Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Faðmur dauðans – Pútín ógnar mannkyni öllu með þriðju heimsstyrjöldinni

putinassadÓyggjandi sannanir eru fyrir aðkomu Rússa að notkun ólöglegra eiturefna bæði í Salsbury í Bretlandi og einnig með aðkomu Sýrlandshers í eiturefnaárás á saklausa borgara í Sýrlandi s.l. laugardag, þar sem börn og konur voru myrt á hryllilegan hátt.

Ábyrgð Vladimir Pútíns er mikil. Bashar Al-assad forseti Sýrlands situr einungis við völd vegna hervalds Rússlands. Allt tal um "framgang Sýrlandshers" er sama taktík og í Úkraínu, þar sem grímuklæddir rússneskir hermenn breyttust í "úkraínska andspyrnuhreyfingu" innan landamæra Úkraínu. Rússar beita sömu lygum um veröld alla. Fremja glæpaverk og þykjast saklausir þegar þeir eru bornir ásökunum. 

Sýrlenski fáninn er blóði drifinn allt síðan venjulegir borgarar gagnrýndu stjórn Al-assads opinberlega. Svar ríkisstjórnarinnar var stríð gegn eigin landsmönnum og saklausir borgarar myrtir í stórum stíl. Vesældómur Óbama Bandaríkjaforseta, sem fékk ófriðarverðlaun norskra krata fyrir, gerði Pútín kleift að byggja upp stöðu sína í Miðausturlöndum. Til að betrumbæta brjálæðið flutti Obama milljarða dollara til Írans sem notar peningana til að smíða stríðsvél í Miðausturlöndum með markmiðið að eyða Ísrael með sprengju djöfulsins. Og þar situr heimurinn í dag.

Rússar hafa völdin í Sýrlandi og líta á árás á glæpastjórn Sýrlands sem árás á Rússland. Hóta kjarnorkustyrjöld fái þeir ekki að fara yfir rauðu eiturlínuna eins oft og þeim sýnist. 

Í stöðu dagsins eru samtal og lög farin. Vopnin tala. 

Mega Norðurlandabúar nú fara að undirbúa sig undir aðgerðir Rússa á Norðurslóðum.

Ekki síst nágrannar Rússlands, Finnar, Norðmenn og Svíar. Íslendingar mega gæta sín vegna legu landsins. 

Eystrarsaltsríkin eru á hættusvæði. Eins og áður.

Heidi Fried - ein af fáum sem slapp lifandi frá Helförinni, líkti í viðtali við sænska sjónvarpið í gærkvöldi ástandinu í heiminum í dag við áratuginn fyrir seinni heimsstyrjöldina.

Déjà vu.

1304421

 


mbl.is Trump ræðir við Macron og May í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplýsingar fyrir þig sem ert kvænt(ur) barni

DZcakGbX4AE80xQÞetta er ekkifrétt, en satt er, að rétt fyrir páskana 2018 birti félagsmálastofnun Svíþjóðar að beiðni ríkisstjórnar krata og umhverfissinna, leiðbeiningarbækling fyrir þá sem búa í barnahjónaböndum í Svíþjóð. Ég skrifa hjónaböndum ... ekki bandi, því langt á annað hundruð barnahjónabönd eru þekkt og liðin af yfirvöldum í Svíþjóð. Þetta er að sjálfsögðu innflutt hefðarfólk frá menningarlöndum, þar sem tíðkast að foreldrar gera sér pening úr dætrum sínum og selja þær á barnsaldri, oft til frænda sem kaupa telpur með samþykki fjölskyldunnar.

Yfirvöld upplýsa á kurteisislegan hátt að þau muni reyna að ná tali af barninu ef það er yngra en 15 ára "til að spyrja það álits um hvernig og hvar það vilji búa". Einnig er varfærnislega bent á að kynlíf með börnum yngri en 15 ára er ekki leyft í Svíþjóð. Hvergi er minst á refsiviðurværi eins og t.d. fangelsi fyrir barnaníð.

Eiginlega ætti svona lagað ekki að geta gerst í neinu ríki sem vill kalla sig siðmenntað en gerist nú engu að síður rétt eins og svo margir aðrir hlutir sem eiga ekki að geta gerst en gerast samt fyrir það. Þetta hjálparstarf sænsku ríkisstjórnarinnar við karlmenn í barnahjónaböndum hefur þegar orsakað þvílíkt fárviðri innanlands að hin góðhjartaða félagsmálastofnun Svíþjóðar sá sig nauðbeygða að draga bæklinginn til baka.

Það kemur þó ekki að sök, því nú hafa góðhjartaðir Svíar tekið sig saman og aðstoða félagsmálayfirvöld með hugmyndum og útliti að fleiri upplýsingabæklingum sem þörf er á í sambærilegum málaflokkum.

Að sjálfsögðu varðar gifting barna við lög í jafn siðmenntuðu landi og Svíþjóð. En hvað eiga aumingjans yfirvöld sósíaldemókrata og umhverfissinna að gera, þegar hugsanleg atkvæði flykkjast til fyrirheitna landsins?

Að neðan: sýnishorn af nokkrum tillögum að nýjum upplýsingabæklingum fyrir félagsmálastofnun.29598045_1501309273325046_4643799075941006561_n 

22090049_1904389709579240_4532845867676246983_n

29570942_1904389589579252_5053443543590895330_n29695433_1904391342912410_3647310966333568731_n

29598144_1904390019579209_6523635549056863554_n

29543248_1904389846245893_1511014324020493547_n

29542728_1904391116245766_2755135359731248825_n

29597316_1864765876908263_1249897474057266943_n

29683339_1904389409579270_6075324027242275530_n

29683825_1904389336245944_9198585620255038876_n

29684127_10155527812817992_6501497432294184438_n


Flóttamenn Dags B. Eggertssonar

0723_21-688x451Sveitastjórnarkosningarnar í Reykjvík ættu að vera mörgum kærkomið tækifæri að gera upp við vesöld ónýtrar borgarstjórnar og kjósa nýtt fólk með nýja stefnu sem skilur að það er að vinna fyrir borgarbúa og að auki hefur bæði áhuga og metnað til að gera það.

Það var einkar athyglisvert að lesa pistil Eyþór Arnalds borgarstjóraefni Sjálfstæðiflokksins í Mbl. þessa helgi en þar gerir Eyþór flóttamannatölur frá Reykjavík að umtalsefni:

"Reynd­ar er það svo að Íslend­ing­um í Reykja­vík fækkaði á síðasta ári um 740 manns sem er meira en nem­ur öll­um íbú­um Seyðis­fjarðar. Það er svo út af fyr­ir sig merki­leg staðreynd að Íslend­ing­um í Reykja­vík hef­ur fækkað um 1.390 frá 2014. Það fluttu sem sagt fleiri Íslend­ing­ar burt frá Reykja­vík á þessu kjör­tíma­bili en sem nem­ur öll­um flótta­mönn­um sem hafa komið til lands­ins frá 1956. Í öllu þessu ljósi verða orð Dags um að íbúa­fjölg­un hafi sjald­an verið meiri held­ur ótrú­verðug."

Verum glöð, stutt er í kosningar og nýtt fólk og nýir tímar munu taka við í Reykjavík. 

Þá myndast kannski grundvöllur fyrir flóttamenn Dags B. Eggertssonar að snúa aftur heim til týndu borgarinnar. 


Léttum á borgarbúum

NeroReykjavík er orðin að týndu borg apaguðsins.

Umvafinn kosningaglærum, málandi drauma á himni eins og Nero sem átti góðan Dag á meðan borgin brann, er borgarstjóri höfuðborgarinnar búinn að draga efnahag borgarbúa í svaðið. Reykvíkingar eru skuldsettir upp fyrir haus vegna spillingar klíkunnar kringum borgarstjórann. Öllum peningum hefur verið eytt í óþarfa gæluverkefni en rekstur borgarinnar og eðlileg þjónusta situr á hakanum. 

Dagur er í fótsporum keisarans sem kenndi kristnum um íkveikju borgarinnar. Hann mun finna sökudólga um alla borg og ofsækja með falsfréttum.

Íbúar Reykjavíkur þurfa ekki að bera þenna myllustein um háls sér.

Kominn tími á að létta þeirri byrði af Reykvíkingum.

Léttum á borgarbúum.

 


mbl.is Eyþór svarar Degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sambandssósíalistar telja félagsmiðla ógn við lýðræðið

Skärmavbild 2018-03-21 kl. 19.25.13Fyrrverandi flokksformaður Radikale Venstre í Danmörku, Magrethe Vestager, segir í viðtali við sænska dagbladet, að einkasamtöl fólks á félagsmiðlun ógni grundvelli lýðræðisríksins: "Hvernig á að vera hægt að mæta pólitískum boðskap sem bara er sendur til einnar persónu? Ef það ert aðeins þú sem færð boðskapinn getur enginn stjórnmálamaður mætt boðskapnum og enginn blaðamaður mun geta rannsakað hann. Það sem virðist vera saklaus markaðsfærsla verður að stóru vandamáli í stjórnmálunum.

Ef stjórnmálaumræðan hverfur af opinbera sviðinu þá er það í sjálfu sér ógn við grundvöll lýðræðisins. Sjálf lýðræðishugmyndin þegar lýðræðið kviknaði er að umræðan fari fram opinberlega. Allir geta sagt það sem þeim finnst og ég get haft aðra skoðun."

Vestager segir að reynt verði að ná friðsamlegum lausnum við miðla eins og Google og Facebook. Náist ekki árangur með þeirri leið verði gripið til lagaákvæða.

Í nafni lýðræðis verður fólki bannað að tala hvert við annað. Opinbera sviðið er fáni ESB og opinberar hyllingar til ESB. 

ESB þarf að heyra og sjá allt, geta haft 100% stjórn á öllum hugsunum og aðgerðum einstaklingsins. Enginn, ENGINN á að geta um frjálst höfuð sér strokið. Stóri bróðir ákveður hvað þér er fyrir bestu.

Lagaleið sambandssósíalistanna er gamla lumma þjóðernissósíalistanna. Með henni á að losna við andstæðingana.

ESB, Evrópa....allur heimurinn er á þessarri slæmu vegferð undir stjórn sambandssósíalistanna.

Union er komið í stað national.

Bráðum kemur Sambandsleiðtogi með sömu takta og þjóðernisleiðtoginn heimsfrægi með ferkantaða yfirvaraskeggið. 


mbl.is Gerður að blóraböggli af Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðflokkurinn leiðir fullveldið í peningamálunum

518965Kjarna þess hugvits sem áður safnaðist innan InDefence hópsins er í dag að finna innan vébanda Miðflokksins.

Þáverandi forysta Sjálfstæðismanna bæði undir forystu Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde tóku slaginn gegn fjárglæpamönnum og lögðu fram vörn íslensku þjóðarinnar sem síðar var staðfest af EFTA dómstólnum. Án þeirra varna væri Ísland í dag verra statt en Grikkland.

Það er að sjálfsögðu hægt að ákveða að nú sé nóg komið, best að gleyma málunum og hæ, hó, nú siglum við áfram. En mistök sem ekki eru skilgreind til að koma í veg fyrir möguleika á að sömu mistök verða endurtekin, þau sömu mistök munu fyrr eða síðar verða endurtekin. 

Reynsluferlið sem byggir upp haldbæra þekkingu er þannig, að stundum þurfa menn að banka höfðinu oftar en þrisvar í steininn til að skilja að hægt sé að breyta um aðferð og ná betri árangri en áður. Þessu má líkja við barn sem er að læra að hjóla á reiðhjóli og þarf að detta nokkrum sinnum áður en jafnvægi er náð.

Þessi vinna hefur þegar verið unnin af forystu Miðflokksins undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Það var einnig undir forystu hans sem leiðréttingarleiðin var farin og baráttan gegn talsmönnum vogunarsjóða. Eflaust kjósa sumir sjálfstæðismenn Miðflokkinn og munu trúlega gera áfram þar til forysta Sjálfstæðisflokksins hefur unnið heimavinnuna í peningamálunum.

Glæsileg kosning formannsins Sjálfstæðisflokksins á nýafstöðnum Landsfundi virðist ekki ná sama glæsileika í samstarfsríkisstjórn við sósíalista sem hafa forsætisráðherrann. 

Kannski þarf formaðurinn að leggja verulega hart að sér fyrir þau 3,8% atkvæða sem vantar upp á að jafna met glæsilegustu flokksforingjakosningu heims fyrr og síðar, þegar Kim Jong-un hlaut 100% atkvæða. 


mbl.is Styrmir skýtur á flokksforystuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn hefur bæði lært og einnig ekki lært af átökum þjóðarinnar við fjármálaglæpamenn

large_1472492814_xd-falki

Það er góð lesning og holl að fara yfir ályktun utanríkisnefndar Sjálfstæðisflokksins. Þegar í upphafi máls eru fyrstu tvö atriðin áminnig um tilgang og grundvöll sjálfstæðisstefnunnar:

"Meginmarkmið Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálum er:

  • að standa vörð um fullveldi þjóðarinnar,

  • að efla stjórnmálalegt og efnahagslegt sjálfstæði Íslendinga í samskiptum við útlönd".

Sjálfstæðisflokkurinn svíkur engann með þessum loforðum, stendur staðfastur á grundvelli flokksins frá upphafi sem í dag því miður er rík þörf fyrir vegna vaxandi upplausnarástands sem slær dökkum skýjum á himinn heimsmálanna.

"Viðskiptafrelsi er einn af hornsteinum utanríkisstefnu Íslands".

"Sjálfstæðisflokkurinn gerir verulegar athugasemdir við að tekin sé upp löggjöf í EES-samninginn sem felur í sér valdheimildir sem fellur utan ramma tveggja stoða kerfis samningsins." 

"Sjálfstæðisflokkurinn áréttar að hagsmunir Íslands séu best tryggðir með því að standa utan Evrópusambandsins".

Sjálfstæðisflokkurinn er bestur þegar hjarta flokksins og landsmanna slær í takt, Íslendingar vilja ráða málum sínum sjálfir og flokkurinn virðist vera að ná sér aftur eftir mistökin í fullveldisspurningu Icesavemálsins. Margar línur hafa skýrst síðan þjóðin tók þann slaginn og gott mál að flokkurinn áréttar grundvallarstefnu sjálfstæðis, frelsis og lýðræðis. Hins vegar slokknar sami andi sjálfstæðisstefnunnar í fjármála -og peningastefnunni. Engu orði minnst á glæpamennsku fjárjöfra sem sölsuðu bankakerfið undir sig og ollu þjóðarbúinu öllu skaðræðistjóni með athöfnum sínum. Það hljómar minnst sagt barnalega með þá reynslu í farangrinum að segja að "Stjórnvöld eiga að lýsa því yfir að bankar starfi á eigin ábyrgð, en ekki skattgreiðenda".

Hvílíkir endemis draumórar. Rétt eins og bankaeigendur fari allt í einu að fara eftir  yfirlýsingum stjórnvalda. Loforð bankakerfisins - og stjórnmálamanna- víða um Evrópu hljóma eins og aum lygi mannsins sem setti litað vatn á flösku og seldi sem allsherjarmeðal við lugnabólgu og magakveisum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur enga stefnu í peningamálum aðra en að viðhalda íslensku krónunni. Það er í sjálfu sér gott mál en hitt vekur furðu hversu treglega flokknum gengur að sjá og aðskilja glæpastarfsemi vogunarsjóða frá heilbrigðu efnahagslífi þjóðfélagsins. Yfirlýsingar um frjálsa samkeppni eru og verða marklausar þar til flokkurinn tekur upp baráttuna gegn svindlurum sem eru reiðubúnir að fórna heilum þjóðum fyrir vitfirrt veðmál í spilavítiskerfinu. Ef stjórnvöld vilja fá heilbrigða bankastarfsemi verður að banna eða a.m.k. aðskilja spilavítin frá raunefnahagskerfi landsmanna. 

Það er engu að síður full ástæða að óska flokknum til hamingju með nýafstaðinn landsfund og óska honum góðs gengis í framtíðinni. Flokkurinn hefur sýnt að hægt er að læra af mistökum og engin ástæða að ætla að annað verði í peningamálunum, þótt þreytandi sé að sjá hversu seinir menn eru til tiltekta. 


mbl.is Mat verði lagt á reynsluna af EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sambandssósíalisminn arftaki þjóðernissósíalismans

Úr þjóðernissósíalismanum hefur nýji sambandssósíalisminn sprottið. Sambandssósíalisminn traðkar niður lýðræðið, enginn er lýðræðislega kjörinn í miðstjórn sambandsins, þingið er valdalaust og setur engin lög heldur fær lagatillögur til umsagnar. Útrýma á þjóðum og steypa saman í "sambandið", grái massinn er aftur kominn í stað einstaklingsins.euro Lýðræðisleg öfl eru öll undir daglegum árásum og lítilsvirðingu, áróðursmaskínan talar um "öfga" hægri og popúlisma. Byggt hefur verið undir miðstjórnina (framkvæmdastjórn sambandsins) á sama grundvelli og gert var í ráðstjórnarríkjunum og enn sést í löndum eins og Kína, Norður-Kóreu og afdönkuðum einræðisríkjum í Afríku og miðausturlöndum.

Sambandssósíalistarnir Merkel og Makrón með stuðningi Schultz og fleiri láta slag standa og mynda enn eitt "sambandið" í sambandinu - skattasambandið. Bætist það við runu sambanda gjaldmiðils, orku, varnamála o.s.frv. öll með sameiginlegan sambandsfána, sambandssöng og sambandsdag.

Þótt allir viti að sambandssósíalistarnir séu að byggja upp alríki í stíl við gamla USSR, mátti ekki segja það hreint út fyrr en núna.

Makrón og Merkel vilja stórveldi. Tony Blair vill stórveldi. Ekkert er heilagt - síst friðurinn. Völdum skal náð með heimsstyrjöld ef ekki annað.

Lýðræðiselskandi fólk hefur verið dregið á asnaeyrum í áratugi. EES og EFTA eru notuð sem bakdyr til að leiða afgangslömbin til slátrunar.

Á Íslandi trónir sambandssósíalistinn Steingrímur J. Sigfússon á forsetastóli alþingis. Annar sambandssósíalistinn sem titlar sig borgarstjóra hefur dregið íbúa höfuðborgarinnar niður í holótt fátæktarsvaðið. Forsætisráðherra vinstri grænu framsóknarsjálfstæðismannastjórnarinnar styður þá báða.

EUSSR og Brusselher koma í stað USSR og Varsjárbandalags og "ný og betri" kjarnorkuvopn eru kynnt svo allir geta sagst vera klárir í úrslitaslaginn um völdin.

Ofurhetja sambandssósíalismans - kapten EURO - stjórnar.


mbl.is Friður ekki málið í dag heldur völd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arftaki Jóhönnustjórnarinnar talsmaður vogunarsjóða – svíkur tugi milljarða af skattgreiðendum

250px-Arnason-frontRæfildómur ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur hefur aðeins einn verri ræfildóm sem fyrirmynd í sögu íslenska lýðveldisins: Icesavestjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Sú hörmulega stjórn reyndi í þrígang að koma ólöglegum skuldaklafa á herðar Íslendinga. Undirlægjuhátturinn við menn, sem síðar voru dæmdir fyrir bankarán, átti sér engin takmörk og þurfti forsetinn að ræsa út þjóðina í tvígang til að koma í veg fyrir stórslys og hindra gjaldþrot landsins.

Eftir viðsnúning í varnarbaráttu við efnahagsglæpamenn vogunarsjóða kastar nú ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur frá sér sameiginlegum árangri landsmanna og hleypir inn vogunarsjóðunum til að hrifsa til sín arðgreiðslur og fé úr banka sem ríkið átti að koma í veg fyrir með stöðuleikasamningum. 

Hafa ber í huga þann skell sem Kaupþing olli íslenska ríkinu með gjaldþroti sínu, að ónefndum öllum öðrum kröfuhöfum innanlands sem utanlands. Þannig fékk Seðlabanki Íslands aldrei meira en rúmlega 50% endurheimtur á neyðarláninu upp á 500 milljónir evra eða 84 milljarða ísl króna þegar Kaupþing fór á hausinn. Þar byrjar ógæfan fyrir skattgreiðendur Íslands með ríflega 40 milljarða útleggi í kistu bankaræningjanna.

Sá maður sem leiddi þessar ófarir fyrir hönd ríkisins, Steingrímur J. Sigfússon, notaði allan tímann í embætti fjármálaráðherra til að ræna skattgreiðendur Íslands fyrir hönd vogunarsjóða. Fékk hann að hita upp ráðherrastólinn í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur gegn loforði um að koma Íslandi í Evrópusambandið þvert gegn kosningaloforði við kjósendur. Átti að fara grísku leiðina fyrst allra landa á Íslandi og fegra ESB sem "bjargvætti Íslendinga" með ESB-inngöngu og lánum í einum lygapakka. Innihald pakkans var að hirða allt eigulegt af Íslendingum, fiskimiðin og orkuna og komast yfir ríkisfyrirtæki eins og t.d. Landsvirkjun í leiðinni. Þessi meistari svikulla stjórnmála hitar nú sæti forseta alþingis og smitar af sér fúnu innræti á innviði stofnunarinnar.

Það getur engan veginn verið gleðiganga fyrir Bjarna "Bravó" Benediktsson að axla skikkju fyrirennarans en hann hefur núna sýnt frambærilegan metnað í listinni að hlunnfara skattgreiðendur landsins svo vogunarsjóðsmenn geta allir hrópað Bravó. Útkoman úr dæminu með "breiðu, stöðugu ríkisstjórnina" er - sýnir sig nú, stöðugleiki fyrir bankaræningja og breiðari grundvöllur til að hlunnfara þjóðina, en þrenging vegar fyrir þjóðina að vinna í eigin málum. 

Efnislegt svar við spurningum um raunverulegt verðmæti Arion banka eru ekki orðin "innihaldslaust blaður". Slíkt slær gegn fjármálaráðherranum sjálfum og svikum hans við skattgreiðendur í þessu máli. Hann getur ekki svarað hverjar raunverulegar eignir Arion banka eru og hlunnfer skattgreiðendur með röngu, allt of lágu bókfærðu viðmiði sem ekki tekur tillit til eigna undirfélaga eins og Valitors og Stefnis eins og alþingismaðurinn Birgir Þórarinsson bendir á.

1. Ríkið tapaði yfir 40 milljörðum á láni til Kaupþings: - 40 milljarðar

2. Eftir að ríkið selur sinn hluta byrja Ari Jón á því að gleðja hluthafana með arðgreiðslum mögulega upp á 25 milljarða ísl. kr. Ríkið missir þar af 3 milljörðum: - 3 milljarðar.

3. Eftir að möguleikar ríkisins hafa verið eyðilagðir til að koma í veg fyrir svindl vogunarsjóðanna að selja "gullegg" bankans trúlega á annað hundrað milljarða króna tapa skattgreiðendur milli 15-20 milljörðum vegna sölunnar og sennilega öðru eins i glötuðum skattatekjum. Að viðbættum glötuðum hlut eigin fés bankans um 23 milljarða gerir þetta samtals á milli 50-60 milljarða kr -55 milljarðar.

4. Ef umframverð fæst yfir lægstu viðmiðun 0,8 og afkomusamningur nýtist yfir 150 milljarða sölu, þá gerir það um 21-22 milljarða kr. + 22 milljarðar. 

- 98 milljarðar + 22 milljarðar = -76 milljarðar sem vogunarsjóðir taka í stað þess að þeim sé skilað til ríkissjóðs.

Fjármálaráðherrann er í skóm Vinstri Grænna og notar samning hrunstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur við vogunarsjóðina. 

Líklegast fær Bjarni Benediktsson "Bravó" orðu vogunarsjóðanna sem þökk fyrir vel unnin störf. 


mbl.is Segir þjónustu við vogunarsjóði í 1. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið meðsekt við undirbúning á "skeljasölu" Arionbanka

Gagnrýni Miðflokksins og annarra á ríkisstjórnina á fyllilega rétt á sér. Spurningin er hvort sala ríkisins í núverandi mynd standist lög. Salan gerir hrægömmum kleyft að framkvæma þekktan gjörning, þegar þeir fá 100% möguleika á að komast yfir verðmæti bankans til að selja í hagnaðarskyni og skilja tóma skelina eftir.

Á sænsku kallast slík fyrirtæki "skalbolag" og að skapa möguleika á slíkum viðskiptum getur varla verið samkvæmt lögum. Lög gilda í Svíþjóð um viðurværi við að selja félög á undirverði í skyni að komast hjá skattgreiðslum við sölu félagsins. Á seinna stigi er fé eða eignir félagsins selt á hámarksvirði og skelin skilin eftir. 

Það sem gerir sölu ríkisins á Arion banka svo alvarlega, er að það er sjálft ríkið og kjörnir embættismenn sem standa að sölu á fyrsta stigi með því að selja bankann á verði sem engan veginn tekur yfir eignirnar sem í bankanum eru. Það er einnig alvarlegt í málinu að kaupendur verða ónafngreindir erlendir aðilar og ólíklegt að þeir greiði skatta af hagnaði við sölu innanmetis bankans, þegar þeir komast yfir verðmætin í bankanum.

Þess vegna er samningurinn sem fjármálaráðherrann básúnaði út á þingi sem "góðu fréttirnar" skot út í bláinn, því hann tekur ekki yfir sölu vogunarsjóðanna á verðmætum Arion banka eftir að ríkið hefur selt sinn hlut. 

Bjarni Benediktsson ætti nú að vita betur, sjálfur menntaður í verðbréfafræðum. Eða notar hann kannski þekkingu sína til að aðstoða skjólstæðinga sína í vogunarsjóðunum?


mbl.is „Innihaldslaust blaður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband