Heyr, Heyr Tómas Ingi – sækjum fram í stað þess að hörfa!

Tómas Ingi Olrich skrifar stefnumótandi grein í olrichMbl. í dag um orkupakkann. Fer hann þar vandlega yfir rök með og á móti innleiðingu þriðja orkupakkans og kemst að þeirri niðurstöðu að stökkbreyting hafi orðið á þingflokki Sjálfstæðisflokksins í kjölfar skýrslu Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hist. Leiðin sem þingflokkur Sjálfstæðsiflokksins hafi valið sé undahald sem ekki sé lengur hægt að segja að sé skipulagt. Bendir Tómas á þá einföldu staðreynd að samningsaðili Íslands, ESB, sé pólitísk stofnun en ekki einhver venjuleg alþjóðastofnun:

"ESB er póli­tísk stofn­un, tolla­banda­lag, sem hef­ur lengi velkst í vafa um hvort það eigi að stefna í átt til einn­ar rík­is­heild­ar eða ekki. Sú umræða er enn óút­kljáð. Í nokkr­um rykkj­um hef­ur þó ESB þró­ast í átt til auk­ins miðstjórn­ar­valds. Orku­til­skip­an­ir ESB eru hluti af þess­ari þróun." 

Segir hann mun á að gera samning við ríki og alþjóðastofnun og hafnar ruglingi á þessu tvennu. Þetta er einmitt kjarni þeirrar áhyggju sem flestir þeir sem eru andsnúnir innleiðingu þriðja orkupakkans hafa, að menn vilja ekki láta erlent vald taka ákvarðinir fyrir okkur Íslendinga. Þar eigum við sjálf að ráða eigin málum og örlögum okkar. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins þegja meðvitað um þennan þátt mála og neita að ræða hann, þótt það sé sjálfur kjarni gagnrýninnar.

Tómas skrifar: "Þegar fræðimenn hug­leiða stöðu Íslands gagn­vart um­heim­in­um, sjálf­stæði þjóðar­inn­ar og það svig­rúm sem stjórn­ar­skrá lýðveld­is­ins veit­ir eða veit­ir ekki til að færa vald­heim­ild­ir und­an stjórn­völd­um, þá hlýt­ur að skipta máli, hvort slíkt af­sal valds er til viður­kenndr­ar alþjóðlegr­ar stofn­un­ar, ell­egar til ann­ars rík­is, eða póli­tísks bræðings á borð við ESB. Evr­ópu­sam­bandið vík­ur til hliðar flest­um viðmiðum sem til­tek­in eru sem grund­völl­ur lýðræðis­ríkja. Það hlýt­ur því að vera sér­stök ástæða til að vanda til at­hug­un­ar á því hvort ís­lenska stjórn­ar­skrá­in veit­ir yf­ir­leitt nokkuð svig­rúm til valda­afsals til ann­ars rík­is eða fjölþjóðlegs tolla­banda­lags, sem hag­ar sér að flestu leyti sem ígildi rík­is."

Um umræðuna skrifar Tómas: "Þess er með ýms­um hætti freistað að gera lítið úr mál­flutn­ingi þeirra sjálf­stæðismanna, sem vara við því að samþykkja þriðja orkupakk­ann. Það vek­ur hins veg­ar at­hygli hve mik­il þögn rík­ir af hálfu for­ystu flokks­ins um fögnuð þeirra, sem klufu Sjálf­stæðis­flokk­inn vegna and­stöðu hans við inn­göngu í ESB. Þó ganga þess­ir síðast­nefndu lengst í að bera lof á Sjálf­stæðis­flokk­inn fyr­ir fram­göngu hans í mál­inu og lofa full­um stuðningi við af­greiðslu orkupakk­ans."

Lokaorð Tómasar: "Það er sann­ar­lega kom­inn tími til að Íslend­ing­ar sæki fram í stað þess að hörfa. Það er mik­ill mis­skiln­ing­ur að það skapi okk­ur skjól og auki virðingu viðsemj­enda okk­ar að hörfa sí­fellt og fara með veggj­um, hlýðnir og auðmjúk­ir. Það hlut­verk var okk­ur ætlað í Ices­a­ve-mál­inu. Það vannst vegna þess að ein­arður mál­flutn­ing­ur fór fram gegn upp­gjöf rík­is­stjórn­ar Jó­hönnu Sig­urðardótt­ur og for­set­inn vísaði mál­inu til þjóðar­inn­ar."

Heyr, Heyr! Við þetta er engu að bæta. Nú er bara fyrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að velja hvort þeir vilji ganga til sögunnar sem aflinu sem tókst að þræla flokknum niður í 12% atkvæðamörk eða hvort þeir vilja vera menn með meiru og viðurkenna þann einfalda hlut sem Tómas bendir á að ESB er stjórnmálastofnun með ríkismarkmið en ekki venjuleg alþjóðastofnun. Þetta sjá allir nema þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem virðast vera ómeðvitaðir um að fram fara ESB-þingkosningar 26. maí n.k.

Annars er örugglega til pláss fyrir ráðherra og orkupakkaþingmenn Sjálfstæðisflokksins í ESB-flokkum og ættu þeir þá að sækja um inngöngu í Viðreisn eða Samfylkingu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er tilhneiging í dag til að brengla hugtökum þannig að eitt sýnist annað en það er. Tómas Ingi tekur hælkrók á að ESB sé alþjóðastofnun sem hægt sé að valsa inn og út úr að geðþótta. Hann á þakkir skildar fyrir að afhjúpa blekkinguna.

Brexit er talandi dæmi um hvernig stórveldi tekur á stroku-þjóðum. Hins vegar segir frétt á RÚV í dag okkur hvernig þjóðir hætta þátttöku í alþjóðastofnunum. Þar segir að Trump forseti ætli að draga BNA út úr vopnaviðskiptasáttmála SÞ og muni senda tilkynningu um það til SÞ innan skamms. Ástæðuna segir hann:

(..) að undir sinni stjórn eigi Bandaríkin aldrei eftir að gefa sjálfstæði sitt eftir til neins. Hann ætli ekki að láta erlenda kerfiskarla troða á frelsinu sem fylgir öðrum viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna.

Svona einfalt.

Nú getur hver spurt sig hvor leiðin verður okkur fær ef við iðrumst samþykkis orkupakkans. Leið Brexit eða leið BNA? 

Ragnhildur Kolka, 27.4.2019 kl. 15:15

2 Smámynd: Haukur Árnason

Takk Gústaf fyrir góðan pistil,um góða grein Tómasar Inga.

Var að skoða í bókakassa, það var ein sem heitir Ögnstræti eftir Louise Doughty, þýdd af Bjarna Jónssyni.
Hún, bókin er tileinkuð þeim sem vita að ekki er allt sem sýnist.
Í tilefni af ástandinu í þjóðfélaginu fannst mér þetta passa.

Haukur Árnason, 27.4.2019 kl. 15:46

3 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Kærar þakkir Ragnhildur og Haukur, svo sannarlega á Tómas Ingi þakkir skildar fyrir þessa afhjúpun, þetta er líka kjarni málsins í viðskiptum að ekki er hægt að kalla þau frjáls ef þú selur bílinn þinn að nýji bílaeigandinn fái lyklavald yfir húsi þínu í leiðinni. Trump Bandaríkjaforseti er að koma með ljósið inn með fullri vörn sjálfstæðis og sjálfsákvörðunarrétts BNA sem allir geta tekið sér til fyrirmyndar. Því miður hefur vopnlausa örríkið okkar ekkert að gera í ólgusjó heimsmállanna ef syrtir á bátinn og þá er gott að eiga góða vini að eins og Trump og Bandaríkjamenn. Ísland á að halla sér að lýðræði, frjálsum viðskiptum og varðveislu frjálsra samskipta ríkja á grundvelli virðingar fyrir fullveldi hvers annars. Sem sagt allt annað en það sem ESB er að gera.

Gústaf Adolf Skúlason, 27.4.2019 kl. 16:53

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt Gústaf Adolf,skyldi forysta Sjálfstæðismanna á þingi finna til sín lengur eftir grein Tómasar Olrich?                                                                                                          Grein sem hljómar eins og sinfónía; Óðurinn til gleðinnar yfir því augljósa sem höfundur túlkar svo listilega.

Helga Kristjánsdóttir, 28.4.2019 kl. 04:13

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Stórgód grein hjá Tómasi Inga og vonandi ad eitthvad af villuráfandi thinglidi Sjálfstaedisflokksins sjái hve galid er ad leggjast eins og druslur, fyrir fótum esb, svo ekki sé nú talad um forystu flokksins. Forystu sem hundsar baedi stefnu flokksins og nidurstödu landsfundar. Forystu sem er med allt nidur um sig í thessu m´li, hvernig svo sem á thad er litid.

Saekjum fram, í stad thess ad hörfa!

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 28.4.2019 kl. 09:24

6 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Já, og bestu þakkir fyrir innlit og góð orð Helga og Halldór.

Gústaf Adolf Skúlason, 28.4.2019 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband