Miðflokkur allra landsmanna

SigmundurDaviðRæða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins á aukalandsþingi 21. nóvember var bæði einstök og því miður sjaldgæf í þeim ímyndunarheimi stjórnmálanna sem tröllríður öllu í dag. Þegar allt of margir einstaklingar eru í þykjustu stjórnmálum, þá verður rödd skynseminnar sú sem verður öðru vísi. Lýsti Sigmundur ástandinu með orðunum að stjórn landsins hefði nánast verið sett í salt eða lögð í súr."

Þarf að huga að fleiru en faraldrinum

Sagði Sigmundur að kórónuveiran hefði heltekið ríkisstjórnina svo „vart er hægt að tala um eðlilegt og lýðræðislegt stjórnarfar." Varaði Sigmundur við því að óleyst vandamál m.a. hjá þúsundum lítilla og stórra fyrirtækja, landbúnaði, heilbirgðiskerfinu og eldri borgara gætu orðið að varanlegum vanda ef ekki væri gripið í taumana áður en það væri orðið um seinan. Minnti hann á að Miðflokkurinn hafði lagt fram tillögur fyrir faraldurinn og einnig boðið aðstoð í baráttunni gegn sjálfum faraldrinum en ríkisstjórnin hafi haft meiri áhuga á glærukynningum og „oft verið lögð meiri vinna í umbúðirnar en tillögurnar sjálfar og jafnvel hinar stærstu þeirra hafa að engu orðið." Miðflokkurinn hafi hins vegar alltaf stutt þær góðu tillögur sem að gagni hafi orðið. 

Landbúnaðurinn verið settur í nauðvörn

Lýsti formaður Miðflokksins hvernig sótt er að ýmsum grunnstoðum Íslands eins og landbúnaðinum sem hefði orðið fyrir verulegu aðkasti á undanförnum árum: „Það er sótt að greininni úr mörgum áttum samtímis. Búvörusamningar virðast frekar snúast um samdrátt en sókn. Óhagstæðir tollasamningar við Evrópusambandið gerir bændum erfitt fyrir og veikir samkeppnisstöðu greinarinnar." Ofan á það leggst sístækkandi reglugerðarfarganið sem er að miklu leyti innflutt og skapar erfiðari skilyrði fyrir íslenska bændur en víðast hvar annars staðar. Ríkisstjórnin sýndi snemma hug sinn til landbúnaðarstarfa með því að lækka fjárframlög til greinarinnar sem skapað hefur neyðarástand hjá bændum. 

Eldri borgarar ekki enn fengið leiðréttu skerðinga eftir bankahrun

„Gleymum því ekki að aldurshópurinn sem hafði byggt upp samfélagið var ekki of sæll að sínu fyrir skerðingarnar. Á sínum tíma gaf ríkisstjórn mín fyrirheit að þegar sá árangur sem við stefndum að í efnahagsmálum hefði náðst fengu þeir sem byggðu upp samfélagið að njóta þess. Árangurinn náðist og gott betur en það. En biðin stendur enn."

Lýsti Sigmundur hvernig ríkisstjórnin hefði komið með galið verkefni um að stofna hlutafélag og leggja á auknar skattaálögur til að fjármagna Borgarlínuverkefnið. En þótt Miðflokknum hefði tekist að leggja inn nokkra varnagla þá héldi kerfið áfram á sinni braut. 50 milljlarðar og óútfylltur tékki til gæluverkefnis er ekki það sem þjóðina vantar núna á þessum erfiðu tímum.

Benti Sigmundur einnig á hvernig hægt er að moka peningum í heilbrigðisgeirann sem verður botnlaus hít ef kerfið verður ekki lagað. Sagði hann að flestir gerðu sér grein fyrir því að Hringbrautarsjúkrahúsið getur ekki leyst öll verkefni og þarf að byggja nýtt sjúkrahús á öðrum stað. 

Ísland allt

Sigmundur sagði báknið vera orðið það fyrirferðamikið að það ógnaði heilum atvinnugreinum. Miðflokkurinn hefur áður lagt til að þegar nýjar reglur eru settar verði tvær eldri teknar út til að spyrna við ofurbólgu báknsins. Var tekin fram sérstök handbók fyrir starfsfólk ríkisstofnana í forsætisráðherratíð Sigmundar til að spyrna gegn óþarfa útþenslu báknsins en lítið gerst eftir 2016. „Fyrir vikið verður sífellt flóknara að lifa daglegu lífi á Íslandi svo ekki sé minnst á að stofna eða reka lítil fyrirtæki og skapa ný störf og verðmæti." Rakti Sigmundur Davíð baráttu Miðflokksins við báknið og réttlætingu kerfisins á stækkun báknsins með því að framleiðslan ykist meira og báknið því ekki hlutfallslega stærra en áður. Núna erum við hins vegar komin í þá stöðu að við sitjum uppi með gríðarlegt bákn en framleiðslan hefur dregist saman svo brýnt er að hefjast handa með að fá báknið burt.

Losunarkerfið ein stærsta svikamylla síðari tíma – Ef eitt álver flyst frá Íslandi til Kína mun losun gróðurhúsalofttegunda tífaldast

Formaður Miðflokksins benti á að það umhverfisvænasta á Íslandi væri álframleiðslan, því ef eitt álver flyttist til Kína mun losun gróðurhúsalofttegunda tífaldast.

„Samt er nú rætt um að Ísland verði sektað fyrir að hafa ekki dregið nógu mikið úr losun á meðan við byggðum upp umhverfisvænan iðnað á undanförnum 30 árum. Hvert eiga þeir milljarðar að renna? Það virðist enginn vita. Líklega í nýja losunarhagkerfið sem lýst hefur verið sem einni stærstu svikamyllu síðari tíma. Þetta er það sem gerist þegar kerfið ræður á kostnað heilbrigðrar skynsemi."

Stjórnlaus málaflokkur hælisleitenda

Sigmundur vék orðum að vanda Íslands varðandi flóttamenn og hælisleitenda:

„Veltið þessu fyrir ykkur: Hvernig stendur á því að fjöldi hælisleitenda á Íslandi, eyju í Norður Atlantshafi er allt í einu orðinn sá mesti á öllum Norðurlöndunum miðað við fólksfjölda. Það er vegna þeirra skilaboða sem íslensk stjórnvöld hafa sent út. Þau skilaboð nýta m.a. stórhættuleg glæpagengi til að selja fólki vonir um Ísland sem áfangastað." Bendir Miðflokkurinn á að hin Norðurlöndin sendi núna frá sér skilaboð til að draga úr innflutningum. „Ef Ísland ætlar eitt Norðurlandanna að skera sig úr hvað þetta varðar verður ekki við neitt ráðið og það mun draga úr getu okkar til að hjálpa þeim sem mest þurfa á hjálpinni að halda." Minntist Sigmundur á afstöðu danskra jafnaðarmanna um „að öflugt velferðakerfi og opin landamæri fara ekki saman."

Það munar um Miðflokkinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddu um kerfi réttrúnaðar og þegar kerfið tæki völdin af fólki væri hætta á ferðum gagnvart lýðræðinu. Stjórnmálamenn sem láta það viðgangast fjarlægjast kjósendur og taka stjórnmálin á þann stað sem kjósendur fái litlu ráðið um hvað er rætt eða hvernig. Sem svar við þessarri þróun hefur Miðflokkurinn eigin starfsstefnu heilbrigðarar skynsemi laus við glórur réttrúnaðarins. Miðflokkurinn er því valkostur þeirra er vilja vinna á lýðræðislegum grundvelli og starfa saman að lausnum vanda með rökhyggjuna að verkfæri. 

 


mbl.is Vill lækka álögur og gjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlaugur brúar vaxandi gjá Kína og Bandaríkjanna með borgarlínu Dags og Katrín keyrir strætó

Dokument444

Þeir sem heyrðu viðtal Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra heyrðu mörg orð af vörum ráðherrans. Ef það að vera stjórmnmálamaður reiknast í magni orða og tónfalli kemst utanríkisráðherrann eflaust að sem nemandi í leiklistarskóla Borgarleikhússins í næstu inntöku.

Að svara einföldum spurningum á einfaldan hátt gat hann ekki.

Til dæmis: Vinnur Ísland að verkefni Kína Belti og Braut? Já og nei eru of flókin svör fyrir ráðherrann en svarið vaðall um viðskiptahagsmuni við Kína samfara yfirlýsingu um að fylgja nágrannalöndunum varðandi fjarskiptamál kínverska risans Huawei.

Belti og Braut ganga engan veginn upp við stefnu Bandaríkjanna sbr. yfirlýsingu varaforseta Bandaríkjanna sem fagnaði því, að Íslendingar ætluðu ekki að vera með í Belti og Braut.

Guðlaugur var svo vinsamlegur að "leiðrétta" Pence eftir að Pence fór frá Íslandi þannig að túlka má þá afstöðu sem að Pence sé maður ósanninda um fundinn í Höfða. Varla telst það haldbær utanríkisstefna gagnvart besta vini þjóðarinnar frá lýðveldisstofnun. Kínverski kommúnistaflokkurinn hjó svo á vandræðahnút utanríkisráðherrans með yfirlýsingu sendiherra Kína um að utanríkisstefna kommúnistaflokksins, Belti og Braut, gildir á Íslandi. Guðlaugur mótmælir ekki.

Sama gildir um afstöðuna til kínverska tæknirisans Huawei. Bann eða ekki. Utanríkisráðherrann átti engin svör. Ræddi í staðinn um mikilvægi norræna samstarfsins. Verður það aðeins túlkað á þann hátt að Ísland muni leyfa kínversk njósnatækni í 5-G fjarskiptanetinu á Íslandi. Því þótt Noregur, Svíþjóð og Danmörk hafa öll hafnað Huawei og Finnar að ræða málið, þá þegir utanríkisráðherrann um bann við kínverskum njósnaútbúnaði á Íslandi.

Utanríkisstefna Sjálfstæðisflokksins var skýr þegar Ísland gerðist eitt af stofnríkjum Nato. Í dag eltir stefnulaus ríkisstjórnin kínverska kommúnistaflokkinn og veifar mynd af ímynduðum gróða í Kína.

Á meðan heimurinn er að vakna eftir rothogg kínversku veirunnar, fela Sjálfstæðismenn sig á bak við pilsfald Katrínar sem felur sig í buxnaskálm Xi Jinping. Stefnuleysi Íslands í utanríkismálum á heima í fáránleikanum þar sem utanríkisráðherrann brúar gjá milli Kína og Bandaríkjanna með borgarlínu Dags og Katrín keyrir Yutong strætó með 5G tækni frá Huawei.

Nú á að opna beint flug frá Kína til Íslands og líklega verða tóm hús flóttaverslunar við Laugarveg breytt í China Town. Það verður himnaríki íslenskra kommúnista og Sjálfstæðisvingla í slagtogi með lattelepjandi akademíu Yutong og kínverska verður staðbundið tungumál. Munu Íslendingar fá þar bæði óperu kínverskrar stéttabaráttu og aðrar banvænar veirur beint í æð.

Þjóðin þarfa að hafna kjúklingastjórnmálunum: þar sem hátt er gaggað,  glærusýningar tíðar en engar lappir til að standa á.

 


Ísland er ekki Bandaríkin og hvorki Sigmundur, Geir eða Davíð eru Trump. Sterkt af Donald að standa af sér árásir andstæðinganna eftir æfingar á Íslandi

fakenewsÞað er afskaplega eftirtektarvert að fylgjast með umræðum um kosningarnarnar í Bandaríkjunum, t.d. eins og setningin:„Trump hellti úr sér rakalausum ásökunum og æsingaráróðri í 17 mínútna löngu ávarpi." Ég efast um að viðkomandi þýðandi falsfréttarinnar hafi hlýtt á þessa ræðu Trumps. Ég gerði það og var málefnalegur flutningur forsetans gagnvart hugsanlegu kosningasvindli bæði sanngjarn og sannfærandi. Á það er ekki minnst í fréttinni að Demókratar bönnuðu eftirlit með atkvæðatalningu á mörgum stöðum. Settu þeir í besta Panamaárásarstíl pappa fyrir glugga svo ekki væri hægt að kíkja inn þar sem atkvæðagreiðslan fór fram. Og þar sem dómstólar höfðu ekki gengist með á kröfur Demókrata um að banna eftirlitsmenn frá Repúblikönum að vera viðstaddir, þá var eftirlitsmönnum bannað af Demókrötum að koma svo nærri, að þeir gætu lesið hvað stæði á atkvæðaseðlunum t.d. eins og nafn og póststimpill! Eins og Rudy Giuliani sagði: „Atkvæðaseðlarnir gætu verið frá Mars, þeim látnu og hver veit nema Joe Biden hafi sent inn 50 eða 5000 atkvæði fyrir sjálfan sig í kosningunum."

Bandaríkin eru ekki miðstýrt ríki eins Kína eða Norður Kórea eða eins og Hitler kom á sínum tíma á í Evrópu og ESB reynir í dag. Hins vegar gilda mismunandi kosningalög fyrir mismunandi fylki. Kosningasvindl með póstakvæði er altalað í vissum fylkjum Bandaríkjanna þar sem Demókratar stjórna m.a. af þeirri einföldu ástæðu að ekki er krafist skilríkja við kosninguna. Þannig getur sama persónan gengið milli kjörstaða og breytt um nafn og heimilisfang og kosið margsinnis. Ólík lög gilda fyrir ólik ríki og virðast sum ríkin ekki hafa meiri stjórn á málunum en að svindl er mögulegt í stórum stíl. Þess vegna ber að fagna kröfu Bandaríkjaforseta um hlutlaust eftirlit með kosningum svo tryggt sé að farið sé eftir lögum og atkvæðin löggild. Eins og hann sagði - en ekki er sagt frá: „Allir hafa hag af traustu kosningakerfi. Þetta er ekki spurning um Repúblikana eða Demókrata, þetta er spurning um kosningakerfi sem stendur sig og hægt er að treysta á."

Demókratar notuðu sjúkdómafaraldurinn til að prenta upp kjörseðla og senda út til allra og eru margir dánir eða fluttir annað á þeim listum. Í þetta skiptið virðist æsingurinn að fella Trump borið Demókrata ofurliði og allt réttlætt burtséð frá lögum, siðferði eða friði til að koma „karlinum fyrir kattarnef."

Er sú mynd dregin upp af forsetanum á alþjóðavettvangi að hann sé „stórhættulegur klikkaður karl sem ekki eigi að treysta fyrir lyklunum að kjarnorkusprengjunum." 

Demókratar hafa aldrei viðurkennt lýðræðislegan kosningasigur Donald Trumps. Demókratar eru hættir að virða grundvöll lýðræðisns og nota netrisa til að afnema málfrelsi, peningarisa til að greiða óeirðaseggjum og fjölmiðlarisa til að halda uppi einsleitnum lygaáróðri sem ekki hefur sést á Vesturlöndum síðan áróður Göbbel fyrir Hitler og nasismann og þar á undan áróður Komintern fyrir Lenín, Stalín og kommúnismann. 

En Íslendingar eiga að sjálfsögðu „að vera stoltir" af því að hafa leyft sömu aðilum að æfa sig á Íslandi og steypa lýðræðislega kjörnum, lögmætum forsætisráðherra Íslands Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni af stóli í Panamaárásinni. 

En Bandaríkin eru ekki Ísland og Trump meiri en Sigmundur. 

Guði sé lof.


mbl.is „Lygi á lygi ofan“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morgunblaðið svíkur engan með núverandi ritstjóra

FalcorusticolusMitt í öllu veirufári og dökkum efnahags- og samskiptabólstrum sem hrannast upp við sjóndeildarhringinn er Morgunblaðið eins og sérstakt band sem bindur marga saman. Breidd blaðsins er einstök og þjónusta við landsmenn löng og dygg. Þrátt fyrir að allir standi ekki jafnfætis að gæðum, hvorki umræðendur né fréttaritarar, þá standa leiðarar Morgunblaðsins eins og klettur í hafinu. Þannig lýsir leiðari dagsins eins og viti í versta náttmyrkri og bendir á veginn. 

Það hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni hvernig núverandi formaður „móðgaðist" út í fyrrverandi vegna hreinskilinnar afstöðu þess síðarnefnda. Til að mynda sniðgekk sá núverandi Morgunblaðið með afmælisgrein flokksins sem mætti halda að hafi nú alldeilis átt að vera högg gegn allri „ósvífninni" að ræða stjórnmálin á opinskáan hátt.

Ég kaus Sjálfstæðisflokkinn í mörg ár. Fannst hann alltaf vera fulltrúi allra landsmanna með athafnamennsku, frelsi, viðskiptafrelsi, virðingu fyrir einkaframtaki og frelsi einstaklingsins. En eftir að Sjálfstæðisflokkurinn yfirgaf sjálfstæðisstefnuna, þá gat ég ekki lengur kosið flokkinn.

Miðflokkurinn axlar sjálfstæðiskápuna

Ég er genginn til liðs við Miðflokkinn sem var afar létt spor sem skilið hefur eftir góðar tilfinningar sem verða sífellt sterkari. Miðflokkurinn, sem stendur á grundvelli stjórnarskrárinnar, hefur fengið sjálfstæðiskápuna á sínar herðar á meðan núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins svíkur í mikilvægum málum. Það er bæði skiljanlegt og rétt, því bændurnir sem eru kjarni Miðflokksins eru allir smáfyrirtækjarekendur með fæturna á jörðinni. Bændur hafa aldrei átt í vandræðum með að vinna með sjómönnum og alvöru Sjálfstæðismönnum. Það nána samstarf hefur gegnum lýðveldistímann reynst hin heilladrýgsta stjórn landsins sem lyft hefur landsmönnum úr fátækt í velferð.

falk kopiaSíðasti Sjálfstæðismaðurinn

Í dag er öldin önnur þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vinnur m.a. með ESB gegn hagsmunum bænda. Mér hefur alltaf þótt það einkennilegt viðskiptafrelsi að þurfa að ganga í ríkjasamband eða þurfa að afhenda fullveldi til erlends yfirvalds til þess að fá að selja fisk. Minnir frekar á tímabil danskrar einokunarverslunar en það fræðilega frelsi sem viðreistir Sjálfstæðismenn segja að sé í boði á svo fínan hátt. Sjálfstæðisflokkurinn stendur líka gegn hagsmunum landsmanna í orkumálinu. Og gerði einnig gegn þjóðinni í Icesave eins og leiðarahöfundur dagsins bendir svo réttilega á. Það hlýtur að vera sársaukafullt fyrir heiðarlega Sjálfstæðismenn að þurfa að horfa upp bátinn minnka eftir hverjar Alþingiskosningar. Eins og staðan er núna gæti svartsýnisspáin verið sú að þegar horft verður um öxl í framtíðinni, þá verður Davíð Oddsson talinn síðasti Sjálfstæðismaðurinn. Vonandi verður útkoman ekki svo slæm.

falkPeysa sem hleypur í þvotti minnkar

Frjálslyndi armurinn er kominn svo langt til vinstri að hann þjónar engum lengur nema sjálfum sér. Stjórnmál eru glærusýningar og bisness. Embættismannakerfið notað sem vígvöllur eigin afreka og efnahagsvinnings. Staða í Mannréttindanefnd SÞ keypt fyrir atkvæði með Norðmönnum í EES.  Allt gert fyrir að fá mynd af sér við hljóðnema þeirra „stóru". Heiðarleg stjórnmál komast ekki að við þessi skilyrði, fjallkonan er bundin útí horni, stjórnarskráin ekki lengur sáttmáli þjóðarinnar og Alþingi breytt í sendibílastöð ESB. Staðan er löngu komin í það horf sem ríkti fyrir tíð Sjálfstæðisflokksins með tvo flokka, Íhaldsflokkinn og Frjálslynda flokkinn. Frjálslyndi flokkur Sjálfstæðisflokksins hefur valtað yfir íhaldsarm flokksins m.a með beinni þáttöku í útrásarverkefni Kommúnistaflokks Kína Belti og Braut þar sem hnattstaða Íslands verður notuð sem stjórnstöð fyrir Alþýðuherinn á Norðurslóðum. 

Á meðan ekki kemur fram forysta sem ræður við verkefnið að leiða Sjálfstæðisflokkinn á grundvelli sjálfstæðisstefnunnar mun flokkurinn halda áfram að hlaupa í þvotti eins og peysa sem verður sífellt minni fyrir eigandann. Og allir vita hvernig fer fyrir slíkum peysum. Þær fara ekki einu sinni á uppboð en vonandi hægt að hugga sig við að þær skilji eftir lítið kolefnisspor með þeirri vinstri og grænu orku sem heilatekið hefur flokksforystuna.

 


Samstarf og aðlögun að Kommúnistaflokki Kína og kúgandi dagsskipan er ekki lengur valkostur. Hvað gerir ríkisstjórn Íslands?

chinataskÍ vikunni birti rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings skýrslu um Kína, þar sem rekin voru 40 ára samskipti Bandaríkjanna og Kína fram til dagsins í dag. Michael T. McCaul fv. formaður Öryggismálanefndar og núverandi meðlimur í utanríkisnefnd Bandaríkjaþings leiddi rannsóknarnefnd 15 þingmanna úr 11 nefndum þingsins, sem stóðu að skýrslunni. Rannsökuð voru sex svið: Hugmyndafræðileg samkeppni, keðjur birgja, þjóðaröryggi, tæknimál, fjármál og orkumál og samkeppni. Niðurstaðan var svo birt í 141 bls. skýrslu með 82 lykilupp-götvunum og yfir 400 tillögum/ráðleggingum.

Demókratar leiðitamir Kommúnistaflokki Kína

Athygli vakti að Demókratar neituðu að starfa með rannsóknarnefndinni og sögðu skýrsluna „ætlað að slá ryki í augu fólks.” Mættu þeir ekki á fundi sem þeim var boðið á. Segir Michael T. McCaul formaður nefndarinnar það hafa verið óheppilegt og telur að „skýrslan hefði orðið innihaldsríkari með þáttöku Demókrata. Rannsóknarnefndin tekur ekki tillit til mismunandi stjórnmálaskoðana og við erum alltaf sterkari sem sameinuð þjóð.” Segir McCaul skýrsluna skýra „mikilvægustu áskoranir í þjóðaröryggismálum og efnahagsmálum núverandi kynslóðar.” 

Þrátt fyrir mörg og endurtekin boð í marga mánuði, þá neituðu Demókratar deildarinnar að taka þátt í starfinu eða leggja sitt af mörkum til þessa mikilvæga starfs. Repúblíkanski flokkurinn átti enga aðra kosti en að halda sjálfstætt áfram út af neyðarástandinu vegna hættunnar.

Ummæli ráðamanna

Áhrif skýrslunnar munu koma fram í nánustu framtíð hvað varðar sambúð stórveldanna. Hér verður sagt frá úrdrætti á samantekt skýrslunnar í inngangi hennar sem kynnir á einfaldan hátt um hvað skýrslan fjallar. Skýrslan er full tilvitnana í menn og atburði, hér eru þrjár tilvitnanir:

Trump106x135„Bandaríkin vilja opin og jákvæð samskipti við Kína og til þess að uppná slíku sambandi verðum við að verja þjóðarhagsmuni okkar á öflugan hátt. Kínverska ríkisstjórnin hefur stöðugt svikið loforð sín til okkar og einnig til margra annarra þjóða.” Donald Trump Bandaríkjaforseti 29. maí 2020.

Mike Pence„Bandaríkin væntu þess að efnahagslegt frelsi færði Kína í meiri samvinnu við okkur og heiminn. Í staðinn valdi Kína efnahagslegar árásir…” Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, 4. okt. 2019.

220px-Mike_Pompeo_official_photo-180x225„Við verðum að viðurkenna harðan sannleikann. Við verðum að viðurkenna þann harða sannleika sem mun leiða okkur á næstu árum og áratugum, að ef við viljum eiga frjálsa 21. öld og ekki þá kínversku öld sem Xi Jinping dreymir um, þá mun hin gamla heimssýn með blindri hlýðni við Kína augljóslega ekki ná því markmiði. Við þurfum ekki að halda áfram á þeirri braut og við þurfum ekki að hverfa aftur til hennar.” Micheal R. Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna 23. júlí 2020.

Mistök Bandaríkjanna

Bandaríkin hafa á þeim rúmum 40 árum síðan diplómatískum tengslum var komið á, reynt að að fá Kína með í alþjóðlegt samstarf sem ábyrgan hagsmunaaðila. Leiðtogar Bandaríkjanna byggðu afstöðu sína á virku samstarfi á þeirri skoðun að þróun efnahagslegs samstarfs við Kína þjónaði hagsmunum Bandaríkjanna og myndi móta breytta starfshætti Kommúnistaflokks Kína. Þessi afstaða lokaði oft augunum fyrir brotum Kína á mannréttindum, efnahagslegri vanrækslu, árásargjarnri útþenslustefnu og innantómum loforðum, einnig djúprótaðri fjandsamlegri kommúnískri hugmyndafræði sem er grundvöllur þessarar illkynjuðu hegðunar. Þessi stefna hefur – svo það sé sagt á einföldu máli – mistekist.

Almenn ógn Kommúnistaflokks Kína

Bara í ár hefur Kommúnistaflokkur Kína brotið gegn alþjóðlegum samningi og afnumið borgaralegt frelsi íbúanna í Hong Kong; haldið áfram kúgun þjóðlegra minnihlutahópa þar með talið Úígúra og Tíbeta, aukið hernaðaruppbyggingu, færst í aukana með árasásargjarnari hernaðarlist og brotið landhelgi annarra þjóða; tekið þátt í dauðlegum bardaga til að ná landi við landamæri Indlands ásamt nýjum landakröfum á Bhutan. Að auki, með því að þagga niður í læknum og halda læknisfræðilegum upplýsingum leyndum fyrir umheiminum, leyfði Kommúnistaflokkur Kína staðbundnu útbroti veiru að þróast upp í heimsfaraldur, sem hefur valdið dauða næstum milljón manns fram að þessu og eyðilagt alþjóðlegan efnahag. Faraldurinn afhjúpaði mismunandi veikleika í fæðingarkeðjunni, hættuna með allt of miklu ósjálfstæði Bandaríkjanna sem voru háð Kína og þörfina á öruggari lyfja- og tæknilegri framleiðslugetu innanlands.

kina3

Þessi röð viðvarana hafa afhjúpað á hvern hátt hugmyndafræði Kommúnistaflokks Kína grefur undan kjarnagildum alþjóða kerfisins og setur öryggi og velferð Bandaríkjamanna í hættu. Samstarf og aðlögun að Kommúnistaflokki Kína og kúgandi dagsskipan er ekki lengur valkostur. Til þess að vernda lýðræði og frelsi í heiminum verða Bandaríkin að vinna á ákveðinn hátt með bandamönnum okkar og taka aftur frumkvæðið. Að fást við slíka illkynjaða hegðun getur ekki lengur verið eitt af mörgum málum fyrir ríkisstjórnir viðkomandi ríkja heldur frekar samræmd grundvallarstefna hins frjálsa heims.

Mikilvægar tillögur rannsóknarnefndarinnar á sex sviðum

– Hugmyndafræðileg samkeppni

• Meta hvort glæpir Kommúnistaflokks Kína (KFK) gegn Úrígúrum mótsvari þjóðarmorði, innleiða að fullu þvingandi löggjöf vegna kúgun KFK í Hong Kong ásamt frekari sérstökum aðgerðum til að mæta mannréttindabrotum KFK í heild, frá skerðingu trúarfrelsis til þvingandi líffæratöku. 
• Samræma víðtæka upplýsingaherferð alls stjórnkerfisins til mótvægis við áróðursvél KFK með því að segja sannleikann og gildismat okkar til að grafa undan lygum og illkynjaðri hugmyndafræði KFK.
• Tryggja að meðborgarnir verði meðvitaðir um hvenær þeir eru að horfa eða hlusta á ritskoðað fjölmiðlaefni og skemmtiefni sem KFK hefur greitt fyrir.
• Vinna gegn illum heimsáhrifum KFK með því að krefjast gegnsæi og ábyrgðarskyldu í kerfi Sameinuðu þjóðanna að meðtaldri Heilbrigðisstofnun SÞ, WHO. 
• Fjármagna tækni og dreifingu tækja sem aðstoða baráttufólk lýðræðisins að viðhalda stafrænu öryggi, tryggja aðgengi að bílasímaneti og endurreisa vefsíður eftir tölvuárásir.
• Vekja athygli á stækkandi umhverfiseyðileggingu KFK, meðtalið stöðu sem stærsti kolefnissporavaldur í heiminum. 

Öryggi lyfja- og aðfangakeðjunnar

Tryggja á betri hátt þjóðlegt öryggi í keðju lyfjaframleiðslu og keðju aðfanga til þjóðarinnar

• Beita framsýnum, hagkvæmum og miðuðum skattaaðgerðum til að hraða rannsókn, þróun og framleiðslu mikilvægra lyfja, læknisfræðilegra nauðsynja, birgða, prófana og bóluefna
• Skapa stuðningskerfi sem er nauðsynlegt til að hvetja framleiðslu mikilvægrar innlendrar framleiðslu og forma skattaaðgerðir sem tryggja bandaríska framleiðslu á hálfleiðurum.
• Yfirsýn leyfisveitinga ríkisins til námugrefturs og forgangsröðun þróunar málmiðnaðarins svo hvorki grundvöllur iðnaðar né varnarmálaiðnaðar sé háður KFK. 

Þjóðaröryggi

• Vinna með Varnarmálaráðuneytinu til að nútímavæða skipulag hersins, staðfestu, stjórnunartækni og aðföng til að draga úr árásargirni KFK í Indo – Kyrrhafssvæðinu og annars staðar í heiminum. 
• Tryggja nútímavæðingu allra þriggja hluta kjarnorkunnar sem og þróun hefðbundins herafla sem nauðsynlegt er að hafa til að hafa í tré við Frelsisher Alþýðunnar í Indo-Kyrrahafssvæðinu, innifalið markbundin skeyti og langdrægar eldflaugar. 
• Undirstrikum þörfina á a.m.k. 3-5% árlegri aukningu varnarmálafjárlaga til að hræða og sigra Frelsisher Alþýðunnar og aðra mikilvæga andstæðinga.
• Meiri fókus á hvernig Bandaríkjaher verndar tæki í geimnum og nær markmiðum geimrannsókna með því að nýta fjárfestingar einkageirans.
• Hætta að nota efni frá herfyrirtækjum KFK samt segja upp fyrirtækjum með tengsl við her KFK. 
• Vernda kosningaferlið í Bandaríkjunum og persónuleynd í kosningum okkar með ólíkum aðgerðum, innifalið að finna erlenda andstæða erindreka og sjá til þess að einstaklingum sem taka þátt í truflunum verði bannað að koma inn í Bandaríkin eða verði vísað úr landi ef þeir eru þegar í Bandaríkjunum. 
• Setja meiri styrk í málarannsóknir, afbrotaákærur og aðgerðir gegn tölvunúmeraþjófnaði studdum af KFK og að auki loka fyrir öryggisgöt í vegabréfakerfi okkar sem KFK hefur notfært sér. 
• Bæta gagnnjósastörf ríkisins og auka notkun í Mandarínmálinu. 

Tækni

• Skapa heildarsýn til að meta þær öryggishættur sem stafa af Kína í 5G-netum og auka samvinnu milli Bandaríkjanna og bandamanna þeirra og samstarfsaðila til finnar slíkar hættur og vinna saman gegn þeim.
• Styðja myndun nýs D-10 hóps leiðandi lýðræðisríkja til að þróa og dreifa 5G og þess kerfis sem kemur í kjölfarið og koma á fót endurgreiðslukerfi fyrir fyrirtæki til að fjarlægja tækni hættulega öryggi úr netum sínum. 
• Tryggja alþjóðlega forystu í tækni morgundagsins, að meðtalinni gervigreind, quantum, 5G og sjálfstýrðum bifreiðum. 
• Refsa kínverskum samskiptafyrirtækjum sem stunda efnahagslegar eða iðnaðarlegar njósnir og alla kínverska aðila sem gera tölvuárásir á rannsóknaraðila sem vinna að bóluefni gegn COVID-19.

Efnahags- og orkumál 

• Tryggja að engir bandarískir skattapeningar styðji við fyrirtæki í ríkiseign Kína
• Samræming í eftirliti og útflutningsstefnu með samstarfsaðilum og bandamönnum til að halda viðkvæmri tækni, innifalið framleiðslu hálfleiðara og rannsóknum og þróun tækni frá andstæðingum okkar.
•  Beita auknu efitrliti við fjárfestingum í bandarískum fyrirtækjum eða aðgerðum frá Kína.
• Styrkja viðskiptasambönd við bandamenn okkar og til að staðfesta bandarískar reglur og standa gegn áhrifum Kína. 
• Reka viðskiptastefnu sem hræðir og verndar gegn tölvunúmeraþjófnaði Kína. 
• Þvinga lagalega meðferð fjárfestinga Kína í Bandaríkjunum til að endurskapa samræmi í fjárfestingarreglum. 
• Tryggja að kínversk fyrirtæki fylgi sömu fjármálareglum eins og bandarísk fyrirtæki þegar þau komast inn á verðbréfamarkaði í Bandaríkjunum. 
• Vinna að frekari viðskiptasamböndum við Taiwan og leysa sérsakar útistandandi viðskiptaspurningar þannig að ríkisstjórnin geti tekið þau skref að koma á viðræðum um viðskiptasamning þegar þær spurningarnar vakna. 
• Styrkja og þróa fjármálasamstarf, útflutnings og innflutnings banka og önnur störf ríkisstjórnarinnar til þess að standa betur gegn Belti og Braut verkefni Kína og skuldagildru aðferðum þeirra. 
• Halda áfram að þróa orkuöryggismál Bandaríkjanna til að geta orðið þáttakandi á heimsvísu gegn Kína sérstaklega á sviði kjarnorku. 

Samkeppni

• Tvöfalda fjárlög grundvallarrannsókna í vísindum og tækni á næstu 10 árum.
• Auka samræmingu og fjárlög á menntun í tæknivísindum til að skapa betra og hæfileikameira vinnuafl.
• Auka öryggi viðkvæmra rannsókna við menntaskóla og háskóla Bandaríkjanna og leiðandi rannsóknarstofnanir, sem innifelur takmörkun á þáttöku allra ríkisstarfsmanna og verktaka í erlendum hæfnisverkefnum. 
• Krafa um að menntaskólar og háskólar sendi skýrslur um allar peningagjafir frá Kína. 


Davíð Oddsson – Dyggur þjónn þjóðarinnar

david-300x300Ég reyni alltaf að missa ekki lestur Reykjavíkurbréfa Morgunblaðsins sem yfirleitt eru fróðleg, snarplega skrifuð með heildstæða hugsun. Slíkt kemur ekki á óvart með einn reynslumesta og farsælasta núlifandi stjórnmálaleiðtoga Íslands í ritstjórastöðu Morgunblaðsins. 

Fáir Íslendingar hafa staðið við skjöld fjallkonunnar á jafn hreinskilinn og heiðarlegan hátt og sífellt unnið með þjóðinni og fyrir hana og Davíð Oddsson. Er hann einn af þeim þingmönnum og ráðherrum sem mark hafa tekið á eið sínum að starfa á grundvelli stjórnarskrárinnar, virða hana og vernda.

Reykjavíkurbréf dagsins er ljós í því ættjarðarmyrkri sem nú leggst á okkar fámennu góðu þjóð. Áframhaldandi ruglugangur sjálfskipaðra fræðinga með það helsta að vopni að stjórnarskráin hafi verið saumuð upp úr stjórnarskrá fyrir konungsveldi Danmerkur er ótrúleg afvegaleiðing frá sjálfu markmiðinu með aðförinni að stjórnarskránni. Á tíma Jóhönnustjórnarinnar eins og bent er á í Reykjavíkurbréfinu, var stjórnarskránni kennt um fjármálarányrkju útrásarvíkinganna sem notfærðu sér lagaveilu í regluverki Evrópusambandsins til að hefja „útrás" með stofnun fjármálafyrirtækja í löndum ESB. Allir vita hvernig það endaði enda í upphafi lagt út með að safna sem stærstum skuldum til að stela fyrir fyrirsjáanlegt gjaldþrot. Hvað hurfu margir millarðar í gjaldþroti Baugs? Yfir þúsund ef ég man rétt. 

Allir vita líka að í mörg ár var togast á um að þvinga íslenska alþýðu og börn hennar til að axla afleiðingarnar af glæpaverkum stórþjófanna. Það var m.a. fyrir snerpu þess manns sem á pennanum heldur í Reykjavíkurbréfum Morgunblaðsins sem Íslendingar tóku sig saman og létu Evrópusambandið hanga með á dómi sem ESB fór halloka fyrir en Íslendingar unnu. Þau málalok stöppuðu stálinu í þjóðina - réttilega - og sýndu og sönnuðu að leiðsögn Davíðs Oddssonar, þrautseig barátta einstaklinga eins og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í InDefence ásamt kjarki Ólafs Ragnars Grímssonar forseta vörðu sjálfstæðið, fullveldið, sjálfsákvörðunarréttinn, lýðræðið og í áframhaldinu sjálft lýðveldið.

fjallkonanEn seigt er í sýkli sósíalismans, þegar aðalóvinur þjóðarinnar innanlands var gerður að þingforseta Alþingis, Davíð Oddsson flæmdur með lögbroti úr Seðlabankanum og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flæmdur úr embætti forsætisráðherra með árás skipulagðri erlendis frá. Áframhaldið er á þeim nótum að fyrir utan að vinstri menn á Íslandi biðu hroðalegustu kosningaútreið í allri Evrópu á þeim tíma, þá eru þeir staðsettir í fleiri flokkum í dag og hefur tekist á rúmum áratug að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn í helming þess mesta fylgis, þegar Davíð Oddsson var formaður flokksins. Og í dag telja margir kjósendur ríkisstjórnina vera vinstri stjórn og kalla hana sem slíka, þannig að ekki kemur á óvart að sjá einnig það orð notað í Reykjavíkurbréfinu.

Í víðara samhengi er málið grafalvarlegt og fjallar um fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt Íslendinga nú og í framtíðinni. Vinstristjórnin vinnur ötullega að því að koma Íslandi endanlega undir völd ESB-skrímslins og leikur fyrir akademíkera að froða furðulegum, óskiljanlegum orðum sem ekkert venjulegt fólk skilur. Litið er niður á kjósendur og þeim sagt að þeir skilji ekki málin en samt er veðjað til þeirra um atkvæði á kjördegi. Lýðræðið á Íslandi er á mörkum þess að verða embættisræði og ótrúlegt að horfa á hræsni þeirra, sem þykjast anna sjálfstæði þjóðarinnar, nota hverja stundu til að eyðileggja stjórnarskrána, sjálfan grundvöll lýðveldisins.

Fyrirlitningin á lögum, formlegum stofnunum lýðveldisins sem eru lýðræðisstofnanir á grundvelli stjórnarskrárinnar, er orðin svo útbreidd að „vandaðir" einstaklingar taka þátt í ljótri aðför að sjálfu lýðveldi Íslendinga. Það skiptir engu máli hvaða orð menn nota, þegar Alþingi er vikið til hliðar fyrir „ályktanir" í stað laga, sem flytja lýðræðisleg völd úr höndum þjóðarinnar til útlanda og er þá vegið beint að hjarta lýðveldisins – stjórnarskránni. Það voru mér vonbrigði að sjá Björn Bjarnason, sem var vakandi í Icesave, kolfalla svo á prófsteini orkupakkans og koma í kjölfarið með tillögur um að breyta stjórnarskránni til samræmis við aðildarríki ESB með sérstökum kafla ESB um yfirráð málaflokka viðkomandi þjóðar. Enn önnur vonbrigði voru að sjá Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra umturnast í upphafningu sósíalista m.a.innan Sameinuðu þjóðanna. Hugmyndir utanríkisráðherrans í dag um setu við hlið glæpamanna í Mannréttindaráði SÞ eru samhljóma tillögum sósíalista. Ráðherrann hefur notað embættið sem kennarastöðu til að leiðrétta utanríkisstefnu Bandaríkjamanna rétt eins og þeir væru nemandi Íslands í utanríkismálum. Vinstristjórninn er vilhöll kínverska kommúnistaflokknum og ekki talið ámælisvert að fjármálaráðherrann og formaður Sjálfstæðisflokksins taki stöðu í bankaráði þess banka Kommúnistaflokks Kína, sem fjármagnar heimsútþenslu kommúnismans aðallega í verkefninu Belti og braut.

skjaldarmerkið

Ef nokkru sinni er ástæða til að verja stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, þá er það núna. Skal höfundur Reykjavíkurbréfs hafa þakkir fyrir að halda uppi frelsiskyndlinum á þann hátt sem honum er treystandi fyrir og hefur ætíð reynst þjóðinni hið haldbesta vegarnesti.

 


Sigurður Ingi upplýsir að Bandaríkjamenn stjórna Bandaríkjunum

sigurduringisveihuweiBetra seint en aldrei. 

Samgönguráðherrann hefur eftir nær þriggja ára starfstímabil komist að þeirri stórkostlegu niðurstöðu að „Bandaríkjamenn stjórna Bandaríkjunum."

Ástæðan fyrir þessarri heljarmiklu heilavörpu var fyrirspurn Arnþrúðar Karlsdóttur á útvarpi Sögu sem spurði Sigurð Inga Jóhannesson persónulega hvort hann væri ekki búinn að gera upp hug sinn varðandi kommúníska njósnafyrirtækið Huawei. Benti Arnþrúður í sakleysi fyrirspyrjandans á að Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefði haft orð á því í Íslandsferð að ekki ætti að kaupa vörur eða þjónustu af kínverska risafyrirtækinu Huawei þar sem slíkt væri notað til njósna fyrir kínverska herinn. Það væri því öryggismál viðkomandi þjóðar að ganga ekki um með kínverskan kommúnista á bakinu sem gægðist yfir öxlina og fylgdist með öllu sem gert er.

Eftir hina stórmerkilegu uppgötvun bætti ráðherrann því við, að Bandaríkjamenn stjórnuðu ekki Íslandi.

Það er vel. 

En hverjir stjórna Íslandi?

Kínverjar?

 


Mannréttindadómstóll Evrópu kominn langt út fyrir upprunaleg markmið

borisjohnss23Ég hef gert hlé á bloggskrifum hér síðan í júlí, fremst vegna fréttaskrifa á útvarpi SÖGU

Ætla að reyna að tengja fréttaskrifin við eigin hugleiðingar hér að nýju og byrja á frétt sem birtist á útvarpi SÖGU í morgun um fyrirhugaða löggjöf Breta sem færir þeim ákvörðunarréttinn tilbaka á því hverjir fá að vera í Bretlandi. 

Mannréttindadómstóll Evrópu er kominn langt „framúr" því verkefni sem upprunalega var ákveðið eftir seinni heimsstyrjöldina enda hefur verið spunnið við lögin síðan. Bretar gerðust aðili að Mannréttindasáttmála Evrópu 1989 sem Theresa May sagði að „bundið hefði hendur breska þingsins." Evrópusambandið er eins og hundur á roðskinni og hremmir Breta með öllum tiltækum ráðum t.d. hótun um bann á N-Írland að kaupa matvæli af Bretum! Búast má því við að skæluvælurnar bæði hjá Mannréttindadómstólnum og í Brussel kveini hástöfum, þegar ríkisstjórn Boris Johnsson tekur tilbaka ákvörðunarrétt Breta um hverjir mega dvelja í landinu.

Hér er greinin:

Unnið er að nýrri löggjöf í Bretlandi sem gerir Bretum kleift að ákveða sjálfir hverjir fá að vera í landinu og hverjum þeir geta vísað burtu. Tillagan verður birt eftir nokkrar vikur að sögn Sunday Telegraph en verið er að undirbúa lagasetningu í dómsmála-, innanríkismála- og forsætisráðuneytinu sem gerir Bretum kleift að sniðganga núverandi Mannréttindasáttmála Evrópu.

Stóra Bretland hefur stöðugt hafnað því að setja tryggingu fyrir að framfylgja evrópska mannréttindasáttmálanum í samningaviðræðunum við Evrópusambandið. Boris Johnson hefur þvert á móti varað ESB við því að Bretar munu sjálfir taka málin í eigin hendur. Ein af ótal kröfum ESB í Brexit samningnum var að Bretar gæfu skilyrðislaust loforð um að hlíta Mannréttindasáttmálanum eftir útgöngu úr ESB.

domstollBúast má við að ESB noti markmið Breta að ákveða sjálfir hverjir dvelji í landi sínu til enn frekari sleggjukasta fyrir eigin hagsmuni í Brexit-viðræðunum. Ástandið í Brexit-umræðunum er eldheitt og stefnir í að Bretar yfirgefi ESB samningslausir ef talsmenn ESB taki sig ekki í kragann fyrir 15. október og semji en ESB hótar m.a. viðskiptabanni á Norður-Íra til matvælakaupa sem lið í kúgunarspilinu gegn Bretum.

Stóra Bretland hefur í mörg ár átt í erfiðleikum með að vísa hættulegum útlendingum úr landi vegna ákvæða Mannréttindasáttmálans og hefur það valdið gremju og reiði yfirvalda og almennt í Bretlandi. Theresa May sagði 2016 að Bretar ættu að segja sig frá sáttmálanum „vegna þess að hann bindur hendur þingsins.” Núna endurskrifa Bretar lögin svo þeir þurfi ekki að framfylgja ákvæðum sáttmálans sem tryggir hættulegu fólki vistarveru í Bretlandi.

Dominic Cummings ráðgjafi Boris Johnson hefur ásakað Mannréttindadómstólinn í Strassburg fyrir dóma sem hindra brottvísun hættulegra erlendra glæpamanna. Cummings hefur einnig varað við því að Bretar munu fara eigin leiðir eftir aðskilnaðinn við ESB.

Stóra Bretland gerðist aðili að Mannréttindasáttmálanum 1989 og hefur Íhaldsflokkurinn verið mjög gagnrýninn á þá tilhögun.

Sjá nánar hér


Slæmt fyrir Ísland ef sendiherrar þurfa að hafa vopnaða verði

Jeffrey_R._Gunter_official_photoÍsland hefur til alls að vinna og viðhalda sem bestum samskiptum við vini okkar Bandaríkjamenn og samkvæmt eðli málsins fara samskipti ríkjanna mjög fram í sendiráðunum. Það er til marks um hversu afvegaleiddir sumir eru að vera að velta sér upp úr ekkifréttinni að sendiherra Bandaríkjanna sé annt um öryggi sitt og starfsmanna Bandaríska sendiráðsins. Slík öryggismál eru hluti af skipulagi allra sendiráða hins vestræna heims og varla sérstakt fréttaefni.

Það sem er fréttaefni hins vegar er að margt fjölmiðlafólk (hefur einhver minnst á Rúv?)telur starf sitt vera fólgið í að dreifa eigin móðursýki í stað frétta. Frá Bandaríkjunum berast nú daglega fréttir um baráttuna gegn innlendum skemmdarsamtökum eins og Antifa og BLM sem ruglaðir demókratar telja vopn í komandi forsetakosningum. Einnig berast daglega fréttir um hvernig kínverskir kommúnistar sýna nú sitt rétta andlit og eru komnir í stríðsham sem ekki sér fyrir endann á. Ísland á að taka kalli Pompeo utanríkisráðherra USA og ganga með í bandalag lýðræðisþjóða gegn kommúnismanum sem Kína er að draga heiminn í. 

Íslensk utanríkisstefna þarf að hætta sleikjuhætti við kínverska kommúnista og Evrópusambandið og snúa sér aftur að vináttu við bestu vini okkar. Að sjálfsögðu á að veita öllum sendiherrum lágmarks vernd og setja aukið fé til löggæslu í landinu. 


mbl.is „Mikill heiður“ að leiða bandaríska teymið á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson – einn af frelsishetjum nútímans og arftaki Jóns Sigurðssonar

sigm4Daily Express birti nýlega grein um hvernig Íslandi tókst að lifa af Hræðslusprengjuna og lifa góðu lífi fyrir utan Evrópusambandið. Segir blaðið Íslendingum hafa tekist svo vel vegna þess að þeir voru með eigin gjaldmiðil og ekki í fjötrum evrunnar. Eftir hrun fjármálafyrirtækja 2008 var þeirri hræðslusprengju varpað á Ísland að landið ætti enga afkomumöguleika nema með því að ganga í ESB og taka upp evru. Vitnað er í skýrslu The Telegraph frá 2016 og samtals við þáverandi forsætisráðherra Íslands Sigmund Davíð Gunnlaugsson en hann tjáði blaðinu að aðildarviðræður Íslands hefðu verið undir álagi hræðslu um afkomu landsins og tónninn hefði verið sá að

 „án aðildar væri Ísland glatað. Það voru aldrei neinar umræður um markmið eða eðli Evrópusambandsins eða hvort það hentaði Íslendingum eða þeir vildu verða hluti af því. Aðildarumsóknin var einfaldlega kynnt sem efnahagsleg nauðsyn og sagt að um leið og við hefðum sótt um aðild fengjum við alþjóðlegt lánstraust til baka og evran leysti síðan öll okkar vandamál.” 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bætti við: „Að vera ekki með evruna var ómetanlegur þáttur í hinum skjóta efnahagsbata. Það leikur enginn vafi á því, að ef við hefðum verið meðlimur Evrópusambandsins og með evruna á þeim tíma. þá hefði landið orðið gjaldþrota og sett í efnahagslega stöðu sem meira minnir á Grikkland en þá sem Ísland er í dag."

Hræðslusprengjan á Íslandi mistókst og einnig mistókst að stöðva Brexit í Bretlandi.

ITALYEXIT

Í dag er stofnaður Italexit flokkur á Ítalíu sem fullveldissinnar gleðjast yfir á Ítalíu og öðrum löndum. Það er Gianluigi Paragonefv. þingmaður Fimm stjörnu hreyfingarinnar, sem verið hefur flokkslaus á þingi síðan í janúar sem stofnar nýja flokkinn (sjá frétt á Útvarpi Sögu).

Við sem viljum frelsi fögnum tilkomu nýja flokksins og óskum honum alls gengis í baráttunni fyrir að losa ítölsku þjóðina úr klóm Evrópusambandsins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband