Fyrirsögnin ofan er sótt í grein Scott Campbell, Daily Express, sem vitnar í hugmyndasmiðjuna Chatham House. Höfundar skýrslunnar eru m.a. tveir fyrrum sendiherrar í Moskvu þeir Sir Roderic Lyne og Sir Andrew Wood. Skýrslan ásakar Vesturlönd um "kollektívt minnistap," þar sem þau gátu ekki séð Úkraínustríðið koma. Segir að Úkraínustríðið sé "þáttur í að skilgreina" framtíðaröryggismál í Evrópu.
"Bara vegna þess, að eitthvað virðist óhugsandi fyrir skipuleggjendur Vesturvelda er ekki þar með sagt, að Moskva telji það ekki vera ásættanlegan valkost" segir í skýrslunni. Þá bendir Chatham House á, að "Moskva er sem hættulegust í veikri stöðu."
Í ræðu á úkraínska þinginu í dag varaði forseti Úkraínu við "innrás í fullum skala":
"Herinn verður að vera viðbúinn nýjum árásum óvinarins í Donbass og sömuleiðis undirbúinn fyrir innrás í fullum skala eftir gjörvöllum landamærunum að Rússlandi".
Fulltrúar ESB lýstu yfir djúpum áhyggjum af stöðu mála í Úkraínu og framkvæmdastjórnin, segir að núverandi bardagar séu stærsta brotið fram að þessu á Minsk friðarsamningnum. Maja Kocijancic fulltúi framkvæmdastjórnarinnar sagði á fjölmiðlafundi fimmtudag, að "það verður að virða vopnahléð og fjarlægja öll þung vopn."
Bardagar að nýju í Úkraínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:10 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.