Úkraínumenn gera forsetaleikarann að alvöru forseta - enginn veit hvað gerist næst
22.4.2019 | 08:30
Hinn ótrúlegi og afgerandi yfirburðasigur grínleikarans Volodimír Zelenskí með 73% atkkvæða sýnir hversu þreytt Úkraínska þjóðin er orðin á spillingu og stríði. Zelenski leikur kennara sem óvænt verður forseti í einum vinsælasta sjónvarpsþætti Úkraínu og berst í þáttunum gegn spilltri stjórnmálaelítu. Hætt er við að draumurinn um slíkan forseta geti breyst í andstæðu sína þegar forsetaleikarinn þarf að vera alvöruforseti.
Sjálfur segir Zelenskí að hann hafi hvorki vit á stjórnmálum, efnahagsmálum, alþjóðasamböndum né stríðsrekstri. Minna kosningarnar í Úkraínu á borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík, þegar Jón Gnarr gerði Reykvíkinga að statistum í kvikmyndinni um grínleikarann sem varð borgarstjóri. Eftir það er borgin kominn á hausinn og sér ekki út úr spillingunni á kostnað bæjarbúa.
Öllu meira er í húfi fyrir Úkraínumenn sem eiga í varnarstríði við Rússa með friðarsamning sem enginn fylgir. Zelenskí lofar að hefja friðarumræður við Rússa á ný. Hann liggur undir ásökunum vegna tengsla við ólígarkinn Ihor Kolomojskí sem er grunaður um glæpi og á sjónvarpsstöðina sem rak meginkosningabaráttu Zeleneskí. Sama munstur og hjá Baugshjónunum Jóni og Gnarr.
Draumurinn um forsetann í sjónvarpsþáttunum er mikið áhættuskref með jafn óþekktu korti og Zelenskí. Á hinn bóginn er grínistinn einnig lærður lögfræðingur og vonandi kemur fljótlega í ljós hvort honum tekst að gera forseta skáldsögunnar að forseta raunveruleikans eða hvort áhættuskref Úkraínu verði tekið fullt út með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Guð blessi Úkraínu.
Grínistinn sigraði í Úkraínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:17 | Facebook
Athugasemdir
Tek undir Gústaf. Guð blessi Úkraínu og jafnvel Putinn og Trump verða að blessa þá ef þetta á að virka. ESB getur ekkert gert nema æsa menn upp enda með probaganda líð í það.
Valdimar Samúelsson, 22.4.2019 kl. 17:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.