Dýr er Sigurður allur - 21 milljarður króna
13.3.2017 | 05:26
Special price for you my friend - I will kill you for nothing.
Þannig hljómar tilboðið. En ekki einu sinni ISIS getur boðið slíkt. Allt kostar.
Það sem er dýrast fyrir þjóðina eru svik Sigurðar Inga Jóhannessonar og skyndismalaðs rútuliðs hans til að bola Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni úr formannsstól Framsóknarflokksins.
Sá sem hefði fengið 100 milljón evrur með því að taka þátt í útboðinu fær nú rúmlega 138 milljón evrur. Það er hægt að kaupa margar auglýsingar og ráða marga PR-menn fyrir slíkan mun" skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og óhætt að taka undir þau orð hans. Fyrst komu auglýsingar og PR menn. Síðan Panama-stórskotaliðið.
Þeir sem ákváðu að spila ekki eftir reglunum bættu í raun stöðu sína. Af útreikningum mínum í fljótu bragði sýnist mér þessir sjóðir hafa hagnast um 21 milljarð á því að bíða, með því að taka ekki þátt í útboðinu í júní, segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Kviku.
Veðmál vogunarsjóðanna gekk upp. Það hefði verið hægt að stíga þetta skref í dag án þess að semja við þá en með því er í raun verið að setja vogunarsjóðina í fyrsta sæti, segir Sigurður.
Viðreisn verðlaunar fjármálaskúrka með aðstoð Sjálfstæðisflokksins og setur þjóðina aftast á vagninn. Slíkt hefði ekki gerst, ef Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði setið þau fjögur ár sem þjóðin kaus hann til að gera.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Fjármál | Breytt s.d. kl. 05:57 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.