Blairbakterían á undanhaldi. Bretar þurfa ekki lengur að samþykkja nein ESB-"örlög"

361139_1.jpg

Tony Blair hefur fengið að heyra mörg nöfn allt frá manninum með colgate brosið til Blöööör. Núna þegar hann skortir öll rök gegn þeim, sem er á móti evrunni, kallar hann þá fyrir "vírus" og segir, að Bretland verði að samþykkja ESB-"örlög" sín. 

Fyrri forsætisráðherrann sagði, að aukin andstaða og umræður gegn evrunn á breska þinginu væri "eins konar vírus" og að þingmenn tækju afstöðu í ESB-málum "til að festa hann i sessi."

Í ræðu hjá erlendri viðskiptahugveitu í London sagði Blair:

"Evrópa eru örlög sem aldrei verður auðvelt að faðma. Það yrðu hrapaleg mistök ríkisstarfsmanna að snúa baki við þeim og hverfa frá  afgerandi valda- og áhrifastöðu á 21. öld."

Þá vitum við það. Þegar rökin duga ekki lengur gegn andstæðingum evrunnar, þá er bara að kalla þá fyrir "vírus" og að menn eigi að sætta sig við "ESB-örlögin."

Greinilega er Blairbakterían á undanhaldi.

Byggt á Daily Express


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Blair er myglusveppur sem reynir að halda lifi i sjálfum sér. Frjalborið fólk festist ekki i svona nauðhyggju.

Ragnhildur Kolka, 28.11.2012 kl. 21:03

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæl Ragnhildur, já sú tegund er að deyja út. Heilaþvotturinn víkur fyrir raunveruleikanum - sem betur fer, eða eins og spakur maður sagði:

Sannleikurinn mun alltaf koma í ljós fyrr eða síðar.

Kær kveðja, Gústaf Adolf

Gústaf Adolf Skúlason, 29.11.2012 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband