Orðin vegin í haust Palli er ekki einn í heiminum
25.3.2020 | 21:05
Þegar fjármálakreppen reið yfir heiminn 2008 sögðu bankastjórarnir (að undanskildum Seðlabankastjóra), hagfræðingarnir og allur sérfræðingaskarinn að ekkert væri að óttast, fjármálin í góðu ásigkomulagi og engin hætta á gjaldþroti hjá einum né neinum.
Í dag segja ráðherrar ríkisstjórnarinnar og Seðlabankastjóri að ekkert sé að óttast, því Ísland skuldi svo lítið og gjaldeyrisforðinn sé svo stór. Allt muni verða í lagi og Íslendingar ráða niðurlögum kórónuveirunnar og snúa fljótt aftur til daglegs lífs.
Það er eins og ríkisstjórn Íslands sé Palli einn í heiminum og trúi að orðin skapi nýjan veruleika að þeim sögðum sem guði einum almáttugum er falið. Að orð forsætis- og fjármálaráðherra byggi töfrahjúp yfir eyjuna fögru og verji hana fyrir utanaðkomandi áföllum.
Eftir þrjá mánuði munu þessi orð reynd og sannleikurinn koma í ljós.
Sú heimskreppa sem nú vofir yfir fer létt með að tæma bæði ríkissjóð og gjaldeyrisforða á einu augnabliki.
Það sem bjargar Íslandi verður sem fyrr, lambakjöt og fiskur.
Stoltur forsætisráðherra á fámennum ársfundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.