Yfir 130 þúsund manns krefjast þess að George Soros verði klassaður sem hryðjuverkamaður

Skärmavbild 2017-09-04 kl. 20.03.56Yfir 130 þúsund nafnundirskriftir hafa borist í áskorun til Bandaríkjaforseta á vef Hvíta Hússins um að Bandaríkjaforseti klassi fjármálarisann George Soros sem hryðjuverkamann. Jafnframt er þess krafist að bandaríska ríkið geri upptækar allar eigur Soros. 

Nafnundirskriftir hófust 20. ágúst og eru þegar yfir 100 þúsund sem þarf til að forsetinn verði formlega að taka málið fyrir og gefa umsögn. 

Frumkvöðlar áskorunarinnar segja að Soros hafi óeðlilega mikil völd á Demókrataflokknum og miklum hluta Bandaríkjastjórnar. Telja þeir einnig að Soros reyni á meðvitaðan hátt að grafa undan öryggi Bandaríkjanna með stofnun ýmissa samtaka sem reyni með hryðjuverkaaðferðum að "eyðileggja stjórn Bandaríkjanna". Þess er krafist, að dómsmálaráðuneytið "lýsi George Soros, öll samtök hans og starfsmenn þeirra tafarlaust sem innlenda hryðjuverkamenn og fjárnám verði tekið í öllum persónulegum eigum Soros og samtaka hans". 

George Soros hefur víða komið við þar sem órói hefur skapast gegn ráðandi valdhöfum. T.d. gekk ungverska ríkisstjórnin fram fyrr í ár og ásakaði Soros fyrir að reyna að drekkja landinu með innflytjendum frá þriðja heiminum. Soros sló tilbaka og sagði að ungverska ríkisstjórnin stundaði antisemitískan áróður sem flytti hugann að "myrkustu stundum Evrópu". 

Soros hefur verið viðriðinn að reyna að hafa áhrif á kosningar í Evrópu. Fyrir síðustu þingkosningar í Svíþjóð 2014 studdu samtök hans Open Society vinstrihópinn Expo með hundruðum þúsunda sænskra króna. Sagt var að peningarnir rynnu til "námskeiða fyrir meðlimi ýmissa antirasískra samtaka". Open Society borgaði milljónir dollara til ólíkra samtaka fyrir "kosningar í Evrópu 2014" og fóru peningarnir til að styrkja vinstri aktívista til að reyna að hafa áhrif á úrslit kosninga það árið. Samtökin Open Society hafa dælt yfir 5,5 milljónum SEK til vinstrihópsins Black Lives Matter. 

Open Society fjármagnar einnig s.k."Alþjóðleg samtök rannsóknarblaðamanna - ICIJ". Þau "samtök" birtu "afhjúpanir" á Panamaskjölum þegar m.a. var ráðist á lýðveldið Ísland og réttkjörnum embættismönnum bolað úr embætti. Soros hefur gríðarleg áhrif gegnum keypta stjórnmálamenn bæði innan sem utan ESB. Samtök hans eru einnig ásökuð um að hafa greitt fé til flóttamanna frá Miðausturlöndum til að komast til Evrópu og skip á þeirra vegum hafa sótt flóttamenn úr höndum mannsmyglara við strendur Líbíu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gott að heyra þetta og loksins er einhvað komið í gang.Þetta er með mestu glæpamönnum okkar tíma. Hann hefir stundað aflandsviðskipti í tugi ára ásamt áróðri gegn mankyninu í gegn um NWO og margt fleira.     

Valdimar Samúelsson, 4.9.2017 kl. 20:18

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Þakkir Valdimar fyrir innlit og góð orð. Í undirskriftasöfnuninni er vitnað til RICO laga (Racketeer Influenced and Corrupt Organizations Act) sem sérstaklega eru fyrir glæpasamtök. Soros hefur komist yfir billjónir íslenskra króna gegnum aflandsviðskipti og skilið eftir sviðna jörð hjá heilu þjóðunum sbr. Bretland og Svíþjóð 1992.

Gústaf Adolf Skúlason, 4.9.2017 kl. 20:42

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gústaf ég vissi ekki með svíþjóð en hann var nærri búinn að rúenera bretland og auðvita var þetta fjárhlæpastarfsemi sérstaklega á þeim tíma.

Valdimar Samúelsson, 4.9.2017 kl. 21:57

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Bengt Dennis þáverandi seðlabankastjóri Svíþjóðar reyndi í nokkra daga að hækka vexti upp í 500% en gafst svo upp og sænska krónan sökk eins og steinn. 

Gústaf Adolf Skúlason, 4.9.2017 kl. 22:03

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Soros kom ár sinni vel borð hja SÞ þegar Kofi Annan sat þar í forsæti, þar sem þeir plottuðu um The Global Compact. Kámug fingraför hans er að finna í flestum stofnunum SÞ og eru ástæðan fyrir almennri hnignun virðingar fyrir samtökunum.

Ragnhildur Kolka, 5.9.2017 kl. 09:12

6 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Þakkir fyrir innlit og mjög svo þarfa athugasemd Ragnhildur.

Gústaf Adolf Skúlason, 5.9.2017 kl. 09:43

7 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Soros keypti sér vináttu víða og þó einkum Bandarískra stjórnmálamanna, þeir eru nú í skuld við hann.  Soros borgar mönnum ekki fyrir ekki neitt, hann kaupir menn í þeim tilgangi að koma sínu fram og gráðugir stjórnmálamennirnir beygja sig í duftið fyrir honum.  Vonandi tekst Bandarískum stjórnvöldum ætlunarverk sitt og loka á þennan mann í eitt skipti fyrir öll.

Hræðilegt er að heyra hann segja að hann sjái ekki eftir neinu því sem hann gerði Gyðingum á stríðsárunum, lýsingarnar eru ófagrar, en sjálfur er hann Gyðingur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.9.2017 kl. 10:53

8 identicon

Ég verð að segja að ég er óviss í málunum gegn Soros ... marg bendir til að hann sé sá sem sagt er, en reynsla mín er sú að sjaldan hefur fjöldinn rétt fyrir sér.

Síðan þegar menn eru að tala um "Gyðinga" ... þá finnst mér að menn eigi almennt að hætta því. Hægt er að tala um Ísraela, í þessu sambandi.  En "gyðingar" eins og flestir hugsa þá sem einhvern "kynþátt", er ekki til ef hann hefur þá nokkurn tíma verið til.  Þetta er "trúsöfnuður", sem þróaðist í þýskalandi á mið-öldum, og eru bara afskaplega venjulegt fólk, eins og allir aðrir.

Síðan hvað hann eigi að hafa gert í síðari heimstyrjöldinni, eiga menn ekki að tala um ... þessi maður er fæddur 1930 ... þegar stríðinu lauk var hann 15 ára gamall.  Barn, og þeir sem eru að rægja hann fyrir að hafa gert eitthvað eða sagt eitthvað þegar hann var ... hvað? 11 eða 12 ára? krakkar bulla út úr sér öllu mögulegu, enda hafa þau ekkert vit á því sem þeir eru að segja ... og það er að öllu leiti á ábyrgð þeirra, sem taka slíkt "hjal" barna sem einhverja sönnun ... sem eiga sökina.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 5.9.2017 kl. 11:53

9 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Kæri Bjarne

Gyðingar eru afkomendur Júda og eru því af Júdaætkvísl. Gyðingatrú er bundin við Móse og lögmálið sem Guð gaf honum. Sjálfur hefur Soros viðurkennt opinberlega að hann sem unglingur hafi sagt til Gyðinga, en honum var komið fyrir hjá "kristinni" fjölskyldu foreldrar hans vildu á þann hátt bjarga lífi hans, einnig stóð hann að því að taka til sín eigur þeirra Gyðinga sem teknir voru af Nasistum. Þetta allt hefur hann játað fyrir fréttamanni 60 Minutes.

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.9.2017 kl. 12:08

10 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Þakka innlit og ummæli Tómas og Bjarne, George Soros hefur sjálfur lýst í frægu viðtali að hann sjái ekkert eftir því, hvernig hann byrjaði fjámálaferlinn með því að selja Gyðinga í hendur nazistum gegn greiðslu sbr https://www.youtube.com/watch?v=xPmKmfULrGI Kannski það hjálpi þér Bjarni að taka afstöðu að heyra rök Soros sjálfs sem fullorðins manns?

Youtube hefur margar myndir um Soros, hér er ein þeirra https://www.youtube.com/watch?v=JmMw9aMXmMY

Gústaf Adolf Skúlason, 5.9.2017 kl. 14:44

11 identicon

Kæri Tómas,

Ég veit að þú, sem Íslendingur ... ert ættaður af Haraldi hárfagra og öðrum stórbrotnum konungum í beinan karl legg og hefur fundið tínda hlekkin fyrir mankynið.

Trúa skalltu í Kirkjunni ... segjum við hér.

Biblían er bók, sem hefur engan sannleika né staðreyndir að færa. Gyðingatrú og Gyðingar eru fólk sem breittist og þróaðist í gegnum aldirnar.  Gyðingatrú, sem nú er ... og er "bókstafstrú" á engan uppruna úr Júdeu, nema sem kópía úr gömlum grískum og rómverskum bókmentum, sem var tekinn á miðöldum þegar kristni klofnaði ... fremur en þú eða Íslendingar eru skyldir Haraldi Hárfagra í beinan karl legg ... nema í ímyndunar skoti heilabús fólks, sem kallast "vanity".

Svo allt "hjal" um gyðinga sem kynstofn ... á maður almennt að leggja niður. Það er alveg nóg, að það fundust asnar í Þýskalandi fyrir öld síðan, sem héldu uppi þessu kynþáttabulli.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 5.9.2017 kl. 15:14

12 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Bjarne Örn

Lítið vit og skilning hefur þú á Biblíunni og uppruna gyðinga og þess sem menn kalla gyðingatrú.

Viltu ekki lesa þér til áður en þú brunar fram á vígvöllinn svo illa vopnum búinn?
Héðan ferð þú blóðugur upp að öxlum, vígmóður sár og kvalinn,og allur í sárum eins og staðan er. Ekkert er mark á þér takandi og þú verður trausti rúinn á umræðuvellinum til frambúðar.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.9.2017 kl. 15:45

13 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það eru til mun meiri heimildir um uppruna og tilvist Gyðinga og Ísraels til forna, um sögur Biblíunnar og um Jesú Krist Guðsson, en nokkurn tímann um Harald hárfagra eða aðrar sögulegar "staðreyndir". Margar heimildir utan Biblíunnar eru til um Jesú t.d. og svo mætti lengi telja.

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.9.2017 kl. 16:33

14 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Hér meira um Soros

https://www.youtube.com/watch?v=MeM_l5mkyYc

Gústaf Adolf Skúlason, 5.9.2017 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband