George Soros maður ársins hjá Financial Times
19.12.2018 | 17:54
Financial Times 2018 George Soros.
Time Magazine 1938 Adolf Hitler.
Ekkert nýtt undir sólinni. Main stream media lík sjálfri sér.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Franskir hershöfðingjar í opnu bréfi til Macron: "Þú svíkur þjóðina ef þú skrifar undir SÞ-samninginn"
17.12.2018 | 22:28
Þann 10. desember skrifaði fyrrum varnarmálaráðherra Frakklands Charles Millon, ásamt 12 háttsettum mönnum í hernum opið bréf til Emanuel Macron Frakklandsforseta með varnaðarorðum um afleiðingar þess að hann skrifaði undir samning SÞ um innflytjendur í New York 19. desember. Bréfið birtist á hægrivefnum Volontaires France.
Herforingjarnir telja að Macron gefi Frökkum "enn eina ástæðu" til uppreisnar, ef hann undirritar samkomulagið. "Þú myndir gera þig sekan um að víkja lýðræðinu til hliðar og svíkja þjóðina" segir í bréfi herforingjanna. Telja þeir Frakklandsforseta enga heimild hafa til að gefa upp sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar og segja að eini réttur Frakka skv. samningnum verði "að ákveða hvernig á að ná markmiðum samningsins".
"Þegar 80% af frönskum meðborgurum telja nauðsyn á að stöðva eða minnka verulega fólksinnflutning getur þú ekki umræðulaust afsagt okkur sjálfsákvörðunarréttinum."
Fjölmiðlar hafa yfirleitt ekki sagt frá bréfinu en skv. Parísarblaðinu L Opinion ætla frönsk yfirvöld að grípa til aðgerða gegn herforingjunum og fyrrum varnarmálaráðherra. Telja varnarmálayfirvöld að herforingjarnir hafi brotið þagnarskyldu og gerst brotlegir við herlög og því beri að refsa þeim.
Þarf styrjöld í Frakklandi til að vekja svefngengla íslenska stjórnarráðsins?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
George Soros hefur fjárfest yfir 62 milljörðum kr í flóttamannakreppunni
13.12.2018 | 15:42
Vegna eftirspurnar með fleiri beinum tilvitnunum í Global Compact for Migration sem Ísland hefur samþykkt kemur hér myndband um málið.
Einnig linkar á mikilvægustu skjölin. Ísland hefur samþykkt 1. og mun að óreyndu samþykkja 2. fyrir jólin á fundi SÞ í New York án þess að nokkuð sé um það rætt opinberlega. 1 + 2 eru hluti í skipulögðu breytingarferli alls heimsins til að lúta stjórn Sameinuðu þjóðanna samkvæmt Agenda 2030.
1. Global compact for Migration
3. 2030 Agenda for Sustainable Development
4. Útreikningar ESB á íbúagetu aðildarríkjanna (tafla 12 aftast í skýrslunni).
Linkar um fjárfestingar George Soros í flóttamannakreppunni Wall Street Journal - Valuewalk og Philantrhopynews og einnig um samvinnu Kanadastjórnar og George Soros Global refugee sponsorship initiative. Kanadastjórn hefur falið Open Society að annast innflytjendamálefni Kanada.
Victor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands þekkir Soros vel og hefur lýst honum á eftirfarandi hátt:
"Við erum að berjast við óvin sem er öðruvísi en við. Ekki opinn heldur í felum; ekki réttmætur heldur slóttugur; ekki heiðarlegur heldur hræsnari; ekki þjóðlegur heldur alþjóðlegur; trúir ekki á vinnu heldur braskar með fé; á ekkert föðurland en heldur að hann eigi allan heiminn."
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Varar við 35 milljónum nýjum innflytjendum til Evrópu
12.12.2018 | 13:46
Péter Szijjártó utanríkisráðherra Ungverjalands segir, að með samkomulagi SÞ sé verið að gera óglöglegan innflutning til Evrópu löglegan. "Þetta er sameiginlegt markmið ESB og SÞ." Hann varar við að 35 milljónir innflytjendur muni nú reyna að komast til Evrópu í kjölfar samþykktarinnar.
Deilurnar um hvort stöðva eigi eða skipuleggja innflutninginn hafa staðið í þrjú og hálft ár. Ríkisstjórn Ungverjalands hefur bent á hættur sem fylgja fólksflutningum til Evrópu t.d. hafa tugir þúsunda öfga íslamskra vígamanna hreiðrað um sig í Evrópu og tugir þúsunda bíða færis á að koma til Evrópu. Utanríkisráðherrann telur samkomulag SÞ vera "ekkert minna en svik við íbúa Evrópu."
Annað samkomulag, sem á að samþykkja í New York seinna í desember, er The global compact on refugees. Þar er hugtakið flóttamaður víkkað út til að ná yfir langtum fleiri en þá sem flýja styrjaldir. M.a. á stofna eftirlitsnefnd yfir þjóðum sem skrifa undir samkomulagið og tryggja peningafærslur flóttamanna til heimalanda sinna. Almenningi hvorki á Íslandi né annars staðar hefur verið kynnt þessi áætlun. Íslenska ríkisstjórnin mun að óreyndu skrifa undir þetta samkomulag.
ESB lét gera úttekt á íbúagetu aðildarríkjanna 2010 sem birtar eru í töflu 12 aftast í skýrslunni. Svíþjóð er sagt geta haft 440 milljónir íbúa. Miðað við 10 milljón Svía í dag ætti Svíþjóð því að geta tekið á móti 430 milljónum flóttamönnum til viðbótar. Lágt reiknað ætti Ísland að geta tekið á móti 20-50 milljónum flóttamanna.
Aðalritari SÞ, António Guterres, segir að innflytjendur til Evrópu muni bæta upp lágar fæðingatölur og hækkandi aldurshópa. Skv. Guterres eigum við bara að loka augunum og njóta þess, að flóttamenn og aðrir innflytjendur vinni fyrir okkur í ellinni.
Framtíðin er því björt að mati ESB og SÞ.
![]() |
Ísland aðili að samþykkt SÞ um farendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Sænska sjónvarpið varar við handsprengjum
11.12.2018 | 00:30
Sænska sjónvarpið hefur rannsakað aukningu á notkun handsprengja í Svíþjóð. Frá 2 árið 2011 upp í 39 ár 2016. Samtals 116 handsprengjur sprengdar í Svíþjóð á átta árum. Hersérfræðingurinn Gunnar Appelgren segir Svíþjóð á sérbáti miðað við önnur lönd. Sagt að friður ríki en ástandið minnir meira á stríð.
Í nýrri skýrslu ESB er Svíþjóð sagt sjötta hættulegasta ríki ESB.
Síðustu sprengjur í Malmö sprungu með klukkutíma millibili. Það ríkir stríðsástand. Sprengt við anddyri íbúðarhúsa og daglegar skotárásir. 7 þúsund lögreglumenn vantar í Malmö til að ráða við glæpaklíkurnar. Ekkert bólar á liðsauka. Stálkúlur hafa meiri áhrif en orð stjórnmálamanna.
Í nýrri upplýsingamynd sænska sjónvarpsins um hvað beri að varast fyrir jólin, er fjölskylda sýnd við eldhúsborðið þegar handsprengja springur. Sýnt er hvernig sprengjuflísar fara í mömmu, pabba og börnin. "Þegar maður kastar handsprengju úti á götu setur maður ekki aðeins sjálfan sig í hættu heldur líka aðra vegfarendur" upplýsir sjónvarpið.
Þá vitum við það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: Aftaka 2 .... mistókst
8.12.2018 | 21:38
Miðað við þann sora sem birst hefur eftir Klausturferðina frægu verður sú ferð og það sem þar var sagt eins og prúðbúin bænastund í samanburði. Sex þingmenn á hljóðri bæn að biðja fyrir velferð landsins - með sérstöku ljósi til kvenna, fatlaðra og samkynhneigðra.
Það er nefnilega ekki á ábyrgð þingmannanna sex, að ljótum orðum þeirra var mokað yfir þjóðina. Það var gert í leyfisleysi þeirra og án þeirrar vitundar. Þannig voru þeir ekki viljandi að særa einn eða neinn. Þeir sem gerðu það voru hatursmiðlar með bolmagn að spúa þessu yfir alþjóð og virkja erlenda miðla í leiðinni.
Þrátt fyrir fjögurra tíma upptöku fylgt af vikulangri framleiðslu fjölda starfandi blaðamanna Kvennablaðsins, DV og Stundarinnar á STÓRU áfallasprengjunni, þá tókst ekki að brjóta niður Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Margir saklausir í áfalli - en ekki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
SDG aftaka 2 hefur gjörsamlega mistekist. Pilsfaldaflótti úr þingsölum eykur þess í stað á áru meistarans. Þrátt fyrir góðsemis- og grandvaraleysissjálfsmark þingmannanna, þá geigaði rothöggið. Sem eru álíka mistök og að Agli Skallagrímssyni fipaðist sverðlistin og hitti ekki þegar viðkomandi lá sérstaklega vel við höggi.
Panamaárásin aftaka 1 mistókst og jók á styrk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Ekki tókst að binda endi á stjórnmálaferil hans þrátt fyrir áralangan undirbúning með erlendum aðilum.
Þeir sem hata lýðræðiskjörna embættismenn mest af öllu og vilja hertaka Austurvöll og jafna Alþingi við jörðu, hafa í staðinn gert Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins að dýrlingi í íslenskum stjórnmálum.
Aftökutilraunirnar eru orðnar að framleiðslu atriða í raunveruleikasápu. Síðasta máltíðin með Kristi endurmáluð með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Klausturþingmönnum.
Ekkert er nýtt undir sólinni. Hafa menn ekkert til málanna að leggja má alltaf reyna að græða á þeim frægu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þarf Alþingi að ráða öryggisverði til að tryggja líf þingmanna?
7.12.2018 | 03:21
Á félagsmiðlum hafa bakþankar Þráins Bertelssonar frá 28. ágúst 2006 um "dónaskap með hjálpartækjum" gengið en þar skrifaði Þráinn um gægjur og hleranir. Segir hann að fyrir utan að vera refsivert athæfi sé slík hegðun af sálfræðingum og geðlæknum talin "ónáttúra afbrigðilegra einstaklinga" sem þurfi á lækningum að halda.
"Að liggja á hleri er hins vegar ekki talið alveg jafn sjúklegt og gægjurnar og flokkast fremur sem dónaskapur og skortur á mannasiðum nema viðkomandi dóni hafi komið sér upp hjálpartækjum og sérstakan hlerunarbúnað til að svala ónáttúru sinni og sé þar með orðinn brotlegur við bæði lög og almennt siðgæði." (Fréttablaðið 28/8 2006)
Í 71. grein stjórnarskrárinnar segir að "Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns."
Þetta einkalífsákvæði stjórnarskrárinnar gildir jafnt fyrir þingmenn sem aðra og er öryggisventill til að ríkið grípi ekki inn í líf einstaklinga að eigin geðþótta. Hjá óvönduðum miðlum eins og Stundinni, DV og Kvennablaðinu, sem nota hjálpartæki til hlerunar, er engin virðing borin fyrir stjórnarskránni, réttarfarsreglum né mannréttindum um friðhelgi einkalífsins. Í staðinn er "friðhelgi ónáttúrunnar" krafist.
Ofangreindir miðlar kynda bókstaflega undir ólöglegt framferði. T.d. eru ekki tvö ár liðin síðan Robert Spencer var byrlað lyf í drykk á bar í Reykjavík. Sumir miðlar voru svo uppfullir af hatri gegn manninum, sem hefur ákveðnar skoðanir á íslam, að litlu virtist skipta að honum var byrlað eitur. Hvað varðar þingmennina sex mætti kannski setja fram þá spurningu, hvers vegna ein barferð í Klaustrið hafi haft þær afleiðingar eftir nokkra bjóra, að þeir töluðu óráð, muna varla hvað gerðist eða hvernig þeir komust heim eftir ferðina?
Afleiðingin af þessarri klausturfóbíu gæti hæglega orðið sú, að Alþingi neyddist til að koma upp öryggissveitum fyrir þingmenn til að tryggja öryggi þeirra á stöðum sem þeir heimsækja.
![]() |
Boðuðu Sigmund ekki á fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Verið að breyta okkur öllum í þjóðlausa jarðarbúa
5.12.2018 | 02:44
Í viðtali við Laura Ingraham Fox News í gær gagnrýnir Nigel Farage leiðtogi Brexit harðlega samkomulag Sameinuðu þjóðanna um flóttamenn sem fyrirhugað er að undirrita í Marrakesh 10. desember:
"Verið er að refsivæða gagnrýni á fjöldainnflutning og gera ólöglega innflytjendur löglega með því að skilgreina alla sem flytjast milli landa sem "flóttamenn". Verið er að breyta okkur öllum í alþjóða meðborgara.
Margar ríkisstjórnir munu skrifa undir samkomulagið án þess að ræða málin við meðborgara sína."
Í fréttinni er einnig sagt frá því að Evrópuþingmaðurinn Marcel de Graaffs óttist að samningurinn leiði til þess að fjölmiðlar sem gagnrýna hömlulausan fólksinnflutning verði taldir ólöglegir og þeim lokað.
Fjöldi ríkja hefur ákveðið að hunsa "samkomulagið" og mæta ekki til fundarins í Marokkó 10. desember. Sum ríki hafa frestað umræðum um málið og í Belgíu gæti samkomulagið valdið stjórnarkreppu, þar sem Charles Michel forsætisráðherra vill skrifa undir en stjórnarandstaðan er alfarið á móti.
Hægt er að sjá viðtalið hér
![]() |
Landamærin verði opnuð fyrir nánast öllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Seðlabanki Englands varar við ítalskri bankakreppu
3.12.2018 | 16:32
Að sögn Daily Express hefur Seðlabanki Englands sent frá sér viðvörun um að fjármálakrísa ítalskra banka geti ræst keðjuverkandi óstöðugleika innan alls ESB. Þrátt fyrir að brezkir bankar hafi ekki lánað mikið fé til Ítalíu mun fjármálakreppa evrusvæðisins hafa neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika í Bretlandi. Fremstir eru þýzkir og franskir bankar með útlán til ítalska fjármálakerfisins, BNP Paribas um 10 milljarða evra í lok 2017, BPCE 8,5 milljarða evra og Crédit Agricole 7,6 milljarða evra. Um 10% skulda ítalskra banka eru hjá erlendum bönkum.
Skuldir Ítala hafa aukist yfir 2,3 billjónir evra og samsteypuríkisstjórnin stendur í rimmu við framkvæmdastjórn ESB vegna fjárlaga næsta árs þar sem gert er ráð fyrir 2,4% halla. Ítalir skulda næstmest á eftir Grikkjum innan ESB um 2 billjónir evra sem eru 131% af vergri þjóðarframleiðslu.
Ítalska þingið kýs um fjárlögin á næstu dögum og í dag er "samningafundur" framkvæmdastjórnar ESB með leiðtogum Ítalíu en framkvæmdastjórnin hefur haft í hótunum, ef Ítalir fylgi ekki "leiðréttum" fjárlögum búrókratanna í Brussel.
Hrun evrunnar hefði víðtæk áhrif á íslenska hagsmuni svo óhætt er að taka mark á þessarri viðvörun brezka seðlabankans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skrifar ríkisstjórnin undir "hömlulausan fólksinnflutning" 10. desember?
2.12.2018 | 09:45
Aðeins eru nokkrir dagar í heimsfund þjóðarleiðtoga í Marókkó 10. desember en þar á að skrifa undir nýjan samning Sameinuðu Þjóðanna um fólksinnflutning, flóttamenn og farandfólk. Sífellt fleiri ríki hoppa af lestinni og neita að staðfesta samninginn, nú síðast Ítalía. Bandaríkjamenn neita að skrifa undir og segja samkomulagið skerða fullveldi ríkja.
Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands sagði á blaðamannafundi í Prag s.l. föstudag, að "sérhver ríkisstjórn sem skrifar undir samkomulagið er hættuleg meðborgurum sínum." Þeir sem halda því fram að samkomulagið sé ekki bindandi er bent á að undirskriftir þjóðarleiðtoga þarf til að það öðlist gildi.
Svíþjóðademókratar vara opinberlega við því að samkomulagið hafi í för með sér opinber höft á fjölmiðlum og skerði tjáningarfrelsið. Samkomulagið setur ríkinu þær skyldur á herðar að afnema styrki til fjölmiðla sem skrifa "rangt" um innflytjendur. Einnig á að víkka út hatursumræðuhugtakið, þannig að hægt verður að refsa þeim einstaklingum og fangelsa sem gagnrýna stefnu yfirvalda í innflytjendamálum.
Í skýrslu ESB frá 2010 er reiknaður út mögulegur innflutningsfjöldi til aðildarríkjanna miðað við heildaríbúagetu (table12 aftast í skýrslunni). Þar er sagt að Danmörk geti verið 37 milljónir, Svíar 440 milljónir, Finnland 332 milljónir, Þýzkaland 274 milljónir, Frakkar 486 milljónir o.s.frv. ESB með Bretlandi samtals 3 834 milljónir íbúa.
Ísland er ekki með á þessum lista og fróðlegt að vita, hvort ráðamenn hafa reiknað út hversu marga íbúa landið ber skv. þessum reiknismáta ESB. Ljóst er að sú tala skiptir milljónum.
Af hverju ræða ráðherrar ekki fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að skrifa undir þennan samning í Marókkó þann 10. desember n.k.? Hvers vegna þessi leynd?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)