Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Tsipras velur "íslensku leiðina" - ESB og evran í tætlum

GreeceÞað eina sem getur komið í veg fyrir bankahrun í Grikklandi næstu viku er að Marío Draghi bankastjóri Seðlabanka Evrópu komi grískum bönkum til bjargar sem lið í loforði sínu um "að gera allt sem til þarf" til að bjarga evrunni. Hvort svo sem Tsipras hafi verið tilneyddur til að skjóta málinu í þjóðaratkvæði eða ekki, þá fær grískur almenningur að kjósa um, hvort þeir vilji halda áfram niðurskurði Þríeykisins eða að Grikkland fari eigin leiðir. Sami hræðsluáróður og Íslendingar kynntust um Kúbu norðursins hefur linnulaust verið básúnað yfir Grikklandi í mörg ár og margir Grikkir orðnir langþreyttir á svartnættisrausinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan gæti því endað þannig, að Grikkir velji sjálfstæðið.

Grikkir hafa sjálfir engu lengur að tapa nema glötuðu sjálfstæði, himinháu atvinnuleysi, hungursneyð, félagslegri örbirgð og útbreiddri fátækt. Tsipras hefur því fyllilega á réttu að standa, þegar hann í ræðu sinni fyrir atkvæðagreiðslu gríska þingsins um þjóðaratkvæðið, að "á líðandi stundu öxlum vér sögulegar byrðar vegna baráttu gríska fólksins fyrir sterkara lýðræði og þjóðlegum sjálfsákvörðunarrétti."  

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa gerst sekir um að halda gjaldþrota bönkum í öndunarvél skv. efnahagsstefnu alþjóðlegu bankamafíunnar að "of stórir bankar" megi ekki fara á hausinn. Þessi efnahagsstefna hefur fyrir tilstuðlan leiðtoga ESB verið notuð til að breyta skuldum gjaldfallinna banka í ríkisskuldir evruríkjanna eins og átti að gera á Íslandi með Icesave. Andstaða annarra evruríkja til að halda áfram á þeirri braut er skiljanleg og allt traust á evrunni sem gjaldmiðli að hrynja. Draghi verður núna að standa við stóra loforðið til að koma í veg fyrir að evran muni hrynja við opnun markaða eftir helgina. Má búast við, að margir skipti út evrum fyrir traustari gjaldmiðla þar til ástandið skýrist. Yfirlýsing fjármálaráðherra evrusvæðisins um að "yfirvöld evrusvæðisins eru tilbúin til að gera það sem nauðsyn krefur til að tryggja fjármálalegan stöðuleika evrusvæðisins" er pólitísk yfirlýsing og styrkur hennar verður sannreyndur af peningamörkuðum.

Ástralski hagfræðingurinn Steve Keen bendir á það á Facebooksíðu sinni, að efnahagsstefna ESB hefur beðið skipbrot, því áætlanir og hagspár Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um efnahagslegan bata í Grikklandi hafi brugðist, þrátt fyrir að Grikkir hafi framfylgt stefnu Þríeykisins. Hann vísar einnig í Wynne Godley sem skrifaði þegar 1992 um Maastricht samkomulagið, að "valdið til að gefa út eigin gjaldmiðil og setja reglur um eigin seðlabanka er aðalatriðið í skilgreiningu þjóðlegs sjálfstæðis. Ef ríki afhendir eða tapar þessu valdi fær það stöðu héraðs eða nýlendu." 

Paul Krugman skrifar á bloggi sínu, að "ef Grexit verður að raunveruleika mun það gerast vegna þess, að lánadrottnarnir eða a.m.k. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn vilji að það muni gerast."

Vonandi tekst Grikkjum að reisa sig án þess að innanríkisstríð brjótist út og fasistastjórn taki við völdum með blessun Evrópusambandsins. 

Þá bætist gríski lýðræðiskyndillinn við ljós Íslands í þeirri almyrkvun sem alþjóðlegir bankaglæpamenn hafa dregið yfir gjörvallan heim.

 


mbl.is Samþykktu þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næst síðasti blóðdropinn

I love you Europe

Ástarsambandi Þríeykisins við íbúa Evrópusambandsins má líkja við blóðsugu sem verður að sjúga ástkonu sína reglulega án þess að murrka úr henni líftóruna. Ef hún deyr hverfur mikilvægur lífsbrunnur. Halda verður í henni lífinu en ekkert umfram það.

Þannig má líta á það, þegar fasistar Evrópusambandsins í bandi alþjóðlegu bankamafíunnar rúlla Grikkjum aftur og aftur  milli handa sér á meðan næst síðasti blóðdropinn er soginn á sem lengstum tíma svo hægt sé að njóta bragðsins að fullu. 

Á meðan gríska lýðræðið er lamað af eitri evrunnar verður þetta eina hlutskipti Grikkja. Gríska þjóðin getur sig hvergi hreyft með kjörnum embættismönnum sem hafa breyzt í blóðsuguþjóna með það eina verkefni að finna nýtt blóð til að reyna að svala endalausum blóðþorsta Brusselblóðsuganna.

Hér má sjá afrit af málamiðlatillögum grísku ríkisstjórnarinnar með góðum skammti af kosningasvikum yfirstrikuðum og "leiðréttum" með rauðum penna lánardrottnanna sem vilja enn meiri kosningasvik. Þessi skrípaleikur er og verður viðhafður svo lengi sem einhverjir eru eftir innan ESB, sem trúa því að glansmyndin tákni lýðræði. 

Þróunin er fyrir löngu komin fram hjá point of no return. 

Grikkir munu reisa sig. Spurningin er bara hversu mikið þeim þarf að blæða. Spurningin er líka, hvar Brusselblóðsugurnar slá niður næst, enginn er óhultur, hvorki Ítalía né Frakkland sprengfull af gómsætu blóði.

Á sama tíma og nýfasisminn sterkir krumlurnar er kraftur ESB-ríkjanna tæmdur á annann hátt þ.e.a.s. með stríðum straumi flóttamanna frá miðausturlöndum. Greinilega verður fólk að fara að átta sig á heimsstjórnmálunum, því sá ásetningur að knésetja alla Evrópu vex skýrar og skýrar fram með hverjum deginum sem líður. Munu engar rakvélablaðagirðingar halda flóttafólki frá Evrópu og þeir, sem vilja sjá vesturveldin líða undir lok hafa beinan hag af auknu stríði miðausturlanda. 

Pútín og Soros leika sér með fjöregg heimsins. Einungis germanskar Brusselblóðsugur standa slíkum drakúlum jafnfætis.

Á almennur söngur í upphafi alþingisfunda á Íslandi að stöðva þessa þróun?


mbl.is AGS: Grikkir munu borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alexis Tsipras gæti endað sem grísk steingríma

eurocrisisFlestir á Íslandi hafa kynnst kosningasvikum Vinstrigrænna, þegar flokkurinn var við völd síðasta kjörtímabil. Andstaðan við ESB var bara virði fáeinna ráðherrastóla eitt kjörtímabil. Enn er eftir að moka flórinn eftir Steingrím Sigfússon fyrrv. fjármálaráðherra, sem uppvís hefur orðið að næstmesta bankasvindli Íslands í kjölfar Icesave. 

Alexis Tsipras gengur um á Steingrímsskóm og vill bæði evru og ESB-aðild eins og Steingrímur. 

Eina lausnin fyrir Grikki til að þróast áfram sem þjóð, er að skera sig úr snöru þríeykisins ESB, SE og AGS (Evrópusambandsins, Seðlabanka Evrópu og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins).

Það þýðir, að Grikkir taki upp drakma sem gjaldmiðil á nýtt og stjórni eigin peningakerfi í stað alþjóðlegrar bankamafíu.

Framtíð Grikklands með evru er vonlaust úthverfi Everópusambandsins með vaxandi atvinnuleysi, hungursneyð og sjúkdómum, þetta sjá sífellt fleiri t.d. Boris Johnson borgarstjóri Lundúnarborgar. 

Flokkur Tsipras gekk til kosninga með loforð um að stöðva niðurskurð gríska ríkisins á launum til starfsmanna og lífeyri til gamla fólksins.

Ef Tsipras skiptir ekki um fót gagnvart evrunni munu skórnir bera hann á blöð sögunnar sem eins mesta svikara Grikklands - í sama stíl og steingríma vinstrigrænna á Íslandi.

 


mbl.is Ræða áfram um skuldir Grikkja í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vesturlönd VERÐA að takast á við Pútín, annars kollsteypast bæði NATO og ESB"

Putin-Russia-EU-Nato-conflict-582091Fyrirsögnin ofan er sótt í grein Scott Campbell, Daily Express, sem vitnar í hugmyndasmiðjuna Chatham House. Höfundar skýrslunnar eru m.a. tveir fyrrum sendiherrar í Moskvu þeir Sir Roderic Lyne og Sir Andrew Wood. Skýrslan ásakar Vesturlönd um "kollektívt minnistap," þar sem þau gátu ekki séð Úkraínustríðið koma. Segir að Úkraínustríðið sé "þáttur í að skilgreina" framtíðaröryggismál í Evrópu.

"Bara vegna þess, að eitthvað virðist óhugsandi fyrir skipuleggjendur Vesturvelda er ekki þar með sagt, að Moskva telji það ekki vera ásættanlegan valkost" segir í skýrslunni. Þá bendir Chatham House á, að "Moskva er sem hættulegust í veikri stöðu."
 
Í ræðu á úkraínska þinginu í dag varaði forseti Úkraínu við "innrás í fullum skala":
 
"Herinn verður að vera viðbúinn nýjum árásum óvinarins í Donbass og sömuleiðis undirbúinn fyrir innrás í fullum skala eftir gjörvöllum landamærunum að Rússlandi".
 
Fulltrúar ESB lýstu yfir djúpum áhyggjum af stöðu mála í Úkraínu og framkvæmdastjórnin, segir að núverandi bardagar séu stærsta brotið fram að þessu á Minsk friðarsamningnum. Maja Kocijancic fulltúi framkvæmdastjórnarinnar sagði á fjölmiðlafundi fimmtudag, að "það verður að virða vopnahléð og fjarlægja öll þung vopn."
 

 


mbl.is Bardagar að nýju í Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

89 einstaklingar svartlistaðir af Pútín þ.á.m. átta nafnkunnir Svíar

putFinnska Yle birtir í heild nýjan lista yfir 89 einstaklinga, sem svartlistaðir eru af Rússlandi, þ.e.a.s. er bannað að ferðast til Rússlands. Þar á meðal eru átta nafnkunnir Svíar eins og tveir Evrópuþingmenn móderata, eiginkona Carl Bildts, Anna Maria Corazza Bildt (önnur f.v.) og Gunnar Hökmark. Fyrrum menntamálaráðherra Svíþjóðar Lena Adelsohn Liljeroth (fyrsta f.v.) móderat er einnig með á listanum ásamt Gunnari Karlssyni, yfirmanni öryggisþjónustunnar MUST. 18 Pólverjar eru með á listanum ásamt 9 Bretum, 8 Eistlendingum, 7 Þjóðverjum, 7 frá Litháen, 5 Lettum, 5 Rúmenum, 4 Dönum, 4 Frökkum, 4 Tékkum, 3 Hollendingum, 2 Belgum, 2 Spánverjum og einum frá Finlandi, Grikklandi og Búlgaríu. 

Listinn hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð en ekki hefur enn verið greint frá honum í Bretlandi. Sænska ríkisstjórnin hefur krafist skýringa af sendiherra Rússlands í Svíþjóð en talið er, að listinn sé svar Pútíns við viðskipta- og ferðabanni USA og ESB í kjölfar Úkraínustríðsins og yfirtöku Rússa á Krímskaga. Bæði Gunnar Hökmark og Anna Maria Bildt hafa lýst sig heiðraða að vera með á listanum og Gunnar Hökmark tísti: "Pútín er á móti þeim, sem vilja frjálst og opið Rússland. Hann er hræddur við gegnsæi og lýðræði. Ég er stoltur að tilheyra þeim, sem stjórnin svartlistar." 

Anna Maria Corazza Bildt sagði við sænska útvarpið, að "þetta þýðir að tekið er mark á okkur, Kreml sér það sem við gerum og tekur það allvarlega."

Ross

 

 

 

 

 

 

 

Rússneska fréttastofan Ria segir frá því, að í dag laugardag, hafi Rússar sent árásarstríðsþotur af gerðinni Su-24 gegn bandaríska herskipinu "Ross" nálægt rússneskri lögsögu í Svarta hafinu. Segir Ria að "áhöfn skipsins hafi hegðað sér á ögrandi og árásargjarnan hátt sem hafi valdið óróleika hjá eftirlitsmönnum og öðrum skipum á svæðinu."

Atburðurinn er einn af mörgum í seinni tíð, sem sýna hvernig hernaðarleg spenna milli herafla vesturlanda og Rússa hefur aukist í kjölfar árásar Rússa á Úkraínu og yfirtöku Krím.


Kína segir stríð við Bandaríkin "óhjákvæmilegt" nema Bandaríkjamenn hætti "afskiptum" í Suður Kínahafi

chinaÞað er náttúrulega gott, að Nató með Bandaríkin sem stærsta stuðningsaðila vilji ábyrgjast frið í Evrópu og ekki veitir af. En á meðan krafturinn fer í að mæta Pútín birtist önnur vá fyrir dyrum í Suður Kínahafi og stórveldinu Kína, sem byggir gervirif á Kínahafi á umdeildu yfirráðasvæði og lítur á þau sem eigð landssvæði. Í nýrri hvítbók kínverska hersins, sem birt var í dag, lofar Kína að setja fókus á að "vernda opin hafsvæði" (open seas protection) í stað núverandi varnarstefnu sem gengur mun skemur. Ástæðan að baki breyttri og útvíkkaðri hernaðarstefnu er sögð vera "alvarlegar og flóknar keðjur öryggisógna" að með talinni deilu um rifin í Suður Kínahafi. Myndin er af Yang Yujun talsmanni Varnarmálaráðuneytis Kína, þegar hann kynnti hvítbók hersins á blaðamannafundi í dag.

Kína er staðráðið í að ljúka byggingu gervirifa á umdeildum alþjóðasvæðum, þrátt fyrir mótmæli grannríkja eins og Malasíu, Víetnam og Filippseyja.

Bandaríkin hafa hvað eftir annað gagnrýnt Kína fyrir byggingar á hinum umdeildu Spratly eyjum en margar þjóðir gera tilkall til eyjanna. Bandaríkjamenn telja, að Kínverjar séu með þessu að undirbyggja kröfu um tilkall til mikils hluta Suður Kínahafs og þar með ná yfirráðum skipa- og flugumferðastjórnar á svæðinu. 

Á heimasíðu kínverska miðilsins Global Times má lesa fréttir um uppbyggingu á eyjum í Suður Kínahafi og að byggingar á Nansha eyjum þjóni hernaðarlegum tilgangi. Jafnframt eru talin upp deilumál við Japani og aðrar þjóðir um tilkall til eyja á hafssvæðinu. Í leiðara miðilsins er sagt: "Við viljum ekki stríð við Bandaríkjamenn en ef til þess kemur, þá verðum við að taka því." Í áframhaldinu segir, að Kína eigi af natni að undirbúa sig fyrir hugsanlegt stríð við Washington og ef "Bandaríkjamenn standa staðfastir á því að Kína eigi að láta af afskiptum, þá verður stríð við Bandaríkjamenn á Suður Kínahafi óhjákvæmilegt."

Grein Daily Express og The Telegraph um málið í dag


mbl.is „Viljum ábyrgjast frið í Evrópu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar með "massive surprise inspection" gegn heræfingu Norðurlanda

ryssÞað leið ekki langur tími eftir að Norðurlöndin og Nató hófu eina stærstu heræfingu heims, þegar Rússar hófu ENN STÆRRI eigin heræfingu með 12 þúsund hermönnum og 250 herþotum og þyrlum skv. BBC. 

Varnarmálaráðuneyti Rússlands lýsir þessum fjögurra daga aðgerðum rússneska hersins sem "stórri skyndikönnun" á rússneska hernaðarmættinum. Skv. rússneskum miðlum verða um 700 gerðir vopna "kannaðar" og m.a. eiga herþotur að skjóta eldflaugum að æfingarmörkum í Komi vestanmegin Úralfjalla. 

Rússar hófu sína æfingu á svipuðum tíma og alþjóðlega flugheræfingin Arctic Challenge Exercise hófst í Norður-Svíþjóð á mánudaginn. Í byrjun júní mun Svíþjóð taka þátt í æfingu sjóhers á Eystrarsalti sem einnig verður undir leiðsögn Nató, Baltops.


mbl.is Mæta ögrunum Rússa með heræfingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnland sendir 900 þúsund varaliðum bréf um hlutverk þeirra í stríði

Stærsta lán ESB til Úkraínu verður skammgóður vermir, þótt það lini aðeins þjáningarnar í augnablikinu. Mörg blöð segja frá því í dag, að Finnar hafi sent bréf til tæplega miljón varaliða og útskýrt fyrir þeim hlutverk þeirra í stríði. Ástæðan er talin vaxandi spenna við rússneska grannann. Skv. Nick Squire hjá The Telegraph fá Finnar erlendis einnig bréfið. Einn varaliði sem fékk bréfið sagði "Ég hef verið í varaliðinu í 15 ár og þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ svona bréf."

Finnlandsher telur um 16 þúsund manns, sem hægt er að fjölga upp í 285 þúsund hermenn við innköllun varaliða.

Mika Kalliomaa, talsmaður finnska hersins neitar að bréfið sé vegna vaxandi spennu við Rússa og segir bréfið lið í betri samskiptum við varaliðana. Charly Salonius-Pasternak hjá Alþjóða viðskiptastofnun Finnlands segir, að "Ef Rússland væri á leiðinni að verða frjálslynt lýðræðisríki hefði enginn þrýstingur verið á útsendingu bréfsins. Miðað við núverandi ástand er eðlilegt að finnski herinn vilji vera öruggur um, að ef blása þarf í flautuna birtist 230 þúsund varaliðar."

Rússneskar herþotur hafa hvað eftir annað látið reyna á flugvarnir Finna með flugi sínu síðustu mánuði. Þrátt fyrir yfirlýsingu Angelu Merkel á fundi leiðtoga ESB í Ríga um að samstarf ESB í Austri væri "ekki beint gegn neinum aðila" mun mikill tími fundarinas óhjákvæmilega fara í umræður um hvernig bregðast eigi við hernaðarlegri ógnun Rússlands, ekki einungis gagnvart Úkraínu heldur einnig gegn Eystrarsaltsríkjunum, sem eru aðilar Nató.

Skärmavbild 2015-05-23 kl. 13.52.56Skärmavbild 2015-05-23 kl. 13.52.48Skärmavbild 2015-05-23 kl. 13.52.44Skärmavbild 2015-05-23 kl. 13.52.14

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á sama tíma leggur miljarðafjárfestirinn George Soros til, að Bandaríkin verða að leyfa kínverska gjaldmiðlinum að vera með í gjaldeyriskörfu Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins til að gera yenið að gjaldgengum keppinaut dollarsins sem alþjóðagjaldeyri. Á Bretton Woods ráðstefnu Alþjóðabankans sagði Soros, að líklega myndu leiðtogar Kína fara í stríð við erlent ríki t.d. Japan til að halda landinu saman og viðhalda völdunum: "Verða árekstrar milli Kína og hernaðarbandamanns Bandaríkjanna eins og Japans, þá er engin ofsögn að segja, að við stöndum á þröskuldi þriðju heimsstyrjaldarinnar."

Skärmavbild 2015-05-23 kl. 13.56.45


mbl.is Veita Úkraínu 1,8 milljarða evra lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógnvekjandi herflug Rússa á Eystrarsalti

Það var allt annað en gaman að horfa á fréttir sænska sjónvarpsins seinni part dagsins í dag. Tvær sænskar herþotur voru ræstar út í hádeginu til að stugga tveimur rússneskum sprengjuflugvélum frá flughelgi Svíþjóðar.

Skärmavbild 2015-05-21 kl. 23.25.25Sprengjuflugvélar Rússanna eru af gerðinni Tu- 22 og geta borið kjarnorkuvopn segir sænska sjónvarpið. Þær snéru við í alþjóðlegri lögsögu við suðurenda Ölands eftir ögrandi flug að lofthelgi Svíþjóðar og farþegaflugvélum á svæðinu. Yfirhershöfðingi Svíþjóðar, Sverker Göransson sagði í viðtali við sjónvarpið, "að þetta eru meðvituð spor af hálfu Rússlands og þau sjáum við núna afar reglubundið. Í þeim mæli, sem Rússar endurbyggja sig æfa þeir einnig á fjölþættari máta og sína þvílíka hörku, sem við höfum ekki séð áður." Yfirhershöfðinginn taldi það þýðingarmikið, að Svíar bregðist skjótt við.

Sænska Dagblaðið segir á heimasíðu sinni eftir varnamálaskilgreinandanum Stefan Ring, að það sé engin tilviljun að Rússarnir minntu á sig á þennan hátt fyrir leiðtogafund ESB með sex fyrrverandi ríkjum Sovétríkjanna, sem hófst í Ríga í dag. Þar verður Úkraínustríðið efsta mál á dagskrá en enn er barist, þótt vopnahlé sé sagt ríkja. Sænska sjónvarpið sýndi frétt frá Dónetsk, þar sem fallbyssur glumdu og sprengjur féllu ekki skammt frá. Í viðtali við íbúa kom það fram að byssurnar hefðu aldrei þagnað og sýnt var frá nýlega sundursprengdum húsum. Claes JB Löfgren fréttaritari sænska sjónvarpsins sagði, að stríðinu væri engan veginn lokið og Pútín vildi sýna umheiminum, að hann réði í þessum heimshluta. Reiknaði Claes með enn frekari stríðsaðgerðum Rússa.

Nýlega handtóku úkraínsk yfirvöld tvo rússneska hermenn, sem dregnir verða fyrir dóm í Kíev. Öryggisstofnunin ÖSSE hefur yfirheyrt mennina og í skýrslu ÖSSE segir, að "báðir hafi gefið upp, að þeir væru hermenn rússneskrar herdeildar." Mennirnir voru vopnaðir en sögðust ekki hafa fengið skipanir um að hefja árás.

Hin dugmikla fréttakona sænska sjónvarpsins, Elin Jönsson, sagði að mikil spenna væri milli Brussel og Moskvu vegna fundahaldanna í Riga. Sér í lagi finnst Pútín sér vera ógnað, þar sem hann vill halda athyglinni að Moskvu.

Svíar munu leyfa bandarískum B52 sprengjuflugvélum Bandaríkjamanna að æfa í sænskri flughelgi í komandi heræfingu NATO á Eystrasalti í næsta mánuði. Ríkin við Eystrasalt munu taka þátt í þeim heræfingum.


Efnahagur heimsins eins og Títanik án björgunarbáta

Það er afskaplega gott að vita af núverandi réttarhöldum yfir bankasvindlurum Kaupþings, sem trixuðu með eigin verðbréf til að blekkja markaðinn. Aftur og aftur sýnir það sig, að eigendur banka með eigin hlutabréf í kauphöllum blekkja viðskiptavini og taka áhættu með fé viðskiptavinarins fyrir eigin vinning.

Engin önnur atvinnugrein í heiminum nema í einræðisríkjum býr við ríkisábyrgð og ríkisstyrki á sama hátt og bankar. Ísland er einsdæmi á heimsvísu með neyðarlögunum og Icesave, sem stöðvuðu rán bankasvindlara á fjármunum skattgreiðenda. Nóg er samt um skaðann og núverandi réttarhöld yfir svindlurum Kaupþings hafa þýðingu, sem ekki verður mæld í krónum.

Sem dæmi um ímynd bankanna er hér myndband frá fjármálasamtökum Belgíu, þar sem börn eru spurð um, hvað þau vilja verða þegar þau verða stór. Enginn velur bankastarfið en hafa sitt hvað að segja um bankana.

 

Hvorki seðlabankar né ríki eiga neitt eftir til að verjast næsta efnahagsáfalli

Í nýrri skýrslu risabankans HSBC lýsir Stephen King hagfræðingur bankans yfir, að efnahagur  heimsins er eins og Títanik án björgunarbáta áður en skipið sigldi á ísbergið. Allir bátarnir eru farnir, sem venjulega eru notaðir við kreppur. Háar ríkisskuldir skilja lítið svigrúm eftir fyrir aðgerðir ríkja og seðlabankar eru ráðalausir, þegar vextirnir eru komnir í mínus. King telur upp fjögur atriði sem fær heiminn að tapa andanum:

1. Launahækkanir í Evrópu og Bandaríkjunum leiða til hruns verðbréfamarkaða.

2. Lífeyrissjóðir geta ekki mætt útgjöldunum næstu tíu árin og neyðast til að selja eignir á lágu verði til að ná sér í peninga.

3. Efnahagur Kína snarstoppar, verð á hráefnum hrynur og alþjóðlegur efnahagur brotnar til grunna.

4. Seðlabankar eins og Federal Reserve í Bandaríkjunum byrja að hækka vexti of snemma.

Stephen King líkir ástandinu við Títanik: "Við munum halda áfram siglingunni yfir hafið á skipi sem þyrmilega vantar björgunarbáta. Margir, þeirra á meðal eigendur Títanik héldu, að skipið geti ekki sokkið. Hönnuður bátsins var samt fljótur að benda á, að "Skipið er gert úr járni, herra. Ég ábyrgist, að það geti sokkið!"

 

mbl.is „Það er einfaldlega refsivert“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband