Fyrrum ráðgjafi Trumps, Steve Bannon, sker upp herör gegn George Soros

Steve_BannonSteve Bannon fyrrum ráðgjafi Donald Trumps Bandaríkjaforseta sker upp herör gegn marxísku ofurveldi fjármálafurstans George Soros og samtökum hans Open Society. Ætlar Bannon að koma á fót svipaðri starfsemi undir nafninu The Movement (Hreyfingin á íslensku) og vonast til að hún nái áhrifum og árangri fyrir næstu þingkosningar ESB 2019. Verður hlutverk Hreyfingarinnar m.a. að standa fyrir könnunum af ýmsu tagi og virka sem hugmyndasmiðja til að skapa þróttmikil tengsl hægrimanna sem leiði til aukinnar umræðu og þróunar hægri stefnunnar um alla Evrópu.

Bannon segir í viðtali, að það hafi vakið undrun hans, hversu lítið hægri menn voru tengdir milli landa eða skiptust á skoðunum um sameiginleg málefni. Sjálfstæðistefnan sem berst fyrir fullvalda þjóðríkjum með eigin landamærum verður sett á odd baráttunnar í Evrópu. 

Bannon hefur m.a. ráðfært sig við Nigel Farage í Bretlandi, Marine Le Pen í Frakklandi, Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands, Svíþjóðardemókrata og hægri menn í Póllandi.

Markmiðið er að forma sterkan hóp hægri aflanna á ESB-þinginu og ná meiri áhrifum en áður.

Höfuðstöðvar Hreyfingarinnar eiga að vera í Brussel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég var hrifin af þessari hugmynd hjá Banner en heyrði þetta í morgun. Þetta væri einhvað sem allir heilvita menn myndu skrá sig í og styrkja.

Alþjóða félags væðing myndi örugglega hjálpa í baráttu gegn þessum illu öflum. Þeir segja um 800.000 starfa hjá DeepState bara í bandríkjunum hvað þá í öðrum löndum.  

Valdimar Samúelsson, 22.7.2018 kl. 17:52

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Valdimar, sammála, það verður spennandi að sjá hvernig þróunin verður. Hér í Svíþjóð verður athyglisvert að sjá kosningaúrslitin 9 september en margir búast við sögulegu tapi sósíaldemókrata og sigri Svíþjóðardemókrata. kkv

Gústaf Adolf Skúlason, 22.7.2018 kl. 18:09

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Heyr,heyr!

Helga Kristjánsdóttir, 22.7.2018 kl. 21:40

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Já þetta verður spennandi og vonaandi tekst Bannon að  koma þessu á stað enda komin með gott lið og ég er viss um aað hann fær blessun frá Trump og Putin. Annað mál en Heimsókn Putins til USA vekur örugglega ótta hjá demókrötum þar sem hann mun leysa frá skjóðunni varðandi spillingarmál s.s. dæmi hjá Hillary.

Valdimar Samúelsson, 22.7.2018 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband