Rafmagnsgrasið í ESB er fúið og dautt

Óveðrið sem gengið hefur yfir landið er góð þolraun fyrir "innviðina" bæði fyrirkomulag rafmagnsmála á Íslandi sem og stjórnfyrirkomulag landsins, stefnu og útfærslu. Það alvarlegasta er þegar Tetra kerfið sem á að vera til þjónustu í neyðarástandi fellur út og mikilvægar stofnanir eins og lögregla, neyðarlína, sjúkraflutningar, björgunarsveitir m.fl. geta ekki haft eðlileg samskipti, hvorki sín á milli né við almenning. Þessu verða yfirvöld að forgangsraða og kippa í lag hið fyrsta.

Varðandi rafmagnsfyrirkomulagið sem nú er stjórnað af stjórnmálamönnum með brusseleinkenni, sýnir sig eins og formaður Miðflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir svo réttilega á sbr. frásögn Viljans: 

sigmundurdavidm-696x399„Þörf er á auknum skilningi á þeim aðstæðum sem geta komið upp og munu koma upp. Það þarf m.a. að líta til þess að aðskilnaður framleiðslu og dreifingar raforku hentar líklega ekki á Íslandi ef okkur á að takast að standa undir grundvallaröryggi allra landsmanna.
   Nú er tími til kominn að hugsa þetta upp á nýtt og taka skynsamlegar ákvarðanir í stað þess að viðhalda kerfi sem beinlínis kemur í veg fyrir framkvæmdir.
   Nú vona ég að allir stjórnmálamenn sameinist um að ráðist verði í nauðsynlegt átak við uppbyggingu innviða landsins, öll viljum við tryggja öryggi allra.“

Undir þessi orð skal tekið.
Farsælla er fyrir Frón að byggja ákvarðanir á staðreyndum íslenskrar náttúru en afneita heimamundinum í nafni EES, ESB og BRUSSEL Þá þarf ekki að ræsa út hálfa ríkisstjórnina til að glápa á fallna staura og slitnar línur og gefa loforð út í bláinn samkvæmt hefðum vinstrimanna.


mbl.is Gasofnar fyrir krókloppna Skagfirðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband