Til hamingju með heiðurinn Kári Stefánsson

Skärmavbild 2019-05-03 kl. 08.03.01Það voru góðar fréttir að Kára Stefánssyni hlotnaðist sá mikli heiður að vera kjörinn í bandarísku vísindaakademíuna. Tilnefningin sýnir hversu afburðamiklum árangri Kári hefur náð með þrotlausu starfi sínu í læknavísindum alla ævi sína.

Ég kynntist Kára á menntaskólaárunum og brölluðum við ýmislegt saman þá. Kári Stefánsson á miklar þakkir skildar fyrir framlög til heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi. Hann er maður stórra markmiða – og framkvæmda og gætu margir lært af dugnaði hans. 

Ég samgleðst með þjóðinni yfir tilnefningu Kára og óska honum til hamingju með þennan einstaka heiður.


mbl.is Kjörinn í bandarísku vísindaakademíuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband