Bloggfærslur mánaðarins, maí 2020
Forsetinn þakkar kosningastjóranum fyrir stuðning í beinni útsendingu
24.5.2020 | 19:30
Það var hressilegt að heyra og sjá Guðmund Franklín Jónsson forsetaframbjóðanda á RÚV í dag. Ljóst er að Guðmundur hefur mikið til mála að leggja og fremst þann að virkja embætti forseta Íslands sem öryggisloka lýðræðis og lýðveldis á Íslandi og ekki veitir af miðað við tímaskekkju Alþingis þar sem meirihluti þingmanna telja sig starfa fyrir ESB í stað lýðveldisins.
Fyrstu forsetarnir í embættinu voru stjórnmálamenn svo það er einskær EKKI spurning að velta því fram hvort embættið eigi að vera pólitískt eða ekki eins og spyrla kosningaskrifstofu sitjandi forseta gerði. Afhjúpar það eindæmis virðingarleysi RÚV fyrir embættinu og sögu þess og reyndi spyrlan einnig að fipa Guðmund með annarri EKKI spurningu um gagnrýni á þingmann pírata fyrir mörgum árum! RÚV mun gera allt til að mála upp sýndarmynd af Guðna Jóhannessyni sem mannlegum" forseta sem gerir mistök eins og að veita barnaníðingum uppreist æru. Eins gott fyrir kjósendur að hleypa ekki slíkum manni aftur að Bessastöðum.
Hér skal ósannur áróður RÚV um ópólitískt forsetaembætti hrakinn: Af sex forsetum lýðveldisins hafa þrír verið sóttir úr röðum stjórnmálamanna. Sveinn Björnsson var þingmaður Sjálfstæðisflokksins (eldri) á Alþingi og var einnig í bæjarstjórn Reykvíkinga í mörg ár. Ásgeir Ásgeirsson var bæði fjármálaráðherra og forsætisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn en fór síðar yfir í Alþýðuflokkinn. Ólafur Ragnar Grímsson var þingmaður Alþýðubandalagsins og fjármálaráðherra, var áður hjá Framsóknarflokki. Kristján Eldjárn var fornleifafræðingur og virtur sem slíkur, Vigdís Finnbogadóttir var vinsæll leikhússtjóri og Guðni Jóhannesson er umdeildur sagnfræðingur sem ekki getur haldið réttu máli í landhelgissögu Íslands vegna tilvísunar til fávís lýðs" sem hann telur landsmenn vera.
Guðmundur Franklín Jónsson er viðskiptafræðingur og hagfræðingur og hefur ekki á þingi setið fyrir neinn stjórnmálaflokk. Kosningaskrifstofa sitjandi forseta RÚV reynir samt að gera mál úr því að keppinautur sitjandi vilji nýta öryggisventilinn á markvissari hátt en sagnfræðingurinn.
Það er ekki aðeins spurning að þörf sé á slíkum manni í forsetastól vegna umpólunar Alþingis sem í dag hegðar sér eins og Ísland sé meðlimur ESB - það er bókstaflega brýn nauðsyn til að hafa hemil á landssölufólkinu sem ætlar sér að græða á því að selja út auðlindir Íslands.
Guðmundur Franklín Jóhannesson er maður fullveldis - sagnfræðingurinn á Bessastöðum sem veitir barnaníðingum uppreist æru skilur ekki einu sinni fyrsta bókstafinn í orðinu fullveldi. Það og meira til skildu þó bæði fornleifafræðingurinn og leikhússtjórinn sem er vísbending um þjóðarhylli þeirra. Bókarinn á Bessastöðum þarf því á kosningaskrifstofu RÚV að halda, sem óvíst er að dugi til enda þakkaði hann Agli Helgasyni fyrir hjálpina með sérstakri kveðju í beinni eftir að spyrlan hafði lokið þættinum.
Þarna brást kerfið og þarna brást ég | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.5.2020 kl. 05:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Guðmundur Franklín verðugari embætti forseta Íslands en sá sitjandi
22.5.2020 | 19:24
Það er miklvægur munur á framkvæmdamanninum og bókaranum. Í músíkheiminum lýsir það sér í því að margir af bestu tónskáldum heims kunnu ekki að skrifa nótur og fengu nótnaskrifara til að skrá lagið eftirá. Þannig er það einnig í lífinu að til að ná árangri þarf bæði trú á eigin mátt, markmið og eljusemi til að ná áfangastað. Afskaplega lítið af þessu birtist hjá bókaranum á Bessastöðum.
Hann má reyna að fanga bros með mislitum sokkum en hímir eins og álfur sem skammast sín fyrir feilslagið með fávísa lýðinn sem mun elta hann aldur og ævi, hvursu mikið svo sem hann reynir að pússa burtu þau orðin. Sá sem sér landsmenn sem fávísan lýð stjórnar samkvæmt sannfæringunni.
Bókarinn er ekki einu sinni hálfdrættingur í greininni því sögulegar eiginskoðunarskýringar taka yfir sögulegar staðreyndir t.d. í landhelgisdeilunni. Eina ástæðan fyrir því að bókaranum var att í framboð var vegna þess að hann var tilnefndur af embættissýklum Samfylkingarinnar á RÚV sem í þetta sinn tókst bragðið sem Þóru mistókst. Bíómyndin um Jón Gnarr er leiðarljós í kosningataktík vinstri manna og tekst stundum að blekkja fólk með fimmaurabröndurum eina helgi. Bókarinn á Bessastöðum hefur aðeins eitt hlutverk og það er að vaka yfir og bóka vængklippingu embættisins fyrir hönd ESB. Eilífa skælubandalagið þolir ekki sjálfstætt fólk, engan einstakling sem hugsar sjálfur, aðeins vændisfólk sem er falt fyrir nokkra aura.
Andúð almennings á stjórnmálamönnum á hinu háa Alþingi er að miklu leyti komin vegna hegðunar þingmanna gagnvart ESB, þar sem vélað er um fjöregg einstakra þjóða og auðlindir Íslands undir. Forhertir þingmenn vinstri ríkisstjórnar Katrínu Jakobsdóttur hafa innleitt páfagaukastjórn þar sem þeir eru mestir sem herma bestir eftir ESB. Ráðherrarnir eru hverjum öðrum framari í eftirhermum og hafa lofað erlendum einstaklingum, sem eru ekki einu sinni í framboði á Íslandi og enginn þekkir eða hefur áhuga á að vita nein deili á, að aldrei vera á móti tillögum hirðinnar í Brussel.
Við slíkt ástand er það því miður veik tilraun en heilbrigð og góð engu að síður að koma manni að á Bessastöðum sem getur orðið mótvægi við tímaskekkju Alþingis.
Guðmundur Franklín heitir maðurinn, honum má treysta til að vinna með þjóðinni - ekki gegn, tala fyrir þjóðinni - ekki lítillækka og verða þannig á sinn hátt til að endurheimta virðingu fyrir stofnunum Íslendinga. Athafnamaðurinn er því langtum verðugari valkostur í embætti forseta Íslands en bókarinn sitjandi á Bessastöðum sem skráir hjarðhegðun ESBa daðrara á Íslandi.
Skiluðu listum í þremur kjördæmum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ríkisstjórnin kyssir sverð böðulsins
19.5.2020 | 18:53
Ekki orð um Taiwan sem Kína heldur í burtu frá WHO..Við skiljum engan eftir" segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og lokar fyrir Taiwan. Íslenska ríkisstjórnin skilur lýðræðið útundan því ekki má styggja Kommúnistaflokk Kína.
Heilbrigðisráðherrann þakkaði fyrir leiðsögn og forystu WHO". WHO fór eftir skipun Xi Jinping að fresta yfirlýsingu um heimsfaraldur frá lok janúar til 11. mars sem þýddi dauða hundruðum þúsunda saklausra borgara víða um heim.
Svandís Svavarsdóttir hvatti til samstöðu þjóða". Ísland sýnir samstöðu með kommúnistum í Kína og strengjabrúðum þeirra í WHO. Dauði fólks um allan heim er dæmi um samstöðu kommúnismans við mannkynið.
Við búum í samfélagi þjóða og við eigum okkur sameiginleg markmið". Markmið Kínverskra kommúnista er að taka yfir heimsbyggðina og heilbrigðismálaráðherrann andmælir ekki.
Ísland er orðið fylgihnöttur Kína og vinnur gegn bandamönnum okkar í NATO. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstrigrænir taka afstöðu gegn Bandaríkjunum, aðal bandamanni Íslands í NATO.
Það þurfti þá Sjálfstæðisflokk til að fela vinstri hrærigrautinn eina ferðina enn. En ekki lengur, það glyttir gegnum skítköst afætuliðsins á eftir mönnum sem eru áfram Sjálfstæðismenn.
Svandís þakkaði WHO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ekki heyrist mikið um að ríkisstjórnin ætli sér að hætta fylgni við kínverska kommúnistaflokkinn og byrja að styðja lýðræðisöfl í heiminum. Svandís Svavarsdóttir mun ávarpa WHO á stafrænum fundi í dag en lítið hefur frést af því að hún, utanríkisráðherrann eða ríkisstjórnin taki undir þá sjálfsögðu kröfu sem á annað hundrað þingmenn ESB-þingsins hafa skrifað undir að krefjast þess að WHO taki til baka Taiwan sem áheyrnarfulltrúa. (Myndin sýnir heilbrigðisráðherra Taiwan,Chen Shih-Chung)
Reyndar þykir svo mikið koma til veirustarfa Taiwan sem telur 23 milljónir íbúa að einungis eru 440 staðfest smit COVID-19 og sjö hafa látist úr veirunni sem slær góðan árangur Íslands. Ætlar Svandís að spyrja að því í ræðu sinni af hverju fulltrúi Taiwan er ekki með til að ræða aðferðir þeirra, ef WHO hunsar óskir lýðræðisafla í heiminum til að styggja ekki stóra bróðir, kínverska kommúnistaflokkinn? Eða mun Svandís mótmæla hótunum kínverskra kommúnista sem sögðu við forsætisráðherra Ástralíu að draga til baka ályktun um alþjóða rannsókn á uppruna veirunnar ef hann vilji ekki sjá efnahag Ástralíu "sundurmalaðann" af Kína? Ástralía mun bera upp tillöguna í dag og flest öll ríki heims (nema Kínverjar) munu samþykkja að WHO hefji alþjóðlegt rannsóknarferli á uppruna veirunnar sem Kommúnistaflokkur Kína faldi og leiddi til dauða á fjórða hundrað þúsund manns.
Svandís Svavarsdóttir er ánægð með þáttöku ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kvenna með Sádí Araba sér við hlið og aðra íslamíska kvenhatara sem grýta konur til bana og vinna markvisst að því að hlekkja vestrænar konur til jafns við Sjaríakonur Balla.
Ríkisstjórn Íslands liggur á jörðinni sem teppahrúga fyrir kommúnismann og grefur undan konum og vinnandi fólki eins og neitun á vinnutækifærum Suðurnesja sýnir.
En það er sjálfsagt til mikils að vinna að verða eini vinur Kínverja í heiminum fyrir utan Norður-Kóreu og Venúsuela. Maður getur þá alla vega ímyndað sér frá fyrsta bekk að fá bóluefnu í beinni útsendingu gegn næstu KÓRVITLAUSRI kommúnistaveiru heimsdrottnaranna í austri.
Kallar WHO strengjabrúðu Kínverja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þegar forsætisráðherrann hóstar fer utanríkisráðherrann í felur
14.5.2020 | 20:20
Það er aumkunarvert að fylgjast með átökum innan ríkisstjórnarinnar vegna atvinnumála á Suðurnesjum en eins og Morgunblaðið greindi frá, þá höfnuðu Vinstri grænir fjárfestingu á vegum bandamanna okkar NATO um fjárfestingar upp á tugi milljarða króna.
Utanríkisráðherrann sem getur lítið svarað gagnrýni nema með keyptum aðstoðarmönnum eða persónulegum skætingi finnur sig hljóðalaust í því að vera borinn ofurliði af ráðherrum Vinstri grænna. Karlmennskan er þá ekki meira en dúkkulísu virði um leið og Katrín Jakobsdóttir lyftir fingri.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins ættu að beina gagnrýni sinni að utanríkisráðherranum í stað sveitarstjórna á Suðurnesjum og biðja utanríkisráðherrann að útskýra hvers vegna hann studdi ekki eigin tilllögur um að samþykkja fjárfestingar NATO.
Utanríkisráðherrann sendir fv. formanni Sjálfstæðisflokksins og einum farsælasta forsætisráðherra lýðveldistímabilsins, Davíð Oddssyni ritstjóra Morgunblaðsins, hæðnistón gegnum samstarfsmann sinn, Diljá Mist Einarsdóttur, en Staksteinar Morgunblaðsins í gær tóku fyrir undirlægjuhátt utanríkisráðuneytisins við ESB og stofnanir Sameinuðu þjóðanna, sem sumar eins og WHO, eru leiddar af valdaspilltum byltingarsinnum í vasa kínverska kommúnistaflokksins.
Það sem eftirhermur ESB og SÞ sjá ekki er að þær eru búnar að einangra sig frá lífi venjulegs fólks og hafa glatað hæfileikanum að ræða stjórnmál "á mannamáli" sem allir geta skilið. Davíð Oddsson hefur ætíð verið maður fólksins, fulltrúi þjóðarinnar og hefur aldrei látið há embætti stíga sér til höfuðs sem - ef nokkuð er - sannar eðilborna leiðtogahæfileika mannsins.
Það mun hvorki bæta varnar- né atvinnumál á Íslandi, að vesælingar í flokki sem þykist styðja sjálfstæði leggjast flatir fyrir kommúnistum hvort svo sem þeir eru innanlands eða utan. Það mun þvert á móti styrkja andstæðinga Íslands og bandamanna okkar og má ríkisstjórnin hljóta skömm fyrir.
Kaldastríðssérvitringar í veg fyrir uppbyggingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ísland er einn stofnenda NATO og var hlíft í seinni heimsstyrjöldinni fyrir áætlun nasista um að hertaka landið og nota sem millilendingarvöll fyrir sprengjuvélar á leið frá Þýskalandi til Bandaríkjanna. Sem betur fór urðu vinir okkar og bandamenn Bretar og Bandaríkjamenn fyrri til og getum við öll þakkað okkar sæla fyrir það.
Ísland er herlaust land og í lófa lagið fyrir næstum því hvern sem er búinn vopnum að hertaka landið. Vera Íslands í NATO er og hefur verið trygging fyrir því að frelsi og friður hefur ríkt í landinu. Þessu afneita vinstri menn og gera sér enga grein fyrir því, að vopnlaus maður getur talið sína daga lendi hann í vopnaátökum. Ísland verður að vera í varnarbandalagi eins og NATO til að halda burtu illum öflum.
Í dag flæða kínverskir kommúnistar út um allar jarðir og styrkja heimsyfirráðin. Belti og braut, Silkibrautin og mörg önnur verkefni hvað svo sem þau kallast. Vinstri græna ríkisstjórnin er undir hæl kínverskra kommúnista og málpípa þeirra í SÞ ásamt elítu ESB. Utanríkisstefna Íslands er páfagaukakór Kína og ESB. Utanríkisráðherrannn varð uppvís að því að ljúga að helsta bandamanni Íslands, Bandaríkjunum, þegar hann þóttist ætla að hætta við Belti og braut þáttöku Íslendinga en varð síðan skammaður af kínverska sendiherranum á Íslandi sem sagði slíkar yfirlýsingar tómt bull.
Ríkisstjórnin felur athafnir kínverskra kommúnista á Íslandi. Hagsmunir þeirra eru þrándur í götu varnarsamnings Íslands við NATO eða hver keypti hótel Icelandairs og eru Kínverjar með í framkvæmdum á alþjóðaflugvellinum í Keflavík fyrir beint flug milli Kína og Íslands?
Er einhver heil ljósapera eftir í utanríkisráðuneytinu?
Höfnuðu framkvæmdum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skandinavísku barnapíurnar í Staksteinum Morgunblaðsins
13.5.2020 | 09:41
Morgunblaðið kallar ekki allt ömmu sína. Staksteinar dagsins eru hressir og skora hátt á perlulistann yfir klassísk ritverk. Vonandi lesa margir fullorðnir einmitt þessa staksteina svo þeir dreifist réttverðugir langt innan annarra landssteina:
"Það er óburðugt að fylgjast með utanríkisráðherra úr Sjálfstæðisflokki síðustu misserin. Yfirmenn hans í ráðuneytinu dingluðu honum inn í Mannréttindaráð SÞ. Heitið er öfugmæli og ráðið verður SÞ reglubundið til minnkunar.
Borið er blak af WHO, sem er með allt niðrum sig í alvarlegustu málum samtímans. Forstjórinn kemur úr Byltingarflokki Eþíópíu, og neitaði sem heilbrigðisráðherra þar að viðurkenna útbreiðslu kóleru! Og sem enn verra var; hann gerði svo mannkyninu óbætanlegt tjón með því að hann þumbaðist við til 11. mars !!! að staðfesta að kórónuveiran smitaðist á milli manna.
Fyrsta verk þessa forstjóra WHO var að skipa ömurlegustu pólitísku fígúru samtímans, Mugabe, slátrarann frá Simbabve, sem sendiherra góðviljans af hálfu WHO! Mugabe var þá á lokametrum sem einræðisherra.
Á sama tíma og yfirmenn ESB eru staðnir að því að láta Kína ritskoða yfirlýsingar sínar um kórónuveiruna ákváðu þeir, til að dreifa athyglinni, með skætingi í garð Ungverjalands eins og reglulega gegn Póllandi, sem þeir minna á að sé ekki lengur fullvalda ríki vegna aðildar sinnar að ESB.
Fyrstu þjóðirnar sem hlaupa til með umvöndunarprikið þegar ESB ýtir á takka eru skandinavísku barnapíurnar. Á meðan fullorðið fólk stjórnaði íslenska utanríkisráðuneytinu var þess vandlega gætt að Ísland væri ekki ein af barnapíunum".
Ísland á svo sannarlega betur skilið en fullorðinslaust utanríkisráðuneyti sem rólar sér í hópi skandínavískra barnapía. Spurningin er hvenær þeir fullorðnu taka sig saman og manni ráðuneytið svo Ísland komist aftur inn á spor sjálfstæðrar utanríkisstefnu.
Utanríkisráðherra Íslands meðvirkur í ljótum valdaleik framkvæmdastjórnar ESB segir Ungverjaland vera einræðisríki
12.5.2020 | 02:13
Hættið að dreifa ósannindum og fölskum fréttum eru skilaboð ungverska utanríkisráðherrans Peter Szijjarto til starfsfélaga sinna í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Danmörku og Íslandi. Útvarp Saga greindi frá.
Verður sendiherra Íslands ásamt sendiherrum hinna norrænu ríkjanna kallaður á fund utanríkisráðherra Ungverjalands til að taka á móti ámælum vegna falsfrétta Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra um Ungverjaland.
Dagens Industri greinir frá því að utanríkisráðherrar Norðurlanda hafa sent aðalritara Evrópuráðs ESB bréf, þar sem gagnrýnd er sú ákvörðun ungverska þingsins, að veita ríkisstjórn Ungverjalands undanþáguheimild í óákveðinn tíma til að ákveða aðgerðir gegn kórónufaraldrinum án þess að fá fyrst samþykki ungverska þingsins.
Utanríkisráðherra Ungverjalands Szijjarto skrifaði á Facebook, að gagnrýni utanríkisráðherra Norðurlanda væri yfirdrifin og fölsk:
Ósannindi um uppbyggingu einræðisríkis og endalaust, takamarkalaust vald. Ungverjaland er yfir þúsund ára þjóð og hafnar hástemmdri, hræsnisfullri leiðsögn. Ungverska fólkið ákveður sjálft hvað það vill og vill ekki. Það væri betra að utanríkisráðherrarnir sæju um sín mál sjálfir.
Er það verkefni íslenska utanríkisráðuneytisins að aðstoða framkvæmdarstjórn ESB við að kúga ríki til hlýðni við sambandið?
Að vinna skítverk fyrir ESB bara vegna þess að ESB nær ekki upp á nef sér vegna sjálfstæðis Ungverjalands sem neitar að taka á móti kvótaflóttamönnum sambandsins?
Það er illa komið fyrir utanríkismálum Íslendinga að greiða skattfé svo utanríkisráðherra geti borið út falsfréttir fyrir ESB. Utanríkisráðherra skrifaði grein í Mbl. fyrir nokkru í stíl opinberunarbókar Jóhannesar og þarf bæði spámenn og miðla til að túlka orðavaðal ráðherrans.
Best að Guðlaugur Þór taki sér ævinlangt frí frá stjórnmálum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hárrétt mat sóttvarnarlæknis
8.5.2020 | 06:37
Þórólfur Guðnason gerir hárréttan samanburð við sænsku leiðina en Svíar hafa sjöundu hæstu dánartölu í heimi miðað við milljón íbúa skv. statista. Verst er Belgía með 730, þá Spánn með 553, Ítalía með 491, Bretland með 452, Frakkland með 385, Holland með 302 og svo koma Svíar með 289 manns. Svíar voru illa búnir að mæta farsótt, rúmum á gjörgæslu fækkað og viðbúnaði hers eins og hersjúkrahús gefin burt. Allt samkvæmt úthýsingarverkefnum hnattvæðingarinnar og just in time" afhendingu sem einungis dauðinn uppfyllir.
Sænsk yfirvöld geta búist við mörgum ákærum af ólíkum meiði eins og fyrir morð á gamalmennum (neita öldruðum aðgang að sjúkrahúsi, súrefni og öndunarvélum), brot á mannréttindum (réttur til eigins lífs brotinn vegna mismunun eldri fyrir yngri, hraustari hópa), brot á vinnulöggjöf og svo framvegis.
Dauðatollur Svía er hár og skoðast í ljósi þess að ekki hefur verið beitt þvingandi aðgerðum við lokun samkvæma og fyrirtækja sem sjálfsagt hefur hlíft efnahgaslífi meira en í öðrum löndum.
Núna er sumarið komið og fólk gefur ekki mikið fyrir fyrirmæli yfirvalda í Svíþjóð og flykkist á veitingahús og matsölustaði eins og engin kóróna sé til.
70 hefðu látist með sænsku leiðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)