Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hægri blokkin sprungin

44091343_10157796616264115_4247572267464130560_nMyndin sýnir Annie Lööf formann Miðflokksins máta kápu með merki Sósíaldemókrata á innhlið kápunnar. Létt að snúa kápunni við eftir því hvernig vindurinn blæs.

Þegar Miðflokkurinn og Frjálslyndir lýstu því yfir að mikilvægara væri að halda Svíþjóðardemókrötum frá áhrifum í sænskum stjórnmálum en að styðja ríkisstjórn bláu blokkarinnar gegn vantrausti á þingi, þá var Ulf Kristersson engin leið fær að halda áfram stjórnarmyndunarviðræðum. 

Töluverðrar reiði gætir hjá Móderötum og Kristdemókrötum vegna afstöðu Annie Lööf formanns Miðflokksins sem lýsti því yfir í stjórnarmyndunarviðræðunum, að hún gæti hugsað sér að verða hluti af ríkisstjórn undir forystu Stefan Löfvens.

Móderatar, sem töpuðu mest í kosningunum, fengu fyrstir umboð forseta þingsins til að reyna að mynda ríkisstjórn. Núna bendir allt til að Sósíaldemókratar sem töpuðu næst mest í kosningunum fái umboð til stjórnarmyndunar. 

Forseti þingsins hefur fjögur tækifæri að bera upp hugsanlega ríkisstjórn á þingi. Ef tillögurnar verða felldar með vantrausti verður að efna til aukakosninga eigi síður en þremur mánuðum eftir að fjórðu tillögunni var hafnað. Hingað til hefur fyrsta tillaga þingforseta ávallt verið samþykkt og ný stjórn ætíð verið mynduð á skemmri tíma en nú er liðinn frá þingkosningum. Engar tímatakmarkanir eru á hversu langan tíma stjórnarmyndunarviðræður mega taka. 

Jimmy Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata, þrýstir nú á um að forseti þingsins láti koma til atkvæðagreiðslna í þinginu svo hægt verði að flýta stjórnarmyndunarferlinu í átt til aukakosninga en búist er við að þá gætu bæði Umhverfisvænir og Frjálslyndir dottið út af þingi og Svíþjóðardemókratar aukið fylgið enn frekar.


mbl.is Stjórnarmyndun er ekki í augsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna starfar á grundvelli hræsni og lyga

220px-Nikki_Haley_official_photoSú góða kona Nikki Haley hefur staðið sig frábærlega vel í eldlínunni bæði gagnvart Rússum og N-Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum og einnig þegar hún útskýrði brottför Bandaríkjamanna úr Mannréttindaráðinu. Þann stól kjánuðust Íslendingar í og hefðu betur hlustað á Haley, þegar hún útskýrði, að ráðið starfaði á hræsnisgrundvelli og ögraði mannréttindum í heiminum.

Mannréttindaráðið er í höndum alþjóðasósíalista sem alltaf taka afstöðu gegn Ísrael og nota ráðið m.a. til að berja á fullveldissinnum í Evrópu. Fredrik Malm, utanríkissérfræðingur hjá Frjálslyndum í Svíþjóð vill að ráðið verði lagt niður og nýtt ráð skipað sem bannar þáttöku ólýðræðisríkja. 

ESB notar Mannréttindaráðið gegn eigin meðlimum sem láta ekki einræðisherrana í Brussel segja sér fyrir verkum. Aðildarríki sem neita að taka á móti fólki frá Afríku og Miðausturlöndum gerast sek um "mannréttindabrot" skv. SÞ.

Hillary Clinton er í sömu skútu og segir það mannréttindabrot að styðja forsætisráðherra Ungverjalands Viktor Orbán í deilum innan ESB. Stærsta brotið er að sjálfsögðu opinber herferð flokks Orbán gegn auðkýfingnum George Soros. 

Það er sama hvert litið er í heiminum. Þótt sósíalistaflokkarnir hafi skipt um nafn á heimssamtökum sínum Sósíalíska Internationalen yfir í Progressive Alliance, þá er valdafíknin, spillingin og ósk um alheimsstjórn efst á blaði nú sem fyrr.

Hillary passar vel inn í þann stórhættulega grátkór sem vill banna allt nema sósíalismann. Aðþrengdir, tapsárir sósíalistar víða um heim telja sig eiga einkarétt á málfrelsi, lýðræði og mannréttindum. Þeir skilja ekki að þeir gera mistök og kenna alltaf öðrum um. Tap sósíalista verður að hatri gegn öllum þeim sem kjósa annað.

Sósíalistarnir eru að steypa heiminum í glötun eina ferðina enn.


mbl.is Haley ekki á leiðinni í forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læst staða sænskra stjórnmála – plús nokkrar staðreyndir

Great_coat_of_arms_of_Sweden.svgÞeir sem hæst hrópa um samvinnu milli hægri og vinstri blokkanna hella sjálfir steypu blokkastjórnmálanna á fætur sér.

Þegar skipað var í 16 nefndir sænska þingsins í fyrradag voru það samantekin ráð hægri og vinstri blokkarinnar að undanskilja Svíþjóðardemókrata frá formennsku og varaformennsku í þingnefndum.

Embættunum var skipt á milli hægri og vinstri blokkanna eins og að þriðji stærsti flokkurinn væri ekki til. Þetta er frávik frá þeirri þingræðisreglu sem gilt hefur hingað til að úthluta þessum embættum út frá stærð flokkanna. Þannig fengu allir minni flokkarnir formennsku í einhverri nefndinni, samtals fimm flokkar með atkvæðatölu á bilinu 4,41% upp í 8,61% en Svíþjóðardemókratar með 17,53% fengu engan mann í formennsku eða varaformennsku. Mun þetta eflaust draga dilk á eftir sér í þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem í gangi eru.

Nokkur orð vegna viðtalsins á útvarpi Sögu í gær:

Skýrslu Sameinuðu þjóðanna um skráðar nauðganir - einnig gagnvart börnum má finna hér.

Ljót staða Svíþjóðar sem hefur valdið hneykslun um víða veröld og verulega laskað ímynd Svíþjóðar. Nýrri tölur frá 2015 má finna hér. Svíþjóð enn númer tvö yfir fjölda kærðra nauðgana.

Aukning nauðgana í Svíþjóð undanfarin ár er veruleg og það sem vekur sérstaka athygli er að fjórum sinnum fleiri segjast hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi núna en fyrir sjö árum síðan (1,1% ár 2011 - 4,1% ár 2017). Kærðar nauðganir á sama tímabili fjölgaði frá 17 077 upp í 21 991. Er það langtum minni aukning en fram kemur í viðtölum og könnunum.

Skýrsla Migrationsverket um hælisumsóknir 2018 (15 978 jan-sept) og landvistarleyfi 2018 (95 766 jan-sept).

Bæti einnig við (kl 9:21) tilvísun í þjóðerni innflytjenda en árið 2017 var þriðji stærsti hópurinn sem fékk sænsk ríkisborgararéttindi fólk án ríkisfangs.


Klífið úr háum söðli ykkar - sjáið þið ekki gremjuna? Svíþjóð í Heimsmálum Útvarps Sögu miðvikudag kl. 13.00

Skärmavbild 2018-10-02 kl. 21.24.27Lotta Gröning blaðakona á Expressen og áður ritstjóri á Aftonbladet er óspar á orðin vegna blindu sænsku stjórnmálaelítunnar. 1. okt. skrifar hún í Expressen "að við erum komin á þann stað að það er kominn tími fyrir Stefan Löfven, Annie Lööf og Jan Björklund ásamt fleirum að fylgja ráði Bertolt Brechts og kjósa einfaldlega nýtt fólk".

Skrifar Lotta að það virðist alfarið hafa farið fram hjá "flokksleiðtogum sjöflokksins að kosningarnar fjölluðu að minnsta leyti um Svíþjóðardemókrata en þess meira um mótmæli úr öllum áttum".

"Flokksleiðtogarnir vilja ekki einu sinni tala við Svíþjóðardemókrata, því þeir vilji ekki normalísera rasískan stjórnmálaflokk".

Biður hún elítuna að klífa niður úr háum söðlum sínum og kíkja í kringum sig. Merkilegt væri ef niðurstaða kosninganna ætti ekki að hafa nein áhrif á ríkisstjórnarmyndunina. 

"Gömul rauð svæði féllu eins og keilur, Gautaborg og Malmö eru tvö dæmi. Lýðræðisflokkurinn í Gautaborg varð næst stærstur og koma meðlimir flokksins m.a. frá Móderötum, Sósíaldemókrötum og Umhverfisflokknum."

"Engu betur gekk í sveitahéruðum og lénum Stefan Löfvens. Sósíaldemókratar töpuðu í léni eftir léni. Í Norrbotten varð Heilsugæsluflokkurinn stærstur og tekur völdin með Móderötum og Miðflokknum...Endalok 84 ára stjórnar Sósíaldemókrata er staðreynd í dag. Í heimalénu sínu VesturNorrland fékk Stefan Löfven hrikalegustu útkomuna. Sósíaldemókratar töpuðu 33,7% í Sollefteå.

Því miður er ástandið enn þá verra, Sósíaldemókratar töpuðu kosningunum í 252 sveitarfélögum og takið eftir því, að þeir óánægðu fóru ekki yfir til hægra bandalagsins."

"Innan verkalýðshreyfingarinnar ríkir uppreisn gegn sósíaldemókrötum, fjórði hver LO-meðlimur kaus Svíþjóðardemókrata og samtals fengu sósíaldemókratar "aðeins" 41% af atkvæðum meðlima LO".

"Ef hinir sjálfútnefndu sigurvegarar hjá Sósíaldemókrötum og Móderötum velta fyrir sér aðgerðum kjósenda skilja þeir, að það ríkir gríðarleg óánægja með stjórnmálin. Þeir kjósendur, sem flokksleiðtogarnir hata núna eins og pest fyrir að hafa kosið Svíþjóðardemókrata, koma frá flokkum þeirra sjálfra. Kjósendur krefjast breytinga."

"Það mikilvægasta núna til að byggja upp traust hjá þeim flokkum sem mistókst, ætti að vera að íhuga hvers vegna þeir töpuðu kosningunum. En í staðinn krefjast þeir valda á grundvelli stjórnmálastefnu sem kjósendur höfnuðu. Þetta er ekkert grín".


mbl.is Kristersson fær umboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamaðurinn og bloggarinn

af_mor_um_og_innflytjendum
24. sept. birti Morgunblaðið grein eftir mig "Af morðum og innflytjendum í Svíþjóð". Kveikjan að greininni var grein í Mbl. 6. sept. eftir Boga Þór Arason blaðamann "Frá sænskri þöggun yfir í ýkjur" um ástandið í Svíþjóð. Fannst mér vanta tilfinningu fyrir þeirri umfangsmiklu þjóðfélagsumræðu sem átt hefur og á sér stað í Svíþjóð m.a. vegna vaxandi fjölda ofbeldisverka, skotbardaga, nauðgana, vopnaðra rána svo og menningarlegum árekstrum m.a. við karlmenn sem virðast líta á konur sem tuskuklædd kynfæri. (Sú hlið mála hefur fengið margan Svíann út í nó-gó svæðin til að leita uppi og hjálpa konum að rjúfa einangrun sína og kynnast jafnréttismálum í Svíþjóð).

Umræðan í Svíþjóð hefur mikið snúist um hvernig hægt sé að bæta m.a. löggæslu, lagalegt umhverfi, réttarfarskerfið og auka afköst alls kerfisins við meðhöndlun afbrotamála. Þessar umræður tengjast svo allar á einn eða annan hátt umræðunni um gríðarlegan fjölda innflytjenda en Svíþjóð sker sig úr með því að taka á móti fleiri innflytjendum en flest önnur lönd.

Stjórnvöld, sem oft hafa brugðist við réttmætri gagnrýni með því að "skjóta boðberann", bera ábyrgð á stigmögnun spennu í öllu samfélaginu sem m.a. endurspeglast í fylgishruni hefðbundnu stóru flokkanna, sósíaldemókrata og móderata, og mikilli fylgisaukningu Svíþjóðardemókrata. Í kosningunum fengu sósíaldemókratar lélegustu útkomu frá stofnun flokksins um 28% en Svíþjóðademókratar hafa á fáum árum orðið þriðji stærsti flokkur Svíþjóðar með tæp 18%.

27. sept. skrifar Bogi Þór Arason grein í Mbl. "Ýkjur þjóðernissinna og pólitíski réttrúnaðurinn" þar sem hann telur mig hafa gert það að lífsmarkmiði að láta Svíþjóð alltaf koma verst eða næst verst út í öllum hugsanlegum samanburðum. Telur hann mig vera þjóðernissinna haldinn  þeim pólitíska rétttrúnaði að líta á alla innflytjendur sem hugsanlega morðingja og nauðgara. 

Ég verð að játa, að ég hafði ekki fyrirfram gert mér grein fyrir þeirri heift sem ég merki í brjósti Boga gagnvart gagnrýnendum sósíalískrar stjórnarstefnu í Svíþjóð og finnst mér viðbrögð hans benda til takmörkunar á efnislegri umræðu um málin. Vonandi hef ég rangt fyrir mér í því.

Ætlun mín er og var engan vegin að efna til deilna við blaðamann Mbl., heldur að miðla broti af þeirri tilfinningu sem fylgir því að búa í Svíþjóð og vera á vettvangi atburðanna til lesenda Morgunblaðsins. Morgunblaðið skal alla þökk hafa fyrir birtingu greinarinnar enda er og hefur metnaður blaðsins alla tíð verið að skapa vettvang fyrir lýðræðislegar, málefnalegar umræður og mættu aðrir fjölmiðlar taka sér Mbl. til fyrirmyndar.  

Ég mun að sjálfsögðu svara Boga Arasyni en ekki á persónulegum nótum heldur með því að fylla betur á upplýsingar um stjórnmálaástandið í Svíþjóð. Ríkjandi stjórnmálalæsing á sænska þinginu er til komin vegna þarfa sósíalista á að eiga sér óvin. Þar ber flokk Svíþjóðardemókrata hæst en formaður sósíaldemókrata Stefan Löfven segir að Svíþjóðademókratar séu ekki marktækir á þingi. Hafa kratar í bandalagi við aðra flokka ákveðið að útiloka hefðbundið þingræði og lýðræði frá 18% kjósenda í Svíþjóð.

Er talað um að hindra að Svíþjóðardemókratar fái eðlilega forystu í nefndum þingsins en úthluta þeim embættun í staðinn til minni flokka með 4-10% fylgi. Verður þessu fylgt eftir mun fylgi Svíþjóðardemókrata aukast enn frekar.

Meira um það síðar.

 


"Sérhver yðar hefur fengið traust meðborgaranna til að vera fulltrúar þeirra hér á þingi Svíþjóðar".

Dn7JyiNXgAAK8URMargir þingmenn lýstu yfir ánægju sinni að fá tækifæri á að ýta Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar úr embætti í gær með því að svara nei þegar spurt var um traust til forsætisráðherrans. Hefur það aldrei áður gerst í sögðu Svíþjóðar að sitjandi forsætisráðherra er vikið úr embætti á þennan hátt en 204 lýstu vantrausti en 142 studdu Löfven. 

Hanif Bali þingmaður Móderata tók myndina ofan og lagði út á twitter með orðinu Bye. Ýmsir aðrir gerðu slíkt hið sama, sérstaklega eftir að ramaskrí heyrðist úr ranni Löfvenista um að Hanif Bali hefði kosið með löngutöng til að lítillækka forsætisráðherrann fyrrverandi. Brá einhverjum í brún, þegar þingmaðurinn útskýrði að vísifingurinn væri bæklaður síðan hann starfaði við pízzugerð svo hann neyddist til að nota annan fingur og honum hefði nú bara alls ekki dottið í hug að hægt væri að túlka myndina sem að hann væri að gefa sósíaldemókrötum fingurinn. 

Staðan á þinginu er læst, þar sem vinstri blokkin og miðflokkurinn og frjálslyndir setja sem skilyrði fyrir samstarfi að Svíþjóðardemókratar verði útilokaðir frá áhrifum á þinginu. Þessi afstaða hefur fært Svíþjóðardemókrötum vaxandi fylgi og Jimmy Åkesson formaður Svíþjóðardemókrata segist ekki óttast aukakosningar ef enginn gefur með sér og byrjar að umgangast Svíþjóðardemókrata sem lýðræðislega kjörna fulltrúa meira en milljón Svía.

kungen och talmannenÞingið var sett við hátíðlega athöfn að viðstöddum meðlimum sænska konungshússins skv. venju. Karl XVI Gustaf hélt athyglisverða ræðu þar sem hann áréttaði fyrir þingmönnum eðli þingsins og hlutverk þeirra sem fulltrúa umbjóðenda sinna:

"Í dag, eins og fyrir hundrað árum síðan, er lýðræðið sá hlutur sem við verðum að vernda og varðveita sameiginlega. Ekki aðeins á kjördegi heldur sérhvern dag. Núna eins og þá axlið þið sérstaka ábyrgð sem kjörnir eru fulltrúar sænska fólksins. 

Háttvirtu þingmenn. Sérhver yðar hefur fengið traust meðborgaranna til að vera fulltrúar þeirra hér á þingi Svíþjóðar. 

Þeir sem lifa í Svíþjóð í dag, en einnig komandi kynslóðir, þau eru umbjóðendur ykkar.

Þau vænta þess að Þér notið þekkingu og reynslu yðar á sem bestan hátt fyrir Svíþjóð fyrir góða framtíð allra þeirra sem hér lifa.

Að sinna trausti fólksins - er ekki einfalt verkefni. En samtímis eitt það mikilvægasta sem hægt er að hafa.

Það er einnig erfitt starf. Mörg hundruð ákvarðanir eru á braut yðar. Sumar verður auðvelt að taka. Aðrar erfiðari og flóknari.

Hagsmunir landsins eru í höndum Yðar. Ég óska ykkur þróttar, hugrekkis og vísdóms í mikilvægu starfi ykkar. Ég lýsi því hér með yfir, að þing 2018/2019 er sett".

Sýn Svíakonungs á lýðræði er kýrskýr. 

Synd hversu margir núverandi þingmenn koma ekki auga á það. 


mbl.is Löfven víki sem forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB hendir skákborðinu í skurðinn. Hver verður næsti leikur Brexit?

Skärmavbild 2018-09-22 kl. 13.16.57

Boris Johnson segir Theresu May veifa hvíta fánanum í Brussel og hafa sett "sjálfsmorðsbelti" utan um brezku stjórnarskrána og afhent ESB sprengjutakkann. ESB og UK hafa áður lýst því yfir að samkomulag náist í október í ár en eftir leiðtogafund ESB í vikunni virðist staðan komin á byrjunarreitinn. Takist ekki samkomulag munu Bretar einhliða yfirgefa sambandið 29. mars 2019 kl 23.00.

Boris Johnson hefur haldið sér á hliðarlínunni frá því hann sagði af sér embætti utanríkisráðherra til að gefa Therese May frið við að reyna að ná samkomulagi um s.k. Chequers plan. Sú áætlun er að mati höfundar Reykjavíkurbréfs í dag það sama og reyna að vinna skákina með því að gefa hana. 

Landsþing Íhaldsmanna fer fram í Birmingham 30/9 - 3/10 og á dagskrá fyrsta daginn er klukkutíma fundur "Challange the Chairman" eingöngu fyrir flokksmenn. Má búast við að Boris Johnson láti í sér heyra eftir sneypuferð Theresu May til Salzburg og hina töpuðu skák Brexitmanna en skv. Dailymail mun Johnson halda aðalræðuna á einum af fjölmörgum fundum þingsins. Má búast við átökum en hvort þau leiða til formannsskipta Íhaldsflokksins skal látið ósagt. 

Thersa May hefur lýst því yfir að hún muni berjast gegn hverjum þeim sem reyni að koma henni úr formannsstóli fram að næstu þingkosningum í Bretlandi. 

Spurningin er, hvort flokksþingi Íhaldsflokksins takist að snúa taflinu við.


mbl.is May: ESB verður að sýna Bretum virðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þið eruð eins og hryðjuverkamenn ISIS. Nei - þetta er Daesh. Geðveikt? Svo sannarlega.

lepenSkv. frönskum lögum þarf fólk að sæta geðrannsókn í sakamálum til að staðfesta dómshæfi þess. Marine Le Pen segist ekki ætla að mæta og spyr, hversu langt dómarinn muni ganga til að þvinga sig til að mæta.

Hefur hún verið ákærð fyrir að "dreifa myndum með ofbeldisfullu innihaldi" en hún svaraði sjónvarpsmanni sem líkti Þjóðfylkingiunni við hryðjuverkasamtökin ISIS. 

"Þetta er Daesh!" skrifaði hún með myndum, sem m.a. sýndu ódæðisverk hryðjuverkamanna með því að brenna fólk í búrum, keyra yfir fólk á skriðdrekum og afhöfða fólk. Myndir sem hafa farið eins og eldur í sinu um allan heim í fjölmiðlum og félagsmiðlum ÁÐUR en Le Pen birti þær á twitter. Ein myndin var af bandaríska blaðamanninum James Foley og fjarlægði Le Pen myndina að ósk fjölskyldu Foleys. Le Pen sagði seinna að hún hefði ekki vitað hver var á myndinni, þegar hún birti myndina.

Það virðist sem rannsóknarblaðamennska "Panamaskjalanna" a la Soros hafi nú náð til franskra dómstóla. Fyrst eru búnar til lygafréttir, síðan er ráðist að fórnarlambinu til að granda orðstír þess. Marine Le Pen er yfirlýstur andstæðingur ofurríkis ESB á meginlandinu.

Við erum öll komin á afskaplega hættulegan stað, þegar enginn má ræða um raunveruleikann nema valdhafar. Verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessa máls en fjöldi manna bæði til vinstri og hægri í Frakklandi og víða að í Evrópu hafa komið til varnar Marine Le Pen. Verði hún sótt með lögregluvaldi fær hún stöðu píslarvotts og Þjóðfylkingin mun stórefla fylgið.

Frakkar elska lýðræðið meira en embættismenn þessa franska dómstóls og þótt Macron forseti reyni allt sem hann getur til að gera lýðræðið og þjóðarstolt Frakka að makrónómískum, einskis verðum hlut, þá mun hvorki hann né embættismenn sem vilja fremja lagalegt "hryðjuverk" ná fram því markmiði að knésetja Marine Le Pen eða sjálfstæðishreyfingu Frakka.

Frakkar munu aldrei beygja sig fyrir fasismanum frá Brussel þótt Macron vilji verða Maximus hjá ESB.


mbl.is Gert að sæta geðrannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákveðið að vísa hryðjuverkamanninum úr Svíþjóð hálfu ári áður en hann framdi ódæðið í Stokkhólmi

ExprÞað er á fleiri stöðum en í Danmörku, þar sem yfirvöld vinna ekki vinnuna sína við að leita uppi þá sem hefur verið vísað úr landi og sjá til þess að þeir yfirgefi landið. 

Í Expressen í dag skrifar faðir Ebbu Åkerlund 11 ára, sem var myrt á hryllilegan hátt í hryðjuverkinu á Drottninggatan í Stokkhólmi, að yfirvöld gerðu ekkert eftir að innflytjendayfirvöld ákváðu að vísa hryðjuverkamanninum úr landi sex mánuðum áður en hann framdi ódæðið. Yfirvöld höfðu þrjá mánuði á ser að framfylgja ákvörðuninni.

Hryðjuverkið hefði aldrei átt að geta gerst: "Ef sænska ríkið - og í framhaldi af því forysta stjórnmálanna - hefðu unnið eins og krefjast má af nútímalegu, vel skipulögðu og efnum búnu samfélagi, þá hefði Rakhmat Akilov aldrei verið í nágrenni Drottninggatan þennan dag. Hann hefði ekki einu sinni verið í Svíþjóð". 

Ekki nóg með að léleg innflytjendastefna hleypti morðingjanum inn í landið heldur framfylgdu yfirvöld ekki ákvörðun sinni um útvísun úr landi. 

"En það endar ekki þar. Eftir ódæðið hafa þessir stjórnmálamenn ekki aðhafst neitt til að kanna hvernig þetta gat gerst. Hvað samfélagið hefði getað gert öðruvísi til að koma í veg fyrir ódæðið".

Faðir Ebbu vill stofna óháða nefnd almennra borgara og viðskiptalífsins til að hafa eftirlit með sænska ríkinu svo fleiri láti ekki lífið vegna vanrækslu ríkisins.

Enginn veit hversu margir Akilovar fela sig í Svíþjóð. Sumir tala um að allt að 50 þúsund einstaklingar lifi ólöglega í Svíþjóð, stórum hluta hefur verið vísað úr landi og þeir látið sig "hverfa". Aðrir hafa komið ólöglega og finnast hvergi á skrám. 

Svo er Schengen opin braut til Íslands...


mbl.is Veit ekki um fjölda hælisleitenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarft mál í uppgjöri við pólitíska spillingu "hrunsins"

914047Afar gott mál að Alþingi læri af reynslunni og álykti að rangt hafi verið að málum staðið, þegar Landsdómur var ræstur út og fyrrverandi forsætisráðherra Geir H. Haarde dreginn fyrir dóm.

Stjórnmálaleg móðursýki vinstri manna við fall bankanna og haturslosti þeirra gegn stjórnmálaandstæðingum leiddi til óþarfa deilna og sundraði þjóðinni, þegar hún þarfnaðist hvað mest sameiningar og góðrar leiðsagnar Alþingismanna. 

Áhrifum málshöfðunarinnar má líkja við nornaofsóknir fyrri alda.

Bókstaflega átti að "brenna" stjórnmálaferil Geir Haarde á báli sundrungarinnar. Þetta gerði þjóðinni allri erfiðra um vik og hefur dregið tímann á langinn að jafna sig eftir fjármmálakrísuna.

Þess vegna ber að fagna því, að Alþingismenn vinni í hreinskilni og af heiðarleika að því að endurheimta traust landsmanna á stjórnmálamönnum sem starfa á Alþingi.

Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og meðflutningsmönnum ber að þakka fyrir og óska velgengni með málið.

 

 


mbl.is Alþingi álykti að málshöfðun hafi verið röng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband