Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2017

Fullveldisstjórn sátta og athafna

rikisstjornÞetta er söguleg stund góðra markmiða og full ástæða til að óska ríkisstjórninni árnaðarheilla og góðra starfa. Ekki veitir af á þeim viðsjárverðu tímum sem eru í heiminum um þessar mundir.

Það sem er mest gleðjandi við þessa ríkisstjórn er ásetningur ríkisstjórnarflokkanna að láta málefnin ráða. Þar er nýr tónn sleginn sem gæti markað endalok "eftirhrunstaugaveiklunar" og upphaf nýs stöðuleikatímabils.

Ásetningur um að hefja virðingu Alþingis til vegs á ný hefði ekki mátt koma seinna, heiður stjórnmálastéttarinnar er í húfi og orðstír landsins líka. Vonandi smitast stjórnarandstaðan af vinnubrögðunum, Alþingi er full þörf á endurnýjun traustsins. 

Gott mál að alþingismenn ræði beint við forráðamenn stofnana og stoða samfélagsins til að hlusta á hvað þeir hafa að segja. Slíkur ásetningur í hreinskilni og af heiðarleika gagnast þjóðinni, fleiri leggjast þá á reipið til að draga skútuna áfram. 

Orðið nýsköpun slitnar aldrei, þróttur þjóðar mælist í grósku athafnamennsku og uppfinninga. 

Ríkisstjórnarflokkarnir sýna alvöru með stjórnarsamkomulaginu. Sáttmálinn er eðlileg málamiðlun og eflaust hægt að óska sér meiri athafna á einstökum sviðum. En ný ríkisstjórn lýðveldisins hefur fæðst og stærsta raunin verður eflaust að halda út allt kjörtímabilið.

Vonandi stendur bakland flokkanna álagið þann tíma. 

Þjóðin á það skilið.


mbl.is Ráðherrakapallinn opinberaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðarskömmin er borgarstjórans - Dagur B veldur ekki starfi sínu, hvorki í Reykjavík né annars staðar

Þá vitum við það. "Það er þjóðarskömm að fólk þurfi að hafast við á tjaldsvæðinu í Laugardal - gegn vilja sínum - vegna húsnæðisvandans", segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkurborgar á Facebook. Greinilega heldur Dagur B. að hann komist undan ábyrgð með því að hrópa hærra en fólkið á götunni. Hann virðist lítið frétta af ástandinu í borginni (skólpslysið) eða setja það litla sem hann les í blöðunum í samband við eigið embætti (húsnæðislausir).
 
Til marks um raunveruleikafirringu á háu stigi er að kenna öðrum sveitarfélögum um húsnæðisskortinn í Reykjavík. Hroki mannsins, sem orðinn er dýrkeyptasti borgarstjóri á Íslandi frá Landnámstíð, finnur engin mörk. 
 
Vinir Dags Borgarstjóra á RÚV hafa útskýrt málin 02.08.2017: "Fólki á biðlista eftir almennu félagslegu leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg hefur fjölgað um tæp 50 prósent á einu og hálfu ári. Tæplega 1100 manns bíða. Formaður velferðarráðs viðurkennir að stefna borgarinnar hjálpi ekki fólki í brýnum húsnæðisvanda.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar birti í dag tölur um fjölda á biðlistum eftir félagslegu leiguhúsnæði. Þar kemur fram að í ágúst bíða 1081 og þeim fjölgar sífellt. Ef farið er aftur til ársbyrjunar 2016 sést að á biðlistanum voru mun færri eða 723. 358 hafa bæst við listann."
 
RÚV 03.08.2017: "Mæðgin sem hafa verið húsnæðislaus síðustu vikur halda nú til í tjaldi á tjaldsvæðinu í Laugardal. Konan hefur verið á biðlista eftir félagslegu húsnæði hjá Reykjavíkurborg í sex ár. Hún segist ekki hafa í önnur hús að venda."
 
Þjóðarskömmin er borgarstjórans sjálfs sem hamast alla daga við að koma skipulagi og efnahag Reykvíkinga í skólpið. Ábyrgðin er borgarstjórans og meirihluta borgarstjórnar að fólk kemst ekki í húsnæði í borginni.
 
Ætlar Dagur B. Eggertsson að kenna bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum um, ef fólk frýs í hel í Reykjavík?
 
 

mbl.is Þjóðarskömm að krókna í tjaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein með öllu

Skärmavbild 2017-11-07 kl. 10.28.40


mbl.is Allir eru að tala við alla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurkoma núllanna

cool-guys-dont-look-at-explosions-profileÁrið 1981 voru tvö núll tekin úr umferð myntskráningar á Íslandi. 100 kr urðu að 1 kr.

Í óðaverðbólgu er ekki haldandi á reiðufé heldur verður umsvifalaust að festa það í einhverju sem hugsanlega heldur í við verðbólguna. 

Hrunamannastjórn sú sem nú er í spilunum mun - ef af fæðingu verður, þýða endurkomu núllanna. 

Í Reykjavíkurbréfi dagsins skrifar höfundur: 

"Það hefur vissulega streymt mikið fé í ríkiskassann og margir kalla eftir ríkulegum skerf. En ef gengið verður hratt um þær dyr gleðinnar, þá er vaxandi verðbólga skammt undan og hratt hækkandi vextir. Ekki í kjölfar fyrirsjáanlegrar verðbólgu heldur strax og áformin birtast og peningastjórn landsins kemst ekki hjá því að grípa til lögbundinna aðgerða til að streitast á móti þenslu sem stjórnlaus veislan mun óhjákvæmilega skapa".

Uppbyggingarstjórn núllanna brennir göt í seðlaveski landsmanna.  

Gott mál að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræða saman.

En verður bóndanum í Hruna bjargað úr villtum dansi núllanna?

 

 


mbl.is Fyrsti formlegi fundurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laumupakki forsetans og vinstri flokkanna: ný stjórnarskrá og Ísland inn í ESB

katrin1Daginn eftir ellefta september 2017 sagði forseti Íslands í setningarræðu Alþingis að breyta þyrfti lögum um uppreist æru kynferðisafbrotamanna sem og stjórnarskrá lýðveldisins. Hvatti forsetinn "fólk í hinu fjálsa lýðræðissamfélagi að láta í sér heyra".

Þremur dögum síðar lét Björt framtíð í sér heyra og sprengdi ríkisstjórnina með lygum um að formaður Sjálfstæðisflokksins breiddi yfir voðaverk kynferðisafbrotamanna.

Einum og hálfum mánuði eftir það felur forsetinn formanni VinstriGrænna að mynda vinstri ríkisstjórn með öðrum ESB-flokkum í anda fyrirfram hannaðrar leikfléttu krata.

Vinstri öflin hunsa lýðræðislega niðurstöðu kosninganna. Sigurður Ingi Jóhannsson bergmálar "uppbyggingarstjórn" úr munni Steingríms.

RÚV öflin mynda skjaldborg um þær stjórnarskrárbreytingar sem þarf til að afnema fullveldið og breyta Íslandi í andlitslaust amt innan ESB.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands mun styðja allar slíkar breytingar þ.á.m. afnám málskotsréttar forsetans sem gagnaðist þjóðinni í Icesave-deilunni. 

Stjórnmálin eru að breytast í alvöru Hrekkjavöku fyrir lýðveldið. 


mbl.is Katrín komin með umboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru sögulegar sættir mögulegar?

nystjornLímið í Framsóknarflokknum er sterkara en mig grunaði. Flokkurinn hélt velli með sama þingmannafjölda þrátt fyrir útgöngu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Er það til marks um óvenju þrautseigju og úthald. Á hinn bóginn, ef Sigurður Ingi Jóhannsson hefði látið vera að hrifsa formannsstólinn af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þá væri Framsóknarflokkurinn í dag næsti stærsti stjórnmálaflokkurinn með 21,6% atkvæða og 15 þingmenn. 

Það getur reynst auðveldara fyrir formennina tvo að starfa saman í sitt hvorum flokknum en innan sama flokks. Það gefur von um ríkisstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins með aðkomu t.d. Flokks fólksins. 

Þá gætu ráðherraembætti skiptst milli leiðtoga flokkanna í stíl með eftirfarandi: Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannesson landbúnaðarráðherra og Inga Snæland félags- og velferðarráðherra. 

"Sigur" vinstri manna er hámarkshræsni skv. fyrirfram gerðri áætlun krata á Íslandi og ESB. Búið var að skipa ríkisstjórn vinstri manna löngu áður en kosið var. Fyrirfram var VG "sigurvegarinn" skv. "könnunum" og erlendum "fréttum". VG fékk aðeins 1% meira fylgi og Píratar töpuðu 4 þingmönnum.

Kosningarnar 2017 staðfestu að Íslendingar velja sjálfstæðið framar ánauð innan ESB. Eina leiðin fyrir vinstri menn að mynda ríkisstjórn - sem á engan hátt getur orðið tákn staðfestu eða úthalds - væri ef Lilja Alfreðsdóttir tæki krappari beygju en Steingrímur forðum til að endurræsa vofu ESB. 

Nema að hún fari til Miðflokksins, þar sem lýðveldissinnarnir eru.


mbl.is Sögulegt símtal Sigmundar og Sigurðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband