Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Rafmagnsgrasið í ESB er fúið og dautt

Óveðrið sem gengið hefur yfir landið er góð þolraun fyrir "innviðina" bæði fyrirkomulag rafmagnsmála á Íslandi sem og stjórnfyrirkomulag landsins, stefnu og útfærslu. Það alvarlegasta er þegar Tetra kerfið sem á að vera til þjónustu í neyðarástandi fellur út og mikilvægar stofnanir eins og lögregla, neyðarlína, sjúkraflutningar, björgunarsveitir m.fl. geta ekki haft eðlileg samskipti, hvorki sín á milli né við almenning. Þessu verða yfirvöld að forgangsraða og kippa í lag hið fyrsta.

Varðandi rafmagnsfyrirkomulagið sem nú er stjórnað af stjórnmálamönnum með brusseleinkenni, sýnir sig eins og formaður Miðflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir svo réttilega á sbr. frásögn Viljans: 

sigmundurdavidm-696x399„Þörf er á auknum skilningi á þeim aðstæðum sem geta komið upp og munu koma upp. Það þarf m.a. að líta til þess að aðskilnaður framleiðslu og dreifingar raforku hentar líklega ekki á Íslandi ef okkur á að takast að standa undir grundvallaröryggi allra landsmanna.
   Nú er tími til kominn að hugsa þetta upp á nýtt og taka skynsamlegar ákvarðanir í stað þess að viðhalda kerfi sem beinlínis kemur í veg fyrir framkvæmdir.
   Nú vona ég að allir stjórnmálamenn sameinist um að ráðist verði í nauðsynlegt átak við uppbyggingu innviða landsins, öll viljum við tryggja öryggi allra.“

Undir þessi orð skal tekið.
Farsælla er fyrir Frón að byggja ákvarðanir á staðreyndum íslenskrar náttúru en afneita heimamundinum í nafni EES, ESB og BRUSSEL Þá þarf ekki að ræsa út hálfa ríkisstjórnina til að glápa á fallna staura og slitnar línur og gefa loforð út í bláinn samkvæmt hefðum vinstrimanna.


mbl.is Gasofnar fyrir krókloppna Skagfirðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar sýna veg lýðræðisins nú sem fyrr

79087659_10156976371716317_6379393849067831296_oÉg óska Bretum innilega til hamingju með stórsigur Íhaldsflokksins sem fær góðan meirihluta í þingkosningunum. Bretar staðfestu eina ferðina enn að þeir meina alvöru með ákvörðun sinni að yfirgefa Evrópusambandið sem reynt hefur allt til að halda þeim föstum í viðjum sínum. 

Fyrir Íslendinga og aðrar lýðræðiselskandi þjóðir eru úrslitin fagnaðarefni. Eina ferðina enn vísa Bretar veg lýðræðisins, þegar syrtir í álinn í Evrópu. Hið andlýðræðislega Evrópusamband og hugmynd þess um eitt stórveldi í Evrópu undir hatti Germaníu og Frakklands hefur beðið skipbrot. Búast má við að nú hrikti í stoðum sambandsins enda eru fréttir eins og t.d. um komandi refsilöggjöf gagnvart gagnrýnendum haldlausrar innflytjendastefnu ESB merki um þéttsetningu og skipulag ríkis sem mætti kalla það fjórða.

Enginn veit enn sem komið er þótt Bretar séu staðráðnir að verja og hefja sjálfsákvörðunarrétt sinn til vegs á nýjan leik, hvernig úrsögninni muni reyna af en t.d. Macrón Frakklandsforseti hefur hótað að senda frönsk herskip á fiskimið Bretlands til aðstoðar ránfiski franskra togara. ESB hefur ár til að ganga frá lausum endum við Breta og verður afar fróðlegt að fylgjast með þeim samningum. Ef fyrri taktar sögunnar koma fram á ný munu Bretar verða kallaðir öllum illum nöfnum og hundeltir fyrir að vilja ekki knékrjúpa fyrir hinu nýja herraveldi meginlandsins.


mbl.is Corbyn ekki sætt ef útgönguspár rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegna fjármálakreppu evrusvæðisins....

78562005_10156418758986857_8977730041014124544_n-1


Tveggja vikna dómsdagsorgía loftslagsspámanna í Madríd

Í dag hefst COP25 loftslagsorgía SÞ í Madríd og stendur fram að lúcíu 13. desember n.k. Tveggja vikna heimsendavæl alþjóðlegu sósíalistanna sem stjórnast af grænum vinum sínum sem vilja komast yfir ríkissjóði og lífeyrissjóði Vesturlanda.

20190924-105644-1-1000x666-layoutonly-watermarkeEftir fall Sovéts virðist sem alþjóða sósíalisminn sé að ná vopnum að nýju með hamfarahlýnun að vopni. Sósíalistar, sem engin rök hafa gegn frelsi einstaklingsins og að menn megi uppskera í sveita síns andlits, þurfa á heimsendaspá að halda til að lemja sósíalismann áfram í heiminum. Núna eiga allir að fá samviskubit fyrir að gerast ekki grænmetisætur ef marka má áróður og athafnir Norræna ráðherraráðsins sem verður með tveggja vikna námskeið í Stokkhólmi til að fá fólk að hætta að borða kjöt.

Á Nordic Climate Action Weeks í Stokkhólmi sem verður samhliða COP25 er lagt upp með loftslagsaðgerðir í matarmálum og fólki boðið upp á grænmetisfæði til þess að vinna gegn hamfarahlýnun með hnífi og gaffli. Alls slags vegan matarsérfræðingar verða til viðtals um hvaða fæði er rétt til að sporna gegn upphitun jarðar og svara spurningum eins og "Hvað eigum við að borða til að halda okkar innan marka plánetukerfisins?" og ræða "Loftslag og líffræðafjölbreytileiki á matardisknum".

Sigurður Ingi Jóhannesson verður í beinni hallelúja línu til Madríd í kvöld ásamt Jónu Þórey Pétursdóttur til að lýsa eftirvæntingum á grátkórnum í Madríd. Íslenska vinstri ríkisstjórnin og borgarstjórn Reykjavíkur efna sjálfsagt til svipaðrar vegandellu á Íslandi. Skv. norrænu ráðherranefndinni, grátandi dómsdagsspámönnum, Hvernig-dirfist-þið táningum og öðrum loftslagsmóðursjúkum á mannkynið allt að leggjast á fjórar fætur og bíta gras.


Gleðilega fullveldishátíð - frjáls þjóð í frjálsu landi

auglÉg óska öllum góðs fullveldisfagnaðar og gleði yfir öllu því sem bindur okkur saman sem þjóð. Mannanöfn eru svo sannarlega mikilvægur hlutur þeirrar menningar sem kölluð er íslensk. Ég tek undir orð Sigurðs Konráðssonar prófessors um mikilvægi málsins og afræð eindregið frá því að fela þjóðskrá að ákveða mannanöfn. Þar er á ferðinni enn ein afvopnun þjóðarinnar og færsla til kerfisfólks sem eyðir þjóðareinkennum Íslendinga og íslenskri menningu.

Slagurinn um fullveldið er rétt hafinn. Miðflokksmenn stóðu staðfastir í umræðu um orkupakka 3 en það eitt sér dugar því miður ekki. Þjóðin þarf að veifa með allri hendinni og slá skjaldborg um hagsmuni sína áður en siðlausir stjórnmálamenn ná að koma þjóðinni endanlega í krumlur hins nýja evrópska risaveldis. Fullveldi þýðir frjáls þjóð í frjálsu landi en ekki ánauð þjóð í amti ESB.

Ríkisstjórn Íslands var eingöngu mynduð um valdið og setu í ráðherrastólum: Stjórnmál sýndarmennsku í stað markvissrar stefnu fyrir íslenska þjóðarhagsmuni. Það er góðs viti að til eru sjálfstæðismenn sem vilja ræða fullveldismál en hins vegar falleinkunn fyrir stjórn flokksins að það þurfi að stofna sérstakt félag til að ræða grundvallarstefnu flokksins innan flokksins. Enginn veit hvers lags vegferð þetta verður en flokksforysta sem lítur á stjórnmálin sem einkabisness og beitir einræðisvaldi er ekki líkleg til að fara átakalaust úr hreiðrinu. Það er fullkomlega eðlilegt að sjálfstæðismenn leiti annarra miða þar sem fullveldið er talið sjálfsagður hlutur af daglegu lífi Íslendinga í stað sundurslítandi innanflokksátaka. Miðflokkurinn býður hér upp á eðlilegan vettvang enda með mörg af baráttumálum sjálfstæðisstefnunnar t.d. Báknið burt á stefnuskránni.

Sýndarmennskustjórnmál ríkisstjórnarinnar er að mörgu leyti pöntun alþjóðlega sósíalismans í gegnum Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið sem streyma tilskipunum til Íslands. Ásamt Sjálfstæðisflokknum hefur Samfylkingin, Viðreisn, Píratar og vinstri grænir breytt íslenskum stjórnmálum í gargandi kór páfagauka, stimpilpúða og afritunarvéla.

Varla mikið frelsi að finna þar. Veljum í staðinn fullveldið, veljum íslenska framleiðslu, veljum íslenska menningu og ferfalt húrra fyrir lýðveldinu!


mbl.is Engar „stórkostlegar breytingar í frjálsræðisátt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plís - ekki drepa fólk með loftslagssköttum

gretajasonhillEftir að hafa horft með öðru auganu á "borgarafund" skattfjármagnaða ríkiseinokunarfjölmiðilsins RÚV með alræðisrétt á auglýsingamarkaði, þá verð ég að rifja hér upp bréf bandaríska prófessorsins Jason Hill hjá DePaul háskólanum í Chicago sem stuðning við Ernu Ýr Öldudóttir. Hún passaði ekki inn í trúarbragðarsýningu RÚV um loftslagsmál og virðist bara hafa verið boðið til að gera að athlægi. Öllum rökum vísað frá svo hægt væri að syngja halelújasönginn um endalök jarðar og óð til vísindamanna sem ætla að græða á grænu byltingunni. Ég þakka Ernu Ýr Öldudóttur fyrir að halda uppi merkjum almennrar skynsemi gegn tískutrúarbrögðum nútímans sem hún lýsir réttilega sem sértrúarsöfnuði. Móðursýkin heldur áfram, ESB hefur lýst yfir "neyðarástandi" í aðildar- og samstarfsríkjum m.a. Íslandi í gegnum EES-samninginn.

Úr bréfi Jason Hill til Grétu Thunberg:

”Ef mannkynið fer í hendurnar á umhverfisfasískum stuðningsmönnum þínum þá endum við í strákofum, drekkum vatn blandað dýraskít og krjúpum í duftið af hræðslu fyrir ísbjörnum í staðinn fyrir að skjóta þá í matinn, þegar þeir ráðast á okkur”

"Börn eru mikilvæg framtíðarfjárfesting. Við höfum fjárfest í þér. Það ert þú og þín sjálfselskandi kynslóð sem heldur að ekkert sé hægt að læra af þeim eldri, sem eru að bregðast sjálfum ykkur. Hverjir heldur þú að muni ráða meirihluta ykkar til starfa ef þið hafið hvorki vinnuhæfileika né lífsgetu til að sjá fyrir ykkur í heiminum? Háværum atvinnulausum sleppa-skólanum-á-föstudögum börnum framtíðarinnar?"

"þín kynslóð er óhæf til að vinna fjörtíu tíma á viku án þess að stöðugt falla í þunglyndi og taugaveikisköst. Meðlimir hennar geta ekki einu sinni ákveðið hvort þeir eiga að vera strákur eða stelpa eða bæði eða hvorugt eða "þau." Þeir geta ekki borðað kjöt án þess að væla. Ég gæti bætt því við að kynslóðin ykkar þarfnast fyrirfram „öryggisviðvarana“ og „öryggissvæða“ sem skilyrði þess að geta lært í skólanum. Meðlimir hennar hafa sjúklega þörf á að vera umvafðir og verndaðir frá raunverulegum áskorunum lífsins. Kynslóðin ykkar er stærsti krefjandi og neytandi kolspúandi tækja og tóla. Klukkutími án þeirra fær of mörg ykkar til að leggjast í lamandi dvala"

Prófessor Hill lýkur máli sínu á þessum algjörlega frábæru línum: „Sú dómdagsheimssýn sem þú boðar er lendingarbraut þeirra sem hafa hatað framfarir í gegnum söguna. Dómsdagsspár þínar hafa verið til í þúsundir ára og enn erum við hér. Við munum enn vera hér löngu eftir að þú ert orðin fullorðin og við höfum fyrirgefið þér að hafa skrópað í skólanum og þar með lækkað gáfnakvóta heillar kynslóðar.“


mbl.is Þreytt á einhliða loftslagsumræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíþjóðademókratar gætu átt næsta forsætisráðherra Svíþjóðar

ake_16Svíþjóðademókratar héldu landsfund um helgina í Örebro og greindu sænskir fjölmiðlar frá atburðinum t.d. sænska sjónvarpið sem sjónvarpaði í beinni frá stórum hluta fundarins. 

Svíþjóðademókratar finna fyrir miklum meðbyr um þessar mundir sem ekki er svo skrýtið miðað við að þeir fyrstir og ötullastir allra flokka hafa bent á skaðlegar afleiðingar hömlulauss innflutnings á fólki frá Afríku og Miðausturlöndum til Svíþjóðar.

Í nýlegu sjónvarpsviðtali við Stefan Löfven forsætisráðherra lýsti hann því yfir að enginn hefði getað séð vaxandi ofbeldi í Svíþjóð koma og að ríkisstjórnin myndi kippa ofbeldismálum í lag á næstu sex mánuðum. Sagði hann ekkert samband vera á milli fólksinnflutnings og sívaxandi ofbeldisódæða í Svíþjóð. Boðskapur forsætisráðherrans hefur vægast sagt fallið í grýttan jarðveg og jörðin farin að loga undir fótum hans eins og Håkani Juholt, áður en hann neyddist til að segja af sér flokksformennsku. 

Í nýrri könnun Sifo telja 88% Svía að ofbeldið haldi áfram að vaxa eða vera í jafn ríkum mæli og nú er en einungis 8% trúa orðum Stefan Löfvens að ofbeldismálum verði kippt í lag á næstu sex mánuðum. 

Það eru fleiri en Jimmy Åkesson sem spyrja á hvaða plánetu Stefan Löfven lifir. Daglega hellast hneykslismál yfir Svíþjóð og sósíaldemókrata eins og það nýjasta, þegar upp komst að varnamálaráðherra Íraks sem sekur er um morð á hundruðum mótmælenda, er með sænskt ríkisfang og fær félagslegar bætur í Svíþjóð. Þá var vopnum öryggisvarða stolið úr sjálfu stjórnarráðinu sem er afar pínlegt fyrir ríkisstjórnina sem gerir allt til að málið fái ekki umfjöllun fjölmiðla. Ekki bætir það úr skák að eftir áramótin þurfa sjúkraflutningamenn (a.m.k í Uppsala) að klæðast skotheldum vestum við störf.

Ef fram fer sem horfir eru töluverðar líkur á að Jimmy Åkesson verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar.

Skärmavbild 2019-11-24 kl. 12.30.05


Skeifa Miðflokksins farin að marka spor

photo_2019-11-09_15-00-34Það eru góð tíðindi að Íslendingar fylki sér í ríkari mæli um Miðflokkinn sem staðfastur varði fullveldið í orkupakkamálinu. Á mynd sést formaður Miðflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson halda á fundahamri með skeifu á endanum og víst er að bæði skeifa og reiðskjóti Miðflokksins eru besta trygging á ferð landans frá vanstjórn, ofsköttum, kerfisræði, græðgisspillingu og því almenna vinstra ofríki sem ríkir á Íslandi um þessar mundir.

Ríkisstjórnin var stofnuð fyrir ráðherrastóla og að hindra að sá maður þingheims sem leiddi þjóðarbaráttu Íslendinga gegn Icesave í samtökum InDefence kæmist til valda. Kalla mætti ríkisstjórnina Icesave-stjórn; bæði Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir greiddu atkvæði um að hneppa landsmenn í skuldafjötra Icesave margar kynslóðir fram í tímann en dómstóll hnekkti ákvörðun þeirra. Samt sem áður hefur hvorugt enn beðist afsökunar á framferði sínu.

Ríkisstjórnarflokkarnir selja út eigur landsmanna sem Íslendingum tókst að stöðva tímabundið með uppreisn þjóðarinnar í Icesave. Sjálftökuliðið sem tapaði Icesave hefur hreiðrað um sig í helstu stjórnstofnunum lýðveldisins og heldur áfram uppteknum hætti. Þjóðin þarf því að rísa upp eina ferðina enn og hreinsa í stofnunum sínum og koma misyndisfólki út úr þingsölum og öðrum stjórnarstofnunum.

Afar eðlileg viðbrögð landans að snúa baki við ríkisstjórnarflokkunum og veita Miðflokknum brautargengi. Ég vorkenni sönnum Sjálfstæðismönnum, hver verður til að storka útfarastjóra Sjálfstæðisflokksins Bjarna Benediktssyni?

Ég óska Miðflokknum til hamingju með árangurinn og vonast til að hann njóti áframhaldandi vaxandi trausts landsmanna sem vantar óspilltan, baráttusækinn flokk fyrir alla landsmenn á grundvelli lýðveldisins.


mbl.is Kjósendur kunni að meta stefnufestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíþjóðademókratar styrkja stöðu sína sem stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar

Allt eftir því sem sprengjum, skotárásum, nauðgunum og ránum fjölgar í Svíþjóð eykst fylgi Svíþjóðademókrata sem í nokkrum síðustu skoðanakönnunum hafa fest sig í sessi sem stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar.74835931_436889697249862_5773035563128979456_o 

Í nóvembermælingu Sentio 15. - 19. nóvember mælast Svíþjóðademókratar með 28,5% sem afgerandi stærsti flokkurinn og sósíaldemókratar fá aðeins 22,5% og eru á hraðri leið niður í fylgi. Moderatar koma fyrst í þriðja sæti með 16,9%, Vinstriflokkurinn fær 8,5%, Miðflokkurinn 7,0%, Kristdemókratar 6,8%, Umhverfisflokkurinn 4,9% og Frjálslyndir aðeins 2,5% sem er undir 4% markinu til að ná inn á þing.

Skoðanakannanir sýna ekki allar sömu útkomu en Svíþjóðademókratar eru stærsti flokkurinn í öðrum skoðanakönnunum, þannig að sú staða þeirra er því innan fráviksmarka.

Þessi staðreynd hefur gjörbreytt stjórnmálalandslaginu sérstaklega fyrir sósíaldemókrata sem klofið hafa Svía í tvo hópa með útilokun Svíþjóðardemókrata - fulltrúa um fimmtungs kjósenda í Svíþjóð, sem sósíaldemókratar kalla nazíska vegna afstöðu í innflytjendamálum. Úrbræðsla sósíaldemókrata er orðin þvílík yfir missi fylgis síns til Svíþjóðademókrata og annarra flokka, að þeir kalla núorðið bæði Móderata og Kristdemókrata fyrir nazíska vegna viðurkenningu þessarra flokka á réttmæti afstöðu Svíþjóðademókrata í innflytjendamálum. Formaður Kristdemókrata Ebba Busch Thor er þegar í samráði við Svíþjóðademókrata og það vakti mikla athygli í vikunni, þegar formaður Móderata Ulf Kristersson gekk út með opinbera afsökun á slappleika flokksins í innflytjendamálum. Lofaði Kristersson kjósendum bótum og betrum.

Stefan Löfven forsætisráðherra sagði í viðtali í sænska sjónvarpinu um síðustu helgi, að innflutningur fólks til Svíþjóðar skipti engu máli varðandi glæpi í landinu. Hann hefur áður lýst því yfir að synir og dætur "ríka fólksins" dópi sig svo mikið að það sé ein helsta ástæða vaxandi velgengni glæpgengja og ofbeldis í Svíþjóð. Lýsti hann því yfir í viðtalinu að þótt enginn innflutningur hefði verið á fólki til Svíþjóðar væru ofbeldið örugglega eins í dag miðað við sömu misskiptu kjara og nú ráða ríkjum að hans mati.

Þessi boðskapur forsætisráðherrans hefur fallið í illan garð hjá Svíum sem í dag treysta Svíþjóðademókrötum best allra flokka til að fara með öryggismál landsins ásamt lögum og reglu. 


Frásögn lögreglumanns í Malmö

17834265_753872748114969_5441866063408813972_oFyrir þá sem vilja fá smá innsýn í sænska ofbeldið...úrdráttur úr bréfi lögreglumanns í Malmö á facebook:

"Ég ligg í rúminu, þegar ég skrifa þetta. Þrátt fyrir að hafa verið vakandi í sólarhring og unnið í 16 tíma er ómögulegt að hvílast. Í starfi þar sem maður verður sérfræðingur í að loka fyrir eða hættir. Í starfi þar sem harmleikurinn er skilinn eftir í þröngum fataskápnum, þegar farið er úr vinnufötunum. Í starfi þar sem maður verður sérfræðingur í að sofna eftir pöntun til að komast hjá því að verða útbrenndur.

Síðasta sólarhringinn hef ég og nánustu vinnufélagar mínir m.a. reynt að bjarga lífi barns sem var skotið til dauða. Þegar vonin slokknaði hófst leitin að finna út hver það var sem var fyrir framan okkur. Hvað barnið heitir sem liggur með slöngur í hálsinn, blóð í andlitinu og skotgöt í líkamanum. Eftir þó nokkra vinnu vitum við hver hann er. Eða réttara sagt hver hann var. Á sama augnabliki og við vitum deili á barninu fá allir viðstaddir kökk í hálsinn. Það þýðir nefnilega að við, sem mörg eigum börn sjálf, þurfum að koma skilaboðum til óttasleginnar fjölskyldu sem nær ekki sambandi við barnið sitt.

Síðasta sólarhring höfum við líka fengist við illa særðan félaga barnsins sem tekið var af lífi. Hann fékk líka margar kúlur í kroppinn. Við höfum haft samband við fjölskydu hans og vini og séð um blóðuga muni hans.

Síðasta sólarhring höfum við líka keyrt beint að nýlega sprunginni sprengju og settum okkar í lífshættu með því að ganga allt of nærri staðnum til að reka burtu fólk sem skammaði okkur fyrir að mega ekki ná í bílinn sinn á bílastæðinu. Við sáum um ungt par sem var augnablik frá því að slasast alvarlega eða týna lífinu vegna sprengjunnar. Við reyndum að útskýra fyrir þeim fyrir utan heimili þeirra, að þau eru væru samt sem áður örugg.

Við höfum einnig bjargað lífi konu sem ráðist var á á hryllilegan hátt og næstum drepin.... við sáum það sem var eftir, þegar líkaminn var alveg að gefast upp. Við fundum út hver gæti verið árásarmaðurinn og handtókum hann áður en blóð konunnar þornaði á fötum okkar...

Síðasta árið hef ég og félagar mínir fengist við mörg morð, sprengjur og slys. Við höfum elt grunaða hryðjuverkamenn, vopnaða morðingja og geðveikissjúklinga. Við vorum með þegar kær vinur og vinnufélagi dó í örmum okkar eftir umferðaslys. Við höfum grátið og séð fólk gráta. Við höfum fórnað öllu fyrir samfélagið.

Eftir nokkra tíma fer ég aftur í vinnuna. Vonandi eftir nokkurra tíma svefn. Ég fer í að hluta til blóðug vinnufötin og keyri aftur út. Í starf þar sem harmleikur er hversdagsbrauð. Í starf þar sem skrifstofa okkar er myrkasta herbergi mannlífsins. Í starf sem sér um líkamsleifar barns. Í starf þar sem manni er ógnað með hótunum og ofbeldi fyrir að verja samfélagið en fær engar skaðabætur vegna þess að samfélagið telur rétt að við þolum það. Í starfi þar sem samfélagið lætur okkur fá 26 þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir skatt."


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband