Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Eru þingmenn Alþingis sammála Helgu Völu Helgadóttur um að gagnrýnendur þingsályktunartillögu utanríkisráðherra séu starfsbræður Hitlers?
16.5.2019 | 00:29
Það hlýtur að teljast nýtt lægsta sjónarhorn úr ræðupúlti Alþingis að formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Helga Vala Helgadóttir, ber saman gagnrýni á Or3 og Miðflokksmenn við hryðjuverk nazismans og foringja helfararinnar Adolf Hitler. Má vera að rökin gegn lygum talsmanna orkupakkans um "lægra rafmagnsverð, meiri samkeppni og neytendavernd," sem hvergi hefur gerst á þeim Norðurlöndum sem tengst hafa orkumarkaði ESB, brenni á sálu Helgu Helgadóttur. Eða þá að afhjúpun Miðflokksmanna um lagalega fyrirvarann sem týndist á leiðinni stingi talsmenn orkupakkans sárt. En að segja samstarfsþingmenn sem vilja ræða á lýðræðislegan hátt um staðreyndir orkumála á Íslandi og innan ESB vera nazista er ekkert annað en fyrirboði um gjaldþrot þeirrar þingsályktunartillögu sem er til umræðu.
Er hægt að leggjast lægra í umræðum á Alþingi? Finnst Alþingismönnum þetta vera í lagi?
Nýjar kannanir: 48% telja ESB á rangri leið - 51% Svía á móti fleiri innflytjendum
14.5.2019 | 15:38
Ipsos: 48% telja ESB á rangri leið - einungis 28% fylgjandi ESB-elítunni
Í hverri könnuninni á fætur annarri vex myndin skýrar fram: Íbúar Evrópu telja ESB á kolrangri leið. Ipsos gerði nýverið könnun hjá 7.511 manns á aldrinum 18 - 64 ára í Belgíu, Frakklandi, Stóra-Bretlandi, Þýzkalandi, Ítalíu, Spáni, Ungverjalandi, Póllandi, Serbíu og Svíþjóð og nær helmingur telur ESB á rangri leið. Ítalir eru mest ósammála: 57% Ítala segjast ósammála vegferð ESB. Frakkar koma næstir með 54% á móti ESB og þar á eftir Bretar með 52% gegn ESB. Pólland og Spánn voru minnst á móti ESB en 40% og 41% sögðust andvíg ESB.
Yougov: Meirihluti Ítala, Pólverja og Svía vilja ekki taka á móti fleiri innflytjendum
Þá spurði Yougov átta þúsund manns í átta ESB-löndum um afstöðu til málaflokka og eru innflytjendamálin efst á blaði og loftslagsmálin númer tvö. Meirihluti Svía eða 51% sögðust sammála fullyrðingunni "Landið mitt á ekki að taka á móti fleiri flóttamönnum frá átakasvæðum". Pólverjar og Ítalir voru harðastir í afstöðu gegn fleiri innflytjendum en 53% í báðum löndum voru sammála því að hætta að taka við fleiri flóttamönnum. Andstaðan gegn ESB vext jafnt og þétt í Svíþjóð og er deilt um hækkun á aðildargjöldum sem nemur um 192 milljörðum ísk á ári. Þá kostar ESB-áskriftin Svía mótsvarandi 705 milljörðum ISK árlega (55 milljarðir SEK. Til samanburðar kostar réttarfarskerfið + lögregla Svíþjóðar ca 40 milljarði sek.)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ríkisstjórnin fari frá í stað þess að valta yfir þjóðina með orkupakka 3
14.5.2019 | 04:34
Ýmsir af orkupakkamönnum þykjast vera á móti því að Ísland gangi með í ESB. Engu að síður vinna þeir að því öllum stundum að binda hendur þjóðarinnar og þvinga hana inn í ESB skv. sneiðingarformúlunni: Eitt samband í einu þar til lýðveldið Ísland er uppleyst.
Landbúnaðurinn sem sagður er vera á "íslenskum" grunni er farinn. Þar héldu engir af svo kölluðum "fyrirvörum" og stjórnmálamenn stóðu í biðröð til að skæla framan í bændur.
Í dag veifar utanríkisnefnd stjórnmálayfirlýsingu ESB og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem "tryggingu" fyrir sjálfstæði Íslands í Orkusambandi ESB, þar sem stór hluti orkunnar er framleiddur með þýzkum kolum og rússnesku gasi undir handleiðslu ESB.
Alþingi á að að búa til lög og tryggja hagsmuni Íslands á grundvelli stjórnarskrárinnar en svíkur hlutverk sitt með samþykkt orkupakka 3. Þar hafa færustu menn bent á lagalegu leiðina: að vísa málinu til EES-nefndarinnar og fá undanþágu fyrir Ísland frá Orkusambandi ESB. Aðildarsinnar ESB og ríkisstjórnarflokkarnir fallast í faðma til að tryggja yfirráð ESB yfir orkuauðlindum Íslands. Einungis Miðflokkurinn stendur á grundvelli stjórnarskrárinnar og ver íslenska hagsmuni.
Ríkisstjórnin hefur breyst í sporðdreka vogunarsjóða til að hrifsa auðlindir Íslands til ESB. Yfirlýsing utanríkisnefndar Alþingis um annað er jafnvirði loforðs sporðdrekans til frosksins um að stinga hann ekki fái hann far með honum yfir sundið.
En sporðdrekinn stakk og áður en froskurinn dó spurði hann: "Af hverju stakkstu mig?"
"Af því að það er eðli mitt" svaraði sporðdrekinn.
Förum ekki leið frosksins heldur losum okkur við ESB-drekann áður en það er um seinan.
Færslan er uppfærð
Málsmeðferðin með öllu óboðleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Utanríkisstefna í öfuga átt
13.5.2019 | 12:11
Það er til marks um seinheppna utanríkisstefnu, að Ísland skuli mála hosur sínar grænar fyrir valdhöfum stórríkis meginlandsins og hlaupa á eftir blekslettum búrókrata ESB á sama tíma og Bandaríkjaforseti segir að hann geti ekki lengur treyst á ESB sem bandamann í heiminum í dag. Eitthvað virðist hafa dottið á milli stólanna hjá utanríkisráðuneytinu og ekki skrýtið í öllum hamaganginum við að troða orkupakka 3 uppá þjóðina.
Það ber að þakka bandalagi bandamanna US-European transatlantic alliance að friður hefur ríkt í 70 ár. ESB reynir að heilaþvo fólk með því að strika Bandaríkin burtu og segir að það sé ESB að þakka að friður hafi haldist þennan tíma. Skv. brezka Daily Express snýr Trump sér að því að þróa beint samband við einstaka lýðræðissinnaða þjóðarleiðtoga í staðinn fyrir að treysta á stórríkið EU. Telur forsetinn lítið hald vera í samkomum til að taka fallegar ljósmyndir hver af öðrum í stað þess að sinna sameiginlegum varnarmálum. Nicholas Burns fyrrum sendiherra Bandaríkjanna hjá Nató segir að:
"Trump forseti trúir því ekki að ESB sé marktækur bandamaður. Hann trúir því að ESB sé keppinautur."
Spilling ESB, slepjugangur búrókrata á eilífum fundum sem skila litlu öðru en tilgangslausum útgjöldum úr vasa skattgreiðenda virðist hafa kokgleypt stuðningsmenn orkupakka 3 á Íslandi. Gerir orkupakkaklíkan í brækurnar ef einu neikvæðu orði er sleppt um ESB og hleypur undir pilsfald sendiherra ESB á Íslandi og erlends dómara á eftirlaunum.
Fullveldi Íslands er varið af stjórnarskrá Ísland. Það hleypur ekki neitt.
Drög að áliti um orkupakkann í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Þetta er allt saman Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að kenna"
12.5.2019 | 05:25
Og ef það er ekki Sigmundi að kenna, þá alla vega Davíð Oddssyni.
Bráðum stendur orkupakkaklíka Sjálfstæðisflokksins ein út í horni og bendir á meirihluta þjóðarinnar og hrín að allt sé þessum vitlausu, lesblindu, eldri hvítu köllum ásamt innrásarliði Norðmanna að kenna að vera að reyna að standa í veginum fyrir að auðjöfrar vogunarsjóðanna geti nælt sér í feitar orkuauðlindir Íslands gegnum orkupakka 3.
Talsmenn orkupakkans reyna að sneiða fram hjá umræðu um eigin ábyrgð á stjórnarskrárbrotum sínum vegna þingsályktunartillögu utanríkisráðherra sem hlekkjar þjóðina og komandi kynslóðir landsmanna í Orkusamband ESB. Reynir orkupakkaklíkan að klína því á stjórnmálaandstæðinga að þetta sé allt saman þeim að kenna en sjálfir séu þeir stikk frí þar sem þeir séu fórnarlömb vonda Miðflokksins, aðallega Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Gunnars Braga Sveinssonar.
En það er núna sem fremja á glæpinn gegn íslensku þjóðinni með þingsályktunartillögu utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.
Þjóðin sér hverjir það eru sem vilja afhenda ESB yfirráðin yfir orkuauðlindum landsins. Það er engum falið að Miðflokkurinn stendur heill og óskoraður gegn svikum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur sem ætlar að afhenda ESB fullveldi Íslands.
Sjálfstæðismenn í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur munu fara til sögunnar sem aumkunarverðir svikarar sjálfstæðisstefnunnar og hugsjóna Sjálfstæðisflokksins. Þeir hafa fleygt þjóðinni út í horn og breytt flokknum í ískalt hagsmunafélag andlitslausra vogunarsjóða og búrókrata í Brussel.
Skuldaskil koma í næstu alþingiskosningum.
Þið sjáið í hvað stefnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Orka Íslands í óskabrunni Drakúla
11.5.2019 | 09:46
ESB-elítan ákvað að leggja upp framtíðarstefnu fyrir ríki ESB við óskabrunn Drakúla í Transylvaníu á svo kölluðum "degi Evrópu" sem klíkan hefur tilnefnt sjálfri sér. Í brunninum glittir í auðæfi litla Íslands sem framleiðir ódýrasta græna rafmagn sem til er í álfunni.
Í grein í Morgunblaðinu í dag bendir Sturla Böðvarsson á kjarna málsins og vert að taka undir kröfu hans:
"Það hefur eitt og sér engan tilgang að við ráðum því hvort sæstrengur verði lagður ef orkumarkaðsmálin verða um leið tekin úr okkar höndum þegar sala hefst um sæstreng. Þessari spurningu verða ráðherrar að svara áður en lengra verður haldið."
Fyrirsögn Reykjavíkurbréfs dagsins er:
"Það er ekki ókeypis að ulla á fólk."
Guðlaugur Þór og aðrir orkupakkasinnar gera allt til að komast með í Drakúlaklúbb ESB og ætla að borga fyrir aðgöngumiðann með orkuauðlindum Íslands. Það hentar þeim sem vilja vera skuggamegin í lífinu.
Allir vita að þegar blóðsuga bítur heilbrigða manneskju verður sú einnig að blóðsugu og ekki verður ullið fallegra eftir það.
Hleypum ekki vígtönnum ESB í Gullfoss.
Gullfoss fer ekkert úr landi frekar en fullveldið.
Óforsvaranlegt að samþykkja orkupakkann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Uppgötvun ríkisstjórnarinnar: enginn sæstrengur milli Íslands og Evrópu
10.5.2019 | 17:44
Utanríkisráðherra kynnti í dag sameiginlega yfirlýsingu EES nefndarinnar sem eftir langar og strangar samningaviðræður komst að þeirri niðurstöðu að enginn sæstrengur er milli Íslands og Evrópu.
Verður þetta að teljast með merkilegri uppgötvun í seinni tíð og geta því allir farið í rúmið í kvöld sáttir við dagsverkið.
Önnur uppgötvun til gagns fyrir þjóðina og tilkynnt var í leiðinni er að á meðan enginn er sæstrengurinn, þá gildi ekki raforkumarkaður ESB fyrir Ísland. EES samningurinn hefur
"ekki gildi eða neina raunhæfa þýðingu fyrir Ísland á meðan enginn raforkusæstrengur er til staðar."
Þetta er að sjálfsögðu uppgötvunin sem þjóðin beið eftir. Þess vegna á Ísland ekki að ganga í Orkusamband ESB, enda hvorki sæstrengur til staðar né samningur í gildi.
Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra hefði engu að síður getað sparað þjóðinni mikið fé ef hann hefði spurt börn á götum borgarinnar um sæstrenginn. Enginn af þeim myndu kannast við neinn sæstreng aðra en þá sem lagðir eru í fiskabúrum.
Eftir þessa stórmerkilega uppgötvun sem trúlega verður tilnefnd til Nóbelsverðlaunanna getur þjóðin í sátt og samlyndi og af öryggi farið lagaleiðina í EES samningnum eins og í Icesave.
Afléttum ekki stjórnskipulegum fyrirvara og vísum málinu tilbaka til EES nefndarinnar. Ísland á ekki að ganga í Orkusamband ESB hvorki með eða án sæstrengs.
Fullveldið á heima á Íslandi alveg eins og Gullfoss.
Ákvæðin sögð þýðingarlaus án sæstrengs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Allir nema þjóðin virðast vera mottó utanríkisnefndar sem nú fær hátt settan dómara til að tala fyrir orkupakka3.
Styrmir Gunnarsson segir það vera einsdæmi í sögu lýðveldisins "þegar íslenzka utanríkisráðuneytið kallar eftir hótunum erlendis frá."
Athyglisverður samanburður Bauenbacher á Icesave og orkupakka 3 sýnir kjarna viðskiptanna við ESB í einni hendingu:
Að bera Icesave-samninginn við þetta er að bera saman epli og appelsínur. Icesave var ákveðið löglega, ekki pólitískt. Orkupakkinn er pólitískur og ákvörðunin er ekki ákveðin í rétti.
Þá vitum við það. Ef nú málið er ekki löglegt heldur pólitískt hver á þá að ráða? ESB reyndi á grófan hátt að hafa áhrif á niðurstöðu Icesave dómsins fyrirfram sem var einsdæmi en tapaði vegna lagalegrar stöðu Íslands. Varðandi orkupakka3 er það sá sterkari sem ræður fyrst engin eru lögin til að dæma eftir.
Baudenbacher hefur gefið Íslendingum enn frekari rök til að hafna pakkanum. Hér er á ferðinni dómari sem segir allt í lagi fyrir Íslendinga að kaupa pólitík og hafna lögum. Annars munu þeir hafa verra af.
Er þetta virkilega sterkasta vopnið sem pakkasinnar hafa uppá að bjóða?
Skaðabótaskylda eintóm fantasía | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Orkupakkasinnar segja að ákveðið hafi verið með EES-samningnum að Ísland gangi með í Orkusamband ESB. EES-samningurinn var gerður 1994 en Orkusamband ESB var fyrst stofnað ár 2015. Þeir hefðu því alveg eins geta sagt að Ingólfur Arnarson hafi samþykkt að ganga með í Orkusamband ESB.
Því er einnig haldið fram að orkumarkaður ESB sé "frjáls" en hann er einna harðast stjórnmálalega lagstýrði "markaðurinn" í ESB. Verið er að gera aðildarríki ESB háð rafmagni framleiddu úr kolum og innfluttu gasi frá Rússlandi. Bannað er að framleiða rafmagn með kjarnorku t.d. í Þýzkalandi sem er ein hagkvæmasta leiðin í dag, þegar ekki er hægt að byggja sjálfbærar umhverfisvænar vatnsaflsvirkjanir eins og á Íslandi. Viðskiptaráð sinnir ESB-pólitík í stað frjálsrar verzlunar.
Fullyrðingin um að "samkeppnin gagni neytendum í lægra orkuverði" er lygi aldarinnar. Áður en Svíar gengu með í ESB voru þeir mjög samkeppnishæfir með rafmagnsverði langt undir verði annarra ríkja eins og t.d. Þýzkalands. Þjóðverjar bættu hins vegar samkeppnisstöðu sína með lækkuðu rafmagnsverði og selja rafmagn framleitt úr kolum á samkeppnishæfu verði miðað við græna orku. Þannig má segja að orkumarkaður ESB ræni peningum af löndum með sjálfbæra orku og niðurgreiði lönd með ósjálfbæra orku. Markaðurinn er fákeppnismarkaður nokkurra risafyrirtækja sem skipta öllu á milli sín. Án orkumarkaðar ESB hefðu Þjóðverjar enga möguleika á því að selja "óhreint" rafmagn til útlanda.
Ísland fer miklu verr út úr inngöngu í Orkusamband ESB en Svíþjóð við inngönguna í ESB, ekki má keppa með ódýrri grænni orku við dýra kolaorku.
Grafið neðan sýnir rafmagnsverð til heimila í Svíþjóð og Þýzkalandi sem hlutfall af meðalarafmagnsverði 14 ríkja ESB 1995-2013.
Segja samstarf um orkumál nauðsyn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orkupakkasinnar harðsvíruðustu verjendur hins glataða ríkjasambands
8.5.2019 | 14:33
Það hefur ekki verið falleg ásjón að sjá yfirgang kjörinna sem ókjörinna embættismanna við að troða orkupakka 3 ofaní landsmenn. Skv. utanríkissráðherra og fyrrverandi dómsmálaráðherra er um norska innrás á Ísland að ræða. T.o.m innrás í Sjálfstæðisflokkinn, þannig að samþykkt Landsfundar Sjálfstæðisflokksins er norsk en ekki íslensk. Segja þeir og trúa að meirihluti Íslendinga sem vilja ráða málum sínum sjálfir og halda ákvörðunarvaldi í orkumálum í höndum Íslands í stað ESB hafa þá afstöðu að vilja eyðileggja EES-samninginn vegna haturs á ESB. Skiptir engu máli hvort um fyrrverandi utanríkisráðherra Jón Baldvin eða flokksbróðir hans Sighvat Björgvinsson er að ræða, sem báðir eru eitulharðir forsvarsmenn EES-samningsins, - öllum er fleygt í pytt ESB-hatara. Mætti halda að orkupakkamönnum hafi verið byrlað eitur af Norðmönnum og þeim sé mál að tala eins og þetta gætu orðið þeirra síðustu orð. Þannig hljómar það líka þegar afleiðingarnar af því að fylgja reglum EES-samningsins og segja nei og fá undanþágu frá inngöngu í Orkusamband ESB eru ræddar. Aðeins umræður um heimsendi eru sambærilegar sbr. helvítiskenningar Donald Tusks.
Allir vita - líka orkupakkasinnar - að það eru helber ósannindi að halda því fram að ESB sé venjuleg "alþjóðastofnun" og bara sé að gera business as usual. Sambandið logar eins og Notre Dame og vatnsslöngur hvergi sjáanlegar til að slökkva eldinn. Fáir geta útskýrt þetta jafn trúverðuglega og Mervyn King sem skilur hvernig fjármálamarkaðir og peningaöflin virka. Íslenska ríkisstjórnin fer að sjálfsögðu ekki að hrófla við þeim rökum heldur mun segja eins og farþegarnir á lúxusfarrými Titanics: "hvaða eftirrétt eigum við að snæða á meðan skipið sekkur?"
Það er mikið veikleikamerki á málflutningi orkupakkasinna að ekki megi blanda viðsemjandanum - ESB í málið. Að gera það er heilbrigð skynsemi og hefur ekkert með hatur að gera.
Er einhver kominn í rökþrot?
Vissu að evrusvæðið myndi leiða til efnahagserfiðleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)