Meiri hluti Hollendinga sér eftir upptöku evrunnar

eu2011bSífellt fleiri snúa baki við evrunni. Traust evrunnar sem gjaldmiðils er á harða hlaupum frá evrulandi eins og atvinnulausir, a.m.k. þeir sem það geta. De Telegraf í Hollandi segir frá nýrri skoðanakönnun, þar sem 55% Hollendinga lýsa því yfir, að þeir sjá eftir því, að Hollendingar tóku upp evru sem gjaldmiðil.

Atvinnuleysi evrusvæðisins er bein afleiðing af upptöku evrunnar, sem m.a. birtist í mismunandi vaxtakjörum smáfyrirtækja í S-Evrópu sem greiða 2-4% hærri vexti en smáfyrirtæki Þýzkalands skv. Deutsche Bank. 

Samdráttur evrulands er farinn að smita út frá sér t.d. í sölu nýbíla sem hrundi í Svíþjóð um 21% í mars í ár miðað við 2012, þrátt fyrir að Svíþjóð er almennt talið eitt af efnahagslega sterkustu löndum ESB. Samtals minnkaði sala nýbíla í Svíþjóð með 17,5 % fyrstu þrjá mánuðina sbr. við 2012. 


mbl.is Metatvinnuleysi í sögu evrusvæðis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband