að stjórnarskráin hafi verið saumuð upp úr stjórnarskrá fyrir konungsveldi Danmerkur er ótrúleg afvegaleiðing frá sjálfu markmiðinu með aðförinni að stjórnarskránni. Á tíma Jóhönnustjórnarinnar eins og bent er á í Reykjavíkurbréfinu, var stjórnarskránni kennt um fjármálarányrkju útrásarvíkinganna sem notfærðu sér lagaveilu í regluverki Evrópusambandsins til að hefja „útrás" með stofnun fjármálafyrirtækja í löndum ESB. Allir vita hvernig það endaði enda í upphafi lagt út með að safna sem stærstum skuldum til að stela fyrir fyrirsjáanlegt gjaldþrot. Hvað hurfu margir millarðar í gjaldþroti Baugs? Yfir þúsund ef ég man rétt. 

Allir vita líka að í mörg ár var togast á um að þvinga íslenska alþýðu og börn hennar til að axla afleiðingarnar af glæpaverkum stórþjófanna. Það var m.a. fyrir snerpu þess manns sem á pennanum heldur í Reykjavíkurbréfum Morgunblaðsins sem Íslendingar tóku sig saman og létu Evrópusambandið hanga með á dómi sem ESB fór halloka fyrir en Íslendingar unnu. Þau málalok stöppuðu stálinu í þjóðina - réttilega - og sýndu og sönnuðu að leiðsögn Davíðs Oddssonar, þrautseig barátta einstaklinga eins og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í InDefence ásamt kjarki Ólafs Ragnars Grímssonar forseta vörðu sjálfstæðið, fullveldið, sjálfsákvörðunarréttinn, lýðræðið og í áframhaldinu sjálft lýðveldið.

fjallkonanEn seigt er í sýkli sósíalismans, þegar aðalóvinur þjóðarinnar innanlands var gerður að þingforseta Alþingis, Davíð Oddsson flæmdur með lögbroti úr Seðlabankanum og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flæmdur úr embætti forsætisráðherra með árás skipulagðri erlendis frá. Áframhaldið er á þeim nótum að fyrir utan að vinstri menn á Íslandi biðu hroðalegustu kosningaútreið í allri Evrópu á þeim tíma, þá eru þeir staðsettir í fleiri flokkum í dag og hefur tekist á rúmum áratug að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn í helming þess mesta fylgis, þegar Davíð Oddsson var formaður flokksins. Og í dag telja margir kjósendur ríkisstjórnina vera vinstri stjórn og kalla hana sem slíka, þannig að ekki kemur á óvart að sjá einnig það orð notað í Reykjavíkurbréfinu.

Í víðara samhengi er málið grafalvarlegt og fjallar um fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt Íslendinga nú og í framtíðinni. Vinstristjórnin vinnur ötullega að því að koma Íslandi endanlega undir völd ESB-skrímslins og leikur fyrir akademíkera að froða furðulegum, óskiljanlegum orðum sem ekkert venjulegt fólk skilur. Litið er niður á kjósendur og þeim sagt að þeir skilji ekki málin en samt er veðjað til þeirra um atkvæði á kjördegi. Lýðræðið á Íslandi er á mörkum þess að verða embættisræði og ótrúlegt að horfa á hræsni þeirra, sem þykjast anna sjálfstæði þjóðarinnar, nota hverja stundu til að eyðileggja stjórnarskrána, sjálfan grundvöll lýðveldisins.

Fyrirlitningin á lögum, formlegum stofnunum lýðveldisins sem eru lýðræðisstofnanir á grundvelli stjórnarskrárinnar, er orðin svo útbreidd að „vandaðir" einstaklingar taka þátt í ljótri aðför að sjálfu lýðveldi Íslendinga. Það skiptir engu máli hvaða orð menn nota, þegar Alþingi er vikið til hliðar fyrir „ályktanir" í stað laga, sem flytja lýðræðisleg völd úr höndum þjóðarinnar til útlanda og er þá vegið beint að hjarta lýðveldisins – stjórnarskránni. Það voru mér vonbrigði að sjá Björn Bjarnason, sem var vakandi í Icesave, kolfalla svo á prófsteini orkupakkans og koma í kjölfarið með tillögur um að breyta stjórnarskránni til samræmis við aðildarríki ESB með sérstökum kafla ESB um yfirráð málaflokka viðkomandi þjóðar. Enn önnur vonbrigði voru að sjá Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra umturnast í upphafningu sósíalista m.a.innan Sameinuðu þjóðanna. Hugmyndir utanríkisráðherrans í dag um setu við hlið glæpamanna í Mannréttindaráði SÞ eru samhljóma tillögum sósíalista. Ráðherrann hefur notað embættið sem kennarastöðu til að leiðrétta utanríkisstefnu Bandaríkjamanna rétt eins og þeir væru nemandi Íslands í utanríkismálum. Vinstristjórninn er vilhöll kínverska kommúnistaflokknum og ekki talið ámælisvert að fjármálaráðherrann og formaður Sjálfstæðisflokksins taki stöðu í bankaráði þess banka Kommúnistaflokks Kína, sem fjármagnar heimsútþenslu kommúnismans aðallega í verkefninu Belti og braut.

skjaldarmerkið

Ef nokkru sinni er ástæða til að verja stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, þá er það núna. Skal höfundur Reykjavíkurbréfs hafa þakkir fyrir að halda uppi frelsiskyndlinum á þann hátt sem honum er treystandi fyrir og hefur ætíð reynst þjóðinni hið haldbesta vegarnesti.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband