Færsluflokkur: Heimspeki

Flatjarðar-Akademían tilkynnir:

vogon21) Flatjarðar-Akademían tilkynnir: 
Ef samnefnari skynsama fólksins verður kjörinn forseti mun fyrsta tilkynning hans til þjóðarinnar vera um hina  stórkostlegu uppgötvun hans: Jörðin er kringlótt! Skynsamir eru lánsamir að meðtaka fagnaðarerindið og verður þeim boðið til veizlu á Baugsstöðum. 

2) Flatjarðar-Akademían tilkynnir:
Menntaði sagnfræðingurinn hefur upplýst um misskilning fávísa lýðsins. Fávís lýður er ekki  heimskt fólk! Réttara væri í staðinn að þýða bókstaflega enska málstækið "Stupid Assholes". Skynsama fólkið skilur þetta svo vel, af því að það er betur menntað í enskum málstækjum en fávísi lýðurinn. Þannig verða allir jafnir og hamingjusamir og sérstaklega þeir sem lært hafa "fuck the foreigners".

3) Flatjarðar-Akademían tilkynnir:
Sagnfræðingur í hópi fremstu sagnfræðinga hefur upplýst að þorskastríðum sé enn ólokið! Núna getur allt skynsama fólk farið hlæjandi í ekki stríð, þar til 1000 manns hafa fallið svo hægt sé að kalla þorskastríð stríð og ljúka því.

4) Flatjarðar-Akademían tilkynnir:
Samnefnari skynsama fólksins býður sig fram til forseta í Norður-Kóreu. Hann upplýsir að Norður-Kórea er Ísland! Skynsama fólkið skilur þetta svo vel og er lánsamt, að fátæki frambjóðandinn nýtur stuðnings KCTV sem safnað hefur peningum til að halda úti þremur kosningaskrifstofum í hinu gáfaða ríki Ekkibullukollanna. 

5) Flatjarðar-Akademían tilkynnir:
Óskynsamlegar athugasemdir við störf og tilkynningar Flatjarðar-Akademíunnar eru ósættanlegar og ósæmandi. Allir verða að fara í röð og taka númer. Þannig verðum við öll jöfn og falleg og góð bæði uppalendur og skynsamlingar. 


mbl.is Kýs ekki í forsetakosningunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband