Góð mynd - Góðir menn
29.10.2015 | 09:11
Afar ánægjulegt að sjá forsætisráðherra Bretlands og Íslands standa saman á tröppum Alþingishússins. Táknræn mynd fyrir batnandi samskipti þjóðanna og eins og venja er fer það eftir mönnunum hver árangurinn verður.
Íhaldsflokkur Camerons verður ekki ásakaður fyrir handvömm og firrtan æðibunugang sósíaldemókratanna í ríkisstjórn Gordon Browns sem lýstu eitt elsta lýðræðisríki heims og eina af friðsömustu þjóðum jarðar sem hryðjuverkamönnum í stíl við Al Qaeda.
Svöruðu vættir skjaldamerkisins með Eyjafjallajökli sem frægt er orðið: You ask for cash - we pay with ash! (Sumir hafa þó gengið lengra og sagt að forseti Íslands hafi rauða hnappa merktum öllum helstu eldfjöllum Íslands á skrifborðinu og setji í gang eldgos með einum putta).
Hið besta mál, að þjóðirnar stilli saman strengi og líti til framtíðarinnar, sérstaklega líka vegna góðra frétta um uppgjör gömlu bankanna eftir hrun. Þar hefur íslenska ríkisstjórnin unnið afar gott starf og mokað flórinn eftir vinstra volæðið og lítur út fyrir að flórinn verði þokkalega hreinn á eftir.
Hvenær fá Reykvíkingar að upplifa, að borgarstjóri þeirra standi við hlið forsætisráðherra Íslands sem tákn um samvinnu eins og góðu mennirnir á myndinni?
Varla verður slíkt mögulegt með þeim Degi, sem breytt hefur Reykjavík í valdabæli fjármálaóstjórnar og ólýðræðis og lítur á það sem aðalverkefni sitt að vera í daglegu stríði við ríkisstjórnina.
Ræddu Churchill í þinghúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.