Til hamingju Íslendingar með aldarafmælið

45999059_2375311675829646_4880850390507061248_oÞað ríkir gleði í hjarta yfir 100 ára afmæli fullveldisins í dag 1. desember 2018. Í Stokkhólmi söfnuðust yfir 150 Íslendingar og Svíar í Menningarhúsi borgarinnar 15. nóv. s.l. til að halda upp á afmælið í boði sendiráðs Íslands, Norræna félagsins og Menningarhússins. Estrid Brekkan sendiherra Íslands ávarpaði samkomuna og lýsti aðdraganda og stofnun fullveldisins. Bjarni Thorsson og Bára Lyngdal lýstu reynslu sinni af aðlögun Íslendings að sænskum siðum sem fékk marga til að brosa og Ari Þorsteinsson gerði samanburð á íslenskum og sænskum kvikmyndum. Að auki sungu Stína Ágústsdóttir og Marína Ósk jazzaðar útfærslur norrænna jólalaga við góðar undirtektir.

Fullveldið er mikilvægasta fjöregg hverrar þjóðar. Grundvöllurinn að sjálfstæði þjóðarinnar. Sjálfstæð þjóð er sem fullgildur fullorðinn og ber ábyrgð á eigin orðum og gjörðum. Ekki í ánauð neins annars og tekur eigin ákvarðanir um framtíð og örlög sín. Frjáls þjóð.

Ófriðsamlegt heimsástand

Það er sérstaklega aðkallandi í vopnaglamrandi heimi, að vopnlaus örþjóð á eyju í Norður-Atlantshafi haldi sér undan, þegar "stóru strákarnir" fara að yggla brýrnar. 

Pútín og Xi Jinping í austri, Juncker í Evrópu, bin Salman, al-Assad og Rouhani í Miðausturlöndum og marga fleiri mætti upp telja í röðum þeirra sem krefjast stærri landssvæða, meira valds og beygja bæði erlend ríki sem eigin þegna undir vilja sinn. Í dag því miður í skjóli hers og sprengjukrafts. 

Germanía hefur náð fyrri styrk og stjórnar á meginlandinu

Þýzkaland hefur endurreist fyrri ægishjálm yfir öðrum þjóðum í Evrópu og aðeins tímaspursmál, þar til einstök ríki ESB ganga í eina sæng með Þjóðverjum og mynda stórríkið. Þá vantar ekkert nema nýjan brjálæðing til að skapa DEJA VU seinni heimsstyrjaldarinnar, því Þjóðverjar munu byggja upp hernaðarmátt sinn að nýju gegnum ESB og sniðganga þannig samningana í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. 

Efnahagshrun ýtir undir hernaðarbrölt

Efnahagur heimsins hefur enn ekki náð sér eftir Lehman Bræður og sök AGS, Seðlabanka Bandaríkjanna og Evrópusambandsins er stór. Á nákvæmlega sama hátt og fyrir "kreppuna miklu" en með nýrri tækni hefur innistæðilausum peningum verið fleygt yfir fjármálamarkaði um árabil til að seðja mestu fjárgirndina. En Mammon er óseðjanlegur guð svo nýs fjármálahruns er að vænta. Verða seðlabankarnir krafnir reikningsskila á bókfærðu eigin fé verður hrunið botnlaust.

Hvað gera Íslendingar ef stríðið kemur? 

Á stríðstímum er eldur og stál að baki fullveldi. Ísland hefur sögur og tungumál sem fuðra upp með fullveldinu í stórveldaátökum. Kjörnir alþingismenn ættu frekar að hyggja að stefnu Íslands ef til stórstyrjaldar dregur en ræða útlit hvers annars og nota alþingissali fyrir auglýsingamyndatökur. 

Í valinu milli austurs og vestur hefur ekkert breyst. Ef Íslendingar halla sér að austrinu fer illa. Lýðræði og frelsi fullvalda þjóða er vegur Íslands. Í dag sem fyrr borið uppi af Bretum og Bandaríkjamönnum.

Fyrir titrandi smáblóm sem tilbiður guð sinn er vegferðin vandasöm og verður ekki rötuð með kjörnum embættismönnum sem taka eigin skammtíma hag fram yfir velferð þjóðarinnar.

"Klausturfóbían" getur hjálpað Alþingi og þjóðinni

Eftir einkasamkomu sex þingmanna á Klausturbar standa kröfurnar skýrari til kjörinna embættismanna, að þeir fari ekki yfir mörk almenns velsæmis. Fyrir þá þingmenn sem "staðnir voru að verki" hefur atburðurinn gjörbreytt og rústað lífum einhverra þeirra. Allir sem þekkja til ofneysluvandamála, vita hversu ömurlegt það er fyrir viðkomandi að þurfa að treysta á frásögn annarra daginn eftir þegar minnið svíkur. Að vera drekkt í slíkum frásögnum af óvönduðum miðlum stjórnmálaandstæðinga var að sjálfsögðu ekki það sem þingmennirnir ætluðu sér, þegar þeir ákváðu að hittast á barnum.

Í Reykjavíkurbréfi dagsins skrifar höfundur: "Á Íslandi fórnaði "litli sómamaðurinn" sér í þetta. Hann sagði sjálfur að af þessum sex, sem töluðu svo hátt við borð, hefði hann aðeins þekkt einn í sjón, Sigmund Davíð. Hann ákvað þó að taka upp fjögurra klukkutíma spjall þingmannsins við, þess vegna fimm almenna borgara, sem hann hafði ekki hugmynd um hverjir væru! Er það virkilega? Er það þess vegna sem hann vill ekki láta nafngreina sig?"

Höfundur bréfsins hefur sjálfur þurft að taka við ómældum lygaáróðri og verið ranglega borinn sökum á misgjörðum annarra. T.d. var ráðist að heimili hans og fjölskyldu og sjálfsagt hefur líf hans á einhverju augnabliki verið raunverulega í hættu. Öryggisgæsla lýðræðislega kjörinna embættismanna er ofarlega á blöðum nágrannaríkjanna og full ástæða fyrir íslenska lýðveldið að huga betur að þeim málum. Saklaus sími - í þessu tilviki notaður sem upptökutæki - gæti í öðrum og verri tilgangi verið sprengja. Þessum raunveruleika ættu Íslendingar að gefa gaum vegna eftirlitslausra ferða "sómamanna" til landsins.

Ég fyrirgef þessum þingmönnum, hef sjálfur átt góð samtöl við þrjá þeirra og styð að sjálfsögðu björg til sjálfsbjargar. Þeir þurfa allir að greiða hátt persónulegt verð fyrir Klausturferðina. 

Að lokum

Ég óska sjálfum mér og öðrum Íslendingum til hamingju með fullveldið og er þess fullviss, að þjóðin á í fórum sínum stjórnmálaleiðtoga sem geta staðið í fæturna og stýrt skútunni í þeim ólgusjó heimsmálanna sem er framundan.


mbl.is Hefði átt að stöðva samsætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsmark stjórnarandstöðunnar

Skärmavbild 2018-11-30 kl. 08.51.58Ekki er það stjórnmálunum til sæmdar né eykur virðingu Alþingis, að sex stjórnarandstöðuþingmenn láta hanka sig í Klausturför. Að þingmenn yfirleitt drekki sig svo ölvaða á krá samhliða þingfundi, að þeir þurfi næsta dag að gefa út opinbera yfirlýsingu þess efnis, að ekkert sé að marka það sem náðist af Klausturræðum þeirra á band eða barst til eyrna annarra kráargesta.  

Opinber afsökun sexmenninganna bendir til dómgreindarleysis sem gefur hreyfingum eins og Me Too byr undir vængi. Það er ótrúlegt að þingmennirnir hafi gefið slíkan höggstað á sér með óvæntu en kærkomnu sjálfsmarki fyrir stjórnmálaandstæðinga þeirra. 

Það er að sjálfsögðu ljótur leikur að banda inn í leyfisleysi samtöl annarra án vitundar viðkomandi. Hins vegar gildir ekki það sama um lýðræðiskjörna þingmenn og aðra borgara, að þeir geti leyft sér niðurlægjandi orðbragð um menn og málefni. Með tækni nútímans eru allir með ljósmynda- og upptökuvél á símum sínum og hægur leikur að skrá það sem fer fram í umhverfinu. Þingmenn frekar en aðrir verða að gæta virðingu sinnar. Þeim ber skylda til að sýna sjálfum sér, fjölskyldum sínum og kjósendum þá lágmarksvirðingu, að þeir taki störfin alvarlega og vinni af heilindum. 

Klausturför sexmenninganna hefur eyðilagt fyrir þeim og kjósendum þeirra að mark verði tekið á málefnum flokka þeirra. Það eru ekki hneykslismál af þessu tagi sem vantaði í stjórnmálaumræðuna núna. Hversu alvarlegar afleiðingar Klausturförin hefur á afkomu Miðflokksins og Flokks fólksins er erfitt að meta á þessarri stundu en ljóst er að afsökunarbeiðni dugir skammt. Hún er beinlínis sönnun á vanhæfni einstaklinganna að gegna þingmennsku.


mbl.is Segir ummælin vera hatursorðræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja Rússar heimsstyrjöld?

A-Russian-cargo-ship-is-blocking-Ukrainian-access-to-the-Sea-of-Azov-near-Crimea-1617406Að Úkraína lýsir yfir herlögum er þeirra eigin frjálsa ákvörðun. Pútín og Rússland hafa ekkert með ákvarðanir Úkraínu að gera. Keisari Rússlands vill endurheimta Sovétveldið og hefur brytjað sundur Úkraínu fyrir þau markmið. Mörg fyrirtæki er þjóna kjarnorkuiðnaði og herveldi Rússlands er að finna í austurhluta Úkraínu sem Rússland hefur hernumið.

Farið er að gæta taugabilunar í framkomu rússneska hersins sem farinn er að hafa sig frammi t.d. á Eystrarsalti á meiri ógnvekjandi hátt en áður. Hvað eftir annað fljúga rússneskar herþotur í allt að 100 m fjarlægð frá freigátum NATO á alþjóðasiglingaleiðum. Nýverið þurfti sænski flugherinn að senda upp flugvélar á eftir rússneskum herþotum sem flugu með virkum sprengjum aðeins nokkur hundruð metra yfir belgískri freigátu á Eystrarsalti. Áður hafa þotur Rússa ekki verið með skarpar sprengjur eins og núna. Mörg eru dæmin um að rússneskar þotur hafa rofið lofthelgi Svía og fyrir nokkrum árum æfðu rússneskar sprengjuþotur sprengjuárásir á Stokkhólm og Gotland.

Á sama tíma og Rússar hertaka úkraínsk skip, senda þeir hvorki meira né minna en 17 sprengjum hlaðnar herþotur frá Krímskaga út á Svarta hafið gegn bresku Nató skipi. Samtímis hinum megin á hnettinum skjóta Rússar eldflaug frá nýrri gerð herskipa sinna á Japanshafi og auka enn frekar á spennuna í þeim heimshluta í bandalagi við Kínverja.  

Stríðið í Úkraínu getur blossað upp í heimsstyrjaldarátök hvenær sem er. Að Rússar skjóta á, særa og hertaka Úkraínumenn á alþjóða siglingaleið er ófyrirgefanlegt og áframhald á útvíkkunarstefnu Rússa. Rússar hafa fyrir löngu brotið loforðið um að víkka ekki út veldi sitt með vopnum á nágrannaþjóðir. Þeir virða að engu lögsögu annarra ríkja, þegar það passar þeim.

Pútín hefur við engan annan að sakast en sjálfan sig. En hann má passa sig. NATÓ er sem betur fer ekkert lamb að leika við.


mbl.is Pútín ekki sáttur við herlögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No way Mrs. May!

ck2qw_fxiaa5_miHræsnin flæðir úr börmum miðborgar Evrópusambandsins Brussel. Úr stútfullum tárakirtlum  búrókratanna beljast krókódílatárin eins og dagurinn í dag sé síðasta dagur mannkyns: "Ekki hægt að skála í kampavíni. Dökkur dagur fyrir Evrópu - ein þjóð að fara úr ESB." Væl Brusselhýenunnar heyrist um allan heim. "Æ, æ, vondu Bretarnir eru að fara, sjáið hvað þeir fara illa með mig." 

Hvílíkt háð! "Samningurinn" er hnífur í hjarta brezku þjóðarsálarinnar og Juncker snýr skaftinu á frönsku. Það sem heiminum er sagt að sé "samningur aldarinnar" er fullkominn ósigur Breta sem eiga að greiða um 40 milljarði punda fyrir áframhaldandi lögsögu ESB yfir Bretlandi. Bretar eru niðurlægðir og áfram dregnir á asnaeyrunum. Bréf Theresu May flytur ósannindi um að Bretar fái að ráða sínum málum sjálfir.

Heyr, heyr segir Macron og hótar frönskum herskipum til verndar ránveiðum franskra skipa á Ermasundi.

Heyr, heyr segir Spánarkonungur, sem fær lögsöguvald yfir Gíbraltar afhent á silfurfati og getur byrjað að stinga leiðtogum Gíbraltar í fangaklefa með leiðtogum Katalóníu.

Ekkert breytist. Bretar verða áfram í ESB 2 ár í viðbót með 2 ára viðbótarframlengingu eftir það. ESB fær áfram peningargreiðslur eins og Bretar séu áfram aðilar að ESB. 

Í ár verður sýning samhliða Nóbelveizlunni - atkvæðagreiðsla brezka þingsins um "samning aldarinnar." Með áhlaupi í nafni 27 aðildarríkja ESB mun Bretum verða sagt að þeir "fari til helvítis" samþykki þeir ekki samninginn. Að endalokin "verði verri en þeirra sem lentu undir öskunni í Pompei" ef þeir dirfast að segja nej. Með öðrum orðum Icesave-áróður í ómælanlegri stærð.

En 27 eru engir alvöru 27 sbr. Pexit, Swexit, Frexit, Ítexit, Nexit, Grexit, Fixit o.s.frv. Og Bretar eru Bretar með góðan grunn að Brexit. WTO kallast hann. Alþjóðaviðskiptasamningur sem var til löngu áður en Þjóðverjar klæddust dulargerfi bláfánans og trixuðu aðra með sér í pulsuferðalagið með því misheppnaða markmiði: Ein reich, ein volk.....

 


mbl.is May biður þjóðina um stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkel hvetur aðildarríkin til að "afsala sér sjálfsákvörðunarréttinum til ESB"

Skärmavbild 2018-11-23 kl. 16.58.07Í ræðu á athöfn Konrad Adenhauer stofnunarinnar í Berlín í vikunni sagði Angela Merkel kanslari Þýzkalands, að þjóðþing aðildarríkja ESB ættu formlega að veita ESB yfirráð yfir ríkjum sambandsins. Frá þessu greinir þýzki fréttamiðillinn Welt.

Í erindi með titlinum "Þingræði milli alþjóðavæðingar og þjóðlegs sjálfsákvörðunarréttar" sagði Merkel, að "tíminn væri nú kominn fyrir þjóðríkin að afsala sér sjálfsákvörðunarréttinum". 

Merkel sagði að "þau lönd sem teldu að þau gætu leyst málin sjálf aðhylltust einfaldlega þjóðernisstefnu í stað ættjarðarástar, þar sem þau hugsuðu einungis um sig sjálf...Það er þjóðernisstefnan í sinni skýrustu mynd."

"Ættjarðarást er að þú getir tekið aðra með inn í þýzka hagsmuni, þar sem allir hagnast". (leturbr mín GS)

Í ræðunni hyllti hún fjölmenningarstefnu Sameinuðu þjóðanna í málefnum farandsfólks og innflytjenda sem á að samþykkja í Marókkó 10. des. n.k. Fjöldamörg ríki neita að skrifa undir "sjálfsmorðssamninginn" t.d. Swiss, Bandaríkin, Ísrael, Pólland, Austurríki, Eistland, Ungverjaland, Búlgaría, Tékkaland og Króatía. Svíþjóð og mögulega Noregur og Ísland ætla að skrifa undir samninginn sem er af sumum talinn vera framhald kommúnistaávarpsins, þar sem stefnt er að því að leysa upp þjóðríki í þeirri mynd sem við þekkjum.

Utanríkisráðherra Ungverjalands Péter Szijjártó sagði í ræðu að ekki væri hægt að byggja framtíð Evrópu á "ólöglegum fjöldainnflutningi" og hliðarsamfélögum í úthverfum. Ungverjar vilja endurreisa öryggi Evrópubúa og þjóðleg auðkenni.

Er ríkisstjórn Íslands reiðubúin að taka skref þriðja orkupakkans fullt út og fylgja fyrirmælum Merkels?


Mæður fórnarlamba krefjast aðgerða stjórnvalda

Skärmavbild 2018-11-18 kl. 20.51.02Mæður fórnalamba minntust þeirra 120 drengja og ungra manna sem drepnir hafa verið í skotbardögum í Svíþjóð síðan 2015. Þúsundir ættingjar, vinir og vandamenn og aðrir stuðningsmenn söfnuðust á útifundi á Sergelstorgi í Stokkhólmi í gær. Mæður nokkurra fórnarlambanna héldu ræðu til að vekja athygli yfirvalda á því ófremdarástandi sem ríkir í Svíþjóð, ógnaröld vopnaðra glæpahópa sem hafa heilu svæðin á valdi sínu. Kveikt var á kertaljósum.


Skärmavbild 2018-11-18 kl. 20.46.03Margir saklausir hafa verið skotnir fyrir það eitt að hafa verið á röngum stað á röngum tíma. Móðir eins drengsins sagði að fólk yrði að skilja að allir sem væru drepnir í skotbardögum væru ekki ófreskjur eða glæpamenn. Ekki væri hægt að ypta öxlum yfir því. Ung systir einna þeirra myrtu sagðist ekki vilja að líf eldri bróður hennar hyrfi í gleymskuna sem tala í opinberum skýrslum um glæpaverk í Svíþjóð.

Skärmavbild 2018-11-18 kl. 20.55.50Aðrir viðstaddir sögðu við sænska sjónvarpið í gærkvöldi að "ástandið í Svíþjóð væri hræðilegt, að við skulum þurfa að halda svona mótmælafund." Vonir aðstandenda fórnarlambanna eru að stjórnmálamenn opni augun fyrir vandanum og byrji að aðhafast eitthvað í málunum."

Ekkert lát er á hagvexti glæpaklíka í Svíþjóð sem tóku þrjú líf til viðbótar í síðustu viku. 


Brexit: Ef formaðurinn skiptir ekki um stefnu skiptum við um formann

Skärmavbild 2018-11-18 kl. 09.59.22Vikan framundan ræður úrslitum um stjórnmálaferil Theresu May forsætisráðherra Bretlands. Á miðvikudaginn mun þrautreynt að fá botn í Brexit samninginn. Daginn eftir gæti farið fram atkvæðagreiðsla um vantraust á leiðtoga Íhaldsflokksins og þá mun framtíð May ráðast.

Nigel Farage kallar samninginn þann versta í sögunni: "Við gefum burtu 40 milljarði punda og fáum ekkert í staðinn. Við erum fangar í reglubók sambandsins áfram með frjálsar ferðir og erlend dómsyfirvöld og stjórn á landi okkar.....Í smáa letrinu hafa búrókratarnir skrifað að við munum fylgja reglum ESB fram til 2030 í viðskiptasamningum. Ég óska að ég hefði verið að búa þetta til! En ég geri það ekki. Við getum með öðrum orðum gleymt viðskiptasamningum við Bandaríkin og önnur lönd."

Sunday Express hefur eftir heimildum að Boris Johnson og David Davids hefðu nýverið fundað til að ákveða hvor þeirra yrði "Brexit frambjóðandinn" í atkvæðagreiðslu um formann Íhaldsflokksins. Skoðanakannanir sýna lækkandi fylgi Íhaldsflokksins á meðan Sjálfstæðisflokkurinn og Verkamannaflokkurinn fá byr undir vængi. 

Í góðu Reykjavíkurbréfi um Brexit skrifar höfundur: "Michael Portillo, fyrrverandi varnarmálaráðherra Breta, var um skeið talinn helsta foringjaefni Íhaldsmanna. Hann sagðist í gær telja framgöngu forystumanna Evrópusambandsins í garð þjóðar, sem vildi ekki annað en að nýta meintan rétt sinn til að ganga úr ESB, vera stórkostleg mistök: ESB náði því fram að niðurlægja Bretland eins mikið með þessum samningi eins og nokkur kostur hefði verið á. 

Það eina sem þeir áttu eftir, sagði Portillo, var að reka Theresu May inn í lestarvagninn fræga í Compiégne skógi (þar sem Þjóðverjar undirrituðu uppgjöf veturinn 1918 og Hitler lét Frakka undirrita sína uppgjöf).
Og Portillo bætti við: „Og sagan segir okkur með afgerandi hætti að geti menn ekki stillt sig um að niðurlægja þjóð með slíkum hætti, þá mun sú atburðarás enda mjög illa.“
Það kæmi ekki á óvart þótt sögunni skjátlaðist ekki nú í þessum efnum frekar en fyrri daginn."

Við þetta ofurveldi halda svo ýmsir stjórnmálamenn í smáþjóð í Atlantshafi að þeir geti samið við á jafnréttisgrundvelli!


Kjósendum bókstaflega fleygt í ruslatunnuna - ekki lengur áhugaverðir

46296218_1163018460541061_4704666017366802432_nÞannig byrjar pistill dagsins hjá Lottu Gröning, Expressen. Hún skrifar að "sjö flokkar hafa málað sig útí horn og eiga enga heiðarlega leið út, þar sem þeir völdu að hunsa Svíþjóðardemókrata og kjósendur þeirra. Flokkarnir kusu einnig að setja lýðræðið úr leik með því að tala ekki við lýðræðiskjörna stjórnmálamenn sem hafa verið kjörnir á þing með aðrar skoðanir. Samtímis stimpla flokkarnir kjósendur SD sem rasista og það augljóslega gegn betri vitund. Margir af kjósendum Svíþjóðardemókrata eru æfareiðir og fyrirlitning á stjórnmálamönnum flæðir yfir barmana."

"Ég syrgi lýðræðið okkar. Við ættum að kveikja á kerti og minnast þeirra gríðarlegu fórna sem fólk hefur fært til þess að koma okkur hingað."

"Það versta er, að flokkarnir sjö sem ekki vilja ræða við þann áttunda, grafa sína eigin gröf. Þeir byggja upp samfélag valdníðslu. Er það þannig sem við eigum að bregðast við í daglega lífinu á vinnustöðum og í skólum ef einhver hefur skoðun sem okkur líkar ekki? Að ræða ekki við viðkomandi persónu heldur venda spori, ganga burtu fullviss um að við höfum sigrað rasista!"


Gengu gegn eigin forsætisráðherraefni

Skärmavbild 2018-11-14 kl. 11.38.49Ítarlegt viðtal við talmanninn í Morgunblaðinu í dag. Hann útskýrir baksvið stjórnmálaátakanna í Svíþjóð, bæði frá sögulegu sjónarhorni og einnig út frá sænsku stjórnarskránni. Hvet alla að lesa þetta upplýsandi viðtal og ég þakka talmanninum fyrir að taka sér tíma mitt í orrahríðinni.

Mér fannst merkilegt að vitna sögulega atkvæðagreiðslu sænska þingsins í beinni útsendingu í morgun og sjá tvo af flokkum Alliansen/hægri blokkarinnar greiða atkvæði gegn eigin forsætisráðaherraefni. Alla kosningabaráttuna sögðu bæði Miðflokkurinn og Frjálslyndir, að þeir vildu verða hluti af ríkisstjórn hægri bandalagsins en þegar greidd voru atkvæði um Ulf Kristersson formann Móderata sem næsta forsætisráðherra Svíþjóðar féll hann á mótatkvæðum "vina" sinna. Sögðu leiðtogar Miðflokksins og Frjálslyndra að þau væru að stöðva áhrif Svíþjóðardemókrata á þinginu með atkvæðum sínum. 

Allir 349 þingmenn voru viðstaddir sem er óvenjulegt við atkvæðagreiðslu. Jimmy Åkesson formaður Svíþjóðardemókrata sagði, að Svíþjóð skæri sig frá öðrum vestrænum þjóðum þótt þróunin færi í sömu átt. Sagði hann, að þingmenn hefðu talað í tvo mánuði hverjir við aðra að undanskildum Svíþjóðardemókrötum. Benti hann á að rúm milljón Svíar kusu Svíþjóðardemókrata. Líkti hann þinginu við sandkassa og hvatti þingmenn til að taka sig saman í andlitinu og virða vilja kjósenda og fara að tala við sig, hann hefði engar aðra kröfu en að stefna Svíþjóðardemókrata næði fram í hlutfalli við vilja kjósenda.

Gremjan er óheyrileg hjá hægri mönnum í dag við svikum miðflokksins og frjálslyndra og spurning hvort lengur sé hægt að tala um bandalag. Telja margir að Annie Lööf formaður Miðflokksins sækist sjálf eftir forsætisráðherrastólnum en talmaðurinn mun kynna framhald mála á morgun.

Ulf Kristersson formaður Móderata sagði að Svíþjóð hefði tekið eitt skref nær aukakosningum. Ef til þeirra kemur munu Svíþjóðardemókratar stórauka fylgið. Trúlega mynda kratar bandalag með Miðflokknum og frjálslyndum til að koma í veg fyrir að slíkt gerist og þá er ekki víst að Annie Lööf fái að vera forsætisráðherra. Stefan Löfven er frekar plássfrekur.


mbl.is Hafna tilnefningu Kristersson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frímerkjasafnarar helstu óvinir "Framsóknarflokksins"

Unknown-1Nú mega frímerkjasafnarar fara að gæta sín. Heiftuleg stefna nýframsóknar er að niðurlægja frímerkjasöfnun landsmanna.

Sjálfsagt þolir Framsóknarflokkurinn illa frímerki með mynd af íslenska þjóðfánanum, alþingishúsinu, fjallkonunni og skjaldarmerkinu. Hvað þá nú ef Icesave-baráttumenn þjóðarinnar verða beislaðir í frímerkjaformi.

Spæling Silju Daggar er þvílík yfir föstu skoti fv. forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á ríkisstjórnina að hún telur það Sigmundi til lasts að safna frímerkjum. Samtímis veitir hún Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni æðstu hreystiorðu nútímans - popúlistaorðunni. Með í bandi fylgir titillinn einræðisherra.

Ekki skýjum hulið að formaður Miðflokksins er ógnvaldur þeirrar ríkisstjórnar sem tókst í uppnámi alþjóðlegrar árásar á Ísland að tjasla sér saman með ESB til að bjarga eigin skinni frá áframhaldandi sjálfstæðisbaráttu og frelsi þjóðarinnar úr greipum hrægamma. 

Úr þessum hól er orðið popúlisti heiðursnafnbót og vert að óska Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni til hamingju með titilinn.

Ég mun einnig senda honum dæmi af öllum þeim frímerkjum sem eiginkona mín hefur hannað fyrir Svía gegnum árin. Frímerkjasöfnun er góð tómstundaiðja og sérkennilega fáheyrt dæmi um stjórnmálalegt andleysi að tala niður slíkan góða sið.  


mbl.is „Stórskotahríð úr glerhýsi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband