Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Brezka Daily Express birtir grein í dag, þar sem sagt er í fyrirsögn að vegna ríkisstjórnarmyndunar munu Íslendingar greiða atkvæði um hvort þeir vilji ganga með í ESB sem er að liðast sundur. Vitnar blaðið í Óttar Proppe sem segir að samsteypustjórnin vilji halda þjóðaratkvæði um hvort endurlífga eigi umsóknarferli Íslands að ESB sem gefið var upp á bátinn 2015. Segir Express að 64% Íslendinga sé á móti inngöngu í ESB en 36% styðji inngöngu.
Er lesendum blaðsins gefinn kostur á að velja um ÍS-INN eða að Ísland fari að fordæmi Brexit. Rétt í þessu voru 93% með því að Íslandi væri fyrir bestu að vera fyrir utan ESB. Einungis 7% studdu ÍS-INN.
Ótrúlegt að þessi saga gangi að Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur þá stefnu að Íslandi vegni betur utan fyrir ESB, hafi gefið eftir þá stefnu vegna Viðreisnar og Bjartrar Framtíðar.
Björn Bjarnason hefur skrifað um skrípaleik formanna V og BF og skrif Fréttablaðsins í málinu og ekki veitir það á gott, þegar svo grunnt er á heilindum mannanna.
Að setja rifrildismálið ESB á dagskrá með þjóðaratkvæðagreiðslu er að gefa eftir fyrir lúxushagsmunum nokkurra einstaklinga sem reiðubúnir eru að selja þjóð sína fyrir "30 silfurpeninga" svo vitnað sé til kunnugs svikaráðs. Það er jafnframt stríðsyfirlýsing við þjóðina, sem sagt hefur verið að umsóknin hafi verið felld úr gildi með bréfi fyrri utanríkisráðherra til Brussel.
Varla fer Sjálfstæðisflokkurinn að storka þjóðinni með slíku athæfi eina ferðina enn?
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvíldu í friði 2016 - velkomið sértu 2017
31.12.2016 | 09:00
Með stafrænni tilvitnun í Morgunblað dagsins vil ég kveðja árið 2016 með lokaorðum Staksteina: "En það er þó eitt gott við þetta undarlega ár í íslenskum stjórnmálum: Árið 2017 hlýtur að verða betra."
Það hefði orðið áramótasprengja ársins, ef Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði verið kosinn maður ársins á RÚV eins og á landsútvarpi Íslendinga SÖGU. Hann fór nærri og líklega í eitt af fáum skiptum sem RÚV neyðist til að framfylgja skoðun almennings að nefna nafn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á jákvæðan hátt.
Nema þá að Rússarnir hafi komist í tölvur RÚV og reynt að koma sínum manni að á Íslandi eins og Trump í Bandaríkjunum?
Washington elítan með njósnarabælið CIA, hrægammastjóra Wall Street á borð við Sórós, hermangara og keypta krata er farin á taugum. Mótleikur Vladimir Pútíns gegn brjálæðiskasti Barack Obama Bandaríkjaforseta að vísa 35 sendimönnum Rússa í USA úr landi er snilld: Boðsmiði til sendimanna USA í Rússlandi á nýársveislu í Moskvu og allri fjölskyldunni er boðið með. Sjaldan hefur bandarískum forseta verið gefið lengra nef áður.
Heimurinn er að rísa upp gegn þeim öflum sem vilja þurrka út þjóðríkin og gera jörðina flata fyrir hrægammastjóra og keypta stjórnmálamenn.
Var einhver að minnast á frjálsa verslun?
Bara að afhenda nafnnúmerið sitt með öllum ákvörðunarrétti yfir lífi sínu til viðkomandi og fá í staðinn leyfi til að fara með bæn um frjálsa verslun á hverju kvöldi.
Gleðilegt ár 2017!
Minntist á endurtalningu í manni ársins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Lilja prinsessa fékk hjartaáfall
24.12.2016 | 09:42
Prinsessan Lilja hefur fengið hjartaáfall. Svarthöfði hefur verið valinn forseti Alþingis og stjórnar með hörðum en réttum lestri úr bréfum keisarans. Sigmundur geimgengill er fangi í nær tilbúinni Svartstjörnu sem hefur stjörnukerfið í heljargreipum með linnulausum svartagallsskotum. Davíð Yoda dreifir góðum krafti svo Óli-Wan Kenobi geti tekið hrægamma Keisaradæmisins til fanga. Jedi meistararnir eru kraftlitlir núna og klónaður pírataher Svarthöfða tilbúinn að ráðast á Alþingishúsið hvenær sem er.
Lýðveldið er í hættu. Icesave stríðið vannst en Svartstjarnan hefur styrkt myrkraröflin og Keisarinn undirbýr úrslitaárásina. Hvernig verða jólin? Mun prinsessan Lilja ná sér eftir hjartaáfallið? Getur þjóðin bjargað lýðveldinu? Með hverjum stendur forsetinn? Hvað gerir Fjallkonan?
Ég hef verið fjarri skrifum um hríð vegna veikinda en er að ná mér aftur.
Hlakka til að geta veitt her lýðveldissinna stuðning til áframhaldandi varnarbaráttu Lýðveldisins.
Megi krafturinn vera með okkur þessi jól sem endranær.
Með ósk um Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Carrie Fisher á gjörgæslu eftir hjartaáfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Donald Trump og Hillary Clinton fara á barinn
15.11.2016 | 02:08
Donald Trump og Hillary Clinton fóru á barinn.
Donald beygir sig fram og segir með brosi á vör:
"Fjölmiðlarnir tæta þig í sundur vegna Hneykslisins."
Hillary: "Þú meinar þegar ég laug um Benghazi?"
Trumph: "Nei, hitt hneykslið."
H: "Þú meinar kosningasvindlið svakalega?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar, þegar herinn fékk ekki að reikna atkvæðin sín?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar ég notaði einkatölvuna mína fyrir ríkisleyndarmál og til að fela hvað ég var að gera?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að Öryggsmálastofnunin NSA hleraði símtöl okkar, e-póst og allt annað?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að ég nota Clinton sjóðinn til að hylma yfir skattaundanskotum, til að leigja afbrotamenn og taka á móti mútum erlendis?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar að nota dróna í okkar eigin landi án lagalegs stuðnings?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að gefa 123 Technologies 300 milljónir dollara strax fyrir gjaldþrot þeirra og sölu fyrirtækisins til Kínverja?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar þegar við vopnuðum Múslímska Bræðralagið og notum meðlimi þeirra til starfa í Hvíta Húsinu?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Whitewater, Watergate nefndin, Vince Foster, vöruskipti?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að steypa Líbýu í algjöra upplausn?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að vera heilinn á bak við hið s.k. Arabavor sem setti allt í klessu, dráp og eyðileggingu í Miðjarðarhafslöndunum og Afríku?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar við skildum eftir fjóra Bandaríkjamenn til að týna lífinu í Benghazi?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar við klekktum á Múbarak, einum af fáum múslímskum vinum okkar?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar við fjármögnuðum og vopnuðum hryðjuverkamenn í Sýrlandi til að eyðileggja og koma á upplausnarástandi hjá þjóðinni og skipuðum kjölturökkum okkar í Tyrklandi og Sádí Arabíu að gefa "nútíma" hryðjuverkamönnum í Sýrlandi sarín gas sem þeir að lokum notuðu á venjulega borgara og kenndu Assad um, þannig að ef það hefði ekki verið vegna Rússa og Pútins, þá hefðum við notað það sem tylliástæðu til að ráðast á Sýrland, koma strengjabrúðum að völdum, stela af þeim náttúruauðlindunum og skilja landið eftir í algjörri upplausn eins og við gerðum í Líbýu?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að skapa stærstu flóttamannakreppuna eftur seinni heimsstyrjöld?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Skilja eftir Írak í upplausn?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að láta dómsmálaráðuneytið njósna um blöðin?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar þegar heilbrigðisráðherra Sibelíus hristi niður heilbrigðistrygginarlöggjöfinni?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar við gáfum félögum okkar í SOLYNDRA 500 milljónir dollara, sem fóru þremur mánuðum síðar á hausinn og Kínverjar keyptu þá?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að láta Öryggiseftirlitið njósna um venjulega meðborgara?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Að utanríkisráðuneytið truflaði rannsókn saksóknara á meintum kynferðisafbrotum í ráðuneytinu?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar ég, skattstofan, Clapper og Holder lugum öll að þinginu?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Hótanir gegn öllum fyrri hjákonum Bills til að þagga niður í þeim?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar innherjaviðskipti mín í Tyson kjúklingum þegar ég fjárfesti 1000 dollurum og fékk 100 000 dollara ári síðar?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar þegar Bill samdi við Lorettu Lynch dómsmálaráðherra rétt áður en ég var yfirheyrð af FBI?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar þegar tölvusérfræðingur minn á Platte River Networks bað Reddit um aðstoð til að breyta tölvupóstunum?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar, þegar fyrrverandi forseti þingsins á Haiti ásakaði mig og sjóðinn minn um að að hafa beðið hann um að greiða mútur?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar gamla myndbandið sem sýnir mig útskýra hlæjandi, hvernig ég fékk kæru gegn barnanauðgara fellda niður með því að kenna ungu stúlkunni um að vilja vera með eldri mönnum og dreyma um þá, jafnvel þótt ég vissi að maðurinn væri sekur?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar myndbandið af mér, þar sem ég hósta upp grænni rosa slummu í glasið og drekk hana aftur?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar myndbandið af mér þegar líður yfir mig á gangstéttinni og ég tapa skónum?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar þegar ég rændi tilnefningu Demókrataflokksins af Bernie Sanders með því að fá Demókratafundinn að ákveða fyrirfram að ég myndi vinna?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þú meinar af hverju svo margir sem eru á móti mér hafa dáið á dularfullan hátt?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Travel Gate? Þegar við Bill rákum 7 starfsmenn frá ferðaskrifstofu Hvíta Hússins svo vinir okkar Bill gætu tekið yfir ferðaþjónustuna? Og þegar ég laug undir eið við rannsóknir FBI, dómsmálaráðuneytisins, Hvíta Hússins, allra nefnda og óháða Whitewater Ráðsins?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Hneykslið þegar ég sem utanríkisráðherra skrifaði undir samning um að selja 20% af úraníumforða okkar til Kanadensískrar samsteypu sem Rússar keyptu og gáfu síðan Clinton sjóðnum 145 milljón dollara gjöf og Bill að auki 500 þús. dollara fyrir að halda ræðu, allt saman frá sama rússneska fjárfestingarbankanum sem gerði upp viðskiptin? Það hneykslið?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar ég laug því að ég væri undir skotárás leyniskytta þegar ég fór af flugvélinni í Bosníu?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H:"Þegar Bill skipaði Zoe Baird dómsmálaráðherra, þrátt fyrir vitneskju okkar um að hún réði ólöglega innflytjendur í vinnu og borgaði ekki opinbera gjöld af launum þeirra?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Þegar ég fékk undanþágu frá upplýsingaskyldu um erlendar fjármunafærslur frá Nígeríu, þrátt fyrir sönnun um spillingu, þegar þeir borguðu Bill 700 000 dollara fyrir að halda ræðu?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Árið 2009 þegar herinn í Hondúras rak burtu lýðræðislega kjörinn forseta landsins, Manuel Zelaya og ég sem utanríkisráðherra tók afstöðu með hernum og barðist gegn alþjóðavilja um að koma honum aftur til valda?"
T: "Nei hitt hneykslið."
H: "Ég gefst upp!....Bíddu, ég held að ég fatti það! Þegar ég stal húsgögnum og silfurmunum Hvíta hússins, þegar Bill hætti sem forseti?"
Trump: "JÁ, EINMITT ÞAÐ HNEYKSLI"
Hillary: "Fjandinn sjálfur - og ég sem hélt að ég kæmist undan með einmitt það!!!"
Lauslega þýtt frá paulcraigroberts.org
Trump er ekki óféti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 02:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16 dollara tímakaup fyrir þáttöku í "fjólubláu byltingunni" gegn Trump
13.11.2016 | 09:15
Töluvert er rætt um það á hinum ýmsu netmiðlum vestanhafs, að auglýst hafi verið eftir "aktívistum" til að fjölmenna í mótmæli gegn nýkjörnum forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. Þannig greinir t.d. netmiðillinn thegatewaypundit.com frá því að flestir mótmælendur komu frá MoveOn eða Occupy hreyfingunni. Margir mótmælendur sögðust hafa svarað auglýsingum Craig´s list som lofaði 16 dollara greiðslu á tímann fyrir þáttöku í mótmælunum. T.d. var auglýst á craigslist.org í New York eftir stuðningsmönnum Hillarys í mómæli gegn Trump og sagt að sjónvarpsstöðvum í Evrópu vantaði mótmælendahetjur til frétta og frásagna. Þá var fólk hvatt bæði í tísti og á facebook að fylgjast með auglýsingum craigslist.org á sínum stað. Þá hefur MoveOn.org sem af mörgum er talið í eigu fjármálahrægammsins Soros einnig hafið söfnun nafnaundirskrifta til að krefjast þess, að vikið verði frá þeirri hefð, að kjörmenn fylkja Bandaríkjanna kjósi þann frambjóðenda, sem flest atkvæði fær í viðkomandi fylki og kjósi í staðinn Hillary Clinton í desember.
MoveOn samtökunum er stjórnað beint af demókrötum sem eru í forsæti samtakanna. Samtökin hafa sérhæft sig í að skipuleggja mótmæli á götum úti og borgað milljónir dollara til stuðnings frambjóðendum demókrata í forsetakosningum, bæði Barack Obama og nú síðast Bernie Sanders.
Daginn eftir forsetakosningarnar skipulagði MoveOn mótmæli í fjölmörgum borgum USA með birtingu sérstakrar hvatningar til að mótmæla "fordómum, fjölmenningarfóbíu, Íslamafóbíu og kvenfyrirlitningu Donald Trumps". Gat fólk slegið inn póstnúmeri sínu til að sjá mótmælin næst sér sbr. http://www.breitbart.com/live/2016-election-world-reacts-donald-trumps-stunning-upset-victory/moveon-protests-white-house/
Paul Craig Roberts fyrrum aðstoðarfjármálaráðherra í ríkisstjórn Reagans segir að fjölmiðlar þegi yfir því gegn betri vitneskju, að George Sóros stjórni mótmælunum í gegnum samtök eins og change.org ásamt öðrum samtökum borguðum af fjármálahrægömmum. Segir Paul Roberts mótmælin vera þaulskipulagða árás á lýðræðið í Bandaríkjunum sem jaðri við landráð. "Fjólubláa byltingin" kallast það og þess vegna hafi Clinton hjónin klæðst fjólubláu til að sýna stuðning sinn við hin skipulögðu mótmæli, þegar Hillary Clinton viðurkenndi ósigur sinn.
George Soros lýsti komandi götustríðum í Bandaríkjunum í viðtali við Newsweek 2012, þegar hann dró upp þá mynd, að heimurinn væri á leiðinni í "djöfulstímabilið" og spáir götustríðum í Bandaríkjunum sem leiði til mannréttindaskerðinga og hruns alþjóða fjármálakerfisins.
Paul Craig Roberts hefur skrifað fjölmargar greinar um ástandið í Bandaríkjunum, sjá nánar http://www.paulcraigroberts.org
Í einni af greinum sínum telur hann, að ef Donald Trump verði framgangsríkur í baráttu sinni gegn spilltum stjórnmála- og fjármálaöflum, eigin hann á hættu að verða myrtur í starfi sínu sem 45. forseti Bandaríkjanna.
Kennir Comey um ósigurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stórsmellur repúblikana
9.11.2016 | 16:21
Donald Trump tókst að gera hið "óhugsandi": verða kjörinn 45. forseti Bandaríkjanna. Hann gerði það ekki einsamall, Bandaríkjamenn gefa spillingunni í stjórnmálakerfinu, sem demókratar standa fyrir, fingurinn. Og ekki nóg með það: Repúblikanar hafa meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings, þannig að þjóðin hefur sent demókrata heim næsta kjörtímabil.
USA er Brexit 2. Tvö stærstu lýðræðisríki heims hafna alþjóðavæðingu og viðskiptasamningum, sem taka völdin af ríkjum þeirra og færa í hendur þríeykis seðlabanka, spilltra stjórnmálamanna og AGS. Megi frelsisvindur Bandaríkjamanna og Breta blása frískur um allan heim og hjálpa fólki að finna leiðina að sjálfsákvörðunarrétti þjóða sinna og frjálsri samkeppni á nýjan leik.
Áróður fjölmiðla, sem ófáir eru í eigu hrægammastjóra, hefur verið svo yfirdrifinn og gegndarlaus að það hefur líklegast orðið til að skapa samúð með Trump. Allir skilja, að ekki er hægt að fullyrða, að meira en helmingur Bandaríkjamanna hafi breyst í rasista, konuhatara, íslamafóba og almennt í glópa.
Sannleikurinn er í staðinn sá, að keyptir fjölmiðlamenn og skoðanakannanastofnanir eru notuð til að ljúga að þorra fólks og búa til "veruleika" sem þjónar hrægammastjórunum. En eins og Trump sagði: "Enginn getur breytt þessu ástandi nema þið sjálf, fólkið sjálft." Ef einhverjir kunna það, þá eru það Bandaríkjamenn. Þeir hafa í þessum kosningum lyft kyndli frelsis á loft á nýjan leik með hjartans anda í takt við stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Guð blessi Bandaríkjamenn.
Það er heilbrigðismerki, að Repúblikanar og Bandaríkjamenn setja stopp fyrir þessa vitleysu áður en fjámálasvindlurum tekst endanlega að stela jörðinni frá okkur.
Donald Trump kjörinn forseti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Tími kominn að hreinsa díkið
8.11.2016 | 12:51
"Drain the swamp" eða hreinsum díkið er eitt af slagorðum Donald Trumps í kosningabaráttunni. Þessum orðum er beint gegn spillingu stjórnmálamanna í Washington og fjármálamanna á Wall Street.
Sean Hannity hjá Fox News gefur greinargóða lýsingu á ástandinu í Bandaríkjunum og stefnu Donald Trump í þætti Fox (sjá myndband fyrir ofan).
Staðan sem Trump og Repúblikanar vilja snúa við:
- Lægstu atvinnutölur síðan 1970
- Um 95 milljónir Bandaríkjamanna eru utan við vinnumarkaðinn
- Versti hagvöxtur síðan 1940
- Fæstir húseigendur í 51 ár
- 13 milljónir Bandaríkjamanna lifa á opinberum matarmiðum
- 43 milljónir Bandaríkjamanna lifa í fátækt
- Ein af fimm fjölskyldum vantar fyrirvinnu
- Sjötti hver karlmaður á aldrinum 18 til 34 ára er í fangelsi eða atvinnulaus
- Stærri skuldir eftir Obama en alla aðra forseta samanlagt
Trump vill:
- Lækka skatta (fækka skattastigum)
- Skera niður í reglugerðafargani ríkisstjórnarinnar
- 4% árlegan hagvöxt
- Sköpun nýrra starfa í Bandaríkjunum
- Tryggja frjálsan markað
- Fá gróða stórfyrirtækjanna inn í landið
- Óháða orkuframleiðslu
Kosningarnar snúast um:
- Efnahaginn
- Óháða orku
- Obamacare
- Hæstarétt
- Baráttuna gegn róttæku íslam
- Öryggisvandamál innflytjenda
- Herinn
- Hlutverk Bandaríkjanna í heiminum
- Menntun
Tvísýnt um úrslit kosninga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Munu demókratar eyðileggja forsetakosningarnar ef Trump er að vinna?
6.11.2016 | 11:46
Sögur ganga af því að Barrack Obama Bandaríkjaforseti ætli að koma með "kosningasprengju" degi fyrir forsetakosningarnar. Sem kunnugt er flýgur hann á kostnað skattgreiðenda um öll Bandaríkin til aðstoðar Hillary Clinton í kosningabaráttunni.
Það er ótrúlegt að heyra jafngreindan mann eins og Hannes Hólmstein Gissurarson verja Hillary Clinton á þeim grundvelli, að Donald Trump sé á móti frjálsum markaði. Donald Trump hefur sagts ætla að rífa upp NAFTA samningana og stöðva TPP. Þeir síðarnefndu eru eins og fyrsti Icesavesamningurinn þar sem löggjafarvald þjóðarinnar var afnumið og dómsréttur færður í erlendar hendur.
Prófessornum yfirsést, að hagsmunir Bandaríkjamanna hafa verið hlunnfarnir um langt skeið í sömu "alþjóðavæðingu" og Íslendingar hafa kynnst í Icesave og á- og ítroðningi ESB og einnig í kröfum hrægammasjóða. Skuldir Bandaríkjanna eru svimandi háar og hafa í forsetatíð Óbama stækkað meira en í tíð allra fyrirrennara hans frá 8 upp í 20 trilljónir Bandaríkjadala. Atvinnuleysi er gríðarlega mikið og um 70 milljónir Bandaríkjamanna hættir að leita að vinnu og ekki á skrá yfir atvinnulausa. Tæpur helmingur Bandaríkjamanna fá matarmiða og opinbera styrki. Varla getur þetta verið dæmi um kosti hins frjálsa markaðar? Donald Trump vill breyta þessu, hann vill að Bandaríkjamenn taki stjórn á eigin landamærum og stöðvi ólöglega innflytjendur og eiturlyfjasmygl, hann krefst stærri þáttöku aðildarríkja NATO og hann ætlar að koma framleiðslunni í gang aftur í Bandaríkjunum með því að tryggja frjálsan markað á nýjan leik.
Alþjóðavæðingin s.k. er andstæða hins frjálsa markaðar vegna þess að hún er í höndum oligarka á Wall Street (t.d. skipaði City Bank um helming manna í ráðuneytum Obama s.k. Wikileaks). Hagsmunir sterkustu aðilinna t.d. við vopnasölu til Saudi Arabíu, í alþjóðlega bankakerfinu (FED USA, Seðalabanka Evrópu, ESB, AGS m.fl.) ganga ofar frjálsum markaði og ef ekki er farið eftir þessarri fjármálaklíku kemur dauðadómsrausið um Kúbu Norðursins og heimshrun í kjölfarið. Fólk hefur verið blekkt allar götur síðan 2008, verðbréfamörkuðum haldið uppi með peningaprentun, þjóðarréttur ríkja afnuminn og mörgum kynslóðum steypt í skuldafjötra.
Clinton fjölskyldan eru Al Caponarar nútímans og innblönduð í viðbjóðsleg hneykslismál þar sem peningaþvottur, mútur og barnaníð eru daglegt brauð. Clinton hefur stundað miðasölu á lýðræðisleg völd í Bandaríkjunum og þar með grafið undan stjórnarskrá Bandaríkjanna. Það eiga margir virtir Íslendingar eftir að skammast sín fyrir að hafa stutt Clinton, þegar sannleikurinn loksins meitlast inn.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna heldur því fram, að Rússar séu að undirbúa tölvuárásir á forsetakosningarnar. Þægileg afsökun til að eyðileggja útkomuna ef Donald Trump verður sigurvegarinn.
Á þriðjudaginn fáum við svarið.
Clinton og Trump keppa um lykilríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Árásinni á Ísland var ætlað að klína á forráðamenn ríkisstjórnarflokkanna að þeir væru skatta svindlarar og ómerkilegir glæpamenn. Árásinni var aðallega beint gegn löglega kjörnum forsætisráðherra þjóðarinnar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Þótt sérkennilegri lygum hafi verið dreift erlendis sem ekki var dreift á Íslandi, að Sigmundur Davíð stundaði peningaþvott í Panama til ólöglegra vopnakaupa fyrir vopnabróður Pútíns í Sýrlandi, Al-Assad, þá dugðu lygarnar á Íslandi til að steypa forsætisráðherranum úr stóli. Sjálfstæðisflokkurinn spjaraði sig og varð að meðgangast frávik frá stjórnarskrá um kjörtímabilið sem kjósendur völdu.
Síðan sveik Sigurður Ingi eins og alþjóð veit loforð sitt til Sigmundar Davíðs um að bjóða sig ekki fram til formanns Framsóknarflokksins. Gekk hann í lið með Pírötum, Samfylkingu, Bjartri framtíð og Vinstri grænum með sömu rökum um afsögn Sigmundar og nýjar kosningar og þau höfðu kynnt.
Útkomuna þekkja allir. Framsókn tapaði svo miklu fylgi, að þrátt fyrir glæsilega útkomu Sjálfstæðisflokksins, þá er ríkisstjórnin fallin. Sigurði Inga tókst því að fullkomna upprunalegt markmið Panamaárásarinnar á Ísland og eyðileggja Framsóknarflokkinn í leiðinni.
Vilji Framsóknarmenn koma í veg fyrir sömu örlög og Samfylkingin verða þeir með vendi að taka eina Oddnýju Harðardóttur á formanni sínum. Og það er ekki eftir neinu að bíða, formaðurinn er ákveðinn í Samfylkingarörlögum flokks síns.
Tilbúnir í samstarf við hvern sem er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hláturbréfasambandið
25.10.2016 | 19:33
Ef til væri hláturbréfamarkaður væru bréf Evrópusambandsins hæst skráð allra hlátursbréfa.
Eftir að tilraunin með viðskiptasamninginn við Kanada fór um þúfur vegna þrjóskra Vallóna í Belgíu sem neituðu að samþykkja samninginn, þá tók hlátursbréfamarkaðurinn kipp í vikunni.
Mikil hækkun varð, þegar þróunarsjóður ESB borgaði innréttingu húsnæðis tjékkneskra gleðikvenna nálægt landamærum Þýzkalands. Voru skattgreiðendur látnir borga fyrir endurnýjun þaks og útlits hússins með nýju rauðu ljósaskilti með hjarta og bókstöfunum XXX utan á húsinu. Samtals fengu gleðikonurnar 40 þúsundir evra eða um 5 milljónir ískr greiddar fyrir þessa "svæðaþróun".
Gömlu fjárhúsi var breytt í nútíma gleðihús og þegar blaðakona ætlaði að athuga málið var henni bent á að engar rollur væru lengur í húsinu en 15 konur ynnu þar á vöktum og eingöngu karlmenn fengju að fara inn í húsið til að kaupa þá þjónustu sem boðið var upp á. Forstöðukona hússins talaði bjagað mál með rússneskum hreim.
Olof rannsóknarstjóri ESB ætlar nú rjóðkinnaður að athuga málið, því enginn sagði ESB frá því að fjárhúsið yrði þróað sem svæði tékkneskra gleðikvenna. Kannski borgar Olof álíka upphæð til að setja upp skilti við veginn: "This is not a brothel." Spurning er hvort það hafi við XXX skiltinu.
Söluaðilar hlátursbréfa ESB á Íslandi eru Píratar, Samfylking, Viðreisn, Björt framtíð og Vinstri grænir.
Boltinn er hjá Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)