Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Kapteinn JÚRÓ bjargar Evrópusambandinu

BBC átti viðtal við höfund kapteins JÚRÓ sem var skapaður til að fullvissa íbúa ESB um frábæra kosti evrunnar. Kapteinninn hefur birst í Bretlandi til að sannfæra forsætisráðherra Breta, David Cameron, um að alríkisvald sé nú ekki svo slæmt og Bretum muni líða miklu betur ef þeir gefi upp sjálfstæði sitt og játist yfirvöldum í Brussel.

Ekkert hefur frést af því, að kapteinn JÚRÓ sé á leiðinni til Íslands enda engin þörf á því að breyta hugarfari meirihluta þingmanna aðildarumsóknarríkis, sem lúta tryggri ESB forystu Samfylkingar, Bjartra, Grænna og Pírata. Myndirnar tala sínu máli.

Skärmavbild 2015-01-04 kl. 23.50.50

 

Skärmavbild 2015-01-04 kl. 23.52.03Skärmavbild 2015-01-04 kl. 23.52.52Skärmavbild 2015-01-04 kl. 23.53.07


mbl.is Aðildarumsóknin á byrjunarreit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sex þingflokkar í Svíþjóð í bandalagi gegn Svíþjóðardemókrötum

Það hefur verið með eindæmum að fylgjast með fréttum dagsins í Svíþjóð, fyrst blaðamannafundi núverandi ríkisstjórnarflokka Sósíaldemókrata og Umhverfisflokksins ásamt fyrri ríkisstjórnarflokkum Móderata, Miðflokksins, Kristdemokrata og Alþýðuflokksins og síðar umræðum í fjölmiðlum og á félagsrásum. 

Tvö kjörtímabil
Með samkomulagi flokkanna undir heitinu Desembersamkomulagið binda flokkarnir sig til að standa ekki í vegi fyrir fjárlagafrumvarpi minnihluta ríkisstjórna, hvort sem um hægri eða vinstri stjórn er að ræða. Það sem vekur furðu margra er, að samkomulagið er tímasett tvö kjörtímabil fram í tímann, þ.e.a.s. fram til kosninganna árið 2022. Þýðir samkomulagið, að núverandi stjórnarandstöðuflokkar að undanskildum Svíþjóðardemókrötum tryggja áframhaldandi setu ríkisstjórnar vinstri stjórnar Löfvens út kjörtímabilið og gert er ráð fyrir að ný minnihlutastjórn taki við eftir kosningarnar 2018. Vinstri stjórnin mun leggja fram nýtt fjárlagafrumvarp næsta vor, sem tekur gildi frá áramótum 2015-16 en verður að fylgja fjárlögum stjórnarandstöðunnar 2015. 

Að mínu mati er þetta merkilegasti stjórnmálkollhnís þessarra sex flokka í áraraðir og í reynd ekkert annað en samkomulag um að halda Svíþjóðardemókrötum utan við þingræðislega þáttöku, þótt þeir séu þriðji stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar. Býst ég við, að fylgi Svíþjóðardemókrata stóraukist í kjölfar Desembersamkomulagsins.

riksdagen

 

 

 

 

 

 

 

 

Ótti við nýjar þingkosningar og fylgisaukningu Svíþjóðardemókrata
Tveir af fjórum flokkum fyrri ríkisstjórnar, Kristdemókratar og Miðflokkurinn, hafa rokkað í skoðanakönnunum um og yfir 4% lágmarkið, sem lög krefja að stjórnmálahreyfingar hafi til að vera gjaldgengar til þings. Ótti þessarra flokka við nýjar kosningar og jafnframt ótti við fylgisaukningu Svíþjóðardemókrata hefur ráðið afstöðu þeirra til að koma í veg fyrir aukakosningar. Það sama gildir Umhverfisflokkinn en hins vegar er það með öllu óskiljanlegt, að Móderatar binda hendur sínar gagnvart sósíaldemókrötum, þar sem ekki virðist vera tekið tillit til hvaða niðurstaða muni fást í næstu alþingiskosningum. Hér virðist hræðslufókus vera á framgangi Svíþjóðardemókrata í stað þess að fókusera á þau málefni sem kjósendur vilja að tekin séu fyrir á sænska þinginu eins og t.d. vaxandi áhyggjur af getu Svíþjóðar að taka á móti stórum og stríðum straumi flóttafólks. Mörg sveitarfélög Svíþjóðar hafa sagt að mælirinn sé fullur og þau geti ekki tekið við fleirum en mjög er misskipt milli sveitarfélaganna hér eins og ríkja ESB, hversu mörgum er hleypt inn og hvort hurðir standi opnar. Má allt eins búast við að ásetningur flokkanna sex um að halda Svíþjóðardemókrötum utan fyrir þingræðislegar ákvarðanir virki í staðinn eins og olía á eld og stórir skarar kjósenda flykki sér um Svíþjóðardemókrata í næstu kosningum til að mótmæla einelti og þeim ólýðræðislegum vinnubrögðum sem birtast í nafni lýðræðis í Desembersamkomulaginu. 

Vantrauststillaga á Stefan Löfven
Talsmaður Svíþjóðardemókrata Björn Söder sagði í fréttatíma sænska sjónvarpsins í kvöld, að Svíþjóðardemókratar væru orðnir einir í stjórnarandstöðu eftir Desembersamkomulagið. Hann sagði, að þeir mundu axla það verkefni og það fyrsta, sem þeir myndu gera, er þing kemur saman eftir jólahelgina væri að leggja fram vantrauststillögu á forseta Svíþjóðar Stefan Löfven. Heyrst hefur frá talsmönnum Miðflokksins, að slík tillaga muni ekki ná fram að ganga, þar sem aðrir stjórnarandstöðuflokkar muni leggja niður atkvæði og tillagan þá vera felld með meirihlutaatkvæðum ríkisstjórnarflokkanna. En þar sem ástandið er svo sérkennilegt á líðandi stundu er eins gott að halda engu fram í þeim málum. Fyrrum ríkisstjórnarflokkar lögðu áherslu á, að samkomulagið fæli einungis í sér samkomulag um þá stjórnarfarslegu reglu, að minnihlutastjórnir gætu stjórnað og komið fjárlagafrumvörpum í gegn fram til 2022 í Svíþjóð. Tekið var fram, að þetta væri ekki samkomulag gegn Svíþjóðardemókrötum heldur væri verið að tryggja hefðbundið fyrirkomulag minnihlutastjórna í Svíþjóð. Samtímis á að koma á fót þingnefnd til að athuga með breytingu á stjórnarskrá til samræmingar við samkomulagið. Að auki var sagt að flokkarnir sex ætli að vinna saman í varnarmálum, málum ellilífeyrisþega og orkumálum. Það eru engin nýmæli, þar sem hefð er fyrir breiðum sáttum í þessum málaflokkum.

Stjórnarandstaðan hefur gefist upp
Fyrrum formaður Móderata Ulf Adelsson gagnrýndi Desembersamkomulagið harðlega. Í viðtali við Aftonbladet sagði hann: "Vogaraflið hefur verið afhent Vinstriflokknum með útréttri hönd en þeir hafa rætur í kommúnismanum. Stjórnarandstaðan hefur gefist upp. Þetta er stórkostlegur ávinningur fyrir Sósíaldemókratana og Löfven." Á samskiptarásum Sænska Dagblaðsins höfðu nokkrir lesendur á orði að þingkosningar í Svíþjóð væru óþarfar eftir þetta samkomulag.  


mbl.is Kosningum afstýrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar stefna í stórslys með "myrkvuðum" njósnaflugvélum

kastrup-jpg

S.l. föstudag var farþegaflugvél nærri árekstri við erlenda herflugvél sem hafði slökkt á sendara sínum. Vélin var rússnesk segir varnamálaráðherra Svía, Peter Hultqvist, við sænska útvarpið. Atburðurinn gerðist strax fyrir hádegið föstudag í nánd við Kastrup. Farþegaflugvélin hafði rétt lyft, þegar flugumferðastjórnin varaði við "ósýnilegri" vél á svæðinu.

Flugstarfsmenn sænska hersins sáu að um stórslys yrði að ræða og höfðu samband við flugumferðastjórn farþegaflugsins. "Við gáfum fyrirmæli um að beygja undan og það gekk fljótt fyrir sig."

Sænska ríkisstjórnin hefur fengið staðfestingu frá sænskum stríðsflugmönnum, að rússnesk njósnavél hafi verið á ferð. "Þetta er alvarlegt. Þetta er óhæft. Þetta er beinlínis hættulegt," segir Peter Hultqvist.

3. mars átti sams konar atburður sér stað, þegar SAS farþegaflugvél frá Kastrup á leiðinni til Rómarborgar var einungis 90 metrum frá árekstri við rússneska njósnaflugvél. Sænski herinn gat forðað stórslysi þá eins og nú.

Rússarnir haga sér æ oftar á "örvæningarfullan" hátt og augljóst er að hættan á flugárekstri minnkar ekki með fleiri rússneskum njósnavélum sem fljúga um án þess að vera "sýnilegar". Fjöldi "næstumþví" slysa hefur stóraukist í ár og einungis tímaspursmál að mínu mati, þangað til Rússum tekst að granda annarri farþegaflugvél með þessum hætti.

Svíar ræða í fullri alvöru að innleiða herskyldu á ný í Svíþjóð og veitir ekki af miðað við vaxandi ögranir björnsins í austri.


mbl.is Tæki 10-15 ár að byggja upp varnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB í sjálfheldu - getur hvorki komist afturábak, áfram né staðið í stað.

eu-crisis-1

 

 

 

 

 

 

 

Enn á ný kemur skýrsla um Evrópusambandið sem leggst ofan á allar hinar sem segja nákvæmlega sama hlut: Traust íbúa ESB á Evrópusambandinu er á hverfandi hveli. Hagfræðingarnir Luigi Guiso, Paola Sapienza og Luigi Zingales hafa skilgreint fjögurra áratuga opinber gögn Eurobarometer og komist að þeirri niðurstöðu, að Evrópa er í sjálfheldu og enginn vilji hvorki til að bakka né halda áfram og slakur efnahagur leyfi ekki að staðið sé í stað. ESB er fast í momenti 22.

Það eru einkum þrír atburðir, sem hagfræðingarnir telja að hafi haft neikvæð áhrif á viðhorf almennings: Maastricht sáttmálinn 1992, útvíkkun ESB til Austur-Evrópu 2004 og evrukreppan 2010. Sérstaklega hefur evrukreppan haft neikvæð áhrif, t.d. féll stuðningur við ESB frá 54% niður í 44% í Suður-Evrópu nánast hjá öllum þjóðfélagshópum. Evrópusambandið er ekki einungis að tapa fótfestu á heildina litið heldur hefur unga fólkið sem áður var jákvætt hugmyndinni snúist gegn ESB.

Jaean-Claude Juncker mun ekki takast að stilla reiði Grikkja, Spánverja, Frakka og Ítala eða annarra gagnvart búrókrötum í Brussel sem tekið hafa völdin af ríkjum og fjárlögum þeirra. 

Jean Monnet stofnfaðir ESB sagði í ævisögu sinni, að "Evrópa verður smíðuð í kreppum og verður að samnefnara þeirra lausna sem fundnar verðar til að leysa þær kreppur." Monet sá fyrir sér að samruna Evrópuríkja yrði stjórnað af Evrópusambandssinnaðri búrókratískri elítu. Verkefnið var hannað til að vera aðskilið frá hagsmunum kjósenda og algjörlega óafturkræft. Ekki var litið á kreppur sem hindranir heldur sem tæki til að hraða samþjöppun valds í höndum Evrópusambandsins.

Nýjasta fjármálakreppa hefur einmitt gefið Brussel eitt slíkt tækifæri að auka völd búrókratanna yfir aðildarríkjum, velferðarmálum þeirra og efnahagsstefnu. Verið er að flytja síðasta orðið yfir fjárlögum ríkjanna til Brussel.

Skýrslan sýnir síminnkandi meirihluta íbúanna sem styðja evruna og vilja viðhalda henni sem gjaldmiðli. Almenningur er alfarið á móti frekari samruna ríkjanna og andstaðan við ESB vex fiskur um hrygg.

Niðurstaða skýrslunnar er að sérhvert skref til samþjöppunar frekari valds til Brussels sé óskynsamleg ráðdeild. Þess í stað á að leyfa aðildarríkjum að bjarga því sem hægt er að bjarga af eftirstöðvum ímyndar ESB með mörgum litlum skrefum í átt frá samruna ríkjanna. 

Skärmavbild 2014-12-11 kl. 22.44Á línuritinu sést, að stuðningur almennings í suður Evrópu var yfir 75% árið 2002 en er kominn niður í rúm 20% ár 2013 sem er um 55% fall á 11 árum. Íbúar mið Evrópu studdu ESB mest rúm 60% ár 2007 en tæp 40% sex árum síðar. Íbúar norður Evrópu stuttu ESB flestir tæp 60% árið 2007 og eru ár 2013 komnir niður í u.þ.b. 35%.

 


Kratar í krampakasti í Svíþjóð

Skärmavbild 2014-12-06 kl. 19.05.46

Skjáskot af sjónvarpi Dagens Nyheter með viðtali við Björn Söder flokksritara Svíþjóðardemókrata, sem nú krefjast opinberrar afsökunar Stefans Löfvens forsætisráðherra Svíþjóðar fyrir að kalla þá nýfasistíska. 

"Þetta bendir til mikillar örvæntingar" segir Björn Söder og bætir við: "Það er ekki hægt að taka mark á því, þegar einkennandi orð af þessu tagi eru notuð í stjórnmálaumræðu."

Söder bendir á, að sósíaldemókratar hafi ekki átt í neinum erfiðleikum með að taka hluta út úr fjárlögum bandalagsstjórnarinnar og fella hann með aðstoð Svíþjóðardemókrata á sínum tíma. "Þá var ekki svo mikilvægt að fylgja hefðbundnum reglum."

Åsa Romson umhverfis- og aðstoðarforsætisráðherra, talsmaður samstarfsflokks sósíaldemókrata, Umhverfisflokksins, finnst ekkert óeðlilegt við það, að aðrir kalli Svíþjóðardemókrata nýfasískan flokk en sjálf vill hún frekar meta hvað innihaldið í stefnu Svíþjóðardemókrata þýði fyrir Svíþjóð en nota þá lýsingu. 

Oscar Sundevall flokksritari Annie Lööf, formanns Miðjuflokksins, segir að Miðjuflokkurinn vilji heldur ræða málefnin á efnislegum grunni en að ræða stimpla af ólíkum gerðum.

Oscar Karlflo, flokksritari hjá Móderötum segir, að það sé óheppilegt að fjármálaráðherrann og forsætisráðherrann skrúfi upp hljóðið í stjórnmálaumræðunni í stað þess að ræða þá alvarlegu stöðu, sem komin er upp.

Flokksleiðtogi Alþýðuflokksins Jan Björklund telur of langt gengið að kalla Svíþjóðardemókrata "nýfasískan flokk." "Mér finnst Svíþjóðardemókratar vera mótfallnir útlendingum en maður verður að vera varkár í orðavali. Mér finnst þetta benda til þess, að forysta Sósíaldemókrata sé núna undir afar miklu álagi."

Formaður Vinstri flokksins Jonas Sjöstedt vill ekki sjálfur nota orðið nýfasískur, þótt honum finnst það ekki rangt að einhverjir aðrir gera það.

Persónulega finnst mér sjálfum, að kratarnir hafi málað sig útí horn með fjárlög stjórnarandstöðunnar í fanginu. Það er aumkunarvert að horfa á þá valdaháðu ríghalda í stólana, þegar þeir vita að þeir njóta ekki meirihluta á þingi til að koma málum sínum í gegn. Ef Stefan Löfven hefði verið maður með mönnum hefði hann beðist lausnar fyrir sig og ríkisstjórnina. Í staðinn velur hann að æða um allt eins og mæðuveik rolla í leit að athygli og fylgni. Sænskir kratar hafa aldrei verið niðurlægðir á jafn afdráttarlausan hátt og nú og erfitt að sjá, hvernig þeim á að takast að rétta úr kútnum eftir öll vindhöggin sem þeir hafa látið vaða.


mbl.is Svíþjóðardemókratar nýfasískur flokkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veik kratastjórn fallin eftir sögulegt afhroð á sænska þinginu

Skärmavbild 2014-12-04 kl. 00.53.48

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stefan Löfven tilkynnti 3.des. að sænska ríkisstjórnin áætlaði að taka ákvörðun um auka þingkosningar í Svíþjóð 22. mars n.k. Sósíaldemókratar og vinstri og grænir kenna fyrri ríkisstjórnarflokkum um að hafa svikið þingræðið og lýðræðið með því að greiða atkvæði með eigin fjárlagafrumvarpi, þegar fréttist að Svíþjóðardemókratar bættust í hópinn og felldu þar með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Krafa sósíaldemókrata um hlífiskjöld stjórnarandstöðunnar er bæði fáranleg og hrokafull. Hún afhjúpar stjórnmálamenn sem lifa einungis fyrir formleg völd án annars innihalds en vera sjálfir við völd, sem er dæmigerður kratismi.

Sannleikurinn er sá, að stefna Sósíaldemókrata, sem þeim hefur tekist að fá samstöðu annarra flokka fyrir, um að frysta Svíþjóðardemókrata úr umræðu og þáttöku í venjulegum störfum þingsins, hefur slegið til baka á þá sjálfa og þá flokka, sem fylgt hafa sömu stefnu. Árangurinn er að Svíþjóðardemókratar hafa stóraukið fylgi sitt og eru nú þriðji stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar. Svíþjóðardemókratar vonast til að verða næst stærsti flokkur Svíþjóðar eftir næstu kosningar. Ef aðrir stjórnmálaflokkar taka sig ekki saman og byrja að ræða við kjósendur um þau málefni sem þeir hafa vanrækt og gefið hafa Svíþjóðardemókrötum frítt svigrúm, þá mun sigurganga Svíþjóðardemókrata halda áfram. 

Móderatarnir skilgreindu fylgismissi síðustu kosninga með því að kerfisstjórn og uppífrá sjónarmið höfðu tekið yfir opinskáa stjórnmálaumræðu þar sem sjónarmið grasrótarinnar næðu fram. Þetta er skynsamleg skilgreining sem eykur vonir um að Móderötum takist að auka fylgi sitt, þrátt fyrir missi flokksleiðtoganna Fredriks Reinfeldts og Anders Borgs.

Menn eru að byrja að átta sig á því, að með því að leggja lokið á Svíþjóðardemókrata, þá útiloka þeir eigin þáttöku í umræðu kjósenda um innflytjendamál og aðbúnað og aðlögun innfluttra í sænska samfélaginu. Evrópumálin fylgja einnig uppífrásjónarmiðum og margir af ESB andstæðingum borgaralegu flokkanna greiddu atkvæði með Svíþjóðardemókrötum til að lýsa óánægju sinni með skort á ESB umræðu eða "umræðu" í skorðum uppífrá stjórnenda. Svíþjóðardemókratar eru ESB skeptískir og að því leytinu skilur sig ástandið í Svíþjóð í engu frá ástandinu í öðrum ESB-ríkjum með vaxandi gagnrýni á Evrópusambandið og hörmungum evrunnar. Páfinn segir að ESB sé fangi í "einsnúmera efnahagsflík" sem grafi undan lýðræðinu.

Enginn veit með vissu, hvort ríkisstjórn Stefans Löfvens muni ákveða aukakosningar þann 22. mars, þótt slíkt sé sagt nú. Ríkisstjórnin getur fyrst tekið ákvörðun um aukakosningar þann 29. desember og eftirtektarvert er, að Stefan Löfven baðst ekki lausnar fyrir ríkisstjórnina eftir fullkomlega niðurlægingu, þegar fjárlagafrumvarpið var fellt á þingi með 182 atkvæðum stjórnarandstöðunnar gegn 153 atkvæðum ríkisstjórnarinnar. 

Búast má við, að sósíaldemókratar noti tímann fram að áramótum og reyni til þrauta að sundra stjórnarandstöðuflokkunum enda hafa stærstu rök þeirra um svik stjórnarandstöðunnar með því að "fá Svíþjóðardemókrata til liðs við sig" þegar verið lögð fram. Þau rök geta snúist í höndum Sósíaldemókrata sjálfra og dregið úr fylgi þeirra, þótt digurbarkalega sé talað nú.  

Ljóst er, að Svíar eru mun hreyfanlegri og sjálfstæðari en oftast áður og veltur niðurstaða væntanlegra þingkosninga alfarið á umræðunni við kjósendur fram að kosningum.


mbl.is Boðað til þingkosninga í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópusambandið er fangi í einsnúmers efnahagsflík, sem grefur undan lýðræðinu

 Vatican_Pope_784550a

 

Francis páfi hélt ræðu fyrir fullsettu Evrópuþingi 700 þingmanna s.l. þriðjudag og vandaði Evrópusambandinu ekki kveðjurnar. Telur páfinn, að ESB sé bæði aldrað og úr sér gengið, gjaldfelli hugsjónir og góðar hugmyndir og veiti skriffinnsku brautargengi. 

Francis páfi klandraði Evrópusambandinu fyrir meðferð á flóttamönnum og innflytjendum, atvinnuleysi meðal ungs fólks og  meðferð á eldri borgurum ásamt skorti á glöggsýni. 

Páfinn telur, að Evrópusambandið hafi glatað burði sínum og sé eiginn fangi í einsnúmers efnahagsfötum, sem grefur undan lýðræðinu á sama tíma og einstaklingsbundin sjálfselska hafi ruglað reitum mannréttindamála. Umheimurinn líti á Evrópusambandið "úr fjarlægð með vantrausti og af grunsemdum."

"Við getum ekki leyft Miðjarðarhafinu að breytast í risastóran kirkjugarð" sagði páfinn og skírskotaði til allra þeirra þúsunda flóttamanna sem drukkna árlega á flótta sínum frá Miðausturlöndum og Norður-Afríku á leið til Suður Evrópu. Páfinn ásakaði ESB fyrir að vera með eigingjarna stjórnmálastefnu sem bætir olíu á eld þess missættis, sem flóttafólk væri að flýja undan. 

"Sameining þýðir ekki sambræðsla" sagði Francis og fordæmdi "sambúning efnahagsvaldakerfis í þjónustu falinna stórvelda."

Þingheimur klappaði í tvær mínútur í hrifningu yfir ræðu páfa sem varaði í 36 mínútur. 

Meira um ræðu páfa hér, hér og hér.


mbl.is Beraði brjóstin vegna komu páfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrusvæðið - Ísland: 0 - 3

EurozonenIsland"Evrusvæðið er að nálgast glataðan efnahagslegan áratug. Hversu lengi á að láta þetta viðgangast, þegar jafnvel Ísland hefur skotið svæðinu ref fyrir rass?" (Frjáls þýðing). 

Þannig spyr skríbent Sænska dagblaðsins Per Lindvall í grein um evrukreppuna í dag. Ber Per saman slæmt ástand evruríkjanna saman við litla Ísland sem hann telur að hafi staðið sig best allra ríkja að vinna sig út úr kreppunni með íslensku krónuna að vopni.

"Miskunnarlaus fjármálakreppan tók banka landsins hart jafnhliða húsnæðisbólu, skuldsettum heimilum og geysilegum viðskiptahalla. Íslenskur efnahagur hefur tekið sig fram úr stöðunni við áramótin 2007/2008. Ár 2011 var íslenskt atvinnuleysi mest um 7% og er núna komið í 4,1%. Eftir er að ná því niður í 2,1% eins og ríkti í lok 2007.

Atvinnulausir Íslendingar hafa líklega flutt til Noregs eins og einhver bendir á. Það getur verið en það sést ekki á tölunum. Íslenska vinnuaflið var 4,5% stærra í ársbyrjun 2014 en í árslok 2007.

Jafnvel þótt Ísland hafi sérstaka kosti í velmenntuðu vinnuafli og góðum síldarstofni, þá hefur það ekki verið svo vitlaust að hafa möguleika á að stjórna eigin örlögum, sem eiginn gjaldmiðill hefur gert kleyft.

Hin veika íslenska króna hefur endurskapað samkeppnishæfileikann og enginn kallar á, að Ísland verði að framfylgja svo kölluðum endurbótum (þ.e.a.s. að gera það léttara að sparka fólki og lækka launin). Þjóðarsáttmálinn er enn þá í gildi."

Núna berjast bankarnir áfram við þjóðina og reyna að breyta Icesavekrónum í erlendan gjaldmiðil á kostnað þjóðarinnar. Ríkisstjórnin hefur staðið sig afar vel í nálgun vandamálsins og í ferlinu er óskorað frumkvæði í höndum lýðræðiskjörinna fulltrúa okkar. Icesavestjórnarandstaðan, hrægammasjóðir og bankasvindlarar standa öll sömu megin og toga í reipið í þeirri von, að hlunnfara megi þjóðina enn frekar. 

Stöndum þétt við bak ríkisstjórnarinnar í þessu mikla reipitogi og hættum ekki fyrr en andstaðan hefur tapað kraftinum og hrökklast frá áformum sínum!


mbl.is Fullkomlega óraunhæf skattlagning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsvaldakeisarinn ekki af baki dottinn. Plan C - ný stórstyrjöld

putin_cover_3Pútín heldur áfram að stækka landamæri Rússlands, þrátt fyrir "friðarsamning" við Úkraínu. Skv. samhljóma fréttum fleiri óháðra fréttamiðla í gær keyrði herdeild rússneska hersins með 32 skriðdreka, flutningabíla með þungum vopnum, færanlegar radarstöðvar m.fl. inn í Úkraínu í átt til Lúhansk og Dónetsk. 

Kemur innrásin í kjölfar kosningafarsa í sjálfútnefndu alþýðulýðveldunum Dónetsk og Lúhansk. Munstrið er hið sama og á Krímskaga,  þegar Rússar réðust inn og hertóku skagann eftir s.k. kosningar,  þar sem lýst var yfir að Krím ætti að sameinast Rússlandi. Í þetta sinn er ekki verið að fela, að rússneskir hermenn eru á ferðinni.

Kosningarnar í Lúhansk og Dónetsk voru endemisfarsi og skv. fréttaritara sænska sjónvarpsins á staðnum gátu menn farið milli kjörstaða og kosið mörgum sinnum án þess að þurfa sýna nokkur skilríki. Fékk fréttaritarinn Elín Jönsson hríðskotabyssu í andlitið þegar hún spurðist fyrir og varð að hverfa á braut. Kjörstaðirnir voru leikhús heimsvaldakeisarans undir vopnaðri gæslu hermanna.

Friðurinn í Úkraínu er enginn friður. Aðeins pása á meðan Rússar undirbúa enn eina nýja herferðina. 

NATO hefur aukið herafla á austurslóð og búast má við mikilli spennuaukningu, þegar Rússar hefja á nýju sókn að markmiði sínu sem er að innlima a.m.k. austurhluta Úkraínu í Rússland.

georgeSoros_prb_wHelstu stuðningsmenn Evrópusambandsins, sem vilja eitt ríki meginlandsins, stendur stuggur af uppgangi Pútíns og nota ástandið óspart til að egna till enn frekara hervæðingar til að fara í "úrslitastríðið" við Rússland. Fjármálamaðurinn George Soros skrifaði nýverið greinina Vaknið, Evrópa, þar sem hann skilgreinir ástandið þannig, að hvorki stjórnmálamenn né almenningur gerði sér grein fyrir hættunni sem stafaði frá Pútín. Telur Soros að líf allrar Evrópu liggi undir. Telur hann sveigjanleika Rússlands langt umfram getu Evrópusambandsins sem sé stirt og seint í snúningum. Telur Soros að sjálfstæð Úkraína sé lykillinn að framtíðinni, því gjaldþrota Úkraína í bitum, sem Rússar réðu a.m.k að hluta til yfir þýddi svo stórt skarð í efnahag og varnir Vesturlanda að bæði ESB og Bandaríkin gætu ekki lengur forðast að grípa til vopna gegn Rússum. Hvetur Soros ESB til sjálfsgagnrýni og segir að ESB bjargi sjálfu sér með því að bjarga Úkraínu. 

Þessi tónn heyrist víða að frá stuðningsmönnum sambandsins um þessar mundir. Látið er líta svo út að ESB sé friðarsamband og saga Evrópu sé sagan um friðartíma sambandsins. Sleppt er þá að minnast á NATO og bandalag þjóða í stríði gegn Hitler og Stalín. Nú er Pútín notaður sem ógn til að ganga með í ESB og taka upp evruna og eru Ísland, Noregur, Sviss og Lichtenstein á skrá yfir lönd sem ESB hyggst innlima. 

Heimsvaldastefna burtséð frá þeim sem framkvæmir hana, þarf óvini til eigin réttlætingar. Að þessu leyti er heimurinn kominn í tíma myrkurs þar sem plan C er ný stórstyrjöld.

 


Til hamingju USA!

Skärmavbild 2014-11-05 kl. 08.18.09Kosningar gærdagsins eru stórt skref fram á við fyrir Repúblikanaflokkinn sem nú hefur meirihluta og völdin í báðum deildum Bandaríkjaþings. Þar með er forseti Bandaríkjanna Obama einangraður með stefnu sína í heilbrigðismálum, skattamálum og öðrum málum sem sundrað hafa bandarísku þjóðinni s.l. kjörtímabil.

Að sögn Frida Stranne sem nemur bandaríska öryggispólitík við háskólann í Halmstad, Svíþjóð, er andstaðan við Obama mjög útbreidd. "Obama hefur afar slæmt samband við þingið. Hann virðist einnig stjórnmálalega þreyttur og uppgjafa."

Stranne segir, að vantraust sé útbreitt á ríkisvaldinu í Washington og meinar að bæði demókratar og repúblikanar ynnu á, ef þeir sameinuðust um að hefja veg þingsins til endurnýjaðrar virðingar hjá Bandaríkjamönnum.

Staðan gerir Bandaríkjaforseta að "lame duck", þ.e.a.s. forseta án áhrifa til að koma málum sínum í gegn. 

Ég hef áður borið saman Jóhönnu Sigurðardóttur og Barack Obama, þar sem bæði hafa keyrt áfram stefnu sína með offorsi og virðingarleysi fyrir stjórnarskrá og lögum. Ýmis mál eru í gangi gegn Óbama, sem gætu jafnvel náð honum áður en forsetaferli hans lýkur og líkur á, að hann hrökklist frá völdum sem versti forseti í sögu Bandaríkjanna.

Mér finnst það ánægjuefni, að Bandaríkjamenn hafa tekið sig saman og veitt Repúblikönum brautargengi til að spyrna gegn skattahækkunum og því ófrelsi, sem demókratar voru að innleiða í USA og er mjög framandi þeirri frumkvöðlamenningu og frelsisþrá sem einkennt hefur bandaríska samfélagið. Léleg kosningaþáttaka er hins vegar áhyggjuefni og endurspeglar vantrú á, að lýðræðislegar stofnanir virki sem skyldi og augljóslega þörf á að endurbæta traust og þar með lýðræðislega þáttöku almennings í þjóðfélagsmálunum.


mbl.is Repúblíkanar í meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband