Faðmur dauðans – Pútín ógnar mannkyni öllu með þriðju heimsstyrjöldinni

putinassadÓyggjandi sannanir eru fyrir aðkomu Rússa að notkun ólöglegra eiturefna bæði í Salsbury í Bretlandi og einnig með aðkomu Sýrlandshers í eiturefnaárás á saklausa borgara í Sýrlandi s.l. laugardag, þar sem börn og konur voru myrt á hryllilegan hátt.

Ábyrgð Vladimir Pútíns er mikil. Bashar Al-assad forseti Sýrlands situr einungis við völd vegna hervalds Rússlands. Allt tal um "framgang Sýrlandshers" er sama taktík og í Úkraínu, þar sem grímuklæddir rússneskir hermenn breyttust í "úkraínska andspyrnuhreyfingu" innan landamæra Úkraínu. Rússar beita sömu lygum um veröld alla. Fremja glæpaverk og þykjast saklausir þegar þeir eru bornir ásökunum. 

Sýrlenski fáninn er blóði drifinn allt síðan venjulegir borgarar gagnrýndu stjórn Al-assads opinberlega. Svar ríkisstjórnarinnar var stríð gegn eigin landsmönnum og saklausir borgarar myrtir í stórum stíl. Vesældómur Óbama Bandaríkjaforseta, sem fékk ófriðarverðlaun norskra krata fyrir, gerði Pútín kleift að byggja upp stöðu sína í Miðausturlöndum. Til að betrumbæta brjálæðið flutti Obama milljarða dollara til Írans sem notar peningana til að smíða stríðsvél í Miðausturlöndum með markmiðið að eyða Ísrael með sprengju djöfulsins. Og þar situr heimurinn í dag.

Rússar hafa völdin í Sýrlandi og líta á árás á glæpastjórn Sýrlands sem árás á Rússland. Hóta kjarnorkustyrjöld fái þeir ekki að fara yfir rauðu eiturlínuna eins oft og þeim sýnist. 

Í stöðu dagsins eru samtal og lög farin. Vopnin tala. 

Mega Norðurlandabúar nú fara að undirbúa sig undir aðgerðir Rússa á Norðurslóðum.

Ekki síst nágrannar Rússlands, Finnar, Norðmenn og Svíar. Íslendingar mega gæta sín vegna legu landsins. 

Eystrarsaltsríkin eru á hættusvæði. Eins og áður.

Heidi Fried - ein af fáum sem slapp lifandi frá Helförinni, líkti í viðtali við sænska sjónvarpið í gærkvöldi ástandinu í heiminum í dag við áratuginn fyrir seinni heimsstyrjöldina.

Déjà vu.

1304421

 


mbl.is Trump ræðir við Macron og May í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Seint trúað því að jafn skynsamur maður og þú myndir trúa þessum endemis samsæriskenningum uppá Rússa !

Gunnlaugur I., 13.4.2018 kl. 04:53

2 Smámynd: Tryggvi Helgason

Stríðið í Sýrlandi byrjaði með innrás múslimskra hryðjuverkasveita, sem vildu ná yfirráðum í landinu. Fram að því hafði verið friðsamlegt í landinu og hvergi átök, og fjöldi þjóðarbrota og trúarhópa lifðu saman í sátt og samlyndi.

Nú loksins, er að sjá fyrir endann á þessu stríði, þar sem löglega kosin stjórn Sýrlands er að vinna fullan sigur á uppreisnarmönnum sem hafa verið kostaðir erlendis frá. Þetta stríð hefur kostað fjölda manns lífið og gífurlega eyðileggingu.

Eiturgas árás var gerð 21, ágúst 2013, á eitt af úthverfum Damascus, þar sem uppreisnarmenn héldu til. Stjórn Assads var sökum um þetta og Obama forseti sendi bandaríska flotadeild áleiðis til Sýrlands með hótunum um árás á Sýrland, í "hefndarskyni"!

Þessu tókst þó að afstýra þegar Rússar buðust til þess að semja um að taka við öllu eiturgasi, frá stjórn Sýrlands, og flytja gasið burt og eyða því.

Síðar við rannsóknir á sprengjusvæðinu þá fundust tóm gashylki, með merkingum sem bentu til uppruna frá Tyrklandi. Benti það jafnframt til þess að eiturárásin var gerð að undirlagi uppreisnarmanna, til þess að koma höggi á stjórn Assads forseta.

Þessi síðasta "eiturgas árás", fyrir nokkrum dögum, virðist vera algjör uppspuni frá rótum. Engar sannanir eru sýndar, engar myndir eða neitt sem sýnir fram á þetta. Og fólk sem býr á þessu svæði segir, að engin árás hafi verið gerð. En það voru sýndar myndir í fréttunum, þar sem menn æða um í einhverju herbergi, eins og brjálaðir, lúberjandi ungabörn og sprautandi vatni úr vatnsslöngu á einhverja sem þarna voru, að því er virðist til þess að þvo af þeim eiturgasið. En gas er gas, og það verður ekki þvegið með vatni.

Þar að auki þá var búið að semja frið við uppreisnarmennina, og var samið um, að þeir mættu yfirgefa landið. Meira að segja, - stjórn Assads bauð þeim, að flytja þá burt með stórum fólksflutningabílum, til þeirra staða sem þeir vildu fara til, í Jórdaníu eða Tyrklandi.

Tryggvi Helgason, 13.4.2018 kl. 17:29

3 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Hverjir hafa hag af eiturefna aras i syrlandi ?

Augljosl ekki Asdad eða Russar.

Hverjir hafa hag af aras a Skripal feðgin ?

Aigljosl ekki russar.

Þarf ekki að vera floknara en þetta.

Hlægilegt.

Kv

LIG

Lárus Ingi Guðmundsson, 13.4.2018 kl. 17:54

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Skv. frásögnum yfir 200 flóttamanna frá hryllingsstjórn Bazar Al-assad sem Svíþjóð hefur tekið á móti og veitt húsaskjól, flúði fólkið ofbeldi og viðbjóð Sýrlandshers, sem handtók fólk án nokkurrar annarrar ástæðu en að vera ekki sammála öllu sem ríkisstjórnin gerði. Fólk hvarf og þegar ættmenni og grannar byrjuðu að grennslast eftir þeim horfnu voru viðkomandi fangelsaðir og drepnir. Þeim sem tókst að komast út aftur vitna um hrottalegar pyndingar Sýrlandshers. Nokkrir þeirra flúðu til Svíþjóðar og hafa borið vitni fyrir Svíum í sérstökum, persónulegum frásögnum sem sænska sjónvarpið skrásetti. Gjörðu svo vel og kynntu þér málið http://pejl.svt.se/syrien200/sv/stories 

Gústaf Adolf Skúlason, 13.4.2018 kl. 17:58

5 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Hér er eitt dæmi af 200 frásögnum. Ómari tókst að flýja böðla Al-assads og komast til Svíþjóðar.

"They broke his leg and gave him electric shocks. They hung him up and tortured him in front of his relatives. Against all odds, Omar, 21, survived – now he wants to tell his story."I was arrested by the political branch of the security force. But before they took us to their headquarters we were brought to a village where they tortured us, only because of religious and sectarian hatred. They used all possible methods. Women and children also participated in the torture. They beat us with wooden and iron clubs but also with chains. After that, they pissed on our heads and in our mouths.

Afterward, they took us to the security headquarters in Tartus. That’s where the questioning began, followed by torture. They asked me "how many officers in the army have you killed?" I replied, "I am sixteen years old, I do not know how to kill anyone. I have never seen a gun."

They tortured me to make me confess things I hadn't done. When they used electric shocks and broke my bones, I could not stand it any longer. I was ready to tell them everything they wanted to hear. Anything, as long as they stopped torturing me.

They took us to a prison in Tartu. When we got there we were forced to take off all our clothes. We were separated and placed in small cells, the walls were covered with blood. The torture began with car tires. They squeezed us into the tires so we were in a very uncomfortable position, then they hit us with various objects. They electrocuted us to the point where our bodies stopped working.

After that, they hung us up in handcuffs and tortured two of us in front of my third cousin. They wanted him to break down mentally. It was the worst experience of my life. We confessed to all sorts of things under torture. The guards wrote down everything we said, even though they knew that it was just fiction.

We were moved to security branch 215 in Damascus. An infamous place that became internationally known when a photographer leaked photos of those who died from torture at the branch. I was kept there for one year and nine months.

 

After the first three months, they killed my cousin Rashad. Another one of my cousins came there in October the same year. In March 2014 my second cousin Bashir died in my arms. After a few months, they killed my third cousin. So I was all alone, without my family in prison.

People fought with each other over a spot to sit on, over food to eat and over water to drink. There were people who were injured and had worms in their wounds. Some died after the guard had raped them. Others were forced to rape each other. They died because of it. Others simply died of sadness from not being able to see their children. People died of diseases and the different forms of torture.

Gústaf Adolf Skúlason, 13.4.2018 kl. 18:08

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Ásakanir ganga á víxl í þessu brjálæði. Það er varla nokkur leið að gera sér grein fyrir hver segir satt lengur. Hvers vegna hafa engar myndir verið sýndar af Skripal feðginunum til dæmis?

 Meginástæðan fyrir ástandinu sem við blasir í dag, er innrásin í Írak og Afganistan. Þetta eru afleiðingarnar, hvað sem hver segir. Til að bandarískt efnahagslíf þrífist, þarf styrjaldir. Vopnaframleiðendur taka ekki annað í mál. Þeir hafa öll tögl og haldir á stjórnmálamönnum og meira að segja forsetum, eða halda menn virkilega að Donald Trump stjórni einn því til hvaða aðgerða verði gripið, í kjölfar síðustu atburða? 

 Að halda það, ber vott um frekar meðfærilegt eða jafnvel lágstemmt IQ.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 13.4.2018 kl. 20:52

7 Smámynd: Starbuck

Jæja Gústaf, þú heldur að stjórnvöld í Sýrlandi séu kannski jafn slæm og Bandaríkjastjórn? - Abu Grahib manstu?      https://en.wikipedia.org/wiki/Abu_Ghraib_torture_and_prisoner_abuse

Starbuck, 14.4.2018 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband