Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ekki eftirsóknavert að apa eftir öllu frá Svíþjóð
20.8.2018 | 16:40
Sé að núna virðist sænska bílaíkveikjusýkin hafa náð til Íslands. Vonandi standa íslenskir slökkviliðs- og lögreglumenn betur að vígi en sænskir kollegar þeirra, sem ráða ekki við neitt í mörgum borgum Svíþjóðar. Vonandi hafa íslensk yfirvöld betri skilning en þau sænsku að útbúa lögreglu, slökkvilið og sjúkraflutningamenn með nauðsynlegum tækjum og mannafla til að takast á við sýkina svo hún nái ekki að breiðast út um landið og skaða líf íbúanna eins og í Svíþjóð.
Það bætir ekki úr skák eftir íkveikju yfir 100 bíla fyrir rúmri viku síðan í mörgum bæjum og borgum á vesturströndinni, að í dag berast fregnir af eyðileggingu yfir 100 bíla í nýjum bílaíkveikjum í Uppsala s.l. nótt. Lögreglan segir að um morðíkveikju sé að ræða en kveikt var í nokkrum bílum í bílaskýli með þeim afleiðingum að allt að 100 bílar eyðilögðust. Í millitíðinni hafa fjölmargir bílar orðið eldinum að bráð í mörgum borgum Svíþjóðar. En það ratar varla lengur í fréttir, því slíkt "tíðkast fyrir skólasetningu á haustin".
Það hjálpar heldur ekki til, að skólaíkveikjur hafa aukist um 47% á tveimur árum og hefur Svíþjóð nú þann vafasama heiður, að sögn Anders Bergqvist hjá Brunaeftirlitinu, að eiga heimsmet í skólaíkveikjum. Talið er að einungis sé tímaspursmál þar til einhver deyji í slíkum íkveikjum.
Þó huggun harmi gegn, að blaðið GöteborgsTidningen hefur kært ákvörðun dómstóls um að hylma yfir nöfnum og þjóðerni þeirra þriggja ungmenna sem eru í varðhaldi vegna brunanna í Gautaborg. Skv. netmiðlinum Samhällsnytt þeirra Dahud Kavak, Mahamed Abdishakur og Mohannad Ali Easar á aldrinum 18-20 ára. Allir áður dæmdir glæpamenn í Svíþjóð fyrir eiturlyfaafbrot, vopnaafbrot, ofbeldi og vopnuð rán. Þessi ákæra er til marks um aukinn þrýsting venjulegra Svía að koma á gegnsæi um hverjir fremja glæpi í Svíþjóð.
Reiði Svía gegn vanmætti yfirvalda á eftir að magnast um helming, þegar þeir fá að sjá það svart á hvítu, að oftast er um sömu glæpamenn að ræða, sem hljóta litla sem enga dóma og er jafnharðan sleppt út eftir að yfirheyrslum líkur.
Glæpamennirnir fá óáreitt að halda áfram iðju sinni.
Morðkvótinn í skotbardögum er þegar komin fram úr 2017 árs meti og núna er bara ágúst.
Kratar eru samir við sig. Hafa komið upp beinni línu ríkisstjórnarinnar til Facebook og Youtube til að láta fjarlægja efni, sem ekki er yfirvöldum að skapi. Apa eftir Hillary Clinton og segja Rússa í samstarfi við innlenda hægriöfgamenn hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir Svía svo þeir velji aðra en krata í komandi kosningum.
Eins gott að Ísland fari ekki forgörðum eins og sænsk yfirvöld nota alla krafta sína til að koma Svíþjóð í.
Kveikt í bílum við Öskju í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vopnaðir öfgaíslamistar, eiturlyfjaklíkur og skemmdarskríll stjórna svæðum í Svíþjóð
14.8.2018 | 07:22
Lögreglan gat ekkert gert nema að aðstoða slökkviliðsmenn sem mættu grjótkastandi unglingum í Trollhattan í gær. Af öllu að dæma voru aðgerðirnar skipulagðar á félagsmiðlum. Fjöldi grímuklæddra einstaklinga unnu að því að kveikja í yfir 80 bílum í nokkrum borgum. Það er í lagi að nota félagsmiðla til að skipuleggja árásir í Svíþjóð en bannað að gagnrýna innflytjendastefnu sænskra stjórnvalda. Slíkt er kallað "haturs"umræða af yfirvöldum sem hafa gegnum ESB þvingað Facebook, Google og Youtube til að ráða fólk sérstaklega til að loka síðum skv pöntun sænsku ríkisstjórnarinnar.
Af því að það er kosningabarátta þessa stundina hentar það Stefan Löfven formanni sósíaldemókrataflokksins og forsætisráðherra Svíþjóðar að láta birta mynd af sér í fjölmiðlum með orðunum: "Hvern andskotann eruð þið að gera" Þykjast vera reiður vegna skemmdarstarfsins.
Hann hefur hins vegar ekki orðið opinberlega reiður vegna allra þeirra morða, nauðgana og yfirtöku öfgaíslamista á heilum hverfum í borgum Svíþjóðar sem eyðilgt hafa líf tugþúsunda Svía vegna ofstækisstefnu ríkisstjórnarinnar og ESB í innflytjendamálum. Allt í lagi að flytja inn morðingja, nauðgara og íslamska vígamenn. Ekki fyrir löngu drápu bandarískir hermenn nokkra vígamenn ÍSIS og eftirá sýndi það sig að þeir voru að skipuleggja nýtt hryðjuverk í Svíþjóð. Takk Bandaríkin.
Það er vegna stefnu sósíaldemókrata og ríkisstjórnar Svíþjóðar sem vopnaðar eiturlyfjaklíkur, öfgaíslamistar og skemmdaverkarskríllinn lifa góðu lífi í Svíþjóð á kostnað skattgreiðenda. Sem leyfir skrílnum hvað eftir annað að eyðileggja eigur venjulegra Svía. Sem leyfir morðhundum hvað eftir annað að drepa aðra. Sem leyfir öfgaíslamistum að taka yfir hverfi eftir hverfi í landinu. Stefan Löfven ber hausnum í steininn.
Vonandi gera kjósendur ekki það sama heldur veita sænsku ríkisstjórninni þungan og verðskuldugan skell í komandi kosningum.
Kveikt í tugum bíla í Gautaborg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrrum ráðgjafi Trumps, Steve Bannon, sker upp herör gegn George Soros
22.7.2018 | 14:21
Steve Bannon fyrrum ráðgjafi Donald Trumps Bandaríkjaforseta sker upp herör gegn marxísku ofurveldi fjármálafurstans George Soros og samtökum hans Open Society. Ætlar Bannon að koma á fót svipaðri starfsemi undir nafninu The Movement (Hreyfingin á íslensku) og vonast til að hún nái áhrifum og árangri fyrir næstu þingkosningar ESB 2019. Verður hlutverk Hreyfingarinnar m.a. að standa fyrir könnunum af ýmsu tagi og virka sem hugmyndasmiðja til að skapa þróttmikil tengsl hægrimanna sem leiði til aukinnar umræðu og þróunar hægri stefnunnar um alla Evrópu.
Bannon segir í viðtali, að það hafi vakið undrun hans, hversu lítið hægri menn voru tengdir milli landa eða skiptust á skoðunum um sameiginleg málefni. Sjálfstæðistefnan sem berst fyrir fullvalda þjóðríkjum með eigin landamærum verður sett á odd baráttunnar í Evrópu.
Bannon hefur m.a. ráðfært sig við Nigel Farage í Bretlandi, Marine Le Pen í Frakklandi, Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands, Svíþjóðardemókrata og hægri menn í Póllandi.
Markmiðið er að forma sterkan hóp hægri aflanna á ESB-þinginu og ná meiri áhrifum en áður.
Höfuðstöðvar Hreyfingarinnar eiga að vera í Brussel.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Orðuhafar sem þjást af svipuðu pólitísku harðlífi og Elísabet Ronaldsdóttir ættu að taka hana sér til fyrirmyndar og skila fálkaorðunni. Enginn sem vanærir orðuna í eigin hégóma veldur þeirri virðingu sem orðan táknar.
Pólitísk einangrunarsýki vinstri manna hrekkur oft upp á ýmsan máta og núna virðist plágan keppa í útbreiðslu við skógarelda í Skandinavíu. Hafa bæði píratar og nýtt formannsefni Samfylkingarinnar orðið svo illa fyrir kveisunni að þau hafa ekki getað mætt til vinnu eða þá mætt en stöðugt þurft að fara frá vegna vanlíðunar.
Ef hegðunin væri tekin fyrir skróp væri ekki úr vegi að gefa pírötum frí frá þingstörfum það sem eftir er kjörtímabilsins. Helga Vala hins vegar þyrfti sérstaka aðlögunardagskrá með heimagerðum eyðum fyirir verstu köstin.
Aðrir vinstri menn, kratar, sósíalistar, kommúnistar, soristar, glóbalistar, anarkistar, vinstri femínistar, marxistar, lenínistar, stalínistar að ekki sé nú talað um öfga íslamista, ættu allir að fylgja þessarri frábæru leiðsögn pírata og taka sér leyfi frá þingstörfum.
Þá fyrst skapaðist vinnufriður fyrir hina sem vinna að landsins gagni og nauðsynjum.
Skilar fálkaorðunni vegna Kjærsgaard | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skógareldarnir í Svíþjóð verstu náttúruhamfarir í manna minnum
20.7.2018 | 02:47
Skógareldarnir í Svíþjóð eru þeir verstu í manna minnum. Langvarandi samfelldur hiti oftast yfir 30 gráður og þurrkar hafa breytt gróðri, grasi og skógi í þurrt skrælnað brennsluefni sem fuðrar auðveldlega upp. Gerir það allt slökkvistarf erfitt og illsótt og þegar logar á a.m.k. 60 stöðum, þar af 15 stóreldar sem enginn hefur stjórn á, þá reynir það mjög á allan mannskap sem berst við að hefta og stöðva útbreiðslu eldanna. Skv. neyðarlínu SOS hafa aldrei áður jafn margar viðvaranir verið sendar til fólks á jafn stuttum tíma og síðan brunarnir hófust.
Miklar umræður eiga sér stað um viðbúnað slökkviliða, almannavarna og hersins fyrir hamförum sem þessum og þykir mörgum Svíum skömm vera að því, að Svíar verða að biðja um neyðaraðstoð m.a. frá Evrópusambandinu til að slökkva skógarelda. Er mikið rætt um að Svíar ættu sjálfir að eiga slökkviliðsflugvélar eins og þær tvær ítölsku sem notaðar eru í dag. Tekur vélina 12 sekúndur að tanka inn 6 tonnum af vatni á flugi og fer vélin a.m.k. 3 ferðir án þess að þurfa að taka eldsneyti. Ein slík vél kostar 200 milljónir sek og er verðið t.d. borið saman við 1,2 milljarða sek niðurgreiðslu ríkisstjórnarinnar á rafmagnsreiðhjólum með eitruðum rafhlöðum og alls kyns fáranlegum þróunarverkefnum sem eru tekin sem dæmi um sóun ríkisstjórnarinnar á almannafé í eigin pólitísk gæluverkefni.
Dan Elíasson góðhestur sósíaldemókrata sem þurfti að hrökklast úr embætti ríkislögreglustjóra vegna getuleysis fékk í staðinn stöðu sem forstjóri almannavarna í Svíþjóð og ummæli hans um að það sé svo dýrt að eiga slökkviflugvélar hafa kynnt undir umræður um þessi mál. Samtök slökkvliðsmanna benda á niðurskurð fjár til slökkviliða á undanförnum árum en í dag vantar a.m.k. 2 500 slökkviliðsmenn að þeirra mati. Á litlum slökkviliðsstöðum er ekki einu sinni til tankbílar og núna þegar öll tæki og mannskapur er nýttur til hins ítrasta sjá margir skýrar, hvað vantar í viðbúnaðinn til að mæta skógareldum.
70% af yfirborði Svíþjóðar er skóglendi. Gríðarlegt magn trjáa eða yfir tvær milljónir kúbikmetra hafa brunnið og er sjáanlegt tjón núna vel yfir 600 milljónir sek miðað við að trén hefðu verið nýtt í timburvinnslu. Yfir 20 þúsund hektarar landssvæðis loga og vindar gera slökkviliðsstörf nær óviðráðanleg þar sem neistaflugið berst með vindinum og breiðir út eldinn. Noregur hefur sent fólk og tug þyrla til slökkvistarfa og tvær slökkiflugvélar frá Frakklandi komu til landsins í gær. Sjónvarpið hefur ekki við að senda út viðvaranir til fólks og fyrirmæli um að yfirgefa hús sín og flýja í skjól. Vegir lokast og upplýsingar gefnar í sífellu um undankomuleiðir á meðan hægt er. Hafa viðtöl verið tekin við fólk sem bara tók með sér smávegis fatnað og svo það dýrmætasta: myndaalbúmið með fjölskyldumyndunum.
Ástandið er skelfilegt. Enginn veit hversu mikið tjón þessir risastóru eldar valda. Sem betur fer hefur enginn mannsskaði orðið enn en einnig er óttast um afkomu dýralífs á eldsvæðunum. Bændur hafa þurft að slátra búfé vegna þurrka og aðrir þurfa að gefa fóður innandyra um hásumar vegna þess að ekkert finnst utandyra.
Það er bókstaflega rétt að segja að Svíþjóð logar.
Svíar biðja um meiri aðstoð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað gerum við þegar lýðræðisosturinn klárast?
18.7.2018 | 09:56
"Dagur er upp kominn,
dynja hana fjaðrar,
mál er vilmögum
að vinna erfiði."
Þannig hefst hugvekja Jóns Sigurðssonar til Íslendinga 1848.
Jón Sigurðsson grunaði ekki, að eftir þá sjálfstæðisbaráttu sem færði Íslandi fullveldið fyrir 100 árum, þá væri einfaldlega hægt árið 2018 að setja orðið Evrópusambandið í staðinn fyrir orðið Danmörk í hluta texta hugvekjunnar sem þá upplýsti í einni svipan kjarna sjálfstæðisbaráttunnar árið 2018 :
"Á þessu yrði sami galli og nú er, og hefir lengi verið, að málefnum Íslands er ekki stjórnað svo mjög eptir því sem Íslandi er hagkvæmast, einsog eptir því, hvernig öllu hagar til í Evrópusambandinu. Evrópusambandið teymir Ísland eptir sér í bandi, og skamtar því réttindi, frelsi og mentun eptir því, sem því þykir hagkvæmast og bezt við eiga."
"Á fundum Evrópusambandsins verða fulltrúar vorir sárfáir, eptir tiltölunni, og allt er undir hælinn lagt hvort þeim tekst að sannfæra meira hlutann um það sem réttast væri, þó þeim væri það fullljóst sjálfum."
"....verðum vér að senda fulltrúa að tiltölu á ríkissamkomuna, og þeir eiga að sjá um réttindi landsins eins og hinir..; en þá yrði alþing oss að öllu ónýtt."
"En þessir menn, eða að minnsta kosti nokkrir þeirra, munu hafa meðfram þann skoðunarmáta, sem vér áður gátum um, að Ísland sé partur af Evrópusambandinu og Íslendingar með ríkisfang Evrópusambandsins, eða að minnsta kosti að það ætti svo að vera. Af því þeim þykir ofur vænt um Evrópusambandið þá hugsa þeir að allir aðrir sé eins, og það sé þverhöfðaskapur vor eða einþykkni þegar vér getum ekki fylgt þeim í öllu eða þegar vér verðum að segja að vér elskum Ísland meira en Evrópusambandið...".
Lýðræði tryggir fullveldið, en án fullveldis glatast lýðræðið:
"Þjóðin er ekki til handa embættismönnum sínum, heldur eru þeir handa henni; hún á því með að krefja þá reikningskapar fyrir stjórn þeirra, og þeir eiga að svara; en hér verður þjóðin öldúngis þýðingarlaus, nema ef það gæti verið embættismönnunum til æfingar, að stjórna viljalausum skepnum, og sýna þeim hversu miklir þeir væri. Þar sem þjóðirnar taka sjálfar þátt í stjórn sinni er þessu öðruvísi varið."
Íslenskir ráðherrar sumir kvarta yfir því, að sjálfstæði Íslendinga fari í taugarnar á Evrópusambandinu. Slíkar kvartanir koma þó ekki í veg fyrir á sama tíma að þeir samþykki lög á alþingi sem sífellt sneiða bita af fullveldi Íslands, ein lítil sneið hér, ein lítil sneið þar. Bera ráðherrar því við að Evrópusambandið breyti einhliða tvíhliða EES-samning og að alþingi og ráðherrar hafi sífellt minna að segja um hag Íslands. Til þess að leysa þann vanda á að hefla af vanköntum stjórnarskrár íslenska lýðveldisins svo hún stangist ekki lengur á við valdboð Evrópusambandsins.
Slík vinnubrögð fara engan veginn í taugarnar á Evrópusambandinu sem fyrir langalöngu hefur hannað innlimunarferli Íslands í samstarfi við þá menn sem vilja selja frelsi þjóðar sinnar fyrir vesæla nafnbót og gefa það síðan fyrir minna en ekkert.
Blásið til hátíðarfundar á Þingvöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Jean-Claude Juncker er Drunker með áfengissýki á háu stigi
13.7.2018 | 18:53
Burtséð frá því, hvað manni finnst um ESB, þá eru það veikleikamerki fyrir stjórnsýsluna, að virkur áfengissjúklingur leiðir sambandið. Yfirlýsing ESB um að Juncker sé bakveikur mun hvorki stöðva orðróminn né ráða bót á áfengissýki Jean-Claude Juncker, sem í mörg ár hefur sýnt einkenni áfengissjúklings svo eftir hefur verið tekið og talað um.
Embættismenn ESB hafa kvartað undan þessu en ekki verið á þá hlustað. Fjölmiðlar hafa greint frá vandamálinu í meira en tíu ár sbr myndbandskeið að neðan.
Áfengissiðir Jean-Claude Juncker t.d. að drekka mörg kampavínsglös með hádegismatnum eða fá sér koniak með morgunkaffinu hafa vakið neikvæða athygli og gagnrýni sem Juncker hlustar ekki á.
ESB er í upplausn en samtrygging elítunnar leyfir útúrdrukknum forseta þess að verða sjálfum sér og ESB til skammar og að halda því áfram í hjólastól. Er það táknrænt fyrir samband á sama sýkingarstigi og síversnandi áfengissjúkdómur forsetans.
Kjósendur hafa ekki kosið Jean-Claude Juncker en ESB vill skylda kjósendur að stilla Juncker Drunker upp sem fyrirmynd barna sinna.
Lægra verður ekki lagst í siðleysi til að verja áfengissjúklinginn.
Bakveikur - ekki fullur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15% fleiri vilja BREXIT nú en þegar kosið var
10.7.2018 | 10:07
Draumurinn um Brexit er við góða heilsu. Svo góða að 15% fleiri vilja Brexit nú en þegar kosið var í júní fyrir tveimur árum skrifar Daily Express.
Boris Johnson fv. utanríkisráðherra Bretlands segir að Bretland hljóti hlutskipti nýlendu skv. tillögum Theresu May, þar sem lögsaga Breta muni vera áfram í höndum ESB. Skiljanlegt að ekki verði við slíkt hlutskipti unað en Brexit er einmitt til að endurheimta fullveldi og sjálfstæði Bretlands.
Ný skoðanakönnun sýnir að 56% eru óánægðir með tillögur May og Nigel Farage hefur gagnrýnt tillögurnar sem hann segir að sé brunaútsala á hagsmunum Bretlands.
ESB berst með klóm og kjafti til að BREXIT misheppnist. Forráðamenn ESB skilja að sigurganga Breta hvetur önnur ríki að fylgja á eftir. Carl Bildt fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar skrifar í grein í Dagens Industri í gær að fylgjendur Brexit séu "talibanar". Það er hámark tilraunar hans til alvarlegrar umræðu um málstað þeirra sem vilja ráða sínum málum sjálfir. Hann hefur áður ásakað Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir að hafa verið undir áhrifum eiturlyfja, þegar Trump hváði við út af öllu ofbeldi í Svíþjóð.
Líkurnar á að Bretar skilji einhliða við ESB aukast með degi hverjum. Það fer ekki vel og minnir á Icesave hjá okkur Íslendingum - að láta ESB sinnað fólk sjá um samningagerð um útgöngu úr ESB.
Draumurinn um Brexit að deyja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heilagastríðsmenn og eiturlyfjahringir setja strik í reikning Línu
5.7.2018 | 17:55
Ekki mun vegabréfagæzla nú stöðva þá íslömsku vígamenn, sem þegar hafa hreiðrað um sig á mörgum stöðum í Svíþjóð og vinna dag og nótt að því að byggja upp cellur kalifatsins sem fylgja sharía lögum og gefa sænskum lögum fingurinn.
Ofbeldið minnkar ekki í Svíþjóð. Það eykst. Árstollur Malmö 2017 með 7 drepnum í skotbardaögum kláraðist þegar í júlí 2018 með 8 drepnum og 9 særðum þar í bæ. Skv. sænska ríkisútvarpinu tekur það sífellt lengri tíma fyrir lögregluna að vinna í morðmálum í Svíþjóð. M.a. vegna þess að skotárásir glæpahópa hafa tíufaldast á tveimur áratugum. 2015 tók það lögregluna um 170 daga að taka við morðmáli og vinna með það þar til saksóknari kærði í málinu. Í dag tekur það mánuð lengri tíma eða 201 daga. 1990 leysti lögreglan milli 80-90% morðmála. Í dag leysir lögreglan einungis fimmtung morða í glæpastríðum.
Morðtilræði við starfsmenn sjúkrahúsa eru vaxandi vandamál í Svíþjóð. Ástandið er orðið svo alvarlegt að formaður læknafélags Stokkhólms Andreas Fischer segir að innan fimm ára verði að hafa vopnaða verði á slysavarðsstofum sjúkrahúsa, svo að læknar og aðrir starfsmenn geti unnið störf sín í friði.
Örfá brot úr fjölmiðlum fyrirmyndaríkis öryggis- og velferðarmála síðustu daga:
- Maður stunginn til bana í Husby í norður Stokkhólmi
- Einn drepinn og annar særðist í Malmö
- Skotbardagi í Gautaborg vegna ráns, maður færður særður á sjúkrahús
- Fjórir menn særðust í skotbardaga í Helsingjaborg
- Einn drepinn og annar særðist í Örebro
- Ungur maður skotinn til bana um miðjan dag í Malmö. Starfsmenn dagvistunarheimilis við skotstaðinn smöluðu börnunum inn og létu þau syngja hátt Áfram Svíþjóð! til að hylla fótboltahetjur Svíþjóðar. Söngurinn átti að yfirgnæfa skothljóðin fyrir utan.
- Svipuð dæmi um að börn hafi verið flutt í skjól undan skotbardögum er að finna á mörgum fleiri stöðum í Svíþjóð eins og Uppsala, Stokkhólmi, Gautaborg m.fl.
Allir verða að sýna vegabréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Varnarmálaháskóli Svíþjóðar hefur birt niðurstöðu rannsókna Dr. Magnus Ranstorp, Filip Ahlin, Peder Hyllengren og Magnus Norrmark hjá Miðstöð Allsherjarvarna og Öryggi ríkisins við Varnarmálaháskólann.
Skýrslan "Milli salafisma og salafistísks heilags stríðs - áhrif og áskoranir fyrir sænska samfélagið" mun án efa leiða til mikillar umræðu um þá þróun sem hömlulaus innflutningur hælisleitenda til Svíþjóðar hefur haft í för með sér en skýrsluhöfundar rannsökuðu svæði í Svíþjóð sem í dag eru gróðrarstía fyrir vaxandi öfl róttækra heilagastríðsmanna m.a. í Halmstad, Malmö, Lund, Stokkhólmi, Örebro, Gävle, Gautaborg, Borås og Västerås.
Tekið er fram að hugtakið salafism er minnihlutagrein innan íslam og alls ekki verið að tala um múslíma sem einn hóp heldur er athugað sérstaklega hvernig heilagstríðsmönnum tekst að breiða út boðskap sinn um heilagt stríð og fá ungt fólk í lið með sér til vopnaðrar átaka. Um bókstafstrú er að ræða og fullkominn heilaþvott. Ekki eru allir salafistar heilagstríðsmenn en allir heilagastríðsmenn eru salafistar sem er sami meiður og Íslamska ríkið byggði á.
Saxað úr skýrslunni: "Í Borås eru börn höfð í kóranskólum og er kennt að umgangast ekki gagnstæða kynið. Einstakir nemendur drekka ekki vatn í venjulegum skólum og mega ekki mála sig með vatnslitum þar sem vatnið er "kristilegt".
Starfsmaður sjúkrahúss í Borås: "Þá skildi ég, að það er net sem hefur stjórn á konunum, þannig að þeim leyfist aldrei að vera einum með starfsmönnum sjúkrahússins. Þær eiga ekki að fá neinn möguleika til að ræða mál sín við neinn....Margar konur lifa verra lífi hér en þær gerðu í heimalöndum sínum."
Í Västerås eru trúarleg áhrif ívafin glæpastörfum. "Það getur verið hópur unglingsstráka sem kemur inn í matarbúð. Ef afgreiðslukonan ber ekki slæðu, þá taka þeir það sem þeir vilja í búðinni án þess að borga, kalla afgreiðslukonuna fyrir Svíahóru og hrækja á hana" segir einn lögreglumaður í skýrslunni.
"Það eru sharíalögreglumenn. Fólk sem ber dyra heima hjá fólki og segir hvað reglur gilda. Það er m.a. um hverju maður klæðist."
Samir frá Angered: "Fylgir þú ekki íslam ertu útfrystur. Foreldrar hér setja slæðu á þriggja ára börn. Þetta er óraunverulegt. Við erum ekki í Írak."
"Dæmi er um strætisvagnastjóra sem athuga mikið meira en strætómiðann" (eftirlit með hvernig konur klæða sig).
Skýrsluhöfundar fengu fulltrúa frá Nahdlatul Ulama til að kanna og skilgreina kennslubækur í kórönskum skólum í Svíþjó. Nahdlatul Ulama eru stærstu múslímasamtök Indónesíu með yfir 30 milljónir meðlima og tekur afstöðu gegn róttækum íslamisma í heiminum. Útkoman sýnir að kennslubækurnar kenna heimsímynd þar sem íslam er allsráðandi í öllu lífinu. Bækurnar kenna múslímum að aðlaga sig ekki að sænsku samfélagi né virða lög og reglur í Svíþjóð. Svíþjóð og Svíar eru trúleysingjar með félagslegt kerfi sem er í andstöðu við hugsun guðs.
Fram kemur skipulögð misnotkun á félagsbótum í Svíþjóð, þar sem félagsbætur hafa m.a. verið notaðar til að kosta ferðir heilagastríðsmanna frá Svíþjóð til þáttöku í stríði ISS í Sýrlandi. Skipulögð glæpastarfsemi í formi skattsvika, bókfærslubrota, falskra fyrirtækja o.s.frv. eru þáttur í fjármögnun róttæknivæðingu heilagastríðsmanna í Svíþjóð.
"Öryggislögreglan hefur skýra mynd af róttæknivæðingu og nýliðasöfnun í Örebro...Öryggislögreglan sér samband við moskur í Örebro og Eskilstuna. Moskurnar virka sem fundarstaðir. Nýliðasmölun á skipulagðan hátt fer mest fram á öðrum stöðum eins og kaffihúsum og söfnunarheimilum. Við tökum skýrt fram að við erum ekki að taka fyrir sérstaka trúarsöfnuði. Það er glæpastarfsemi einstaklinga sem er að baki nýliðasmöluninni."
Vitnað er til salafismans í Þýzkalandi sem er sterk og vaxandi hreyfing. 2015 taldi Bundesamt fur Verfassungschutz að um 7 900 salafistar væru í Þýzkalandi. Talan fór upp í 9 200 næsta ár og 11 000 í ár.
Skýrslan er ítarleg upp á 265 síður og ég hef ekki lesið hana heldur aðeins tekið hluti af handahófi til birtingar hér.
Vonandi verður brjálæðisleg öfgainnflytjendastefna ESB stöðvuð þessa helgi.
Jafnvel þó það kosti Merkel stöðuna.
Afstaða til flóttafólks gæti ráðið örlögum ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)