Lengi lifi skeggið
1.6.2019 | 19:13
ESB-þingmenn Alþingis segja að hinn aðilinn á EES-samningnum sé rosalega flottur og ekki megi anda á skegg yfirkommisjónerans til að móðga hann ekki. Eiga þeir fá orð til að lýsa hneykslun yfir óhlýðnum Íslendingum sem ekki falla á kné með höfuðið í átt að Brussel og þylja skeggbænina.
Stærsti óvinur EES-samningsins er sá sem:
- Fær engan endurskoðenda til að skrifa upp á bókhaldið í 20 ár
- Leyfir "stóru strákunum" að stíga á strik og svindla en hýðir þá minni sem misstíga sig
- Telur sig vera Guð friðar og telur skegglausa eiga að búa í helvíti
- Hendir út kjörnum fulltrúum fólksins fyrir erindreka skeggsins
- Hatar alla sem hugsa sjálfstætt
- Bannar andskeggjaðar hugmyndir
osfrv. osfrv.
Gegnum skeggið segja ESB-þingmennirnir að lýðveldið Ísland sé úrelt hugmynd. Það hafi virkað 1944 en ekki lengur. Að ríkisstjórnin sé framfarasinnuð og eigi sér bjarta framtíð við að snyrta skeggið í Brussel.
Á kostnað skattgreiðenda.
Valdið hjá Alþingi óháð fyrirvörunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.