Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Stórkostlegur árangur Íslands
27.6.2018 | 07:47
Það er full ástæða til að þakka okkar frábæru knattspyrnumönnum fyrir drengilega baráttu. Þeir hafa skrifað fótboltasögu á heimsvísu með því einu að bera þjóðina fram til leiks á HM.
Leikur þeirra við Króatíu í gær sýndi, að liðið er á heimsmælikvarða og fyllilega sambærilegt við bestu knattspyrnuþjóðir heims. Sænskir íþróttafréttamenn juku lofsorðum á Ísland og allir vilja taka þátt í árangri liðsins sbr. grein Ann Linde Evrópuráðherra Svíþjóðar í Mbl. í dag, þar sem hún bendir á þá staðreynd að "níu liðsmenn landliðsins hafa spilað í Svíþjóð og velgengni liðsins einnig fagnaðarefni fyrir okkur Svía".
Sú tilfinningalega sameining sem landsliðið hefur skapað er tákn fyrir vilja lítillar þjóðar að láta hvorki fjármálahrun, eldgos eða aðra óáran hindra sig frá því að lifa af allar hörmungar. Barátta liðsins er tákn um þennan ótrúlega styrk þjóðarinnar og ekki annað hægt en að gleðjast yfir árangrinum og finna til stolts sem Íslendingur.
Að þessu leyti eru knattspyrnumennirnir miklu meiri hetjur og rísa hærra yfir öll dægurmál en flestum stjórnmálamönnum tekst nokkru sinni að gera.
Stjórnmálin hafa mikið að læra af íþróttunum.
Ísland úr leik á HM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilega þjóðhátíð 17. júní 2018
17.6.2018 | 10:12
Óska öllum ættingjum og vinum gleðilegrar þjóðhátíðar 17. júní 2018.
Sérstaklega ánægjulegt eftir frábæra frammistöðu landsliðsins á HM. Sænskir miðlar ausa loforðum á Ísland, getu og frammistöðu íslenska fótboltaliðsins.
Margir af sænskum vinum hafa haft samband til að koma á framfæri hamingjóskum og hvatningarorðum.
Ísland er í sviðsljósinu núna.
Þjóðin á fullveldið en þarf að skipta um handónýta alþingismenn sem vinna að því að rífa það niður í stað þess að verja það á myndarlegan hátt eins og Halldórsson og aðrir af okkar frábæru knattspyrnumönnum.
Fullveldiskveðjur frá Svíþjóð
Hvaða refsing fylgir broti á stjórnarskrá Íslands?
13.6.2018 | 20:11
Skv. nýjum lögum ESB um persónuvernd varðar það sektum allt að 2,4 milljarða króna að brjóta gegn lögunum.
Íslenska þjóðin ætti að ræða og koma sér saman um hvaða refsing hæfir þingmönnum sem meðvitað rjúfa þingskaparheit sitt og samþykkja lög sem Lögmannafélag Íslands hefur varað við að sé brot á 2. gr stjórnarskrárinnar um þrískiptingu valdsins og einnig brot á 27. gr stjórnskrárinnar um birtingu laga á Íslandi.
Hvað á að gera við þingmennina, þegar Hæstiréttur dæmir lögin ómerk vegna þess að þau stangast á við stjórnarskrá Íslands? Verður það ekki dómur um vanhæfni þingmannanna sem kusu með lögum sem framselja dómsvald frá Íslandi í trássi við stjórnarskrána?
Einu þingmenn alþingis sem skilið eiga heiðurinn að halda upp á 100 ára fullveldi Íslands eru þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins og mögulega þrír aðrir ef ástæða fjarveru þeirra var að komast hjá að greiða atkvæði eftir flokkslínunni. Fyrir hina væru makleg málagjöld að missa af fullveldisfagnaðinum og fá að dúsa í skammarkróknum við Drekkingarhyl á Þingvöllum í 100 daga og segja 100 sinnum á dag: Dómendur á Íslandi fara með dómsvaldið - Dómendur á Íslandi fara með dómsvaldið Dómendur á Íslandi fara með dómsvaldið....
Fjölmargir aðilar mótmæltu æðibunuganginum með lagagerð á svo stuttum tíma vegna fyrirskipana ESB. Ætlar t.d. Reykjavíkurborg að skattpína Reykvíkinga til að borga sektir samkvæmt erlendum dómi fyrir að uppfylla ekki kröfur persónuverndarlaga, af því að enginn tími gafst til að breyta tölvukerfinu áður en lögin tóku gildi? Og hafa heldur enga möguleika á að áfrýja dómnum innanlands?
Hvar er forseti Íslands? Lætur hann sig stjórnarskrána einhverju máli skipta? Stöðvar hann þessa endaleysu með því að vísa málinu til þjóðarinnar?
Persónuupplýsingar eign einstaklinganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sambandssósíalistar fara úr límingum vegna stefnufestu Bandaríkjaforseta
12.6.2018 | 19:47
Talsmenn ESB misstu andann, þegar Bandaríkjaforseti vildi fá Rússa aftur með í G8-hópinn; töpuðu andlitinu, þegar Bandaríkjaforseti dró sig úr ályktun G7 og fóru endanlega úr límingum, þegar forsetinn skrifaði undir friðarsamning með einræðisherra N-Kóreu Kim Jong-un um afnám kjarnorkuvopna á Kóreuskaga. Fyrir mánuði síðan hefðu fáir trúað því, að Kim Jong-un samþykkti slíkt.
Guy Verhofstadt fylgir skjólstæðingi ESB no 1, George Soros, að málum sem ásakar Bandaríkjaforseta um að "eyðileggja heiminn". Tístir Verhofstadt að "ónýtur samningur sem staðfesti lögmæti einræðisherra" úr hendi mannsins sem "kálaði Parísarsáttmálanum, kjarnorkusamningi Íran og G7" leiði heiminn á heljarbrún. "Ég vona mannkynsins vegna, að ég hafi rangt fyrir mér" skrifar Verhofstadt.
Í viðtali við Washington Post nýlega vælir George Soros um að "allt hafi mistekist sem geti mistekist" og telur upp tap Hillary Clintons fyrir Trump og stefnu Trumps um að Ameríka gangi fyrir öllu sem eyðileggi alþjóðavæðingu Soros. Þá gangi brösulega fyrir ESB með úrsögn ríkja og vaxandi sjálfstæðisstefnu. Soros segist ætla að tvöfalda sókn sína gegn Trump og leggja milljónir dollara á að eyðileggja starf hans sem lýðræðislega kjörins forseta Bandaríkjanna. Vill Soros að Bandaríkjaforseti verði dreginn fyrir ríkisrétt og dæmdur. Hefur Soros myndað bandalag með nokkrum öðrum auðkýfingum til að vinna að sigri demókrata á Bandaríkjaþingi í komandi kosningum. Samtök Soros Open Society eyða tæpum milljarði dollara árlega í moldvörpustörf í 100 löndum í heiminum. Til dæmis til að koma Bretum aftur inn í ESB og í "blaðarannsóknir" svo kallaðra Panamaskjala sem Íslendingar þekkja vel til.
Hvaða sýn sem menn hafa á innihaldi friðarsamnings Trumps og Kim Jong-un, þá hefur þeim tekist að brjóta óvissuvegferð með fundi sínum, sem setur feril öryggismála í heiminum í nýjan og betri farveg.
Trump og Kim undirrituðu sáttmála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.6.2018 kl. 03:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Meira falskt hjá Trudeau en augabrýrnar
11.6.2018 | 03:38
Það er merkilegt að sjá hversu langt til vinstri menn eru komnir, þegar augabrýrnar losna við boðskap Bandaríkjaforseta um frjálsa verzlun. Árum og áratugum saman hefur umheimurinn notið góðs af aðstoð Bandaríkjanna í viðskiptum sem sjálfir hafa þurft að horfa upp á að bandarískar vörur væru skattlagðar í öðrum löndum á meðan innfluttar vörur njóta skattfrelsis í Bandaríkjunum. Útkoman hefur verið risastór viðskiptahalli Bandaríkjamanna með tilheyrandi skuldasöfnun sem stendur bæði hagvexti og öryggi Bandaríkjanna fyrir þrifum.
ESB er Evrópu Sósíalista Bandalagið, þar sem gömlum, þekktum þjóðernissósíalisma hefur verið breytt í sambandssósíalisma. Eftir þennan sögulega G7 fund í Kanada stendur ljóst, að ESB stefnir að heimsyfirráðum undir forystu Þjóðverja.
Þjóðverjar kölluðu nýverið sendiherra Bandaríkjanna til yfirheyrslu vegna ummæla hans við Breitbart News um að Bandaríkin styðji íhaldsöfl í Evrópu og ætlar utanríkisráðherra Þýzkalands Heiko Maas að taka upp málið við Bandaríkjastjórn. Heika Maas hefur lýst því yfir að "Evrópa" geti ekki lengur reitt sig á Bandaríkin og muni sjálf ráða málum heimsbyggðarinnar.
Allt er þetta gamalkunnugt. Þýzkaland hefur endurheimt fyrri styrkleika gegnum ESB og vakning draugsins hafin eina ferðina enn.
Eins gott að Bandaríkjamenn hafi forseta með bein í nefinu svo lýðræðið eigi einhvern málsvara eftir sem hnyklað geti augabrýrnar. Ísland ætti að styðja sinn góða bandamann Bandaríkin í stað þess að missa móðinn á hlaupum á eftir sambandssósíalistunum.
Trump: Engar hindranir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
George Soros: ESB stafar ógn af Bandaríkjum Trumps, Rússlandi Pútíns, Tyrklandi Erdogans og Sýrlandi Assads
4.6.2018 | 19:33
Hrægammakóngurinn George Soros telur að ESB grafi sína eigin gröf ef það hjálpar ekki Ítalíu að leysa innflytjendavandamálin. Telur hann vaxandi andúð á ESB á Ítalíu vera vegna þess að Frakkland og Austurríki hafi lokað landamærum sínum og Ítalía sitji uppi með flóttafólkið. Fullyrðir Soros, að ESB stafi mesta ógn af Bandaríkjunum, Rússlandi, Tyrklandi og Sýrlandi.
George Soros talar eins og hann stjórni ESB. Hann kostar auglýsingaherferðir í Bretlandi um að Bretar eigi að kjósa upp á nýtt gegn Brexit. George Soros er einnig virkur á Ítalíu en hann hefur útmálað Salvini sem handbendi Pútíns og að Lega sé fjármagnað af Kreml. Man einhver eftir Panamaskjölunum og ásökunum á hendur fv. forsætisráðherra Íslands Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir að vera í slagtogi með Pútín og al-Assad?
Mikil ringulreið hefur gripið um sig meðal Brusselbúrókrata eftir stórsigur hægri flokka Ítalíu Fimm stjörnu hreyfingarinnar og Lega. Hafa fulltrúar flokkanna hótað að vísa hálfri milljón skilríkjalausum hælisleitendum úr landi jafnframt því sem nýja ríkisstjórnin ætlar að biðja Seðlabanka ESB um að afskrifa 250 milljarða evru af skuldasúpu Ítalíu. Hætt er við, að Ítalía sé "To Big to Save" og að evrusvæðið leggist á hliðina, ef gríski harmleikurinn verði endurtekinn í öðru veldi með Ítalíu.
Þótt Merkel hafi gefið Makrón grænt ljós á alríkið með stofnun ESB hers og lánasjóð fyrir skuldsett evruríki, þá eru hvorki hún né aðrir Þjóðverjar fylgjandi efnahagslegum eftirgjöfum við Ítali.
Spurningin er hversu lengi ferlið getur gengið áfram áður en sýður endanlega upp úr og ESB gefi upp öndina.
Sikiley hætti sem flóttamannabúðir Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hatur gegn Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum mikilvægasta stefnumál nýja meirihlutans
31.5.2018 | 04:19
Vinstri menn hlusta ekki á kall kjósenda. Þeir eru ekkert á því að láta vilja kjósenda trufla hatur sitt á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum og vegur hatrið meira en sjálf Borgarlína Langstokkur.
Mikilvægasta stefnumálið er að koma í veg fyrir að Eyþór Arnalds oddviti sjálfstæðismanna verði lýðræðislega kjörinn borgarstjóri Reykvíkinga. Ekkert er mikilvægara en að koma í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn, sem eru sigurvegarar kosninganna, fái aðgang að þeim embættum sem kjósendur kusu þá til. Öll önnur mál hafa minna vægi.
Vinstri menn traðka á lýðræðinu, eru stefnulausir í stjórnmálum og taka enga ábyrgð á eigin gerlum - hvorki saur né aur. Fyrir slíka pólitík fá Reykvíkingar að gjalda.
Fjögur ár í viðbót með sukki og spillingu í stjórn Reykjavíkur geta þýtt gjaldþrot borgarinnar. Ef ekki borgarinnar sem stofnunar, þá fjölda efnaminni Reykvíkinga sem í nafni jafnaðar verða gerða eignalausir.
Skattaunderlagið mun svíkja og sífellt stærri hluti af tekjum borgarinnar hverfa í vaxta- og afborganir af lánum. Þegar svo fasteignamarkaður hrægammanna hrynur munu skjólstæðingar meirihlutans kalla eftir eignum sínum og hirða það sem enn er einhvers virði í hrunkistu borgarinnar.
Áframhaldandi völd Dags & Co í Reykjavík mun skapa mikla erfiðleika fyrir ríkisstjórnina, þ.e.a.s. þann hluta hennar sem heldur utan um fjármál ríkisins. Krafan um auknar skattaálögur til að fjármagna brjálæðisverkefni Dags & Co mun koma. Erfitt verður að halda botnlausum skuldum Reykvíkinga fyrir utan landsstjórnina vegna stærðar höfuðborgarinnar. Að lokum mun fjárhagur allra Íslendinga skerðast vegna vanstjórnar Reykjavíkurborgar. Íbúar á landsbyggðinni munu finna fyrir hrægömmum við völd á tvöfaldan hátt.
Ekki bætir úr að apaguðunum fjölgar. Eldur mun finnast í Viðreisn svo lengi sem hatrið á sjálfstæðismönnum endist fyrir það að vilja ekki ganga með í ESB. Það er sterkari samnefnari með Samfylkingunni en vilji kjósenda.
Reykjavík hefur aldrei áður verðskuldað titilinn Týnda borg apaguðsins meira en í dag.
Mynda frjálslynda stjórn jafnréttis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ætlar fyrrverandi borgarstjóri Reykvíkinga að láta skafa sig úr borgarstjórastólnum?
27.5.2018 | 21:07
Úrslit kosninganna í Reykjavík eru ótvírætt ákall Reykvíkinga um breytta stjórn borgarinnar.
Allt frá hruni hafa hatrið og heiftin verið leiðarljós vinstri manna. Hafa þeir reynt að ganga milli bols og höfuðs góðra manna og kvenna sem þjóðin hefur kosið eins og t.d. Davíð Oddssyni, Ólafi Ragnari Grímssyni, Geir Haarde, Vigdísi Hauksdóttur, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og núna síðast Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
Þjóðin hefur risið gegn þessarri firru og sýnir í öllum kosningum að hún vill fá tækifæri að kjósa um málefni og menn en ekki hatur og bræði. Stjórnmál eiga að fjalla um skiljanlega hluti til hagsbóta fyrir kjósendur en ekki herferðir gegn stjórnmálaandstæðingum með lygum að vopni.
Með endurheimtingu Sjálfstæðismanna á forystu í Reykjavík og komu Miðflokksins sýna kjósendur, að þeir hafna blekkingarleik vinstri manna. Mæta skal raunverulegum þörfum Reykvíkinga á sviði húsnæðismála, félagsmála, málefna aldraðra, minnkun umferðaröngþveitis, hreinni borgar, veru flugvallar, spítala o.s.frv. í stað þess að skuldsetja borgarbúa kynslóðir fram í tímann í delluverkefnum Borgarlínu Langstokks.
Skilaboð kjósenda eru skýr. Meirihluti borgarstjórnar er fallinn og borgarstjóra hefur verið vikið úr sæti. Að Dagur B. vill ekki fara úr borgarstjórnarstólnum er ekkert annað en löðrungur framan í kjósendur og afneitun á lýðræðinu.
Til hvers að vera með kosningar ef valdasjúkum leyfist að hunsa niðurstöðu kosninganna?
Ætlar fyrrverandi borgarstjóri að enda feril sinn á því að láta skafa sig úr stólnum?
Hefð að stærsti flokkurinn leiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Betri er borg týnda apaguðsins en týnda borg apaguðsins
27.5.2018 | 01:21
Núverandi meirihluti Reykjavíkur er fallinn. Það eru jákvæðustu tíðindi þessarra sveitastjórnakosninga. Samfylkingarlæsingin hefur verið slík að Reykvíkingar höfðu lítinn möguleika á að hafa áhrif á skipan mála með stöðuga frelsisskerðingu allan tímann.
Sá hroki sem birtist í ummælum Jón Gnarrs gagnvart kjósendum í viðtali sjónvarpsins er fáheyrð en því miður dæmigerð fyrir valdaníðslu Samfylkingarfólks. Sagði hann Reykvíkinga vera vitleysinga sem "vita ekkert um ágæti borgarlínunnar".
Samfó-RÚVIÐ sem lifir í eigin heimi merkikerta misbeitir ríkisfjölmiðlinum gróflega með fókus á neikvæðar tölur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Höfuðfréttirnar voru talningar sem sýndu lægri tölur fyrir Sjálfstæðisflokkinn núna miðað við síðustu kosningar. Rúv neyddist þó til að viðurkenna fall meirihlutans í Reykjavík en andlitsfarði fréttamanna náði vart að dylja vonbrigðin.
Eyþór Arnalds sagði réttilega að Sjálfstæðisflokkurinn hefði endurheimt stöðu sína sem stærsti flokkur Reykvíkinga. Hann bendir einnig á hið sjálfsagða, að stjórnendur borgarinnar eiga að vinna í þjónustu borgarbúa og má að ósekju bera þá stefnu saman við stefnu Samfylkingunar sem tekur borgarbúa í gíslingu.
Fallhlífarstökkvarinn Vigdís Hauksdóttir er inni og e.t.v. nær Miðflokkurinn öðrum manni inn í Reykjavík. Framsókn fer öfug út úr málefnum Reykvíkinga.
Það er ekki falleg aðkoma fyrir nýja stjórn í Reykjavík en ekkert annað að gera en að bretta upp ermarnar og snúa skútunni frá braut Borgarlínu Langstokks.
Verður Dagur B. Eggertsson áfram borgarstjóri Reykjavíkur verður borgin áfram týnda borg apaguðsins.
Betra að borgin týni apaguðinum en að borgin týnist endanlega.
Meirihlutinn fallinn í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýr dagur í Reykjavík
26.5.2018 | 08:43
Síðustu skoðanakannanir benda til þess að Reykvíkingar séu að vakna upp gegn Samfylkingarspillingunni og bandvitlausum verkefnum meirihlutans.
Dagur & Co eru búin að senda borgarbúa í kolsvart skuldafenið með rangri röðun verkefna, þar sem pólitísk gæluverkefni mest fyrir auðkýfinga og ofþensla báknsins hefur toppað útgjaldalistann. Stokkur og Lína eru snældusjúk delluverkefni svo heyrist langt út fyrir landssteinana. Verður þessi meirihluti áfram við völd verður vesöld í Reykjavík næstu kynslóðirnar.
Það er því hið besta mál, að nýr meirihluti taki við, sem hefur áhuga að vinna fyrir íbúa borgarinnar. Þetta er svo sjálfsagður hlutur, að veruleikinn er virkilega skakkur, að það þarf að minnast á það.
Vonandi fleygja Reykvíkingar Degi & Co út á hafsauga stjórnmálanna.
Komi slíkur Dagur aldrei aftur til baka við stjórnvöl Reykvíkinga.
Ný sólarupprás í vændum og góður nýr dagur til nytsamra verka hjá Reykvíkingum.
Sjö flokkar fengju fulltrúa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)