Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Þarft mál í uppgjöri við pólitíska spillingu "hrunsins"
14.9.2018 | 14:47
Afar gott mál að Alþingi læri af reynslunni og álykti að rangt hafi verið að málum staðið, þegar Landsdómur var ræstur út og fyrrverandi forsætisráðherra Geir H. Haarde dreginn fyrir dóm.
Stjórnmálaleg móðursýki vinstri manna við fall bankanna og haturslosti þeirra gegn stjórnmálaandstæðingum leiddi til óþarfa deilna og sundraði þjóðinni, þegar hún þarfnaðist hvað mest sameiningar og góðrar leiðsagnar Alþingismanna.
Áhrifum málshöfðunarinnar má líkja við nornaofsóknir fyrri alda.
Bókstaflega átti að "brenna" stjórnmálaferil Geir Haarde á báli sundrungarinnar. Þetta gerði þjóðinni allri erfiðra um vik og hefur dregið tímann á langinn að jafna sig eftir fjármmálakrísuna.
Þess vegna ber að fagna því, að Alþingismenn vinni í hreinskilni og af heiðarleika að því að endurheimta traust landsmanna á stjórnmálamönnum sem starfa á Alþingi.
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og meðflutningsmönnum ber að þakka fyrir og óska velgengni með málið.
Alþingi álykti að málshöfðun hafi verið röng | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lýðræðið ekki fyrir alla - tæplega 18% Svíar ekki taldir þingræðishæfir
13.9.2018 | 14:03
Það er merkilegt að fylgjast með hegðun stjórnmálaflokkanna í Svíþjóð, þegar þjóðin fær að segja sitt í kosningum. Ekki er enn búið að fá endanleg úrslit og hafa einhverjir þingmenn hreyfst á milli blokkanna og geta enn gert. Staðan núna er jöfn með 144 þingmenn hjá rauðu blokkinni og 143 þingmenn hjá bláu blokkinni.
Bráðabirgðaúrslit kosninganna
Óskoraður sigurvegari kosninganna eru Svíþjóðardemókratar sem bættu við sig 4,7% og 13 þingmönnum og eru þriðji stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar með 17,5% og 62 þingmenn. Stjórnarflokkarnir tapa og einnig Móderatarnir sem verið hafa í stjórnarandstöðu.
Úrslit til bráðabirgða - enn er verið að telja atkvæði.
Sósíaldemókratar 28,3% (-2,7%) fá 100 þingmenn (-13)
Móderatar 19,8% (-3,5%) fá 70 þingmenn (-14)
Svíþjóðademókratar 17,5% (+4,7%) fá 62 þingmenn (+13)
Miðflokkurinn 8,6% (+2,5%) fá 31 þingmenn (+9)
Vinstriflokkurinn 8% (+2,3%) fá 28 þingmenn (+7)
Kristdemókratar 6,3% (+1,8%) fá 22 þingmenn (+6)
Liberalerna 5,5% (+0,1) fá 20 þingmenn (+1)
Umhverfisflokkurinn 4,4% (-2,5%) fá 16 þingmenn (-9)
Samkomulag um að frysta Svíþjóðardemókrata frá völdum
Stjórnarandstaðan öll hefur krafist afsagnar Stefan Löfvens forsætisráðherra en hann neitar. Allir flokkar fyrir utan Svíþjóðardemókrata hafa lýst yfir samkomulagi um að vinna ekki með Svíþjóðardemókrötum og þannig rottað sig saman um að hunsa niðurstöður kosninganna og vilja kjósenda.
Eru aðrir flokkar nema Svíþjóðardemókratar fastir í krumlu Sósíaldemókrata sem blygðunarlaust ásaka talsmenn Svíþjóðardemókrata fyrir að vilja drepa blaðamenn og stjórnarandstæðinga, fylgja Adolf Hitler og afneita fórnarlömbum Helfararinnar.
Sænska sjónvarpið stundar ritskoðun á Svíþjóðardemókrötum
Sænska sjónvarpið hleypir slíkum áróðri í gegn án athugasemda en sér ástæðu til að brennimerkja ummæli Jimmy Åkesson, formanns Svíþjóðardemókrata, þegar hann í umræðu flokksleiðtoga gagnrýnir stjórnvöld fyrir að skilja ekki vandamál innflytjenda sem ekki auðnast að fá vinnu í Svíþjóð. Sagði Jimmy að ástæðan væri sú að innflytjendur væru ekki sænskir og pössuðu ekki inn í Svíþjóð og tryggja þyrfti þeim forsendur þess að geta orðir sænskir og aðlagast Svíþjóð. Taldi sjónvarpið þetta vera niðurlægingu fyrir innflytjendur sem hóp og gaf út sérstaka yfirlýsingu gegn Svíþjóðardemókrötum í beinni aðeins sólarhring fyrir kjördag.
Vegna gríðarlegrar gagnrýni bæði innanlands sem utan var ábyrgum útgefandia ríkissjónvarpsins vikið til hliðar og forstjóri SVT og yfirmaður dagskrárgerðar hafa bæði gefið út yfirlýsingar um málið. Í morgun kom yfirlýsing um að SVT muni ekki í framtíðinni gefa út yfirlýsingar af þessu tagi. En skaðinn er skeður, Jimmy Åkesson var af ríkisstofnuninni eyrnarmerktur fyrir hatursorðræðu gegn þjóðfélagshópi. Enginn veit hversu neikvæð áhrif þetta útspil sjónvarpsins hefur þýtt fyrir Svíþjóðardemókrata.
Aðeins tvær blokkir í sænskri pólitík
Þrátt fyrir yfirlýsingar hægri og vinstri blokkarinnar um að vinna yfir blokkamörkin þá er eina atriðið sem samstaða ríkir um að frysta Svíþjóðardemókrata úti. Það þýðir að blokkirnar eru í raun Svíþjóðardemókratar og svo "hinir". Líkur eru þess vegna meiri á að ríkisstjórn verði sótt úr blokk "hinna" en Svíþjóðardemókrata til að markmið þeirra blokkar að útiloka Svíþjóðardemókrata frá völdum nái fram að ganga. Svíþjóðademókratar hafa lýst því yfir að þeir greiði atkvæði gegn öllum ríkisstjórnum sem ekki hleypa þeim fram á hlutfallslegan hátt miðað við útkomu kosninganna. Eina leiðin til að koma í veg fyrir aukakosningar er því að "hinir" myndi ríkisstjórn.
Sænska þingið opnar 25. september og þá verður kosið um traust á forsætisráðherra. Hafi Löfven ekki sagt af sér fyrir þann tíma, mun hann verða settur af þá.
En fyrst þurfa flokkarnir að koma sér saman um hver verður forseti þingsins sem veitir umboð til stjórnarmyndunar.
Löfven vill ekki styðja hægribandalagið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er ekki laust við, að maður fái kærleikstilfinningu gagnvart uppreisn Ungverja gegn fjármálaböðlinum George Soros. Ungverjar þekkja Soros manna best sem reynt hefur að svindla á þjóðinni áratugum saman.
Í dag samþykkti ungverska þingið ný lög sem gerir alla aðstoð við ólöglega innflytjendur í landinu refsiverða. Þeir sem aðstoða ólöglega innflytjendur við að koma sér fyrir í landinu geta lent í fangelsi fyrir vikið. Einnig var sérstakur 25% skattur lagður á samtök sem aðstoða ólöglega innflytjendur og verða peningarnir notaðir til að koma í veg fyrir skipulagðan innflutning fólks til landsins.
Innanríkisráðherra Ungverjalands Sandor Pinter sagði í blaðatilkynningu að
"Ungverjar eru í fullum rétti og geta reitt sig á, að ungverska ríkið beiti öllum krafti sínum til að standa gegn hinum ólöglega innflutningi og þeim aðgerðum sem lífnærir hann."
Forsætisráðherra Ungverjalands Viktor Orban er í forystu þeirra sem gagnrýna flóttamannastefnu Angelu Merkel og ESB. ESB hótar með "atómsprengjunni" þ.e.a.s. grein 7 sem afnemur atkvæðisrétt aðildaríkja ESB sem "brjóta gegn grundvallargildum sambandsins".
Ungverjar stóðu af sér innrás Sovét. Hvers vegna ættu þeir ekki að standa af sér "atómsprengju" ESB?
Í hringleikjahúsinu við Tjörnina gilda engin lög önnur en þau sem meirihlutinn velur að fylgja. Gnarrisminn, þar sem lofað er að brjóta öll loforð, stíga á öll strik og svindla hvenær sem þess gefst kostur.
Þrátt fyrir opinberan dómsúrskurð um að starfsmenn borgarinnar séu ekki dýr í hringleikjahúsi heldur stjórnandinn sýningunni áfram og hefur á undraverðum hraða náð að skjóta Drottningunni í Lísu í Undralandi ref fyrir rass.
Veruleikafirring meirihlutans og sérstaklega hringleikjahússtjórans er slík að lýðræðisleg umræða er uppnefnd sem "hávaði, upphlaup eða órói sem snýst um einhver formsatriði og týpískar lýðskrumslegar upphrópanir".
Enginn vettvangur er í borgarstjórn til samstarfs um málefni borgarbúa. Dagur & Co valta yfir minnihlutann og alla borgarbúa með aukinni spillingu, skuldasöfnun, auknum álögum og einræðisháttum.
Húsnæðislausum fjölgar. Komandi kynslóðir Reykvíkinga eru í skuldafjötrum. Reykjavík sekkur og dregur Ísland með sér niður.
Eina leiðin til að koma í veg fyrir gjaldþrot höfuðborgarinnar, er að fulltrúum lýðræðisflokkanna í minnihlutanum takist að skapa meiri "hávaða, upphlaup og óróa um formsatriði og týpiskar lýðskrumslegar upphrópanir".
Þetta er eina von Reykvíkinga um þessar mundir.
Ekki lýðskrum heldur okkar skylda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrirsögnin ofan eru lokaorð Styrmis Gunnarssonar í pistlinum "Óviðráðanlegt skrímsli" sem hann ritaði á Evrópuvaktinni 22. apríl 2011. Fjallar greinin um aðferðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í samskiptum við lýðræðislega kjörna embættismenn aðildarríkjanna.
Evrópusambandið hefur bókstaflega arabavætt Evrópu. Ekki aðeins með innflutningi araba heldur í allri hugsun og samningagerð. Viðskiptamátar araba er að skrifa undir samning um afurðir, framleiðslu, afhendingartíma og verð og síðan eftir að blekið er þornað að þá hefja raunverulega samningagerð. Samningahættir Vesturlanda er að þeirra mati aðeins óábyrgur formáli. Síðan er samningnum breytt á alla vegu eftirá.
Ísland er í sömu stöðu gagnvart Evrópusambandinu. Ekkert er að marka samninga við sambandið. Það breytir sér allan tímann með nýjum lögum og reglugerðum og er einhliða stjórnandi atburðarrásarinnar.
Ísland er lítill biti í munni skrímslins en íslenska stjórnarskráin er beitt bein í þeim bita.
Björn Bjarnason fyrrum dómsmálaráðherra og settur formaður starfshóps um úttekt á EES samningi Íslands og ESB ætlar sér í gini skrímslins að koma með hugmynd að nýjum pakka til Íslendinga sem slær allt annað út sem sést hefur fram til þessa og verða betri en Össurar pakki Jóhönnu Sigurðardóttur. Svo góður að fullyrða megi að Bretar séu upp til hópa vitlausir ef þeir hætti ekki við BREXIT og fylgi íslenskum pakkaráðum.
Í pistli ásakar BB Pál Vilhjálmsson blaðamann fyrir að snúa út úr orðum sínum með því að halda því fram að BB hafi fullyrt að "EES samningurinn sé óhjákvæmilegur" á meðan BB fullyrðir að EES-samningur sé besta leiðin "til óhjákvæmilegs samstarfs okkar við ESB".
Greinilega er Björn Bjarnason "réttur maður á réttum stað" sem formaður starfshópsins. Ef EES samningur er "besta leiðin til óhjákvæmilegs samstarfs", þá verður sú leið eingöngu og óhjákvæmilega farin með því að ráðast gegn fullveldisákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins um löggjafar- og framkvæmdavald.
Ekki furða þótt farsælasti leiðtogi íslenskrar sjálfstæðisstefnu skrifi í Reykjavíkurbréfi helgarinnar að ef sambærileg afstaða hefði ráðið ferðinni í landhelgismálum Íslendinga hefðum við enn 3 mílna landhelgi!
Björn Bjarnason leiðir starfshóp um EES | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Grasrótin sér vandamálið en hlustar forysta Sjálfstæðisflokksins?
31.8.2018 | 06:59
Ánægjuleg frétt af Valhallarfundi Sjálfstæðismanna í gær sem
"skorar eindregið á forystu Sjálfstæðisflokksins að hafna þriðja orkupakka Evrópusambandsins.."
Hingað og ekki lengra í framsali ríkisvalds til ESB segir grasrót Sjálfstæðisflokksins og beinir orðum sínum að flokksforystunni. Ítrekar þar með ályktun landsfundar flokksins í málinu.
Núverandi forysta flokksins hefur sýnt hroðvirkningsleg vinnubrögð á Alþingi t.d. í afgreiðslu persónuverndarlaga ESB en þar var skautað fram hjá ummælum umsagnaraðila sem bentu á að afsal lögsögu til ESB stangist á við stjórnarskrá lýðveldisins.
Forysta flokksins sýnir því miður allt aðra takta en að fylgja stefnu flokksins og er í óða önn að gjaldfella sögu og stefnu flokksins í meira en heila öld.
Í fullveldismálum er ekki pláss fyrir tvö andlit: eitt fyrir stjórnmálaumræðu innanlands og annað fyrir ESB. Menn verða dæmdir af gjörðum sínum og fagurgali breiðir ekki endalaust yfir misgjörðir.
Þá væri betra fyrir forystu flokksins að sýna rétta andlitið, segja lausum störfum sínum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ganga í flokk Viðreisnar sem hefur það á stefnuskrá sinni að koma Íslandi í ESB.
Pínlegt að grasrótin þurfi að minna flokksfoystuna á stefnumál Sjálfstæðisflokksins.
Flokkurinn hafni orkupakkanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Grannarnir ætla að vopnast ef glæpamennirnir koma aftur
30.8.2018 | 03:31
Vargöld ríkir í Svíþjóð. Sprengingar á heimilum, sprengjuárásir á stofnanir yfirvalda, árásir á lögreglu, gengjastríð með skotvopnum, bílabrunar, skólabrunar, nauðganir, vopnuð rán, barsmíðar á saklausu fólki - og núna síðast skotárás á þingmann Svíþjóðardemókrata á kosningaferðalagi. Líktollurinn stækkar, yfirvöld eru í afneitun, lögreglan kallar eftir hjálp almennings. Öðrum lögreglustörfum er ýtt til hliðar vegna manneklu og allur krafturinn fer í að mæta hinu vaxandi ofbeldi.
Sem leiðir til sorglegra mistaka eins og að drepa dreng med Downs syndrom sem hélt á leikfangabyssunni sinni, þegar hann féll fyrir kúlum lögreglunnar.
Hræðslan við vaxandi ofbeldi breiðir úr sér. Eiturlyfin tæra sundur samfélagsstoðir allar og eiturlyfjamafíur ráða ríkjum í heilum hverfum, þar sem hvorki slökkviliðsmenn né sjúkraflutningamenn fara inn í nema í skjóli lögregluverndar.
Eftir bílaíkveikjurnar í Vestur Svíþjóð 13. ágúst segjast íbúar Vestur Frölunda undirbúa sig að verjast með vopnum, þegar árásarmennirnir koma næst. Ismet Iljazis, einn þeirra sem missti bílinn, segir í viðtali við sjónvarpið að hræðslan hafi gripið um sig eins og skæð pest meðal íbúanna. Glæpamennirnir sem kveiktu í bílunum voru grímuklæddir og fullvissuðu sig um að íbúarnir tækju vel eftir, þegar þeir kveiktu í bílum þeirra. Verkefnið var að skapa hræðslu hjá íbúunum og sýna hverjir ráða yfir hverfinu:
"Við erum hér - gætið ykkar".
Fáir þora að vitna í þessum hverfum. Þegar hræddir íbúar leita til vopna til að sefa hræðsluna er það aðeins tímaspurning hvenær átök sem líkjast stríðsátökum brjótast út.
Á meðan halda stjórnmálamenn áfram að dæla brosandi út loforðum til kjósenda og segja að ástandið muni nú bráðum lagast.
Unglingur myrti heimilislausan mann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Danskur sósíaldemókrati: Svíar eiga að kjósa Svíþjóðardemókrata
27.8.2018 | 04:57
Danski sósíaldemókratinn Jarl Feyling skrifar í Berlinske að sænskir sósíaldemókratar taki ekki áskorunum í innflytjenda- og aðlögunarmálum alvarlega og loki augunum fyrir ofbeldi og glæpaverkum innflytjenda. Telur Feyling að forsætisráðherra Svía skorti jarðsamband og allur innflytjendastraumurinn geti eyðilagt sænska velferðarríkið. Hvetur Jarl Feyling Svía til að kjósa Svíþjóðardemókrata í stað Sósíaldemókrata í kosningunum í Svíþjóð 9. september.
Í opnu bréfi til forsætisráðherra Svía, Stefan Löfven, skrifar Feyling:
"Þú og ég erum meðlimir í sama Sósíaldemókratisma en i sitt hvoru landi. Við deilum sögu og humyndafræði en séð hérna megin sundsins, þá deilum við hvorki afstöðu til raunveruleikans né framtíðarinnar. Það hefur nefnilega myndast gjá milli flokka okkar sem grundvallast á mismunandi afstöðu til flóttamanna og innflytjenda. Þann málaflokk sem mun hafa afgerandi áhrif á þróun eða endalok okkar mikilvægu norrænnu velferðaríkja og veltur á því, hvernig stjórnmálamenn bregðast við".
Feyling segir að formaður sænskra sósíaldemókrata eigi ekki skilið að fá atkvæði Svía nema að hann þvervendi í innflytjendamálunum og því sé betra fyrir Svía að kjósa Svíþjóðademókrata.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á venjulegt fólk ekkert erindi lengur við Ísland?
25.8.2018 | 19:49
Má henda að risafyrirtækjum takist að breyta Íslandi í lúxusdraum ríku, fínu, alþjóða elítunnar, - eina prósentsins sem á meira en hálfan heiminn og ferðast með stuttum fyrirvara, flestir á business class og margir í einkaþotum. Að Ísland verði veruleikaflótti og stundarafþreying þeirra ríkríku sem ekki láta 87% óhreina orku á sig fá. Enn eitt nýja tölvuspilið sem henda má frá sér þegar maður verður leiður. Allur þorri ferðamanna sem fylla aukinn ferðamannastraum koma samt til landsins af öðrum ástæðum. Þær kallaðast náttúra Íslands.
Geðveikin er slík að manni hrýs hugur að koma til landsins jafnvel þótt uppruninn sé íslenskur og ættingjar enn á lífi. Ísland tekur helmingi till fimm sinnum hærra verð fyrir hótelnóttina en gert er víðast annars staðar og dettur þar af leiðandi fyrst út úr ferðaáætlun venjulegs fólks. Hvers vegna á ég að heimsækja þetta land, þegar ég fæ svo miklu meira fyrir peninginn annars staðar?
Sennilega er hvergi orðið eins erfitt fyrir Íslending að vera ferðamaður en á Íslandi. Íslenska er varla töluð lengur heldur er það enska, pólska, lettneska og guð má vita hvaða mál sem eru töluð. Margir erlendir starfsmenn hótelkeðjanna hafa engan áhuga og geispa ef reynt er að ná sambandi. Allir reyna að svindla á öllum, t.d. bensínstöðvar sem loka fyrir kortagreiðslur aðrar en eigin pakkakort upp á 5 þúsund krónur, 10 þús kr, 15 þús kr osfrv. Ég gleymi aldrei gömlu japönsku hjónunum sem ætluðu að fylla á tankinn á bílaleigubílnum áður en honum var skilað í Keflavík. Þau stóðu í helfrosnu og hreyfingarlausu augnasambandi hvort við annað, þegar þau komust að því, að einu kortin sem gengu í sjálfsalann voru pakkakortin sem voru til sölu á stöðinni. Tanka kannski minna en helmingnum og taka afganginn með sér á einskis nýtu korti til Japans. Það þarf ekki önnur vopn til að ræna saklaust fólk sem ekki fær upplýsingar um næstu bensínstöð sem tekur við venjulegum greiðslukortum.
Ég á aðrar sögur af þessum nýja, fína, dýra ferðamannaiðnaði á Íslandi m.a. að heitt vatn kom í klósettið á Sögu þegar sturtað var niður og útskýringin sem við fengum var að þetta hefði líka gerst í vikunni á undan. Hótelið gat að auki ekki lánað út tappatogara.
Enginn þarf að vera hissa á niðurstöðu sænskra vina í veislu, þar sem Ísland bar á góma:
Búið er að eyðileggja möguleika venjulegs fólks að koma til Íslands og njóta náttúrunnar.
Ef ekki tekst að halda þeim ríkríku við efnið, verður þá ekki hægt að virkja fínu hótelin fyrir heimilslausa Reykvíkinga, ellilífeyrisþega og nýinnflutta?
Dýrara en þú hélst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.8.2018 kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jerzy Sarnecki prófessor sem rætt var við í Uppdrag Granskning um nauðgunarmál, brást illur við í sjónvarpinu eftir birtingu myndarinnar og sagði sjónvarpið dreifa hægrisinnuðum kenningum um menningarheim nauðgaranna. Bað Sarnecki sjónvarpið um að banna sýningu myndarinnar og jós skömmum yfir framleiðenda þáttarins.
Sænsk yfirvöld hafa ekki leyft að nöfn og þjóðerni nauðgara í Svíþjóð verði birt á meðan mál eru í meðferð. Hins vegar hafa þau ekki geta stöðvað rétt almennings að skoða dómsúrskurði, þrátt fyrir að ríkisstjórnin reyndi að stöðva leitarvélar á netinu sem náðu í slíkar upplýsingar. Sænska ríkisstjórnin segir, m.a. með aðstoð einstaklinga eins og Sarnecki, að það sé rasismi eða nazismi að blanda afstöðu trúarbragða til kvenna við nauðgunarglæpi. Þetta á fremst við um íslam sem ekki leyfir að sjást megi í húð kvenna og konur algjörlega í ánauð manna sinna sem ráða við hverja þær mega tala eða fara í heimsókn til.
Það sem sósíaldemókratar í Svíþjóð segja ekki opinberlega en er engu að síður að baki rasistaáróðri þeirra er skipulagt samstarf krata við Sveriges Muslimska Råd - SMR, sem hófst fyrir mörgum árum. Sósíaldemókratar setja upp kosningamarkmið fyrir hverjar kosningar í Svíþjóð þar sem ákveðið er, hversu mörgum sætum í sveitarstjórnum, lénsstjórnum og á þingi á að úthluta til SMR. Ásökun um rasisma á að dyla þetta samstarf fyrir Svíum og öðrum.
Í myndinni segir Mustafa Panshiri, að afstaða yfirvalda séu svik við fórnarlömb nauðgara sem fá rasistastimpil á sig fyrir að leita réttlætis.
Umræðan um þessi mál núna eru aðeins toppurinn á ísbjarginu en av 190 þúsund kynferðisafbrotum er aðeins kært í 6 715 nauðgunarmálum. Af þeim eru aðeins 142 glæpamenn dæmdir. Hundruðir ef ekki þúsundir nauðgara stunda iðju sína óáreittir í Svíþjóð.
PS. hafði fyrirsögnina fyrst "til að fela múslímavæðingu Svíþóðar" en breytti í "íslamavæðingu" sem mér finnst réttara. GS
58% dæmdra fyrir nauðgun erlendir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)