Fýll Pípunefur heldur upp á páskana á fjórðu hæð
20.4.2019 | 15:27
Fýll Pípunefur sér eftir því að hafa ekki fengið sér íbúð á fimmtu hæðinni, því brimið í ham hafði næstum skolað honum út af svölum fjórðu hæðar að sögn Morgunblaðsins. Það er alltaf hægt að vera gáfaður eftirá en ef brimið æsir sig svo mikið gæti vinur okkar Pípunefur þurft að fara enn þá hærra og óvíst hvort til dygði ef Klettahlíðin væri ekki jafnhá. Og sögur eru um kletta sem hverfa í sæ og þá verður Fýll Pípunefur að leita sér að nýjum.
Alltaf er hollt að rísa upp frá vanvizku og slíkt ættu systkyni okkar í Sjálfstæðisflokknum að gera sem þykjast vita betur hvað aðrir segja en sögumenn sjálfir, hvort heldur þeir eru sérfræðinger á frjálsu flugi eða sérfræðingar horfnir í djúpan sæ ESB.
Batnandi manni er best að lifa og með þeim orðum óska ég öllum Gleðilegra Páska og góðrar upprisuhátíðar þennan Páskadag sem allra annarra.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:57 | Facebook
Athugasemdir
Gleðilega Páska til þín og fjölskyldu þinnar.
Helga Kristjánsdóttir, 21.4.2019 kl. 02:42
Sömuleiðis til þín og þinna Helga.
Gústaf Adolf Skúlason, 21.4.2019 kl. 08:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.