Maurinn sem dreymdi um að stjórna fílaumferðinni
27.2.2020 | 09:48
"Núna stoppum við fílahjörðina" var það síðasta sem maurinn sagði við vin sinn áður en fílahjörðin tróð úr þeim lífið.
Logi Einarsson er í sömu stöðu með inngöngumiða í heimsveldi ESB sem tekur smáþjóðir í nefið.
Eftir hrun Samfylkingarinnar þarf hæfileika a la Bagdad Bob til að setja sig á háan hest og skipa öðrum flokkum fyrir.
"Ég vinn ekki með Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum"segir Logi sem haldinn er kópíeringsveiru á háu stigi með afritað misheppnað landakort sænskra sósíaldemókrata sem komnir eru niður í sögulegt myrkur 22% fylgis.
Formaðurinn gleymir því líka, að íslenska þjóðin hefur gott útsýni til SamfylkingarDags í Reykjavík með ljóskastara Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins.
Væntanlega veitir þjóðin báðum þessum framámönnum logandi fína útkomu í næstu kosningum.
Íslendingar elska lýðræðið en ESB ekki.
Lýðræðismál að kjósa að vori | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.