Brussel-Britta eins og hundur á ESB-spýtunni
2.4.2019 | 20:22
Það er frekar aumkunarvert að sjá Brusseldrottnarana leika kött og mús með þá sem vilja yfirgefa sambandið. Þeirra fremsta verkfæri er Theresa May sem leiðir NO Way fyrir Brexit og notar embættið til að þvinga Breta til að semja um þá afarkosti sem ESB setur upp. Eiginlega eiga Bretar ekki að geta yfirgefið Evrópusambandið heldur settir í hlekki og sitja uppi með ólýðræðislegasta bákn allra tíma til endaloka sambandsins. Vantar bara að nýr Junker og þá ekki drunker komi heldur Junker the bunker með stál í hendi í staðinn fyrir konjaksglas. Slík sena er ekki ómöguleg í framtíðinni.
Það verður að teljast furða að Bretar hafi ekki gert uppreisn og hendi þessu ESB fári af sér og sýnir það ótrúlegt langlundargeð þeirra. Farage óttast að Britta á spýtunni eigi eftir að valda Bretum miklu tjóni og kreppu með hegðun sinni og er hún nú farin að minna töluvert á aðra kaldrari Brittu nær Norðurpólnum sem fór frá í dansi við sjálfan sig á miðju gólfinu og enginn saknar.
May gengur núna þvert gegn eigin ríkisstjórn og ætlar að semja við Verkamannaflokkinn til að fá þingmeirihluta fyrir "samningnum". Slíkt hleypir öllu í bál og brand og ESB-elítan getur þá allt eins sveiflað May í eina langa beygju út af spýtunni til að liðka fyrir nýjum þingkosningum og hugsanlegri yfirtöku vinstri manna sem engu stjórna nema frá rassvasa ESB.
Að May hlaupi í pilsfald stjórnarandstöðunnar til að bjarga ESB gegn Bretum verður trúlega móttekið sem landráð af Brexit kjósendum. Kjósendur Íhaldsflokksins munu ekki taka því þegjandi að atkvæði þeirra verði notuð til framdráttar fyrir Labour. Allt útlit er því fyrir að ESB verði að ósk sinni og efnt verði til þingkosninga í Bretlandi.
May sækir um frest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Facebook
Athugasemdir
Vel mælt og skemmtileg grein um leiðinlegt málefni. Ég veit ekki hvað Bretarnir eru að hugsa lengur. þeir þvæla þessu fram og til baka og vita svo ekkert í sinn haus. Engin hlustar lengur á neinn á þinginu en stangast á með orðum sem reyndar engin skilur lengur. Kv v
Valdimar Samúelsson, 3.4.2019 kl. 09:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.