Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2020

George Soros leggur milljarð dollara í heilaþvott gegn sjálfstæðum þjóðum

clip_image001Fjármálajöfurinn George Soros lýsti „mikilvægasta verkefni lífs míns“ á fundi fjármálafursta í Davos nýlega. Sagðist hann legga einn milljarð dollara í baráttu gegn þjóðhyggju í heiminum að sögn Forbes. Fyrir mótsvarandi 125 milljarða íslenskra króna á nýtt samstarf háskóla að stöðva útbreiðslu sjálfstæðra ríkja undir nafninu „Háskólanet Opins Samfélags.“

„Það er langt í frá að búið sé að stöðva þjóðhyggjuna“ sagði Soros og ásakaði m.a. þjóðstjórn Indlands fyrir að ógna lífi milljóna múslíma. Leiðtogar Bandaríkjanna og Kína fengu einnig slettur úr sleif Soros:

„Þegar draumur hans (Donald Trumps) um að verða forseti varð að raunveruleika, fékk sjálfselska hans sjúklegar víddir. Hann hefur farið yfir lagaleg mörk forsetaembættisins og hefur þess vegna verið dreginn fyrir ríksrétt.“

Soros lýsti forseta Kína Xi Jinping sem „hættulegasta óvini heimsins“:

„Þar sem Xi er hættulegasti óvinur opins samfélags, þá verðum við að binda vonir okkar við kínverska fólkið og þá sérstaklega þá viðskiptaaðila og stjórnmálaelítu sem vilja viðhalda hefðum Confucius. Það þýðir ekki að við sem trúum á opið samfélag eigum að halda höndum að okkur. Raunveruleikinn er sá, að við eigum í köldu stríð sem hætta er á að verði heitt.“

Síðan sagði Soros: „Ef Xi og Trump væru ekki við völd væri möguleiki til að þróa dýpra samstarf á milli risaþjóðanna beggja.“

Graham Dockery blaðamaður hjá RT skrifar, að Soros sem er 89 ára gamall, geri hinstu tilraun til að útrýma þjóðhyggju og innleiða glóbalismann í heiminum áður en hann deyr en síðan muni stríð hans halda áfram „handan grafarinnar“:

„Sjálfsagt verða andstæðingar hans vonsviknir sem vonast til að hjartans mál hans fari með honum í gröfina. En burtséð frá þeirri læknismeðhöndlun sem George Soros fær og við hin dauðlegu getum bara ímyndað okkur, þá mun hann sennilega ná að deyja áður en þjóðríkið leysist upp í landamæralausri blöndu hans.“

Sjá nánar hér og hér

 


Þess vegna þjáist ég ekki af loftslagskvíða

Góður Svíi, Lars Bern, tæknifræðidoktor, fyrirtækjarekandi, rithöfundur og þáttakandi í þjóðfélagsumræðu skrifar mikið um svo kallaða "loftslagsvá." Í nýrri grein útskýrir hann hvers vegna hann þjáist ekki af loftslagskvíða:dc3b6dsors
"Stóra áhugamálið mitt fyrr á ævinni voru umhverfismálin en þeim hef ég snúið mér að í næstum 50 ár. Ég hafði leiðandi stöður við umhverfisverkefni hjá fyrirtækjum og samtökum. Að sjálfsögðu leiddi þessi áhugi mig inn á ríkjandi yfirdrifinn boðskap um loftslagsmálin."

"Eins og þið sjáið á töflunni stafar mannkyninu minnst hætta af náttúruhamförum af öllum uppreiknuðum hættum. Tölur dagsins hafa lækkað gríðarlega frá 500.000 árið 1920. Við höfum tíma á okkur að þróa nýja tækni til að mæta viðbúnum loftslagsbreytingum. Þess vegna tek ég afstöðu gegn loftslagsváboðskapnum sem hefur alfarið eitrað alla þjóðfélagsumræðu síðari ár. Því er alls ekki svo farið að heimsendir verði eftir 10 ár nema að við hættum að notast við jarðefnisorku. Hins vegar og alfarið hið gagnstæða, þá mun mannkyn örugglega lúta í lægra haldi ef við hættum allri jarðefnisorkunotkun á tíu árum. Heimurinn í dag er 85% háður jarðefnisorku sem tekur a.m.k. 100 ár að skipta út."

"Eins og sést (á töflunni) er hægt að hafa áhyggjur af fjölmörgu öðru í heiminum í dag. Spyrjið ykkur, hvers vegna næstum enginn kraftur er lagður í að koma í veg fyrir metabola sjúkdóma og bjarga þannig tugum milljónum mannslífa á hverju ári? Í staðinn velta stjórnmálamenn okkar hundruðum milljörðum króna í gjörsamlega tilgangslausa s.k. loftslagspólitík sem hvorgi framlengir eða bjargar nettó einu einasta lífi. Sú stjórnmálastefna leiðir til hrópandi fjársveltis til að hjúkra öllum sjúklingum í heilsukerfinu, þannig að í reynd þá kostar loftslagsstefnan mannslíf."


Lýðræðisgríman fellur - ESB bannar þjóðfána á borðum ESB-þingmanna

82291905_1621681617988787_286916816238804992_nHægt og bítandi kemur raunverulegt eðli ESB í ljós. Forseti ESB-þingsins hefur látið fjarlægja þjóðfána á borðum þingmanna - núna skall aðeins einn fáni gilda - fáni allra fána, ESB-fáninn.

Ekkert er meiri skellur í andlit ríkja en að missa fána sinn. 

Sýnir að þeir sem vinna fyrir ESB virða hvorki fólk né lýðræði, hvað þá sjálfráðar þjóðir.

Ekki að undra að margir ESB-þingmenn eins og t.d. Peter Kofod og Nigel Farage hafi gagnrýnt hina nýju tilhögun harðlega.

Ríkisstjórn Íslands vinnur fyrir ESB gegnum EES-samninginn beint gegn hagsmunum Íslands með grófum áformum um að gera Ísland að amti í hinu nýja stórveldi sbr. nýsamþykktan orkupakka.

Hafa íslenskir sjallar gleymt hvað fáni Íslands stendur fyrir?

Skärmavbild 2020-01-15 kl. 23.05.50

Skärmavbild 2020-01-15 kl. 23.03.20


Dygði þetta bréf til að sækja um flóttamannahæli á Íslandi?

"Það versta var þegar börnin stækkuðu og komu með spurningar um skotgötin á veggjunum eða þegar þau vöknuðu við sprengjur um miðja nótt og ég reyndi að róa þau. Allt var svo ofan í okkur. Fólk féll fyrir byssuskúlum við útidyrnar, sífellt fleiri vinir mínir lentu í þessu. Hús þeirra voru eyðilögð í sprengjuódæðum, kveikt var í bílum þeirra. Ráðist á börn þeirra, þeim nauðgað og þau rænd. Skärmavbild 2020-01-14 kl. 00.42.30
Eldri sonur minn byrjaði daginn á því að ganga úr skugga um hvar morð voru framin og hvar var sprengt um nóttina til að vera öruggur um að enginn sem hann þekkti hefði lent í neinu svakalegu. Hversdagsleikinn breyttist. Við þorðum ekki lengur að fara út á kvöldin eða hleypa krökkunum út að leika sér. Eftir skamman tíma snérust allar umræður um öryggi, hvernig við gætum reynt að verja börnin. Trúarhús okkar voru eyðilögð. Þegar við hittumst á trúarlegum hátíðum sögðum við brandara til að reyna að halda hættunni í burtu eða sögðum beint hvert við annað að "ef það springur núna, þá deyjum við alla vega nálægt Guði."

Þegar ég gagnrýndi stefnu yfirvalda á opinskáan hátt missti ég bæði starfið og húsnæðið, því það mátti ekki gagnrýna yfirvöld. Þeir sem gátu hófust handa við að flytja til útlanda. Til landa þar sem þeir þyrftu ekki lengur að vera hræddir, þar sem börn þeirra gátu vaxið úr grasi við öruggar aðstæður. Við sem höfðum ekki þann möguleika vorum eftir."

Gæti ofangreind frásögn verið grundvöllur flóttamannaumsóknar á Íslandi?

Sennilega. 

Það óeðlilega við þetta bréf er að það er frásögn fjölskyldu sem býr í Svíþjóð og hafði flúið ofbeldið í Malmö til Stokkhólms og vaknaði klukkan eitt í fyrrinótt við sprengjuódæðið á Östermalm í Stokkhólmi.


mbl.is Sprenging í Stokkhólmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jöklarnir sagðir horfnir 2020 – standa enn

clip_image002Náttúran tekur ekkert mark á loftslagsmönnum sem boða hlýnun af mannavöldum og heimsendi 2030.

Nýlegt dæmi er frá Glacier National Park í Montana sem nær inn í Kanada. Skilti sögðu að jöklar þjóðgarðsins myndu hverfa fyrir 2020. Voru þau sett upp í tíð ríkisstjórnar Obama Bandaríkjaforseta og grundvölluðust á útreikningum US Geological Survey um hlýnunarspádóma þess tíma. Jöklarnir eru hins vegar enn á sínum stað og brosa í öllu sínu skarti að ferðamönnum sem skilja ekki af hverju þeir standa enn.

Vissulega "leiðrétti" USGS rangfærsluna 2017 en þjóðgarðurinn átti ekki fé til að skipta um skilti fyrr en núna.

Við eigum eflaust eftir að fá fleiri svona dæmi sem sýna hversu langt frá raunveruleikanum loftslagsspámenn eru. Margir muna eftir fv. varaforseta Bandaríkjanna Al Gore og heimsendaferðum hans víða um heim til að spá endalokum mannkyns vegna manngerðrar hlýnunar.

Er engu líkar en öfundssjúkir, tapsárir viðskiptaaðilar sem ekki komust í olíubransann hafi safnað liði grænna lofthænsna sem leggist gegn jarðefnaorku af sama offorsi og lagst er gegn reykingum og þeim sem reykja. 

Við erum öll börn náttúrunnar og breytir engu þótt nokkur þeirra skæli til að fá eftirtekt hinna.

Jöklar eru fínir.


"Samgöngur Reykjavíkur hannaðar af trúðum und­ir eft­ir­liti frá öpum"

Tilvitnun í bréf starfsmanns Boeing verksmiðjanna þar sem hönnun Max-flugvélanna er lýst, gæti því miður alveg eins átt við um hönnun samgangna á Reykjavíkursvæðinu og kyrkingartak Samfylkingarinnar á venjulegum Reykvíkingum.

Í þau skipti sem ég heimsæki borgina er gamli miðbærinn ekki svipur hjá sjón miðað við fyrri glansdaga og greinilegt að borgarstjórnin hatar vélknúin ökutæki og er á mála hjá byggingarherrum sem hafa stolið útsýni yfir höfnina til að selja ímynduðum Hollýwoodstjörnum og öðrum "ríkum". 

dag0Þótt Reykjavík verði kannski ekki tekin af listanum á meðan fætur bera fólk og leyfilegt er að nota ákvæði lögreglusamþykktar Reykavíkur um að vera á hestbaki, þá er full ástæða fyrir kjósendur í Reykjavík að setja stjórnmálalegt farbann á Samfylkinguna í næstu borgarstjórnarkosningum.

Byrja síðan á því að skrúfa fyrir endalaust sukk og fjársóun borgarinnar í gleðivini borgarstjórans, borgarlínu og stokka og ná svo tökum á þessu oki sem Samfylkingin hefur mokað á herðar komandi kynslóða og hefja endurreisn borgarinnar. 

Bíll er farartæki sem á rétt á sér og þarf að vera með í skipulagi samgangna. Flytja má Ráðhús Reykjavíkur upp á Hólmsheiði á meðan núverandi borgarstjórn situr áfram. Það er alla vega hugmynd góðs vinar sem hér með er komið á framfæri.


mbl.is Þotan „hönnuð af trúðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirlægjuháttur ríkisstjórnarinnar hættulegur Íslandi

HallurHallur Hallsson blaðamaður og rithöfundur var í viðtali í gær hjá útvarpi Sögu og ræddi þar við Pétur Gunnlaugsson um utanríkismál Íslendinga en Hallur lýsti utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar á eftirfarandi hátt:

”Við sjáum niðurlægingu Alþingis, það er búið að framselja fullveldið úr landi, utanríkisstefnan ógnar auðlindum okkar, hún er ógn við orkuauðlindir okkar og fiskimiðin, ef við ætlum að fara þarna inn í Evrópusambandið þá verðum við að afhenda auðlindir okkar eins og tíðkaðist hér áður um margar aldir, þegar erlendir fiskimenn voru að veiða allt í kringum Ísland, þetta er galin stefna og stefnir einnig nágrannaríkjum okkar, Grænlandi og Færeyjum í hættu, því með því að afhenda auðlindir okkar þá er kominn fleygur á milli þessara nágrannaþjóða,"

Undir þessi orð Halls Hallssonar skal tekið og sérstaklega undirstrikuð orð hans um fleyg á milli okkar og nágrannaþjóðanna á Atlantshafi vegna sleikjuskapar ríkisstjórnarinnar við ESB.

Fyrir nokkur klöpp á öxlina, fáein "high level" embætti við hlið Sádí og annarra aftökusveita kvennréttinda ásamt þáttöku í fundum um eigið ágæti umfram aðra jarðabúa, loftslagsmál og réttlæti sósíalismans eru bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra í vasa Germaníu sem leynt og ljóst vinnur gegn Bandaríkjunum í heiminum sbr. rússneska gasleiðslu til Þýzkalands.  

Eina utanríkisstefnan er í praktíkinni undirlægjuháttur við ESB.

Vonandi verða alþingiskosningar sem fyrst svo þjóðin geti kosið embættismenn sem láta sig hag þjóðarinnar varða í stað útsölufólksins sem fjandskapast við eigin landsmenn í nafni Katrínar Jakobsdóttur. Kórónan á verkið er svo að segja að Íslendingar eigi að fylgja í fótspor Svía í innflytjendamálum en þar er velferðarkerfið á barmi hruns vegna óreiðu, spillingar, ofbeldis og almenns eftirlitsleysis. Ef fram heldur sem horfir verður Svíþjóð að Líbanon Norðursins.

Sósíalisminn setur hvað sem er í rúst.


Blessuð sé minning þín

korsFráfall Jóns Vals Jenssonar bar skyndilega að, við vorum í sambandi hér á blogginu fyrir jólin.

Ég kynntist Jóni í sambandi við þjóðarvakninguna í Icesave. Ég kom í ferð til landsins með tvo góða Englendinga Donald Martin og Anthony Miller sem báðu Íslendinga afsökunar á framferði ríkisstjórnar Gordon Browns sem klassaði íslensk yfirvöld á par við hryðjuverkasamtök Al Qaida. Með okkur Jóni tókst góð vinátta alla tíð síðan.

Jón var á margan hátt sérstakur persónuleiki, drengur góður sem alltaf var reiðubúinn að aðstoða aðra og hjálpa til. Kristin trú hans var sterkur drifkraftur og elja hans slík að stundum virtist hann svo afkastamikill að a.m.k. tíu aðra venjulega hefði þurft til svo ná mætti sama árangri. 

Hugsjónir og sterk trú á það góða í manninum leiddu Jón Val áfram veginn í stjórnmálaumræðum og vinskap við aðra. Það verður visst tómarúm í bloggum og á samfélagsmiðlum við fráfall Jóns.

Blessuð sé minnig þín. Guð geymi þig um aldur og eilífð.

Gústaf Adolf Skúlason


mbl.is Andlát: Jón Valur Jensson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgið hrynur - Jafnaðarmenn í Svíþjóð með 21% - Sjálfstæðisflokkurinn með 17,6% - hvað botnar fallið?

Dokument17Í nýrri könnun Aftonbladets í Svíþjóð telja lesendur blaðsins formann Sósíaldemókrata og forsætisráðherra Svíþjóðar Stefan Löfven þriðja versta ráðherrann af 23 ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Í annarri könnun mælast Sósíaldemókratar í Svíþjóð með rúm 21% fylgi en Svíþjóðardemókratar nálgast 30%. Í könnun Maskínu fyrir jól mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 17,6% en fær 22,7% í síðasta Þjóðarpúlsi Gallup.

Þótt ekki séu yfirlýst stefnumál sænskra jafnaðarmanna og íslenskra Sjálfstæðismanna þau sömu, þá hefur vægi þessarra tveggja flokka í þjóðmálum fylgst töluvert að kringum 40% í mörg ár. Löng seta á valdastólum hefur ruglað menn í ríminu, í Svíþjóð setja jafnaðarmenn sama sem merki milli flokksins og ríkisins og á Íslandi hafa Sjálfstæðismenn týnt fullveldinu og aðlagað stefnu sína Vinstri Grænum til að komast hjá fráhvarfseinkennum í stjórnarandstöðu. 

Fylgishrunið er píslarganga nútímans fyrir þessa flokka og henni mun ekki linna fyrr en flokksmenn ná tökum á uppruna sínum og stefnu. Enginn byr í seglin í sjónmáli hvorki með Bjarna Benediktsson formann á Íslandi né Stefan Löfven í Svíþjóð.

Spurningin er hvar botninn er, ef ekki suður í Borgarfirði þá undir 17% eða jafnvel 12%?


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson – sá eini með fullorðna skoðun í loftslagsmálum Kryddsíldarinnar

Skärmavbild 2020-01-02 kl. 13.54.59Athyglisvert var að hlýða á umræður formanna stjórnmálaflokkanna í Kryddsíld 2019 um loftslagsmál. Sá eini sem sýndi fullorðna afstöðu í umræðunni var formaður Miðflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Benti hann á hið augljósa að það á að vera hlutverk þeirra fullorðnu að hafa vit fyrir börnum í stað þess að hræða úr þeim líftóruna með boð um heimsendi:

"Ég ætla ekki að taka að mér að gagnrýna börn og auðvitað er mjög jákvætt ef börn taka þátt í samfélagsmálum og ég óska þeim til hamingju með þessi verðlaun. En það er fullt tilefni til þess að gagnrýna fullorðna hins vegar, fyrir þessa stöðu sem er uppi núna varðandi þessi mál, því að það á ekki að telja börnunum trú um það að heimurinn sé að farast. Það er ekki hlutverk barna að fræða fullorðna og bjarga þeim heldur öfugt. - Fullorðnir eiga að fræða börn og vernda þau.

Og það hvernig menn hafa verið að taka á þessum loftslagsmálum og búa til þennan skelfingarótta eins og við heyrðum hérna í viðtalinu áðan. Það er beinlínis talað um loftslagskvíða núna og mörg börn sem einfaldlega óttast það að heimurinn sé að farast. Þetta er ekki gott."

Sigmundur Davíð gagnrýndi viðbrögð við vandanum sem einkenndust af sýndarmennsku frekar en aðgerðum sem gætu virkað. T.d. væru vindmyllur ekki rétt lausn, því gríðarlegt magn af stáli til framleiðslu þeirra væri framleitt í Kína með raforku úr kolum. Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri-Grænna og Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins sáu hins vegar ekki út úr augum af sjálfsánægju með loftslagstilþrif ríkisstjórnarinnar hjá Norrænu ráðherranefndinni. Íslendingar eiga eftir að finna fyrir því m.a. í nýjum "grænum" sköttum. 

Greta Thunberg sænska, sem er í stafni baráttu ungmenna gegn ímynduðum heimsendi, á ekki upp á pallborðið hjá öllum t.d. segir rokksöngvarinn Meat Loaf í viðtali við Daily Mail að Gréta sé heilaþvegin: "Ég vorkenni Grétu. Hún er heilaþvegin og trúir á ofhlýnun jarðar þótt slíkt sé ekki til staðar. Hún hefur ekki gert neitt rangt en er tilneydd að hugsa að það sem hún segi sé rétt."


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband