Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Davíð meiri stjórnmálamaður en aðrir

893472Davíð Oddsson ásamt eiginkonu sinni Ástríði Thorarensen.

Það var afskaplega skemmtilegt og fróðlegt að hlusta á fyrrverandi forsætisráðherra, núverandi ritstjóra Mbl. Davíð Oddsson í viðtali við Pál Magnússon á Þingvöllum, K100, í dag.

Farið var yfir langan feril og víða komið við og helstu átakamálin í stjórnmálum síðustu áratuga rædd. Páll spurði m.a. hverju það sætti að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki enn náð fyrra fylgi allt að 40% og benti Davíð Oddsson m.a. á afstöðu flokksins í Icesave-málinu sem eiginlega hefði aldrei verið útskýrð. Þetta var engan veginn eina alhlíta skýringin en veigamikil engu að síður í þeim átökum sem þjóðin átti í gegn ESB-vilhallri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og óprúttnum fjármálasvindlurum sem sú ríkisstjórn vann leynt og ljóst fyrir.

Það var einnig eitthvað svo sjálfstæðisstefnulegt, þegar Davíð Odsson benti á að frelsi og grundvöllur einstaklingsins hefði farið halloka í þessum fjármálagjörningum öllum. Þetta er að sjálfsögðu fáni sjálfstæðisstefnunnar alla tíð, að standa uppi fyrir hagsmunum einstaklingsins burtséð frá efnahagslegri stöðu í samfélaginu. STÉTT með STÉTT var kjörorð Sjálfstæðisflokksins og á í ríkara mæli erindi til Íslendinga eftir fjármálahrunið. Davíð bendir réttilega á að borga á hratt niður skuldir í góðæri til að hægt sé að auka rými einstaklinga t.d. með skattalækkunum.

Íslendingar hafa sjaldan átt jafn góðan forsvarsmann og leiðtoga og Davíð Oddsson. Sem sannur stjórnmálaforingi bendir hann á það sem augljóst ætti að vera þáttakendum í stjórnmálum, að stjórnmálaflokkur á að lifa fyrir stefnu sína og leggja allt sitt undir að ná markmiðum sínum að fengnu trausti kjósenda.

Enginn stjórnmálaflokkur hefur haft eins þýðingarmikla aðkomu að þróun íslenska samfélagsins og Sjálfstæðisflokkurinn og ekki við grundvallarstefnu flokksins að sakast að flokkurinn nái ekki fyrra fylgi.

Að biðja fólk að líma upp kosningaloforðin á ísskápinn heima og strika út þau mál sem kláruð eru fyrir næstu kosningar sýnir, hversu mikilvægt það var fyrir Davíð Oddsson að vinna verkin vel og kvitta fyrir traustið. Að lofa og efna, að vera maður að standa fyrir sínu byggir upp traust. Svona einföld atriði ættu að vera sjálfsögð á palli stjórnmálanna en eru það því miður ekki alltaf og þá finnst sumum kjósendum lítill sem enginn munur á flokkunum sem í boði eru eða stefnumálum þeirra og því ekki skipta máli, hver kosinn er. 

Reykvíkingar sem hafa fylgt þessu metafóri fá mest af öllum að finna fyrir því, hversu slíkt er fráleitt. En engin ástæða er til að örvænta, margt góðra manna er að störfum og með tímanum munu nýjir forystumenn koma fram á völlinn sem af jafn mikilli einlægni, ríkum heiðarleika og baráttuþreki sýna málunum alúð og sá góði drengur Davíð Oddsson.


mbl.is Létu bankana snúast um sjálfa sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnaðarmenn jafna allt niður við jörðu

Skärmavbild 2018-05-19 kl. 07.37.33Reykjavíkurbréfið heldur velli sem bréf bréfanna í orðsnilld, skerpu tærrar hugsunar og ómældrar þekkingar á staðreyndum í nútíð og úr fortíð.

Það jafnast á við þriggja tíma andlega jógaþjálfun að meðhöndla hið víðáttumikla innihald og gleðin þreföld eftir lestur bréfsins. 

Illa er komið fyrir ESB–leiðtogum Dags B. og annarra jafnaðarmanna í Evrópu. Einkenni jafnaðarstefnu nútímans er að jafna alla möguleika venjulegs fólks á sjálfstæðu, stöndugu lífi niður við jörðu. Hvar sem jafnaðarmenn fara og hafa farið með völd er jörðin þakin skuldum sem skrælir líf manngróðursins kynslóðir fram í tímann. 

Í bandalagi við óprúttna auðjöfra eru völdin notuð til að mjólka almenning og hleypa brjálæðisdelluhugmyndum skjólstæðinganna fram í nafni jöfnuðar.

Baráttunni um Ísland er engan veginn lokið. Sjáið hvert Reykjavíkurborg er komin með ómælda skuldabyrði á börn, barnabörn og barnabarnabörn Reykvíkinga. Reykvíkingar geta ekki látið sem þeir viti þetta ekki, gróðursettar malbiksholur, biðraðir við leikskóla og læknisþjónustu segir sína sögu. Húsnæðisskortur, uppsprengt verð hrægamma er að drepa allan þrótt niður eina ferðina enn. Vanhirða borgarinnar er útyfir alla þjófabálka og saurgerlar meirihlutans hafa bókstaflega mengað allt borgarumhverfið.

Stefna Reykjavíkurborgar jafnaðarmannameirihlutans eru möguleikar þeirra ríkustu að hrifsa til sín deiliskipulag og byggja bruðlhallir fyrir fólk sem étur gull í eftirrétt. Jón Ásgeir, George Soros og slíkra kumpána. Fyrir slíkt þotulið eru 400 milljónir ekki neitt fyrir útsýni á Hörpuna frá þakíbúð í Hafnhattan. 

Ef Reykvíkingar kjósa þessa hrægamma enn á ný yfir sig, kjósa Reykvíkingar komandi gjaldþrot borgarinnar með fleiri holum og lélegri þjónustu áratugi fram í tímann. 

Sama má segja um landið í heild. Verðlag ferðamannaþjónustu er uppsprengt og fælir fólk frá Íslandi. Stefnan í ferðamálum er sama jafnaðarstefnan og Jóhanna hafði í Icesave og Dagur B. hefur í borgarmálum: að jafna alla möguleika venjulegs fólks til framfærslu við jörðu niður.

Á sama tíma og ferðamenn afpanta ferðir til Íslands í stórum stíl eru lagðar fram teikningar að nýjum veitingahúsum og hótelum um land allt. Fimm mínútur í tólf fyrir Flugleiðir að selja hótelin áður en allt springur. Ef til vill er það orðið of seint.

Aumingjaskapur ríkisstjórnarinnar við hrægammana er háðuglegur löðrungur framan í landsmenn alla. Katrín Jakobsdóttir glansar í miðlum til flugs borin af sjálfstæðis- og framsóknarmönnum. Engin heilbrigð stefna í krónumálum landsmanna. Brölt Arion er endurtekning á Kaupþingi. Hvaða bankastjóra á að handtaka næst?

Fjármálaspillingin heldur áfram á sömu braut þegar ekkert er gert til að stoppa vitleysisflæðið. Þessi ríkisstjórn mun ekki skrúfa fyrir dellukranann. Hún stendur beinlínis vörð um hrægammakerfið, sem leyfir bönkum að framleiða peninga úr lofti og gerir lög um Seðlabanka Íslands og íslenskan gjaldmiðil að engu.

Og næst kemur ítalska vorið með endurkomu lírunnar og úthýsingu a.m.k. 500 þús manns sem dveljast ólöglega sem innflytjendur í landinu. 

ESB er sökkvandi skip. Enginn stjörnufáni bjargar því frá hafsbotni.


mbl.is Áform um tugi veitingahúsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innflytjendamálin vega þyngri en hryðjuverk sem stærsta vandamál ESB

Skärmavbild 2018-05-14 kl. 00.51.34
Skv. nýrri könnn YouGov  telja íbúar í 9 af 11 löndum ESB að innflytjendamál séu stærsta vandamálið sem ESB stendur frammi fyrir í dag. 

Fólk í 11 löndum ESB var spurt hvaða einstaka mál væri stærsta vandamálið í dag. Í 9 löndum var svarið innflytjendamálið. Það voru löndin Bretland, Frakkland, Þýzkaland, Ítalía, Danmörk, Svíþjóð, Grikkland, Finnland og Litháen sem svöruðu á þann veg.

Sömu lönd að Ítalíu undanskyldu töldu hryðjuverk vera næst stærsta vandamálið.

Matthew Goodwin hjá brezku hugveitunni Chatham House tísti að "Evrópa færist til hægri. Ef miðjan og vinstrið finna ekkert að segja af viti verður þeim varpað til hliðar, sérstaklega þar sem búast má við að þessar spurningar eigi eftir að verða enn þá mikilvægari fyrir kjósendur". 

 


Tvöfalt fleiri dauðaskot meðal yngri manna í Svíþjóð en í sambærilegum löndum

Í nýrri skýrlsu European Journal on Criminal Policy and Reaserch, þar sem morð með skotvopnum eru athuguð í 12 löndum, kemur m.a. fram að það er tíu sinnum algengara að ungir menn á aldrinum 15 til 29 ára séu skotnir til bana í Svíþjóð en í Þýzkalandi.  

Fyrir 10 árum voru morð á ungum mönnu með skotvopnum álíka algeng í Bretlandi og í Svíþjóð en í dag er það sex sinnum algengara að ungir menn séu drepnir með byssum í Svíþjóð en í Bretlandi. 

Vísindamenn hafa ekki skilgreint þessa aukningu í manndrápum með skotvopnum í Svíþjóð miðað við önnur lönd en benda á að flest slík morð í Svíþjóð séu framin með ólöglegum vopnum og að glæpaklíkur hafi fengið sérstöðu í notkun skotvopna í Svíþjóð miðað við önnur lönd. 

Á fyrsta ársfjórðingi 2018 hefur skotbardögum glæpaklíkna fækkað lítillega í Svíþjóð og færri verið drepnir miðað við sama tímabil 2017.


Foringi jafnaðarmanna í Svíþjóð fær slæma útreið í könnunum eftir umræðuþátt í sjónvarpinu

kristerssonlofven-jpgEftir umræður stjórnmálaleiðtoga í sænska sjónvarpinu í gær voru áhorfendur ánægðastir með frammistöðu formanns Svíþjóðardemókrata Jimmy Åkesson og formann Moderata Ulf Kristersson.

Innflytjendamálin lituðu umræðurnar í nær öllum málaflokkum. Hvort sem rætt var um velferðarmál, skóla -eða húsnæðismál leituðu umræðurnar stöðugt í þann risastóra vanda sem Svíþjóð stendur frammi fyrir vegna allra aðfluttra til landsins. 

Sænskir kratar sem iðulega hafa afneitað vandanum hefa gert þversnúning vegna mikils atkvæðaflótta frá flokknum fremst til Svíþjóðardemókrata og Móderata. Spurningin er hvort viðsnúningur þeirra nái að bjarga þeim frá hruni í kosningunum í haust en sumir búast við að kratar botni allar fyrri kosningar í Svíþjóð. 

Í skoðanakönnunum fékk formaður Svíþjóðardemókrata hæstu einkunn áhorfenda í tveimur mikilvægustu spurningum kosninganna: innflytjendamálum og löggæslumálum. Formaður Móderata þótti standa sig best í atvinnumálum og formaður Umhverfisflokksins í umhverfismálum. 

Formaður sænskra krata komst hæst sem nr 3 í aðeins einum málaflokki. Örvænting hefur gripið um sig í kratahreiðrinu, m.a. hafa sænsku Verkalýðssamtökin LO kostað rándýra auglýsingamynd með grófum lygum um að hægri flokkarnir vilji almenna launalækkun en hægri flokkarnir vilja innleiða lærlingskerfi að nýju sem kratar lögðu niður. 

Kosningar fara fram 9. september n.k.

 


mbl.is Bannaðir í Svíþjóð fari þeir ekki sjálfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti ESB og Kommúnistaflokkur Kína hylla Karl Marx á 200 ára afmælinu

Skärmavbild 2018-05-05 kl. 17.55.09Jean-Claude Juncker hélt ástríðuþrungna ræðu um Karl Marx í þýzka bænum Trier í dag en verið var að halda upp á 200 ára afmæli Marx. M.a. var 4,4 m há stytta af höfundi kommúnistávarpsins afhjúpuð en hún var gjöf frá Kína. Hinum megin á hnettinum minntust kínverskir kommúnistar Karl Marx og mikilvægi marxismans-lenínismans til að koma á kommúnisma um gjörvalla veröld. 

Í hyllingarræðu sinni um Karl Marx sagði forseti ESB að "Allir gerðu betur í að varðveita minninguna um Marx vegna þess að minningar og skilningur eru hluti þess að tryggja framtíðina. Ekki á að dæma Marx fyrir þau afbrot sem áhangendur hans frömdu áratugum eftir andlát hans. Það verður að skilja Karl Marx út frá þeim tíðaranda sem ríkti og ekki falla í gryfju fordóma."

Marx-1332094Seinna ræddi forseti ESB áhrif Karl Marx á Evrópusambandið og sagði að heimspeki Marx hefði kennt Evrópubúum að það væri verkefni þeirra að betrumbæta félagsleg réttindi. 

Margir mótmæltu fyrirhugaðri hyllingarræðu forseta ESB til mannsins sem skapaði hugmyndafræði sem leitt hefur um 100 milljónir manna beint í fang dauðans. Meðlimar Bandaríkjaþings og þingmenn fyrri kommúnistaríkja Austur-Evrópu skrifuðu forseta ESB bréf og hvöttu hann til að hætta við ferðina til Trier.

Þingmenn Fidesz flokksins í Ungverjalandi skrifuðu bréf og mótmæltu þáttöku forseta ESB í afmælishátíð Karl Marx: "Hugmyndafræði marxismans leiddi milljónir manna í dauðann og hundruðir milljónir annarra í örbirgð. Að halda upp á afmæli Marx þýðir að að verið er að gera gys að þeim sem misstu lífið".

Fjölmiðlar víða í heiminum fordæma þáttöku Forseta ESB í 200 ára hátíðarhöldunum um Karl Marx: https://www.independent.co.uk/news/uk/politics/karl-marx-jean-claude-juncker-defends-legacy-a8337176.html
https://news.err.ee/828968/institute-juncker-s-participation-in-karl-marx-anniversary-is-a-disgrace
https://www.express.co.uk/news/world/952181/EU-news-Jean-Claude-Juncker-Karl-Marx-anniversary-Trier-Germany-European-Union
https://www.thesun.co.uk/news/6216414/jean-claude-juncker-blasted-marx/
http://www.ukip.org/juncker_s_decision_to_commemorate_marx_speaks_volumes
http://www.atlanticbb.net/news/read/category/business/article/the_associated_press-eu_chief_dont_judge_karl_marx_for_his_followers_cr-ap
https://dailynewshungary.com/fidesz-meps-call-on-juncker-to-cancel-speech-on-marx-anniversary/
https://fee.org/articles/why-is-the-eu-celebrating-karl-marxs-birthday/
https://euwatch.org/jean-claude-juncker-slammed-for-celebrating-karl-marxs-birthday/
https://www.youtube.com/watch?v=hyPx0K6yms0

 


Frjáls verzlun á undanhaldi vegna glæpaöldu í Svíþjóð

Svensk Handel eða Sænsku verzlunarsamtökin fóru nýlega í auglýsingaherferð fyrir "Þjófaflokkinn". Var það til að vekja athygli á því ömurlega ástandi sem búðareigendur og starfsfólks verzlana býr við vegna skipulagðrar glæpastarfsemi í Svíþjóð. Glæpamenn ráða ferðinni, stjórnmálamenn skella við skollaeyrum og verzlunin er ekki lengur frjáls, þegar hætta verður við fjárfestingar vegna ríkjandi glæpaöldu.

Á auglýsingaspjöldum mátti lesa eftirfarandi boðskap:tjuvpartiet_annonser_1

Það á að vera tryggt að stela!
Sænsku verzlunarsamtökin vilja að búðareigendur geti stöðvað kunnuga þjófa við búðardyrnar. Fáranlegt! Í dag eru búðirnar forðabúr okkar svo við getum daglega birgt okkur upp. Ef ógnvekjandi og ofbeldissinnaðir þjófar verða stöðvaðir munu þúsundir atvinnutækifæra glatast í atvinnuglæpamanna- bransanum. Þjófaflokkurinn.

Enga afbrotamenn í fangelsi!
Ef stjórnmálamenn hlusta á Sænsku verzlunarsamtökin er hætt við að okkur verði stungið í steininn. Refsing fyrir þjófnað eru í flestum tilvikumtjuvpartiet_annonser_2 sektir. Það fyrirkomulag á að ríkja áfram. Það er ekki auðvelt að strjúka úr fangelsi. Í dag eru um 14 000 þjófar með ógreiddar skuldir. Það virkar mjög vel. Hvernig á að vera hægt að stunda atvinnuglæpastarfsemi sitjandi í steininum? Þjófaflokkurinn.

Við fjarlægjum ekki vinnandi glæpastörf!
Sem betur fer eru skipulagðir glæpir gegn verzluninni næstum aldrei rannsakaðir. Það leiðir til þess að búðareigendum finnst tilgangslaust að kæra okkur til lögreglunnar. Það er stórfínt! Röfl Sænsku verzlunarsamtakanna um að "núlla dagleg afbrot" sendir út merki um að glæpastörf séu ólögleg. Það er slæmt fyrir okkur atvinnuglæpamennina. Þjófaflokkurinn.

Hróflið ekki við refsiafslættinum!
Í dag fáum við atvinnuglæpamenn minni refsingu fyrir að fremja fleiri glæpi. Nokkurs konar magnafslátt. Það finnst okkur vera sanngjarnt. Það á að borga sig að vinna meira. En Sænsku verzlunarsamtökin vilja afnema afsláttinn. Ef stjórnmálamenn hlusta á það gæti réttarfarskerfið verið notað til að handtaka og refsa reyndustu og best skipulögðu glæpamönnunum - slíkt er óréttlátt. Þjófaflokkurinn.  

 

 


Sambandssósíalisminn nærist á öfundsýkinni

dokument3

 

 

 

 

5. maí eru 200 ár liðin frá fæðingu Karl Marx í bænum Trier í Þýzkalandi. Forseti Framkvæmdarstjórnar ESB Jean-Claude Juncker verður einn af helstu ræðumönnum sem mæta til að hylla faðir kommúnistaávarpsins og alræðis öreiganna. Juncker er sérstakur heiðursborgari bæjarins Trier og skal sem slíkur halda opnunarræðu á sýningu um Karl Marx sem merkilegastu persónu sem fæðst hefur á þessum stað. 

Fyrrum formaður Sjálfstæðisflokks Bretlands, Paul Nuttall sagði að sér fyndist það "óhuggulegt að Jean-Claude Juncker telur nauðsynlegt að fagna minningu mannsins - sjálfs höfunds Marxismans/Kommúnismans, sem leitt hefur dauðann yfir meira en 100 milljónir manns. Það á ekki að halda upp á þessa öfugsnúnu hugmyndafræði, það á að fleygja henni á ruslahaug sögunnar". 

Óhætt er að taka undir þessi orð Paul Nuttalls. 

Sambandssósíalismi Evrópusambandsins í höndum sósíaldemókrata, Maóista, Sorista, kommúnista, sósíalista og annarra þvílíkra kumpána er að eyðileggja heila heimsálfu.
En þeim mun ekki takast það – andstaða almennings vex.

Svíþjóð: Sósíaldemókratar mælast með rúm 26% og ef fram fer sem horfir munu þeir hljóta verstu útreið í kosningunum 9. sept 2018 frá stofnun flokksins 1889.
Þýzkaland: Versta útreið SPD þýzkra sósíaldemókrata eftir stríðslok 2017 með um 20% atkvæða.
Frakkland: Franski sósíalistaflokkurinn PS sem hefur ráðið ferðinni í frönskum stjórnmálum í áratugi fékk aðeins rúmlega 7% í síðustu kosningum.
Holland: PvdA flokkur krata hrundi og fékk aðeins 5,7% atkvæða í síðustu kosningum.
Ítalía: Samfylkingin PD sem var stofnuð 20067 þegar kommúnistar og vinstrihópar gengu saman líkt og á Íslandi tapaði kosningunum í ár.
Bretland: Labour með 10% fylgistapi milli 2001 og 2015. Er að kroppa í að fá fylgi tilbaka. 
Ísland: Samfylkingin fór frá 30% fylgi ár 2009 niður í 5,7% ár 2016 og er að kroppa fylgi tilbaka.

Harðan kjarna Sambandssósíalista er að finna meðal raunveruleikafirrtrar akademískarar elítu í Reykjavík sem er að eyðileggja höfðuborgina.
En þeim mun ekki takast það - andstaðan meðal almennings vex,  þegar sannleikurinn um sukk og spillingu Sambandssósíalistanna kemur í ljós. 


Rússar stöðvuðu brezkan kafbát frá þáttöku í árásunum

draugakafbaturHeimurinn á eftir að sjá nánari viðbrögð samfylkingar Rússa, Sýrlendinga, Írans, Kína og Norður-Kóreu við árás bandamanna á eiturefna verksmiðjur al-Assads um helgina. Þannig skiptast línur í Öryggisráðinu og þannig skiptast línur í viðbrögðum eftir árásina. Fyrstu fréttir ef marka má ummæli bandamanna al-Assad benda til útvíkkunar á hernaðarátökum.

Átökin voru meiri en sáust á yfirborðinu, t.d. var mikill eltingaleikur í Miðjarðarhafinu, þegar a.m.k einn af rússnesku Kilo-class kafbátunum (kallaðir Svartholið eða Draugabátar vegna þess að ekkert heyrist í þeim) elti brezkan Astute-kafbát sem var á leið með Tomahawk flaugar í skotfæri við Sýrland. Kafbátaátökin voru ekki smávægileg, heldur eltingaleikur í hafsdjúpum sem lauk ekki fyrr en bandarískar flugvélar ógnuðu rússneska kafbátnum úr lofti, þannig að sá brezki slapp úr prísundinni. Brezki kafbáturinn tók ekki þátt í árásinni á Sýrland eins og áætlað hafði verið. 

Ríkisstjórn Sýrlands gumar sér af því að hafa grandað 71 af 110 skeytum bandamanna en bandamenn gerðu grein fyrir fullheppnaðri árás, þar sem skeytin hæfðu skotmörk áður en sýrlenski herinn náði að bregðast við. 

Forseti Írans Hassan Rouhani hótar viðbrögðun á "innan við viku" ef Trump hættir við kjarnorkuvopnasamning Íran nema Íranir gangist undir aukið eftirlit og takmarkanir. "Ef Bandaríkin hleypa samningnum í uppnám munu þeir fá að finna fyrir afleiðingum innan við viku." Forsetinn segir Trump, May og Macron vera glæpaþý sem fremji herglæpi. 

South China Morning Post segir að Sýrlandsárásin hafi komið yfirvöldum í Peking og Moskvu á óvart. Greinir blaðið frá því að Kína muni sem bandamaður Rússa skipuleggja "vel tímasettar heræfingar sem muni skapa skipulögð vandræði fyrir Bandaríkjamenn og Taiwan".

Rússar fóru á staðinn, þar sem efnavopnaárásin var framin og sögðu síðan við fjölmiðla að engin efnavopnaárás hefði verið gerð. Seinna sögðu þeir að Bretar hefðu sett efnavopnaárás á svið til að koma sökinni á Rússland.

Álíka trúverðugt og fullyrðing Rússa um að eiturefnið sem notað var í Salsbury hafi komið frá Svíþjóð.

Rússar haf ekki setið aðgerðarlausir, innlegg rússneskra nettrölla jukust um 2000% eftir árásina. Boris Johnson utanríkisráðherra Breta segir Breta undirbúa sig undir tölvuárásir Rússa á brezkar rafveitur, gasfyrirtæki, vatnsveitur, banka, heilsukerfið og tölvufyrirtæki. 


mbl.is Ný tillaga um rannsókn á efnavopnaárásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússalygar ganga ekki heim – ekki hægt að fela notkun efnavopna

14-svyle-33438158e71dc2a5301Tilbúningur Rússlandsstjórnar um að Bretar hafi sett vopnaárásina í Douma á svið til að koma sökinni á Rússland eru síðustu Rússalygarnar áður en gríman fellur og alheimurinn gerir sér grein fyrir, hvaða mann Pútín hefur að geyma. Peter Westmacott fyrrum sendiherra Breta í Bandaríkjunum sagði í viðtali við Sky News, að Rússar héldu áfram uppteknum hætti, sem er að ljúga og reyna að skipta um umræðuefni. 

"Í byrjun sögðu þeir að það væri algjör þvæla að efnavopn hefðu verið notuð í Douma. Núna segja þeir að efnavopnum hafi verið beitt og það hafi verið Bretar sem stóðu að baki efnavopnaárásinni."

Nýlega ásökuðu Rússar Breta um að hafa eitrað fyrir rússneska gagnnjósnaranum Skripal í Salsbury. Mr. Westmacott sagði, að því miður "höfum við vanist lygapökkunum og þess vegna er allt traust á ríkisstjórn Rússlands horfið".

Bandaríkin, Frakkland og Bretland hófu sameiginlegar árásir á efnavopnaframleiðslu, rannsóknarstofur og fleiri staði sem tengjast efnavopnum í Sýrlandi í nótt. Bandaríkjaforseti sagði ríkin staðföst í því að halda aðgerðum áfram þar til Sýrlandsstjórn hætti framleiðslu á efnavopnum.

Ríkisstjórn Pútíns hefur leitt hernaðarkapphlaup undanfarin ár og stóraukið hernaðarstyrk Rússlands. Fyrir rúmu ári síðan gortaði Pútín yfir að geta sprengt hvaða borg sem er í Evrópu á minna en tveimur tímum. Þá voru Rússar að koma fyrir kjarnorkuvopnaflaugum í Kalíngrad sem ná 2000 km innan við tvo klukkutíma. 

Þær ná til flest allra höfuðborga í Evrópu en ekki til Reykjavíkur.

Rússneskir hershöfðingjar hafa líka gortað yfir því að hafa herstyrk til að láta "heila eyju í Atlantshafi hverfa af landakortinu". Þeir voru ekki að tala um Ísland eða Færeyjar.

PS. Að gefnu tilefni. Morðhótanir eiga ekki heima í bloggum fullorðins fólks. Ég fjarlægi slíkan ósóma og viðkomandi fær engan aðgang framar í athugasemdakerfi við bloggið mitt. 

 

 


mbl.is Loftárásir hafnar í Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband