Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Frakkar afnema orðin faðir og móðir - talin kúga samkynhneigða - foreldri 1 og 2 notuð í staðinn

foreldri1Þetta er ekki frásögn úr vísindaskáldsögu. Þetta er engin lygi. Þetta er frásögn af nýjum skólalögum í Frakklandi.

Héðan í frá verða orðin móðir og faðir ekki lengur notuð þar sem þau tryggja ekki jafnrétti samkynhneigðra. Orðin eru sögð gamaldags þar sem þau taka hvorki tillit til samkynhneigðra foreldra ná henta nútíma lögum um hjónabönd samkynhneigðra. Orðin foreldri 1 og 2 koma í staðinn í lögum um "skóla sem hægt er að treysta".

Valére Petit fulltrúi REM-flokks Macron segir að margar fjölskyldur séu á tímamótum gamaldags fjölskyldulíkana. "Þessi breyting táknar félagslegt jafnrétti". 

Halda mætti að Macron sé í beinu sambandi við Kölska sjálfan. Lögin kippa stoðunum undan kjarnafjölskyldunni - sjálfum grundvelli samfélagsins. Börn í Frakklandi verða heilaþvegin með nýju hugtökunum frá þriggja ára aldri.

AFDH samtök franskra samkynhneigðra foreldra tóku vel í lögin en varaði samt við stéttaskiptingu á milli 1 og 2: "Hver á að vera foreldri 1 og hver á að vera 2?"spyr formaður samtakanna. 

Greinilega verður mikið að gera í breytingu ritaðs máls til að lagfæra kúgun samkynhneigðra. 

Tvö dæmi, annað úr Stjörnustríði, þegar Svarthöfði upplýsir Loga um tengsl þeirra tveggja - sjá mynd. Hitt dæmið er þekkt bæn: "Foreldri eitt, þú sem ert á himnum...." 


Fjallkona Íslands

fjallkonanVigdís Hauksdóttir meinar það sem hún segir. Hún gerir það sem hún meinar. Eins og bestu fjallkonur.

Það var heillaspor fyrir Reykvíkinga að fá Vigdísi Hauksdóttir í borgarmálin. Svínarí Samfylkingarinnar sem keyrt hefur fjármál borgarinnar í botn og lifað glys- og glamúrlífi á svita og tárum borgarbúa hefur fyrir löngu síðan flætt yfir öll flóamörk.

Það er til marks um kjark og dug, að GERA EITTHVAÐ í málunum. Hingað til hefur litlu sem engu verið hreyft - aðeins talað.

En þegar Vigdís Hauksdóttir kom inn á sviðið gerast hlutirnir, pálmatrén fjúka, braggagullið kemst upp á yfirborðið og höfuðpaurinn Dagur B. Eggertsson reynir að fela síg í sífellt minnkandi sjálfsskugga til að myrka glæpaverkin.

Þrátt fyrir að kærufrestur sé fyrir löngu útrunninn er rétt að reyna á þessa leið fyrst áður en áfram er haldið.

Borgarmálin eru í þvílíku uppnámi að það eina sem getur hreinsað burtu óloftið eru nýjar sveitastjórnarkosningar í Reykjavík. Gjarnan undir opinberu eftirlit.


mbl.is Vigdís kærir borgarstjórnarkosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ókrýndur herforingi glóbalista ógnar heimsfriðinum

Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO hefur fullkomlega rétt fyrir sér í viðvörun til ESB um stofnun ESB-hersins. Slíkur her þjónar ekki vörnum ríkja á meginlandinu heldur einu stórveldi sem getur dregið heiminn út í stríð eina ferðina enn. Að sniðganga Bandaríkin er ögrun við söguna og þungar fórnir Bandaríkjamanna í fyrri stríðum Evrópu. Án Bandaríkjanna hefði þýzka morðmaskínan ekki verið stöðvuð. NATO hefur tryggt friðinn í Evrópu, hvorki Þýzkaland né Frakkland né ESB hafa gert það, þótt ESB reyna að stela afrekum Bandamanna.

Soros-FT-640x480Núna blæs ókrýndur herforingi bláa stjörnufánans, marxíski auðkýfingurinn George Soros til stríðs gegn fullveldissinnum hvar sem er í heiminum (blessuð sé minning Jóns Sigurðssonar). Í nýrri grein skrifar Soros, að ESB standi frammi fyrir allsherjarhruni nema að stuðningsmenn ESB "vakni úr svefni." Segir Soros valdhafa í heiminum þurfa að skilja að stjórnmál snúist ekki lengur um verkafólk gegn kapítalistum heldur með eða á móti ESB og glóbalismanum. Soros hótar með "martröð aldarinnar" ef glóbalistar tapi í kosningum til ESB-þingsins í maí n.k. Donald Tusk einn af forsetum ESB segir þá sem ekki vilja vera með í ESB eiga heima í helvíti. 

Lýðræðið eins og við þekkjum það er undir árás. Evrópuher Soros&Co á að nota gegn ríkjum Evrópu sem ekki fylgja ESB að málum. Vígbúnaðarkapphlaup er hafið í kappi við klukkuna. Hinn frjálsi heimur hefur sem fyrr bandamann í Bandaríkjamönnum og NATO.


mbl.is Varar við Evrópuhernum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar kosningar eina leiðin til að hreinsa andrúmsloftið í Reykjavík

800px-Reykjavik_Coat_of_Arms.svgHneykslismálum úr stjórnsýslu Rekjavíkurborgar rignir yfir okkur þessa dagana og virðist engan enda taka. Kosningaáróður borgarstjórnar í síðustu sveitarstjórnarkosningum er meint lögbrot samkvæmt úrskurði Persónuverndar í vikunni.

Að borgaryfirvöld földu megintilgang inngripa í kosningaferlið fyrir Persónuvernd er ein og sér næg ástæða fyrir ógildingu síðustu sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík og að kosningar fari fram að nýju. Borgarstjórn hefur fyrir utan meintan kosningaáróður gefið út villandi kosningaleiðbeiningar sem er brot á lögum um kosningar til sveitastjórna.

Að fela afstöðu fulltrúa minnihlutans fram yfir kosningar er ólýðræðisleg valdbeiting borgarstjórnar, vægast sagt, sem misnotar stöðu sína til að hafa áhrif á kosningarnar sínum flokkum í vil. Meint kosningaspjöll sem einnig ógilda niðurstöðu kosninganna í Reykjavík.

Eyðing tölvupósta, ítrekuð ósannindi vegna brota á fjárlögum borgarinnar og útboðsreglum eru dæmi um önnur afbrot í stjórnsýslu höfuðborgarinnar.

Ef meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur á að fá að komast upp með margítrekuð lögbrot verða kosningalög og lýðræðisreglur fótum troðnar og traust kjósenda rofið, sem mun taka mun lengri tíma og kosta meira að laga en að endurtaka kosningarnar í Reykjavík.

Yfirkjörstjórn á að láta málið til sín taka og ógilda kosningarnar. Það er hreinasta, fljótvirkasta leiðin til að taka á sukkinu í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar og hreinsa það eitraða andrúmsloft sem eyðileggur hefðbundin störf í þágu Reykvíkinga.

 

 


mbl.is Ítrekað var óskað eftir áliti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hærra plan helvítisveirunnar heilaeinkenni stjórnsýslunnar

dreamstime_xs_96872832Einn af forsetum ESB, Donald Tusk, sagði á blaðamannafundi, að þeir sem styddu Brexit væru íbúar helvítis. Annar forseti ESB, Juncker, sagði að hann væri í helvíti í starfi sínu hjá ESB en hefði enn ekki hitt þessa íbúa helvítis sem hinn forsetinn talaði um. Þriðji forsetinn á eftir að segja sitt til að fullkomna hærra plan helvítisveirunnar.

Orðafimleikar utanríkisráðherra Íslands minna á fyrirennara hans sem reyndi að sannfæra landann um, að með ESB fylgdi dýrðarglampi í pakka til Íslendinga, sem að pakkanum meðteknum fengju að hlýða á hörpuslátt að eilífu. Við svo búið yrði ekki á hærra plan komist. Núverandi utanríkisráðherra vill ekki vera minni en fyrirennarinn og lofar orkupakka númer þrjú með síst minni glampa.

Íslendingar hafa heyrt og séð þetta áður. Lýðræðislega kjörinn embættismaður sem tapar jarðtengingunni við snertingu Evrópusambandsins. Sambandi sem setur sífellt ný met í atvinnuleysi, sköttum, fátækt, bókhaldsóreiðu, spillingu, fjármálasvindli, valdmisbeitingu,  ríkjakúgun, handtökum lýðræðissinna og núna síðast innflutningi öfgaíslamista til að berjast í heilögu stríði á hæsta plani.

Varla við öðru að búast, þegar íbúarnir flykkjast til helvítis og skilja forsetann og utanríkisráðherrann eftir.

Þýzka drottningin með háhælaða franska forsetagleðigosanum eru svo high af framtíðarsýn á hærra plani, að nýji stórveldaherinn leyfir Þjóðverjum að svíkja herleysisloforðið, sem þeir lofuðu öllum eftir seinni heimsstyrjöldina.

Helvítisveiran er komin á svo hátt plan, að næsti forseti eða kanslari getur sent alla álfuna að Íslandi meðtöldu eina ferðina enn til helvítis.  


mbl.is Vill umræðuna um EES á hærra plan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Alþingi reiðubúið að taka af skarið með óheillaumsóknina forðum?

200px-Coat_of_arms_of_Iceland.svgTöluvert hefur verið rætt um, að ESB-umsóknin liggi óvirk í skúffu og að ríkisstjórn hliðholl Evrópusambandinu geti dustað af henni rykið í framtíðinni og haldið áfram aðlögunarferlinu að þjóðinni forspurðri. Þá fengi þjóðin enga viðkomu frekar en þegar Samfylkingin - með þvinguðum "stuðningi" Vinstri Grænna, sendi þjóðina út í horn á meðan ríkisstjórnin sótti um inngöngu í ESB.

Sjaldgæf fávizka talsmanna Samfylkingarinnar, sem reyndu að blekkja þjóðina með samningapakka, afhjúpaðist á eftirminnilegan hátt, þegar Össur Skarphéðinsson fv. utanríkisráðherra  var "tuktaður til" af fulltrúm ESB sem upplýstu að um engar samningaviðræður væri að ræða heldur hreint aðlögunarferli. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bendir réttilega á, að innganga í ESB er spurning um aðlögun íslensku stjórnarskrárinnar að stjórnarskrá ESB Lissabonsáttmálanum.

Það færi mjög vel á því að Alþingi ályktaði um afstöðuna til ESB og óheillaumsóknarinnar forðum. Alþingi myndi með slíkri ályktun hreinsa andrúmsloftið og leggja skýrar línur um málið í framtíðinni, þannig að engin ríkisstjórn gæti á eigin forsendum vélað þjóðina inn í stórveldi meginlandsins sem einungis vex í öfuga átt við lýðræðið.

Það myndi bæta ímynd Alþingis að álykta um frelsi þjóðarinnar til að ákveða sjálf örlög sín og binda samtímis formlegan endi á hugsanlegt, áframhaldandi innlimunarferli ESB í trássi við vilja þjóðarinnar.

Vonandi hafa öldurnar lægt það mikið eftir "hrun" að Alþingi geti núna sameinast um framhald málsins.

Slíkt yrði heillaspor fyrir Ísland.

 

 


mbl.is Hefðu átt að halda þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Ítalía næsta land að fara úr ESB?

italiexitHagfræðingurinn Roger Bootle segir að Ítalska efnahagskerfið muni hrynja og Ítalir yfirgefa evruna. Segir hann að "þegar Ítalía springur að lokum muni það skapa bæði bankakreppu sem skekja muni efnahag ESB og stjórnmálakreppu sem hrista muni grundvöll alls ESB". 

Ítalía er í þriðju efnahagslægðinni á einum áratug. Bootle segir að evran hafi gert alla hluti verri fyrir Ítali í samanburði við Breta, því vöxtur Ítalíu hafi aðeins verið 9% á sama tíma og hagvöxtur Breta nam 44% þökk sé sjálfstæðum gjaldmiðli Breta brezka pundsins. 

Tíu ára skuldabréf Ítalíu bera 2,6% hærri vexti en þýzk og fara vextir hækkandi með auknum óróleika á fjármálamörkuðum.

Roger Bootle segir "að ef Ítalíu takist ekki að koma sjálfbærum hagvexti skjótt í gang muni ríkið fara í greiðsluþrot, þurfa að yfirgefa evruna eða hvorutveggja í senn."

 


Skítugasta, foráttuheimskasta kosningabarátta framundan í ESB. Fullveldismenn Gyðingar nútímans.

dreamstime_xs_132027446Internazistarnir í Berlín og á Wall Street hafa fyrir löngu síðan gyðingavætt sérhvern þann mann sem unnir sínu föðurlandi. Syngdu Farsælda Frón og þú átt á hættu að vera ásakaður um nazisma. Í besta falli lýðskrum og hægri þjóðernisstefnu. Ó Guðs vors lands og land vors Guðs er fyrir löngu gleymt. Niðurtraðkað af klausturklossum. Fjallkonan er hengd til þurrkunar eins og hver önnur skreið. Þeir einu sem ekki verða af main-stream media ásakaðir fyrir að vera nazistar eru nazistarnir sjálfir, al-þjóðlegu-sósíalistarnir sem eru arftakar þjóðlegu-sósíalistanna og breyta öllu í al-þjóð.

Sænskum sósíaldemókrötum tókst með hræðsluáróðri um nazisma að véla til sín gula hnappa í þingborðum smælkisflokka, svo þeir gætu múrað sig áfram við völdin. Eru núna á fullu í undirbúningi fyrir ESB-þingkosningarnar í maí. Búið er að fá fræðilegu uppskriftina með skýrslu um "rússneska íhlutun í samstarfi við innlend hægri öfgaöfl" keypta með skattafé af kratískri "hugveitu" í London. Afdankaður kratískur göbbelgæðingur fenginn til að forma kenningar og leiða slátrunarherferð á frjálsum fjölmiðlum og opinni umræðu. Með sömu aðferðum og Rússar eru sagðir beita: Tröllum á netinu. Virkja á auglýsingabransann með í úrslitastríðið um síðasta orð sannleikans með því að svelta hvern þann miðil sem dirfist að andmæla ESB eða stórbrjálæðisveldahugmyndinni sem er að verða veruleika fimm í tólf. 

Verður í þessarri skítugu baráttu engin leið að vita hver segir hvað og frá hverjum boðskapurinn kemur. Netstormsveitir ESB eiga að kæfa möguleika venjulegs fólks til skoðanaskipta á félagsmiðlum og google er þegar byrjað að sortera burt "hatursumræðu" gagnrýnenda stórríkisins við leitir á netinu. Bein símalína er milli sænsku ríkisstjórnarinnar og skæruliða Facebook, Google og Youtube. Megum við búast við falsfréttaflóði frá internazískum fréttaveitum komandi mánuði.

Á litla krúttlandinu kennt við ís er Klausturssiðavæðingin mikla þáttur í nýjum veruleika veruleikafáranleikans. "Óháðir varaforsetar" settir í víglínu nýju siðaskiptanna. Ekkert mark tekið á vesælings mannætunni sem fór á Klaustur bar og varð það á að gleypa Miðflokksmann og leggjast magaveik í rúmið á eftir. Nýju siðaskiptin eru undir eftirliti marskálks ESB sem horfir á sérhverja baráttu til að útrýma leiðtogum sjálfstæðra þjóða með aðdáunaraugum. Ekki skal hætt fyrr en búið er að véla stjórnskrána inn í ESB-maskínuna, dusta rykið af aðildarumsókninni og stimpla á hana: Afgreidd. 

Sjálfstæðisflokkurinn hvað? Varla neitt eftir af því nafni nema flokkurinn.


mbl.is Vilja eyða ESB innan frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert lát á sprengju - og skotárásum í Svíþjóð

affeMorgunblaðið og útvarp Saga eru helstu miðlar sem segja frá ofbeldisvandamálum Svíþjóðar. Aðrir miðlar eru meira eða minna fréttastofur vinstri manna sem afneita vandamálunum.

Á sama tíma og leynilögregla Svíþjóðar SÄPO skilgreinir stærstu ógn Svíþjóðar vera íslamska vígamenn skilgreina vinstri menn undir forystu Stefan Löfvens stærstu ógnina vera "nazista" Svíþjóðardemókrata. Kratar setja sama sem merki milli eigin flokks og Svíþjóðar. Það er rétt hjá þeim að óttast Svíþjóðademókrata sem stærsta stjórnmálaandstæðinginn, flest atkvæði Svíþjóðademókrata eru fyrrum sósíaldemókratísk á flótta frá þeim flokki sem hefur hleypt ofbeldinu inn á gafl friðsamra Svía.

Anders Thornberg ríkislögreglustjóri Svíþjóðar sér ekkert lát í bráð á öllum manndrápunum: "Það eru 10 - 15 aðrir einstaklingar reiðubúnir til að fylla skarð þess sem fellur og við sjáum engin merki þess að ofbeldinu linni neitt í bráð". Í fyrra voru 44 drepnir með byssukúlum. Í ár verða þeir örugglega fleiri. Landamæralögreglan er svo fáliðuð að þeir geta ekki stöðvað straum manna frá Uzbekistan en þaðan kom maðurinn sem drap fólk á Drottningargötu í miðbæ Stokkhólms. "Það eina sem við getum gert er að segja Hæ verið velkomnir". Leynilögreglan telur að um 2000 slíkir komi árlega til landsins.

Í Svíþjóð ríkir hættustig 3 á 5-stiga skala. Það þýðir að hryðjuverkaárás getur orðið hvenær sem er. Ofan á þetta bætast allar hryllilegar nauðganir sem sett hafa Svíþjóð í næstversta sæti nauðgunarþjóða í heiminum í fjöldamörg ár. Skrár yfir kærðar fullkomnar nauðganir sýna að þeim hefur fjölgað eittþúsundsexhundraðsextíuogsex prósent (1.666%) frá 1975. Fjórfaldast á síðustu 14 árum. Svalastúlkurnar eru að komast aftur í tízku (konur sem "detta" af svölum húsa).

Mannréttindabaráttukonan Sara Mohammad gagnrýnir stjórnvöld fyrir að dæla skattfé í samtök bókstafstrúandi salafista í Svíþjóð: "Sharíalögreglu mun fjölga". Ekkert sést til s.k. femínista í baráttunni gegn "heiðurs"ofbeldi gegn konum í Svíþjóð. Þær eru eins og á Íslandi sjálfuppteknar af gerivörtum og öðru menningarlegu rastafargani. SádiArabar dæla tugum, - hundruðum milljónum króna í sænska sérskóla sem næra vaxandi fótfestu öfgaíslamismans í Svíþjóð. M.a. til Al-Risalah stofnunarinnar í Örebro sem rekur múslímskan grunnskóla á staðnum og á moskur á Íslandi og í Noregi að sögn sænska Dagblaðsins.

Og sprengjurnar springa og kúlurnar hvína, - í þessarri viku í bænum Värnamo í S-Svíþjóð. Eigið góðan dag.


mbl.is Einn lést í skothríð í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barðist gegn þjóðinni í Icesave - verðlaunaður með æðstu stöðu Alþingis

15436Það eru ekki ólöglegar upptökur á alþingismönnum á bar sem skaða ímynd Alþingis til lengdar, heldur sú stjórnmálalega samtrygging, sem verðlaunar þann stjórnmálamann sem harðast barðist gegn þjóðinni með ólöglegum fjárhagskröfum bankaræningja og efnahagslegri örbirgð tugi þúsunda landsmanna. 

Að Steingrímur J. Sigfússon situr á forsetastóli Alþingis er með öllu óskiljanlegt og í hrópandi andstöðu við almenna skynsemi. Það er skömm fyrir Alþingi í ljósi sögunnar og svartur blettur á íslenskum stjórnmálum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir réttilega á að Steingrímur J.

  • lagði hendur á ráðherra í þingsal
  • reyndi að koma sama manni í fangelsi með pólitískum réttarhöldum
  • afhenti erlendum hrægammasjóðum íslensku bankana á sama tíma og þúsundir fjölskyldna misstu heimili sín
  • nýtti ekki þau tækifæri sem gáfust til að endurreisa íslenskt efnahagslíf
  • státaði sig í staðinn af hrósi erlendra fjármálastofnana

Pólitískur dómstóll getur aldrei komið í stað alvöru dómstóls réttarkerfisins. Dómgreind vinstri manna er spjót með orðinu SEKUR sem kastað er umræðulaust í stjórnmálaandstæðinga. 

Mikið er reynt til að bola Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni út úr stjórnmálum en allt kemur fyrir ekki. Maðurinn er býsna góður leiðtogi sem vex við hverja raun.


mbl.is Segir þingforseta svala hefndarþorsta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband