Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2015

Krataeðlið nakið - ólýðræðislegt, svikult, undirförult og læðist aftan að fólki

monsterSósíaldemókratar á Norðurlöndum og víðar eru á flótta frá almenningi sem snýr við þeim baki vegna blekkinga, svikinna loforða, eiginhagsmunastefnu og ekki síst náinna tengsla við alls konar fjárglæfra- og glæpamenn sem vinna með þeim í fimmtu herdeildinni til að ná markmiðum sínum. Á Íslandi með því að traðka niður nafn landsins og allra heiðarlegra Íslendinga með svindlandi þjófnaði sem næstum kostaði landsmenn sjálfstæðið. Ísland er enn í efnahagslegum fjötrum og samfélagið enn í sárum en sem betur fór tókst landsmönnum að stöðva skuldsetningu margra kynslóða fram í tímann og algjöra samfélagslega eyðileggingu.

Alls staðar þar sem sósíaldemókratar fara með völd skilja þeir eftir sviðna jörð,  atvinnuleysisbál, tæmda sjóði almennings og lýðræðisafhroð, þar sem spilling ræður ríkjum í stað eðlilegs og réttskipaðs stjórnarfars. Dugir þar að benda á stjórn Reykjavíkurborgar sem gerir allt til að feta í fótspor stórabróðurs í fyrrverandi ríkisstjórn. Verða Reykvíkingar að taka höndum saman í borginni eins og landsmenn gerðu í Icesave og fleygja þessum ónytjungum úr stjórnarstólunum áður en Reykvíkingar verða skuldsettir margar kynslóðir fram í tímann.

Í ESB undirbúa kratar með fulltingi aðlþjóðlegs fjármagns og kröfuhafa að svipta lýðræðislega kjörna fulltrúa Grikkja valdi með nýskipan tæknikratanefndar sem á að stýra Grikklandi í gjaldþrot án þess þó að þeim verði vísað af evrusvæðinu. Ef Grikkir sætta sig ekki við það og óeirðir brjótast út verður slíkt kæft með hervaldi og mögulega ný herforingjastjórn skipuð, sem er hliðholl Trojkunni.

Í Finnlandi hafa sósíaldemókratar ekki unnið kosningar samfellt átta sinnum í röð. Ríkir fullkominn stjórnarkreppa í röðum þeirra og vita þeir ekki sitt rjúkandi ráð, þegar grundvöllur þeirra er horfinn. Stór hluti vinnandi fólks kýs SannFinna sem vilja vinna gegn spillingu og alríki ESB.  

Í Svíþjóð birtust í dag niðurstöður kannana sem sýna, að Svíar eru að átta sig á kosningasvikum og ósannindum sósíaldemókrata, sem hækka allar álögur á almenningi til að fá sjálfir meira í sinn hlut. Flest allir uppgjafa sósíaldemókratar eins og Göran Persson fyrrv. forsætisráðherra vinna í stjórnum stórbanka og tryggingarfélaga eða í bankasamtökum og er eini munurinn á þeim og hjónabandi Jóhönnu Sigurðardóttur og Baugsforingjans Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sá, að á Íslandi og ekki í Svíþjóð eru rekin dómsmál gegn Baugsmafíunni og siðlausri glæpastarfsemi fjármálaklíkunnar sem rústaði efnahagslífi Íslands árið 2008. Þótt sænskum krötum hafi tekist að fá örbrot af kjósendum til baka í síðustu kosningum er flótti frá sænskum krötum núna í svo stríðum straumi, að orðið hrun öðlast merkingu. Vex Svíþjóðardemókrötum jafnt og þétt fylgi og gætu þeir orðið næststærsti stjórnmálaflokkurinn í næstu þingkosningum í Svíþjóð.

Kratar eru stjórnmálahreyfing siðblindra peningaafla og hika ekki við að skapa glundroða í samfélaginu til að skara eld að eigin köku. Lýðræði, stjórnarfar og lög þýða afskapalega lítið og léttvaltað yfir allt saman. Oftar en ekki er braut öfgaofbeldisafla rudd með skelfilegum afleiðingum fyrir fólk.

Þetta sést einna best á bónför einsatkvæða formanns Samfylkingarinnar til Brussels, þar sem hann skiptir út Alþingi og þingskaparheitinu, stjórnarskrá og lýðræði lýðveldisins fyrir fáein tíst með krötum á Evrópuþinginu til að fara fram á erlenda aðstoð til að troða Íslandi inn í Evrópusambandið. 

Er Árni Páll hræddur við það, að ef Ísland hverfi af lista umsóknarríkja ESB, að þá hverfi Samfylkingin og hann sjálfur í leiðinni? 


mbl.is Leitar liðsinnis innan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frítt fram fyrir hervæðingu Írana

putin3Varla var blekið þornað á pappírnum fyrr en fyrsti áþreifanlegi árangurinn af "sögulegum samningi" Írana og Vesturvelda sýnir sig: Pútín afléttir einhliða vopnasölubanni til Íran. Er þetta aðeins byrjunin á nýrri hervæðingu Írans sem mun kynda undir nýja stríðsógn í Miðausturlöndum nákvæmlega eins og forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, hefur varað við. Flugskeyti Pútíns eru mikilvæg fyrir Íran til að verjasta flugárásum á kjarnorkuver sem geta framleitt kjarnorkusprengjur. Verður nær ómögulegt að granda þeim með hefðbundnum flugárásum, þar sem flugskeyti Rússa eru meðal þeirra fullkomnustu sem völ er á í heiminum í dag.

Það er mikil ógæfa fyrir heimsbyggðina, að samið er um liðkun samskipta og viðskipta við prestastjórn í Teheran sem mörgum sinnum hefur lýsti því yfir gegnum árin, að markmið þeirra er að útplána Ísrael. Obama Bandaríkjaforseti hefur bæði sniðgengið sitt eigið þing og mikilvægan bandamann, Ísrael, með samkomulagi sem hann sjálfur trúir ekki á sbr. yfirlýsingar um að "ef Íran svindlar, þá stoppum við allt saman aftur". 

Rússar eru í herskáa gírnum og skv. eigin hersérfræðingum leggja þeir grunn að árásarstríði til norðurs og í Úkraínu. Einkum eru gömul yfirráðasvæði Sovéts með rússneskum meðborgurum eins og í Baltísku löndunum  illa sett. Harðari orðahnýtingar rússneskra yfirmanna við kollega sína á Norðurlöndum og Eystrarsaltsríkjunum ásamt sífellt fleiri "næstum því slysum" sprengjuflugvéla, kafbáta og annarra hertækja boða ekki gott. Taugarnar verða spenntar til hins ítrasta á heræfingu Norðurlanda með þáttöku amerískra herþotna á Eystrasalti í maí. 


mbl.is Flugskeytaflutningsbann afnumið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland: Afhendið fiskimiðin! Bretland: Þið sleppið ekki úr netinu!

Umræður eru um þjóðaratkvæðagreiðslur bæði á Íslandi og í Bretlandi. Á Íslandi heldur landsölufólkið áfram þeirri slóttugu iðju að blekkja landsmenn til að hætta við kröfur Alþingis um óskoruð yfirráð Íslendinga yfir fiskimiðunum. Það sem kallað er atkvæðagreiðsla um "áframhaldandi viðræður" er ekkert annað en atkvæðagreiðsla um að landið afsali sér fullveldi sínu yfir sjávarlögsögunni. Á þessu atriði strönduðu viðræðurnar og í staðinn fyrir "kíkja í pakkann" lygar er nú komið með "áframhaldandi viðræður" lygar.

Í nágrannalandi okkar Bretlandi eru einnig umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu, nefnilega loforð David Camerons um að ef hann fái traust kjósenda til áframhaldandi stjórnarmyndunar, þá munu Bretar fá að kjósa um hvort þeir vilja halda áfram að vera með í ESB eða ekki. Tony Blair fer nú hamförum í Bretlandi og útmálar Bretlandi sem Kúbu andskotans verði Bretum gefinn þessi kostur. Hann hefur fyrir löngu síðan selt sálu sína og veit að landsöluhópur hans er í hverfandi minnihluta.

Skärmavbild 2015-04-08 kl. 23.49.51

Læt fylgja með skjáskot af teiknimynd Steve Bell í The Guardian um ESB prédikarann Tony Blair sem hótar eldi og brennisteini ef Bretar sjá ekki sæluna í ESB.

 


mbl.is Fækkar sem vilja þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband