Drukknaður, skotinn og hengdur....en dregur hann enn andann?
22.3.2015 | 13:18
Fyrirsögnin ofan er sótt úr nýjasta Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins, sem er ein besta lýsing fram að þessu á umræðugetu stjórnarandstöðunnar um hina margdauðu aðildarumsókn þeirra. Þetta lýsir einnig stjórnmálastöðu formanns Samfylkingarinnar Árna Páls Árnasonar, sem heldur eins atkvæða forystu nokkur andartök í viðbót.
Engan þarf að undra "nótt hinna löngu hnífa" innan Samfylkingarinnar með valdaránstilraun Jóhönnu Sigurðardóttur á bak við tjöldin. Eina samstaðan sem finnst innan Samfylkingarinnar er fólgin í duldum hluta nafnsins: Samfylking gegn Íslandi. Að troða Íslandi inn í ESB er eina stefnumálið og skiptir engu, hvernig farið er að ná því markmiði eins og stíllinn sýnir innan veggja þessa stjórnmnálaflokks.
Samfylkingin er verkfæri í höndum Alþjóðasamtaka sósíaldemókrata, sem hefur valdastöðu innan Evrópusambandsins og lofar ofurborguðum embættum til meðlima. Fyrir það markmið skipta smámunir eins og almennir kjósendur, lýðræðisreglur, stjórnarskrár og sjálfsákvörðunarréttur þjóða engu máli.
Í stjórnarandstöðu tekst Samfylkingunni með hinum andstöðuflokkunum t.o.m. að ná því markmiði að verða enn verri stjórnarandstaða en þeim tókst að verða slæm ríkisstjórn, sem setti nýtt Íslandsmet í leiðindum.
Væri ágætt að hinn nýkjörni einsatkvæðaformaður byrjaði á því að lesa Reykjavíkurbréf Mbls. og byrja á því að svara spurningunni: Hvað hefur þjóðin gert mér?
Framboðið var misráðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:35 | Facebook
Athugasemdir
Fær Árni þá ekki viðurnefnið Raspútin?
Jón Steinar Ragnarsson, 23.3.2015 kl. 03:48
Já alveg í þeim stíl að syndga í botn áður en beðið er um fyrirgefningu syndanna. Sjálfsagt dansar og slær hann sjálfan sig aftur í form með svipu í þeirri von að komast í tölu heilagra af einhverjum eftirlifandi krötum framtíðarinnar.
Gústaf Adolf Skúlason, 23.3.2015 kl. 08:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.