Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2016

Leitað að nýjum jóker

15436JÁJ og 365 leita að nýjum jóker til að narra þjóðina ef eitthvað er að marka ummæli Gnarr um að sitja á hliðarlínunni þessar forsetakosningar.

Lauk kvikmyndahandritinu með Gnarr borgarstjóra?


mbl.is Jón Gnarr ekki í forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betri er Gnarr í fangelsi en fangastjóri á Bessastöðum

Skärmavbild 2016-01-14 kl. 22.47.34Baráttan um Bessastaði er byrjuð. Það sem hefur breyst miðað við undanfarna áratugi er að núna hverfur sá forseti þjóðarinnar frá Bessastöðum, sem leiddi þjóðina til sigurs yfir óprúttnum bankaræningjum og mútuðum stjórnmálamönnum þeirra.

Bessastaðir í höndum þjóðarvinar er rétt.

Svarti Pétur íslenskra stjórnmála, nútíma kratinn, á sér mörg andlit og hreyfingar: Samfylking, Besti flokkur, Björt framtíð, Vinstri grænir, Píratar o.s.frv.  

Íslenskir kratar alias Svarti Pétur reyndu allt sitt til að kasta kynslóðum Íslendinga í skuldafangelsi til að borga þýfi bankaræningja sem þeir stálu bæði frá hægri og vinstri en mest frá saklausu fólki í útlöndum. Krataklíkan í Rvík 101 hefur farið hamförum til að koma ríkinu, fullveldi Íslands og sjávarauðlindum þjóðarinnar í hendur ESB í Brussel. 

Herferð krata í skjóli auðvalds Jóns Ásgeirs Jóhannesarsonar og 365 fjölmiðla heldur áfram. Eftir svíðandi Þóruskell verður Jón Gnarr settur í forsetaframboð til að reyna nýtt áhlaup á Bessastaði. Gnarr mun þjóna fangelsuðum sem ófangelsuðum skjólstæðingum og taka þjóðina í gíslingu komist hann til valda.

Bessastaðir í höndum þjóðaróvinar er rangt. 

Betri er Gnarr í fangelsi en fangastjóri á Bessastöðum.

 


mbl.is Jón Gnarr er „til alls vís“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnahagur Kína er svartur kassi

dreamstime_xs_58412175Þannig lýsir besti fjármálaskríbent Norðurlanda Andreas Cervenka efnahag Kína í nýlegri grein í Sænska Dagblaðinu. 

Á einni viku hefur mörkuðum í Kína verið lokað tvisvar sinnum eftir skamma stund viðskipta, þegar fall verðbréfamarkaðarins hefur farið yfir 7% strikið. Kínverjar tóku bremsuna úr sambandi í morgun og hafa stórar hreyfingar upp og niður átt sér stað eftir opnun. Margir telja að bremsan hafi þveröfug áhrif og auki á upplausn og frekari fall. Andreas Cervenka telur ríkisafskipti fjármálamarkaða með bremsum eins og þeirri kínversku vera álíka áhrifamikið og að stinga veðurfræðingum í steininn til þess að minnka vetrarhörkuna. 

Kínverjar hafa á undanförnum árum byggt upp óheyrilega yfirbyggingu í iðnaði, t.d. geta þeir framleitt yfir 8 milljónum fleiri bíla en þeir geta selt árlega að mati UBS bankans. Meiri hluti þessarrar yfirbyggingar hefur verið fjármagnaður með lánum og hefur Kína kópíerað skuldarekna hagvaxtarvél vesturlanda og sett heimasmíðað túrbó á vélina. Skv. McKinsey fjórfölduðust skuldir Kína frá 7 þúsund miljörðum dollara árið 2007 upp í 28 þúsund miljarði dollara árið 2014 sem er um 280% af vergri þjóðarframleiðslu Kína. Í fyrra varaði Yu Yongding fyrrum háttsettur yfirmaður seðlabanka Kína við blöndu hárra lána, lélegs ávinnings og hárra vaxta, sem myndu leiða til að skuldir fyrirtækja yrðu 350% af vergri þjóðarframleiðslu árið 2030.

Opinberlega segja Kínverjar að slæm lán séu 1,5% af lánamarkaðinum. Kínasérfræðingurinn Charlene Chu telur slæmu lánin hins vegar vera yfir 20%. Hann sagði við Japan Times að "Kína stendur frammi fyrir skuldavanda af þeirri stærð sem heimurinn hefur aldrei séð áður."

Stærsta vandamál Kína eru ekki aðeins tölurnar heldur líka fólkið. Peningarnir hafa flúið Kína á ljóshraða að undanförnu, yfir 500 miljarði dollara yfirgáfu Kína árið 2015. Mörg stór fyrirtæki hafa sagt upp fólki eins og t.d kolarisinn Longmay sem sagt hefur upp 100 þús manns.

Cervenka telur að vandamál kínverska verðbréfamarkaðarins sé ekki núverandi fall heldur geðveikur uppgangur fyrir fallið. Frá opnun markaða í Kína 2014 og fram á mitt sumar 2015 hækkuðu verðbréfamarkaðir í Kína með yfir 150%. Þrátt fyrir núverandi fall er index samt sem áður 50% hærra en fyrir tveimur árum síðan. Cervenka telur einnig að líkja megi árásum stjórnmálamanna á matsfyrirtæki sem lækka fjármálaeinkunnir landa við það að hætta að sturta niður á klósettinu og úða góðilmi í loftið í staðinn. 


mbl.is Kínverskir markaðir á uppleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðug mannréttindabrot engin mótstaða til að fá formannsstólinn hjá mannréttindastofnun SÞ

Mannrettindi

Formaður Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna kemur of seint á fund í ráðinu. "Afsakið seinkunina, ég var upptekinn við að afhausa nokkrar manneskjur"

Sádi Arabía hefur klippt öll bönd við Íran: stjórnmálasamband, viðskipti og flugsamgöngur hafa verið stöðvaðar.

Skv. Reuters sagði utanríkisráðherra Sádí, Adel al-Jubeir, að "Sádi-Arabía ætti að njóta viðurkenningar fyrir aftökurnar á laugardaginn í stað þess að vera gagnrýnt".

Adel al-Jubeir segir að síamúslímski leiðtoginn og stjórnargagnrýnandinn Nimr al-Nimr hafi verið hryðjuverkamaður og tekið þátt í hryðjuverkaaðgerðum. Nimr al-Nimr hefur skv. öðrum heimildum alltaf talað skýrt fyrir gagnrýni án ofbeldis.

Sádi Arabía hefur áður beitt aðgerðum m.a. til að fá Bandaríkjamenn til að sýna lit í deilum í Miðausturlöndum. Íranir hafa löngum horft hýru auga á olíuríkidóm Sádi Araba. Eftir útspil Sádi hafa friðatilraunir í Sýrlandi verið jarðaðar.

Pútín hefur staðsett eldflaugakerfi í Sýrlandi sem getur skotið niður allar gerðir herflugvéla nema tveggja nýrra bandarískra tegunda og er þar með ókrýndur konunugur loftrýmis yfir aðalátakasvæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs. 

Framvinda mála í þessum heimshluta verða sífellt áhugaverðari en gæti jafnframt orðið þeim mun skelfilegri í nánustu framtíð.


mbl.is Deila Íran og Sádí Arabíu harðnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einstakur árangur Íslands afgerandi fyrir framtíðina

rikisstjorninSú efnahagsmynd sem fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson sýnir, að það sé raunhæft markmið "að ríkissjóður beri engar hreinar skuldir innan 10 ára" hlýtur að teljast með stærstu gleðifréttum þessarra áramóta.

Þessa skýra sýn og góða markmið varpar ljósi á þau umskipti sem orðið hafa í efnahagslífinu frá örlagdögum haustið 2008. Staðan frá því að vera hársmán frá gjaldþroti yfir í skuldlaust þjóðarbú staðfestir efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og sannar hæfileika ríkisstjórnarflokkanna, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. 

Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna undir forystu Davíðs Oddssonar lagði grunninn að nær skuldlausu þjóðarbúi áður en skuldabóla útrásarvíkinganna sprakk. Þær styrku stoður stóðu af sér versta skellinn. Íslenska krónan dempaði hrunáhrifin og eftir eyðslustjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem vildi og gerði allt til að setja landið í gjaldþrot kusu landsmenn ábyrga stjórn sem er að skila þessum sögulega árangri. Óhaldbær kostnaður vinstristjórnarinnar hefur hindrað enn fljótari efnahagsbata en ekki þýðir að syrgja þá spilltu mjólk nú, þegar efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar skilar slíkri gleðifrétt, að þjóðin geti verið skuldlaus innan 10 ára. 

Á sama tíma er draugur efnahagskreppunnar að undirbúa áhlaup nr 2 víða um heim og verður sú mynd ekki fögur. En Ísland tilheyrir þeim hópi landa sem hafa sjálfstæðan gjaldmiðil og það ásamt skuldlausum ríkissjóð er besta efnahagsvörnin í þeim hremmingum sem fram undan eru.


mbl.is Engar hreinar skuldir innan tíu ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband