Carl Bildt fylgir ekki eigin flokki, er hann hvetur Íslendinga að ganga í ESB og taka upp evruna

ska_776_rmavbild_2013-03-24_kl_23_28_28.pngCarl Bildt vill að Ísland gangi með í ESB og taki upp evruna. Hann talar þar fyrir hönd ESB ekki Moderata Samlingspartiet - Hægri flokksins, sem hann er meðlimur í og leiðir ríkisstjórn Svíþjóðar. Flokksbróðir hans Anders Borg, fjármálaráðherra Svíþjóðar, sagði 2011, "að það væri gott fyrir Svíþjóð að vera án evrunnar." Síðan þá hefur flokkurinn sett fram þau skilyrði, að evran verður ekki tekin upp nema "að aðildarríkin fari eftir skilmálum um hámark ríkisskulda og fjárlagahalla." Moderatarnir eru orðnir þreyttir á fallega orðuðum, merkingarlausum samningum. Flest ríki evrunnar brjóta hámark 60% ríkisskulda miðað við þjóðarframleiðslu og fjárlagahalla undir 3%. Íslendingar uppfylla ekki kröfurnar og geta því hvorki orðið meðlimir né tekið upp evruna. 82% Svía höfnuðu evrunni og aðeins 10% vildu hana skv. skoðanakönnun s.l. nóvember. Moderatarnir hafa á tíu árum "farið úr eurofori yfir í eurofobi."

Í væntanlegri stefnuskrá fyrir kosningarnar 2014 hafa Moderatarnir skerpt kröfurnar. Hér eru nokkur dæmi:

Nei við upptöku evru, þar til allir fylgja kröfum myntbandalagsins  

Nei við frekara samstarfi efnahags- og myntbandalagsins

Nei við nýjum sameiginlegum fjárlögum, einum ESB-fjármálaráðherra og evru-skuldabréfum.

Nei við rétti ESB að koma á eigin sköttum t.d. fjármagnstekjuskatti (s.k. Tobínskatts).

Nei við útflutningsbanni á snus munntóbaki.

Nei við hækkun fjárlaga ESB, þau skulu lækkuð og minna fé varið til landbúnaðar og svæðissjóða.

Nei við nýju bankasambandi.

Flokkurinn vill afnema styrki til sjávarútvegs og banna brottkast fisks, opna inri markað fyrir viðskiptum á Internet (í dag þarf 27 leyfi til að setja fyrirtæki á netið með viðskipti við öll lönd ESB), gera viðskiptasamning milli ESB-USA og koma á fót friðarstofnun ESB svo fleiri dæmi séu nefnd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband