Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mannréttindadómstóll Evrópu kominn langt út fyrir upprunaleg markmið

borisjohnss23Ég hef gert hlé á bloggskrifum hér síðan í júlí, fremst vegna fréttaskrifa á útvarpi SÖGU

Ætla að reyna að tengja fréttaskrifin við eigin hugleiðingar hér að nýju og byrja á frétt sem birtist á útvarpi SÖGU í morgun um fyrirhugaða löggjöf Breta sem færir þeim ákvörðunarréttinn tilbaka á því hverjir fá að vera í Bretlandi. 

Mannréttindadómstóll Evrópu er kominn langt „framúr" því verkefni sem upprunalega var ákveðið eftir seinni heimsstyrjöldina enda hefur verið spunnið við lögin síðan. Bretar gerðust aðili að Mannréttindasáttmála Evrópu 1989 sem Theresa May sagði að „bundið hefði hendur breska þingsins." Evrópusambandið er eins og hundur á roðskinni og hremmir Breta með öllum tiltækum ráðum t.d. hótun um bann á N-Írland að kaupa matvæli af Bretum! Búast má því við að skæluvælurnar bæði hjá Mannréttindadómstólnum og í Brussel kveini hástöfum, þegar ríkisstjórn Boris Johnsson tekur tilbaka ákvörðunarrétt Breta um hverjir mega dvelja í landinu.

Hér er greinin:

Unnið er að nýrri löggjöf í Bretlandi sem gerir Bretum kleift að ákveða sjálfir hverjir fá að vera í landinu og hverjum þeir geta vísað burtu. Tillagan verður birt eftir nokkrar vikur að sögn Sunday Telegraph en verið er að undirbúa lagasetningu í dómsmála-, innanríkismála- og forsætisráðuneytinu sem gerir Bretum kleift að sniðganga núverandi Mannréttindasáttmála Evrópu.

Stóra Bretland hefur stöðugt hafnað því að setja tryggingu fyrir að framfylgja evrópska mannréttindasáttmálanum í samningaviðræðunum við Evrópusambandið. Boris Johnson hefur þvert á móti varað ESB við því að Bretar munu sjálfir taka málin í eigin hendur. Ein af ótal kröfum ESB í Brexit samningnum var að Bretar gæfu skilyrðislaust loforð um að hlíta Mannréttindasáttmálanum eftir útgöngu úr ESB.

domstollBúast má við að ESB noti markmið Breta að ákveða sjálfir hverjir dvelji í landi sínu til enn frekari sleggjukasta fyrir eigin hagsmuni í Brexit-viðræðunum. Ástandið í Brexit-umræðunum er eldheitt og stefnir í að Bretar yfirgefi ESB samningslausir ef talsmenn ESB taki sig ekki í kragann fyrir 15. október og semji en ESB hótar m.a. viðskiptabanni á Norður-Íra til matvælakaupa sem lið í kúgunarspilinu gegn Bretum.

Stóra Bretland hefur í mörg ár átt í erfiðleikum með að vísa hættulegum útlendingum úr landi vegna ákvæða Mannréttindasáttmálans og hefur það valdið gremju og reiði yfirvalda og almennt í Bretlandi. Theresa May sagði 2016 að Bretar ættu að segja sig frá sáttmálanum „vegna þess að hann bindur hendur þingsins.” Núna endurskrifa Bretar lögin svo þeir þurfi ekki að framfylgja ákvæðum sáttmálans sem tryggir hættulegu fólki vistarveru í Bretlandi.

Dominic Cummings ráðgjafi Boris Johnson hefur ásakað Mannréttindadómstólinn í Strassburg fyrir dóma sem hindra brottvísun hættulegra erlendra glæpamanna. Cummings hefur einnig varað við því að Bretar munu fara eigin leiðir eftir aðskilnaðinn við ESB.

Stóra Bretland gerðist aðili að Mannréttindasáttmálanum 1989 og hefur Íhaldsflokkurinn verið mjög gagnrýninn á þá tilhögun.

Sjá nánar hér


Slæmt fyrir Ísland ef sendiherrar þurfa að hafa vopnaða verði

Jeffrey_R._Gunter_official_photoÍsland hefur til alls að vinna og viðhalda sem bestum samskiptum við vini okkar Bandaríkjamenn og samkvæmt eðli málsins fara samskipti ríkjanna mjög fram í sendiráðunum. Það er til marks um hversu afvegaleiddir sumir eru að vera að velta sér upp úr ekkifréttinni að sendiherra Bandaríkjanna sé annt um öryggi sitt og starfsmanna Bandaríska sendiráðsins. Slík öryggismál eru hluti af skipulagi allra sendiráða hins vestræna heims og varla sérstakt fréttaefni.

Það sem er fréttaefni hins vegar er að margt fjölmiðlafólk (hefur einhver minnst á Rúv?)telur starf sitt vera fólgið í að dreifa eigin móðursýki í stað frétta. Frá Bandaríkjunum berast nú daglega fréttir um baráttuna gegn innlendum skemmdarsamtökum eins og Antifa og BLM sem ruglaðir demókratar telja vopn í komandi forsetakosningum. Einnig berast daglega fréttir um hvernig kínverskir kommúnistar sýna nú sitt rétta andlit og eru komnir í stríðsham sem ekki sér fyrir endann á. Ísland á að taka kalli Pompeo utanríkisráðherra USA og ganga með í bandalag lýðræðisþjóða gegn kommúnismanum sem Kína er að draga heiminn í. 

Íslensk utanríkisstefna þarf að hætta sleikjuhætti við kínverska kommúnista og Evrópusambandið og snúa sér aftur að vináttu við bestu vini okkar. Að sjálfsögðu á að veita öllum sendiherrum lágmarks vernd og setja aukið fé til löggæslu í landinu. 


mbl.is „Mikill heiður“ að leiða bandaríska teymið á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson – einn af frelsishetjum nútímans og arftaki Jóns Sigurðssonar

sigm4Daily Express birti nýlega grein um hvernig Íslandi tókst að lifa af Hræðslusprengjuna og lifa góðu lífi fyrir utan Evrópusambandið. Segir blaðið Íslendingum hafa tekist svo vel vegna þess að þeir voru með eigin gjaldmiðil og ekki í fjötrum evrunnar. Eftir hrun fjármálafyrirtækja 2008 var þeirri hræðslusprengju varpað á Ísland að landið ætti enga afkomumöguleika nema með því að ganga í ESB og taka upp evru. Vitnað er í skýrslu The Telegraph frá 2016 og samtals við þáverandi forsætisráðherra Íslands Sigmund Davíð Gunnlaugsson en hann tjáði blaðinu að aðildarviðræður Íslands hefðu verið undir álagi hræðslu um afkomu landsins og tónninn hefði verið sá að

 „án aðildar væri Ísland glatað. Það voru aldrei neinar umræður um markmið eða eðli Evrópusambandsins eða hvort það hentaði Íslendingum eða þeir vildu verða hluti af því. Aðildarumsóknin var einfaldlega kynnt sem efnahagsleg nauðsyn og sagt að um leið og við hefðum sótt um aðild fengjum við alþjóðlegt lánstraust til baka og evran leysti síðan öll okkar vandamál.” 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bætti við: „Að vera ekki með evruna var ómetanlegur þáttur í hinum skjóta efnahagsbata. Það leikur enginn vafi á því, að ef við hefðum verið meðlimur Evrópusambandsins og með evruna á þeim tíma. þá hefði landið orðið gjaldþrota og sett í efnahagslega stöðu sem meira minnir á Grikkland en þá sem Ísland er í dag."

Hræðslusprengjan á Íslandi mistókst og einnig mistókst að stöðva Brexit í Bretlandi.

ITALYEXIT

Í dag er stofnaður Italexit flokkur á Ítalíu sem fullveldissinnar gleðjast yfir á Ítalíu og öðrum löndum. Það er Gianluigi Paragonefv. þingmaður Fimm stjörnu hreyfingarinnar, sem verið hefur flokkslaus á þingi síðan í janúar sem stofnar nýja flokkinn (sjá frétt á Útvarpi Sögu).

Við sem viljum frelsi fögnum tilkomu nýja flokksins og óskum honum alls gengis í baráttunni fyrir að losa ítölsku þjóðina úr klóm Evrópusambandsins.


Franklín er maður þjóðarinnar – of mörg göt í söguminningum prófessorsins

1209020Norður-Kóreanskar flennistórarar skoðanakannanir sem RÚV birti í „umræðuþætti" forsetaframbjóðdenda í gærkvöldi málaði myndina af einokunarmiðli ríkisins sem miskunnsama samverjanum sem af hreinni hjartagæsku leyfði þeim hlekkjaða að fá að vera með síðustu mínúturnar fyrir aftökudaginn. Slík sena fáranleikans leyfir engar umræður um stóru málin sem Guðmundur Franklín tók með sér, – fjölmiðill fimmtu herdeildarinnar þjónar öflum sem vilja gera Íslendinga að fátæktarhjúum í eigin landi. 

Söguprófessorinn hefur enga sýn fyrir þjóðina í nánustu framtíð og kemst ekki með tærnar þar sem Guðmundur Franklín er með hælana til bjargar Íslandi frá ljónagryfju ESB, efnahagskreppu, auðlindasölu, atvinnuleysi og annarri óáran. Guðmundur Franklín leiðir þjóðina gegn fjársterkum öflum hnattvæðingarsinna sem eru að stela auðlindum þjóðarinnar og gera Íslendinga að fátæktarhjúum í eigin landi. 

Það er óhuggulegt að heyra prófessorinn á Bessastöðum stöðugt hæðast að stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, vegna þess að hún komi frá tíma konungsvelda. Forsetinn hefur sjálfur heimsótt þrjú slík konungsveldi nútímans sem enn eru í fullu gildi. Þótt sagnfræðingurinn geti ekki hamið andúð sína á konungsdæmum, þá er það með öllu óboðlegt forseta Íslands að tala niður þjóðfélagsgerð konungsvelda til að vega að sáttmála þjóðarinnar frá Þingvöllum 1944.

Franklín nefndi orðið stríð og sú saga er verð endurtekningar að hefði stjórnarskrá Noregs ekki haft ákvæðið um sameiginlegt stjórnarfar konungs og þings, þá hefði útlagastjórn Noregskonungs í London, þegar nasistar hertóku Noreg, verið ólögleg. Það eru mörg stór göt í sögulegum endurminningum Guðna Th. Jóhannessonar prófessors sem gerir hann óhæfan í embætti forseta.

Í þessum kosningum er valið einfalt – a.m.k. fyrir alla þá sem unna hagsmunum þjóðarinnar:

Guðmundur Franklín Jónsson er verðugur þess að ná kjöri sem sjöundi forseti lýðveldisins Íslands.


mbl.is Kosið til forseta í níunda sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti "fávísa lýðsins" og áskorandinn í lélegri útgáfu af Jeopardy

pbbHagsmunaaðilar að baki Heimi Má Péturssyni með Heiðari Guðjónssyni tengdasyni Björns Bjarnasonar í fararbroddi, byrjuðu kosningaþátt tveggja forsetaframbjóðenda með fallexi á annan þeirra, áskorandann Guðmund Franklín Jónsson. Birt var skoðanakönnun í Norður-Kóreönskum stíl sem sýndi að sitjandi forseti Guðni Th Jóhannesson var með allt að 98% stuðning í vissum landshlutum og vel yfir 90% á landsvísu en áskorandanum tókst hvergi að ná í tveggja stafa tölu. Eftir þá kynningu var eiginlega þátturinn óþarfur, hálshögginn kjúklingur getur flogið smá stund en afar skamma meðan aðrir lifa áfram óáreittir.

Hvort þessu markmiði þáttarins verður náð á eftir að koma í ljós. 

Ég kýs Guðmund Franklín Jónsson vegna þess að núverandi forseti - rétt eins og Franklín benti á í þættinum - hefur rakkað niður þjóð sína í landhelgisbaráttu fyrri tíma í stað þess að standa með henni og hvetja til dáða. Ég get heldur ekki lagt mitt atkvæði á mann sem ekki getur staðið við orð sín í beinni eins og þegar Guðni Th. sagði það lygi í framboðsþætti með Davíð Odssyni, að hann hefði nokkru sinni notað orðin "fávísi lýðurinn" um landsmenn sína. Það er aumlegt yfirklór af sitjandi forseta að eftirá útskýra að hann hefði meint eitthvað allt annað með orðunum, að þetta væri grín, sem það var engan veginn þegar hann sagði þau í fyrirlestrinum.

Það sem veldur verulegum áhyggjum með Guðna Th. Jóhannesson er áhugi hans á að breyta stjórnarskrá um embætti forseta án þess þó að hann útskýrði á hvern hátt þær breytingar eigi að vera. Hér er náttúrulega verið að ræða að afnema málskotsrétt forseta í þeim tilgangi að eyðileggja öryggisventilinn sem stjórnarskráin veitir þjóðinni. Það er einlægur vilji ESB-sinna að þetta verði gert svo þjóðin sé varnarlaus ef meirihluti Alþingis ákveður að ganga á bak þjóðarsáttmálanum á Þingvöllum 1944 eins og gerðist í Icesave og orkupakka 3. 

Það er ámælisvert að sá sem sagnfræðingur þykist vera og hámenntaður í greininni skuli hæðast að stjórnarskránni með því að telja hana sniðna að danska konungsveldinu. Einmitt það atriði sem forseti Íslands hæðist að gerði Norðmönnum kleift í seinni heimsstyrjöldinni að mynda löglega útlagastjórn með aðsetri í London þegar Hitler gerði Quisling að forsætisráðherra Noregs. Forsetinn segist læra af sögunni gagnvart fyrirrennurum sínum á Bessastöðum en hæðist að sögunni gagnvart stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Þessi afstaða kemur í veg fyrir að Guðni Th. Jóhannesson verði nokkru sinni sá fulltrúi Íslendinga sem hann svo heitt óskar að þjóðin tilbiðji sig fyrir að vera.

Þátturinn var ein lélegasta útgáfa af Jeopardy sem ég hef séð á ævinni og þeim sem þykjast vera alvöru sjónvarpsstöð til háborinnar skammar. ESB eru trúarbrögð margra en sunnudagaskóli Hvítasunnusafnaðarins er líklegast mun málefnalegri en þetta þykjustusjónvarp Stöðvar 2.

 

 


mbl.is Sakaði Guðna um ódrengilega kosningabaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn þakkar kosningastjóranum fyrir stuðning í beinni útsendingu

FranklinÞað var hressilegt að heyra og sjá Guðmund Franklín Jónsson forsetaframbjóðanda á RÚV í dag. Ljóst er að Guðmundur hefur mikið til mála að leggja og fremst þann að virkja embætti forseta Íslands sem öryggisloka lýðræðis og lýðveldis á Íslandi og ekki veitir af miðað við tímaskekkju Alþingis þar sem meirihluti þingmanna telja sig starfa fyrir ESB í stað lýðveldisins.

Fyrstu forsetarnir í embættinu voru stjórnmálamenn svo það er einskær EKKI spurning að velta því fram hvort embættið eigi að vera pólitískt eða ekki – eins og spyrla kosningaskrifstofu sitjandi forseta gerði. Afhjúpar það eindæmis virðingarleysi RÚV fyrir embættinu og sögu þess og reyndi spyrlan einnig að fipa Guðmund með annarri EKKI spurningu um gagnrýni á þingmann pírata fyrir mörgum árum! RÚV mun gera allt til að mála upp sýndarmynd af Guðna Jóhannessyni sem „mannlegum" forseta sem gerir mistök eins og að veita barnaníðingum uppreist æru. Eins gott fyrir kjósendur að hleypa ekki slíkum manni aftur að Bessastöðum. 

Hér skal ósannur áróður RÚV um ópólitískt forsetaembætti hrakinn: Af sex forsetum lýðveldisins hafa þrír verið sóttir úr röðum stjórnmálamanna. Sveinn Björnsson var þingmaður Sjálfstæðisflokksins (eldri) á Alþingi og var einnig í bæjarstjórn Reykvíkinga í mörg ár. Ásgeir Ásgeirsson var bæði fjármálaráðherra og forsætisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn en fór síðar yfir í Alþýðuflokkinn. Ólafur Ragnar Grímsson var þingmaður Alþýðubandalagsins og fjármálaráðherra, var áður hjá Framsóknarflokki. Kristján Eldjárn var fornleifafræðingur og virtur sem slíkur, Vigdís Finnbogadóttir var vinsæll leikhússtjóri og Guðni Jóhannesson er umdeildur sagnfræðingur sem ekki getur haldið réttu máli í landhelgissögu Íslands vegna tilvísunar til „fávís lýðs" sem hann telur landsmenn vera.

Guðmundur Franklín Jónsson er viðskiptafræðingur og hagfræðingur og hefur ekki á þingi setið fyrir neinn stjórnmálaflokk. Kosningaskrifstofa sitjandi forseta RÚV reynir samt að gera mál úr því að keppinautur sitjandi vilji nýta öryggisventilinn á markvissari hátt en sagnfræðingurinn.

Það er ekki aðeins spurning að þörf sé á slíkum manni í forsetastól vegna umpólunar Alþingis sem í dag hegðar sér eins og Ísland sé meðlimur ESB - það er bókstaflega brýn nauðsyn til að hafa hemil á landssölufólkinu sem ætlar sér að græða á því að selja út auðlindir Íslands.

Guðmundur Franklín Jóhannesson er maður fullveldis - sagnfræðingurinn á Bessastöðum sem veitir barnaníðingum uppreist æru skilur ekki einu sinni fyrsta bókstafinn í orðinu fullveldi. Það og meira til skildu þó bæði fornleifafræðingurinn og leikhússtjórinn sem er vísbending um þjóðarhylli þeirra. Bókarinn á Bessastöðum þarf því á kosningaskrifstofu RÚV að halda, sem óvíst er að dugi til –  enda þakkaði hann Agli Helgasyni fyrir hjálpina með sérstakri kveðju í beinni eftir að spyrlan hafði lokið þættinum.


mbl.is „Þarna brást kerfið og þarna brást ég“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur Franklín verðugari embætti forseta Íslands en sá sitjandi

98338744_272233184161816_2371317212955803648_nÞað er miklvægur munur á framkvæmdamanninum og bókaranum. Í músíkheiminum lýsir það sér í því að margir af bestu tónskáldum heims kunnu ekki að skrifa nótur og fengu nótnaskrifara til að skrá lagið eftirá. Þannig er það einnig í lífinu að til að ná árangri þarf bæði trú á eigin mátt, markmið og eljusemi til að ná áfangastað. Afskaplega lítið af þessu birtist hjá bókaranum á Bessastöðum. 

Hann má reyna að fanga bros með mislitum sokkum en hímir eins og álfur sem skammast sín fyrir feilslagið með fávísa lýðinn sem mun elta hann aldur og ævi, hvursu mikið svo sem hann reynir að pússa burtu þau orðin. Sá sem sér landsmenn sem fávísan lýð stjórnar samkvæmt sannfæringunni. 

Bókarinn er ekki einu sinni hálfdrættingur í greininni því sögulegar eiginskoðunarskýringar taka yfir sögulegar staðreyndir t.d. í landhelgisdeilunni. Eina ástæðan fyrir því að bókaranum var att í framboð var vegna þess að hann var tilnefndur af embættissýklum Samfylkingarinnar á RÚV sem í þetta sinn tókst bragðið sem Þóru mistókst. Bíómyndin um Jón Gnarr er leiðarljós í kosningataktík vinstri manna og tekst stundum að blekkja fólk með fimmaurabröndurum eina helgi. Bókarinn á Bessastöðum hefur aðeins eitt hlutverk og það er að vaka yfir og bóka vængklippingu embættisins fyrir hönd ESB. Eilífa skælubandalagið þolir ekki sjálfstætt fólk, engan einstakling sem hugsar sjálfur, aðeins vændisfólk sem er falt fyrir nokkra aura.

Andúð almennings á stjórnmálamönnum á hinu háa Alþingi er að miklu leyti komin vegna hegðunar þingmanna gagnvart ESB, þar sem vélað er um fjöregg einstakra þjóða og auðlindir Íslands undir. Forhertir þingmenn vinstri ríkisstjórnar Katrínu Jakobsdóttur hafa innleitt páfagaukastjórn þar sem þeir eru mestir sem herma bestir eftir ESB. Ráðherrarnir eru hverjum öðrum framari í eftirhermum og hafa lofað erlendum einstaklingum, sem eru ekki einu sinni í framboði á Íslandi og enginn þekkir eða hefur áhuga á að vita nein deili á, að aldrei vera á móti tillögum hirðinnar í Brussel.

Við slíkt ástand er það því miður veik tilraun en heilbrigð og góð engu að síður að koma manni að á Bessastöðum sem getur orðið mótvægi við tímaskekkju Alþingis. 

Guðmundur Franklín heitir maðurinn, honum má treysta til að vinna með þjóðinni - ekki gegn, tala fyrir þjóðinni - ekki lítillækka og verða þannig á sinn hátt til að endurheimta virðingu fyrir stofnunum Íslendinga. Athafnamaðurinn er því langtum verðugari valkostur í embætti forseta Íslands en bókarinn sitjandi á Bessastöðum sem skráir hjarðhegðun ESBa daðrara á Íslandi.

 


mbl.is Skiluðu listum í þremur kjördæmum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin kyssir sverð böðulsins

ChinaArrestEkki orð um Taiwan sem Kína heldur í burtu frá WHO..„Við skiljum engan eftir" segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og lokar fyrir Taiwan. Íslenska ríkisstjórnin skilur lýðræðið útundan því ekki má styggja Kommúnistaflokk Kína.

Heilbrigðisráðherrann „þakkaði fyrir leiðsögn og forystu WHO". WHO fór eftir skipun Xi Jinping að fresta yfirlýsingu um heimsfaraldur frá lok janúar til 11. mars sem þýddi dauða hundruðum þúsunda saklausra borgara víða um heim.

Svandís Svavarsdóttir „hvatti til samstöðu þjóða". Ísland sýnir samstöðu með kommúnistum í Kína og strengjabrúðum þeirra í WHO. Dauði fólks um allan heim er dæmi um samstöðu kommúnismans við mannkynið.

„Við búum í samfélagi þjóða og við eigum okkur sameiginleg markmið". Markmið Kínverskra kommúnista er að taka yfir heimsbyggðina og heilbrigðismálaráðherrann andmælir ekki.

Ísland er orðið fylgihnöttur Kína og vinnur gegn bandamönnum okkar í NATO. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstrigrænir taka afstöðu gegn Bandaríkjunum, aðal bandamanni Íslands í NATO.  

Það þurfti þá Sjálfstæðisflokk til að fela vinstri hrærigrautinn eina ferðina enn. En ekki lengur, það glyttir gegnum skítköst afætuliðsins á eftir mönnum sem eru áfram Sjálfstæðismenn.

„Við skiljum engan eftir".

 

 


mbl.is Svandís þakkaði WHO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styður ríkisstjórnin kröfu um að WHO taki Taiwan til baka sem áheyrnarfulltrúa? Mótmælir ríkisstjórnin gerræði kínverskra kommúnista sem hóta að méla sundur efnahag Ástralíu?

taiwanEkki heyrist mikið um að ríkisstjórnin ætli sér að hætta fylgni við kínverska kommúnistaflokkinn og byrja að styðja lýðræðisöfl í heiminum. Svandís Svavarsdóttir mun ávarpa WHO á stafrænum fundi í dag en lítið hefur frést af því að hún, utanríkisráðherrann eða ríkisstjórnin taki undir þá sjálfsögðu kröfu sem á annað hundrað þingmenn ESB-þingsins hafa skrifað undir að krefjast þess að WHO taki til baka Taiwan sem áheyrnarfulltrúa. (Myndin sýnir heilbrigðisráðherra Taiwan,Chen Shih-Chung)

Reyndar þykir svo mikið koma til veirustarfa Taiwan sem telur 23 milljónir íbúa að einungis eru 440 staðfest smit COVID-19 og sjö hafa látist úr veirunni sem slær góðan árangur Íslands. Ætlar Svandís að spyrja að því í ræðu sinni af hverju fulltrúi Taiwan er ekki með til að ræða aðferðir þeirra, ef WHO hunsar óskir lýðræðisafla í heiminum til að styggja ekki stóra bróðir, kínverska kommúnistaflokkinn? Eða mun Svandís mótmæla hótunum kínverskra kommúnista sem sögðu við forsætisráðherra Ástralíu að draga til baka ályktun um alþjóða rannsókn á uppruna veirunnar ef hann vilji ekki sjá efnahag Ástralíu "sundurmalaðann" af Kína? Ástralía mun bera upp tillöguna í dag og flest öll ríki heims (nema Kínverjar) munu samþykkja að WHO hefji alþjóðlegt rannsóknarferli á uppruna veirunnar sem Kommúnistaflokkur Kína faldi og leiddi til dauða á fjórða hundrað þúsund manns.

Svandís Svavarsdóttir er ánægð með þáttöku ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kvenna með Sádí Araba sér við hlið og aðra íslamíska kvenhatara sem grýta konur til bana og vinna markvisst að því að hlekkja vestrænar konur til jafns við Sjaríakonur Balla.

Ríkisstjórn Íslands liggur á jörðinni sem teppahrúga fyrir kommúnismann og grefur undan konum og vinnandi fólki eins og neitun á vinnutækifærum Suðurnesja sýnir.

En það er sjálfsagt til mikils að vinna að verða eini vinur Kínverja í heiminum fyrir utan Norður-Kóreu og Venúsuela. Maður getur þá alla vega ímyndað sér frá fyrsta bekk að fá bóluefnu í beinni útsendingu gegn næstu KÓRVITLAUSRI kommúnistaveiru heimsdrottnaranna í austri.


mbl.is Kallar WHO „strengjabrúðu Kínverja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar forsætisráðherrann hóstar fer utanríkisráðherrann í felur

NATOÞað er aumkunarvert að fylgjast með átökum innan ríkisstjórnarinnar vegna atvinnumála á Suðurnesjum en eins og Morgunblaðið greindi frá, þá höfnuðu Vinstri grænir fjárfestingu á vegum bandamanna okkar NATO um fjárfestingar upp á tugi milljarða króna. 

Utanríkisráðherrann sem getur lítið svarað gagnrýni nema með keyptum aðstoðarmönnum eða persónulegum skætingi finnur sig hljóðalaust í því að vera borinn ofurliði af ráðherrum Vinstri grænna. Karlmennskan er þá ekki meira en dúkkulísu virði um leið og Katrín Jakobsdóttir lyftir fingri. 

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins ættu að beina gagnrýni sinni að utanríkisráðherranum í stað sveitarstjórna á Suðurnesjum og biðja utanríkisráðherrann að útskýra hvers vegna hann studdi ekki eigin tilllögur um að samþykkja fjárfestingar NATO.

Utanríkisráðherrann sendir fv. formanni Sjálfstæðisflokksins og einum farsælasta forsætisráðherra lýðveldistímabilsins, Davíð Oddssyni ritstjóra Morgunblaðsins, hæðnistón gegnum samstarfsmann sinn, Diljá Mist Einarsdóttur, en Staksteinar Morgunblaðsins í gær tóku fyrir undirlægjuhátt utanríkisráðuneytisins við ESB og stofnanir Sameinuðu þjóðanna, sem sumar eins og WHO, eru leiddar af valdaspilltum byltingarsinnum í vasa kínverska kommúnistaflokksins. 

Það sem eftirhermur ESB og SÞ sjá ekki er að þær eru búnar að einangra sig frá lífi venjulegs fólks og hafa glatað hæfileikanum að ræða stjórnmál "á mannamáli" sem allir geta skilið. Davíð Oddsson hefur ætíð verið maður fólksins, fulltrúi þjóðarinnar og hefur aldrei látið há embætti stíga sér til höfuðs sem - ef nokkuð er - sannar eðilborna leiðtogahæfileika mannsins. 

Það mun hvorki bæta varnar- né atvinnumál á Íslandi, að vesælingar í flokki sem þykist styðja sjálfstæði leggjast flatir fyrir kommúnistum hvort svo sem þeir eru innanlands eða utan. Það mun þvert á móti styrkja andstæðinga Íslands og bandamanna okkar og má ríkisstjórnin hljóta skömm fyrir.


mbl.is „Kaldastríðssérvitringar“ í veg fyrir uppbyggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband